Vísir - 08.11.1969, Blaðsíða 1
Kviknaði í hjónarúmi -
lá við stórslysi á barni
Fimm ára barn var hætt kom
ið, þegar það f óvitaskap
kveikti f rúmi foreldra sinna,
svo að sængurföt og rúmdýn-
ur fuðruðu upp.
Var orðið alelda í kringum
drenginn, þegar 6 ára gömul
systir hans kom að honum,
en gerði síðan móður hans
viðvart. Sviðnaði hár hennar
Byggja
Loftleiðir
hótel /
SKJÖL UPPÁ270MILU.
SKIPTU UM CKCNDUR
og fékk hún brunablöðrur á
hendur, en hún bjargaði syni
sínum úr eldinum með naum-
indum.
Atvik þetta átti sér stað í í-
búðarhúsi að bænum Hækings-
dal í Kjós á miðvikudag, og
magnaðist eldurinn svo fljótt i
hjónarúminu, að bóndinn fékk
ekki við hann ráðið, en greip
til þess ráðs að loka herberginu
meðan beðið var eftir aðstoð
slökkviliðsins í í Reykjavik, sem
átti 70 km leið fyrir höndum,
áður en það komst á eldstað.
Þetta ráð dugöi þó, því að
með aðstoð nágrannanna, sem
drifu að frá næstu bæjum, tókst
að halda eldinum í herberginu
í skefjum. Var ausið á hann
vatni, sem sótt var í öllum til-
tækum lausum ilátum í á, er
rennur I bæjarlandinu — mjólk
urbrúsum og öðru.
Tókst fólkinu jafnvel að ráða
niðurlögum eldsins á eigin spýt
ur, áður en slökkviliðið bar að.
Drengurinn, sem hafði kveikt
í sængurfötunum, þegar hann'
var að fikta meö eldspýtur,
slapp með furðulegum hættivið
það aö fá svo mikið sem bruna
blööru.
Vita- og hafnamálastjóri, hafnarnefnd, bæjarstjóm Hafnarfjarðar
og ráðherrar skoða höfnina áður en afhending fór fram.
— Straumsvikurhöfn afhent — Þar hefur ekki
verið h'ófn frá 1473 jbar til nú
■ Straumsvíkurhöfn, sú
höfn landsins, sem get-
ur tekið stærstu hafskip
in, var afhent eigendum,
Hafnarf jarðarhöfn, í gær
við viðhöfn þar suður
frá. Skjöl upp á 270 millj
ónir króna eða það sem
farið hefur í gerð hafn-
arinnar, gengu yfir borð
ið frá einum aðilanum
til annars, þar til þau
komust í hendur f ulltrúa
eigenda.
Fulltrúi danska verkfræðifyr-
irtækisins, Christian Nielsen,
er hannaði höfnina fyrir Hafna-
málaskrifstofuna og sá um allt
eftirlit, afhenti hafnamálastjóra
með að höfnin fái fleiri verkefni,
t.d. ef sjóefnaverksmiöja verð-
ur reist á Reykjanesi, en einnig
hafa þeir fullan hug á að olíu-
hreinsunarstöð verði reist í ná-
grenni hafnarinnar.
Höfn hefur ekki verið í
Straumsvík- síðan 1473, þegar
þýzkum Hansakaupmönnum
tókst að hrekja brezka kaup-
menn úr Hafnarfirði, en þá
fluttu þeir sig um set.
Viðstaddir afhendinguna í gær
voru meðal annarra, Eggert G.
Þorsteinsson, hafnamálaráö-
lierra, fulltrúar verktakanna
Hochtief og Véltækni h.f., full-
trúar bæjarstjórnar Hafnarfjarð
ar og fulltrúar Fjarhitunar, sem
annaöist eftirlit fyrir Christian
Nieísen. Þessum aðilum vár boð
ið í siglingu á nýjum lóösbát,
sem Hafnarfjarðarhöfn hefur
keypt frá Stykkishólmi vegna
þessarar stækkunar.
Luxembourg?
■ Loftleiðir munu nú vera
Aðalsteini Júlíussyni öll skjöl,
en hann afhenti síðan Gunnari
Ágústssyni, hafnarstjóra í Hafn-
arfirði, skjölin, en hann tók við
höfninni fyrir hönd eigenda,
sem er Hafnarfjörður.
Upphaflega var áætlað, aö
gerð hafnarinnar kostaði 155
milljónir íslenzkra króna, en um
270 milljónir munu nú vera
komnar í hana, en mismunurinn
stafar af gengisbreytingunum
og kostnaði viö kaup á landinu.
Höfnin er dýpsta höfn landsins
í eigu Islendinga, 12 metra djúp
á stórstraumsfjöru og geta því
50.000 tonna skip lagzt við
bryggju, sem er 225 metra löng.
Þó að höfnin sé ekki alveg til-
búin enn hafa 5 álskip þegar los
að í höfninni, en reiknað er með
að um 1000 tonn muni fara um
höfnina á dag vegna álversins.
Það kom fram í gær, að eigendur
hafnarinnar hafa góðar vonir
að kanna grundvöll að þátt-
töku í byggingu hótels í Lux-
emburg ásamt öðrum aðilum.
Þessir aðilar munu aðallega
vera flugfélagið í Luxem-
burg, Luxair, auk hóteleig-
enda þar f landi.
Forráðaroenn Loftleiða vörð-
ust allra frétta um þetta mál,
þegar Vísir hafði tal af þeim
í gær, en einn þeirra sagði það
vera nær að ræða um stækkun
hótelsins við Reykjavíkurflug-
völl, sem lengi hefur verið í bí
gerð. Það mái er nú komið tölu
vert áleiðis, þó að endanleg á-
kvörðun hafi ekki verið tekin
um það, hvenær byrjað verður
á stækkuninni. Rúmlega 100
herbergi munu þá bætast við
Loftleiðahótelið, en heilli álmu
verður bætt við núverandi húsa
kost Loftleiða á Reykjavíkur-
flugvelli, þannig að húsasam-
stæðan myndar U.
Óvíst er, hvað úr þessu verð
ur, en hugsun Loftleiða með
þetta fyrirtæki er sennilega að
geta boðið farþegum sínum sér
stáka áningu 1 Luxemburg, áð-
ur en lengra er haldið f Evrópu.
Áningarfarþegum Loftleiða hef-
ur sífellt farið fjölgandi hér á
landi og hefur reynzt góður
grundvöllur fyrir hótelrekstur-
inn með aukinni nýtingu þess.
„Nýju f'ótin hjófanna" komu upp um þá:
Stálu þrein smóking-
um, frökkum og föt-
um fyrir 90 þús. kr.
□ Sagt er, að fötin skapi mann-
inn, og að betra brautargengi
í lífinu öðlist sá, sem að jafnaði
er fínn í tauinu... en, EN eng-
in regla er án undantekninga.
Það fengu þeir að reyná, 4 inn-
brotsþjófar, sem brutust inn í fata-
verzlun Andersens & Lauth við
Vesturgötu fyrir viku og klæddu
sig þar upp. Sjálfsagt höfðu þeir of-
anritað í huga.
En nýju fötin þeirra komu upp
þegar þeir fóru að ganga um „upp-
skveraðir“ í dýrum klæðum —
menn, sem enginn ætlaði að hefðu
efni á slíku.
Fyrir þetta bárust að þeim bönd-
in og við yfirheyrslur hafa þeir við-
urkennt þjófnaðinn, en alls stálu
þeir fötum og frökkum (og þrem
smókingum) fyrir um 90.000 kr.
verðmæti. Fóru þeir tvær ferðir
sömu nóttina í verzlunina til þess
að birgja sig upp, en mestallt þýfið
er nú komiö til skila til réttra eig-
enda
I