Vísir - 27.11.1969, Síða 16

Vísir - 27.11.1969, Síða 16
Fimmtudagur 27. nóv. 1969. RITSTJÓRN LAUGAVEGI 178 SÍMI 1-16-60 JloxflÆm ULTRÍÍ+LfíSH Mjög mikid úrval af snyrtivörum og jólagjafavörum PÉTUR PÉTURSSON HEILDV. - SUÐURGÖTU 14 Prentum stört sem smátt Freyjuaöhi 14' SJml 17667 20 ára gömul braut í Slippnum endurbyggð Tuttugu ára gömul braut í Slippnum í Reykjavík hefur verið í endur- byggingu. I gær og í fyrradag var unnið að því að steypa undir teinana fjörunni neðan við Slippinn og þá tók ljósmyndari Vísis þessa mynd. Aður höfðu kafarar kafað út með brautinni, sem liggur þar alliangt út í sjóinn. Skipt verður um teina og brautin öll endurnýjuð og verður því verki lokið innan tíðar. Fjölgar barnaslysum? • Daglega berast nú fréttir um slys á börnum í um- ferðinni, en svo virðist sem þeim sé nú að fjölga aftur. Eins og kunnugt er, hafa lög- regla og umferðaryfirvöld haft í frammi töluverðan á- róður til að vinna á móti barnaslysunum og bar þetta mjög góðan árangur um tíma. Hættulegasti tíminn í umferð inni er að vísu hafinn, en engu að síður virðist, sem fjöigunin sé meiri en árstím- inn einn gæti gefið tilefni til. • í gær skýrði Vísir frá þvf að tveir drengir hefðu slasazt í umferðinni. 1 gær varð svo 5 ára stúlka fyrir bif reið á Nýlendugötu. Hún mun ekki hafa slasazt mikið, en oft má lítið bera á milli um það, hversu alvarlegt slysið verður. Flest slysanna ber að með þeim hætti, að börnin hlaupa skyndilega í veg fyrir bifreiðarnar og ættu öku- menn sérstaklega að hafa það í huga og fylgjast vel með börnum að leik við götumar. Sambandið undirbýr aukna sölustarfsemi í Bretlandi Sfjórn SIS befur ekki tekið endanlega afstöðu til EFTA, segir Erlendur Einarsson Samband íslenzkra samvinnúfélaga hefur nú ákveðið að gera stórátak í sölu unninna fiskrétta í Bret- landi og er í því sambandi unnið að því að stækka og endurbæta fisk iðnaða'rverksiniðju, ''serrt sambándið hefur rekið í Yorkshire. Erlendur Einarsson, forstjóri SÍS, sagði í við- tali við Vísi i gær, að þessi ákvörð- un hefði ekki verið tekin beinlínis vegna hugsanlegrar aðildar íslands að Fríverziunarsamtökum Evrópu, heldur hafi ákvörðunin verið tekin áður en EFTA-málið kom upp núna. Innganga lslands í EFTA mundi hins vegar geta haft þau áhrif, að notaður yröi íslenzkur fiskur í fram léiðsiff verksmiðjunnar. íslenzkur freðfiskur hefur veriö of dýr á brezka markaönum á undanförnum árum, m. a. vegna tolla þar, en þetta gæti breytzt, ef ísland geng- ur í EFTA, þár sem þá fellur 10% tollurinn niður og Ísland gerist að- Sjónarvottar fæla þjófana oft burtu Lögreglan í Reykjavík átti ó- venjulega rólega nótt, — aðeins þremur hræðum stungið inn í Síðu- múla og ein tilraun gerð til inn- brots. Innbrotstilraunin var gerð í verzlun á Skúlagötunni. Þar var komiö að unglingspiltum aö tálga dyrastafinn í bakdyrum verzlunar- innar. Sjónarvottur gerði lögregl- unni viðvart, en þcgar hún kom á vettvang voru fuglarnir flognir. Að því er Páll Eiríksson, varðstjóri sagði Vísi í morgun gerist það æði oft, að sjónarvottar fæla innbrots- þjófa í burtu áður en þeir ná að gera lögreglunni viðvart. Nýta Loftleiíir RR-400 vélarnar í vöruflutninga? Samstarf Loftleiða og Luxair í Lúxembúrg um vöruflutninga á alþjóðamarkaði er í deiglunni. Hafa stjórnarmenn Loftleiða að undanförnu setið fundi til aö ræða samstarfið og í næsta mánuði stendur til að annar fundur verði haldinn. Sigurður Magnússon, blaðafulltrúi sagði i gær um þetta mál: „Verði af þessari samvinnu. virðist ólíklegt að Rolis Royce vélamar verði seldar, en þær henta vel í flutn- inga á vörum. Ég get enga ábyrgð borið á því, sem talsmenn Luxair kunna að segja um hugsanlega sam- vinnu við Loftleiðir, en það er rétt, að nýlega átti stjórn Loft- leiða fundi með framámönnum flugmála í Lúxembúrg um ýmis mál, sem hugsanlega geta orðið sameiginleg hagsmunamál Loft- leiða og Lúxembúrgarmanna. Að þessum fundum loknum fór stjórnin frá Lúxembúrg til að reka erindi Loftleiða annars staðar í Evrópu og er hún enn ekki komin heim. Engar fulln- aðarákvarðanir voru teknar á Lúxembúrgarfundinum í s.l. viku, en hins vegar gert ráð fyr- ir að framhaldsviðræður verði á næstunni, um þau mál, sem þar voru rædd. Á þessu stigi málsins, meðan allt er í öráðinni deiglu teljum við ótímabært og óheppilegt að gefa nokkrar upplýsingar um þær leiðír, sem íhugaðar hafa verið til hugsanlegrar samvinnu Loftleiða og Luxair, eöa Lux- air og annarra aðila, sem kunna að hyggja á nánari sam- vinnu við það félag.“ Yíttur fyrir um- mælin Ummæli Baldvins Þ. Kristjáns- sonar um Slysavarnafélagiö í út- varpsþættinum „Um daginn og veginn“ hafa dregið talsverðan dilk á eftir sér. Baldvin hélt því fram í þættinum, að Siysavarna- félagið ætti sök á því hversu dauft væri yfir félagsskapnum „Varúð á vegurn". Það hefði ver- ið vilji þeirra Siysavarnaféiags- manna, að kæfa jressa stofnun í fæðingu. Fyrir þessi ummæli sín hefur Baldvin fengið ákúrur hjá útvarpsráði, sem harmar að hann skyldi þannig hafa brotiö reglur útvarpsins um hlutleysi. Forseti Slysavarnafélagsins hef- ur sent frá sér yfirlýsingu vegna þessara ummæla. Þeir siysa- varnamenn segja, að hafi verið dauft yfir starfsemi „Varúðar á vegum“ sé það vegna áhugaleys- is aðildarfélaganna og fjárhags- erfiðleika. ili að lágmarksverðkerfi á brezka markaðnum. Sambandið stofnaði nýlega sölu- fyrirtæki með bandarískum aðilum, Iceland Product Marketing, en hvor aðili á helming í fyrirtækinu. Sagði Erlendur ætlunina, að þetta fyrirtæki ræki sölustarfsemi á brezka markaðnum fyrir utan bandaríska markaðinn, þegar fram líða stundir. Stofnun þessa fyrir- tækis er eitthvert hið mikilvæg- asta mál, sem SÍS hefur ráðizt í, sagði Erlendur. Það er höfuðmál i viðleitni okkar að byggja upp gott og lífvænlegt þjóðfélag, að við för- um að sinna sölumennsku meir en gert hefur verið, sagði hann. Að við leggjum áherzlu á að selja fullunn- ar neytendavörur, þar sem sveifl- urnar eru mjög litlar í stað þess að selja hráefni, sem er háð sveifl- um á heimsmarkaðnum. Erlendur sagði stjóm Sambands- ins ekki vera búna að taka endan-. lega afstöðu til EFTA. EFTA hefði sannarlega sína kosti. Það opnaði íslenzkum iðnaði góðan markað. Sem dæmi mætti taka, að sam-. vinnufélögin á Noröurlöndum hefðu lýst yfir vilja sínum til að kaupa ullar- og skinnavörur, en hingað til hefur þessi sala strandað á toll- múrunum. Þá hefði sjávarútvegur- inn mikið hagræði af EFTA-aðild-, inni og ætla mætti að landbúnaður- inn hefði nokkum hag af henni. f iðnaðinum virtist hagurinn vera misskiptur, hluti hans hefði mikinn hag af EFTA-aðild, en aðildin virt- ist vera andstæð hagsmunum hluta hans. Sambandið er umboðsaðili allra þessara starfsgreina, þannig að erfitt er fyrir það að taka end- anlega afstööu, sagöi Erlendur. /VWWWWWWWAA/W Aðeins 2-300 býli nf 4824 hafn enn ekki rafmagn Milli 200 og 300 býli á fslandi hafa ekkert rafmagn, enn sem komið er. AIls eru býlin á land' inu 4824 talsins, og hafa lang flest þeirra rafmagn frá sam sveitum. Ingólfur Jónsson, landbúnað arráöherra, upplýsti á Alþingi gær, að um 200 býli hefðu feng iö rafmagn á ári hverju að und anförnu, til dæmis 215 árið 1966 178 1967 og 119 1968. Heildarkostnaður við að leggja rafmagn hefur verið um 200 þús- und krónur á hvert býli. Kvað ráðherra ekki þurfa stórt áták til þess að hvert býli í sveitum landsins fengi rafmagn.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.