Vísir - 11.12.1969, Page 13

Vísir - 11.12.1969, Page 13
VÍSIR . Fimmtudagur 11. desember 1969. 13 fyaS er engu líkara en margar huldufólkssögur og ævintýri hafi orðið til sem eins konar spá sögur sem nú eru sem óðast að rætast. Það má segja að gandreiðin og töfrateppið séu nú í notkun um allan heim. Svo eru það sögurnar um ungu mennina, sem létu heill- ast af álfum. Þeim var opnuð sýn inn í hóla eða steina, þar sem ekki bar skugga á ,af ljósadýrð, glitrandi dýrgripum og silfur- strengjahljóðfærum. Sumir þess- ara ungu manna gleymdu sér við drykkju og dans og á meðan lok- aðist bergið, og þeir áttu aldrei afturkvæmt. Aðrir komust til baka oft fyrir hjálp kunnáttumanna, en samt urðu þeir sjaldan samir menn eftir. Davið Stefánsson og Sigvaldi Kaldalóns lýsa þessu með sinni al- kunnu snilld í ljóði og tónum í „Hamraborginni". Það skyldi þó ekki vera að einmitt þessar sögur séu að gerast núna hér hjá okkur. Eru ekki margar pophljómsveita- skemmtanir líkar því sem fram fór í „Hamraborginni". Jú, þar er dansað og drukkið, og þar er leikið á silfurstrengi. Síðhærðar afkára lega klæddar hljómsveitir hrista sig og skaka á hinn herfilegasta hátt. Margir unglingar láta heill- ast af öllu þessu, og ég er hræddur um að þeir sem sækja oft þessa staði verði seint jafngóðir eftir. Þessa popunglinga eða hippía, mun ég kalla álfa, því þetta eru álfar nútímans. Ég tel þó að þeir álfar standi hinum gömlu að baki, sér staklega í því að hirða sig. Þess væri aldrej getið að gömlu; álfamir væru illa hirtir og líkástir sfiepl- óttum hundum. Þvert á möti var sagt að hinir gömlu álfar hefðu ver ið vel hirtir og snyrtilega til fara. En tímamir breytast og álfarnir með. Nýtízkuálfamir láta sér fátt óviðkomandi. Kröfugerð og heimtu frekja þeirra í garð annarra er takmarkafaus. Foreldrar, kennarar og aðrir fqrráðamenn em dæmdir Opiö alla daga Sími 84370 Aðgangseyrir. kL 14—19 kr. 35. kl. 19.30—23.00 fcr. 45. Sunnud. kl. 10—19 fcr. 35. fcL 19.30—23.00 fcr. 45.00 10 miðar kr. 300.00 20 miðar kr. 500.00 Ath. Afsláttarkortin gilda alla daga jafnt. Skautaleiga kr 30.00 Skautaskerping kr 55.00 Iþrótt fyrir alla fjölskyld- uao. óalandi. Þeir heimta að fá öllum sínum líkamlegu þörfum fullnægt í ríkum mæli, án þess að leggja nokkuð af mörkum sjálfir. Út; í löndum er þessi lýður að verða hreinasta plága. Þeir taka skóla c„ hús sem aðrir eiga í sína vörzlu, kveikja í húsum og bílum og eyöi- leggja flest sem þeir geta, Með þessum aðferðum segjast þeir svo ætla að skapa betri heim!! í Morgunblaðinu 7. sept ’69 er grein um erlenda nútímaálfa. Þar er því haldiö fram í fyllstu alvöru, að þetta sé hin nýja kynslóð, sem leitar frelsis og friðar. Eftir mynd- unum að dæma sem fylgja grein- inni gæti manni frekar dottið i hug, að þetta væru sálsjúkir vesal- ingar, heldur en að þama séu frelsarar heimsins á ferð. Þessu til frekari sönnunar læt ég fylgja hér orðrétt úr greininni: „I Bethel voru langflestir undir áhrifum eiturlyfja og mest var notað af „marihuana“. Yfir svæðinu sveif sætilmandi reyk ský frá þúsundum af maríhuana- vindlingum. Einn af mótsgestum dó af of stórum skammti og hundr uð veiktust, eftir að hafa notað slæma tegund af LSD.“ Það er stórfurðulegt hve margir áhrifamenn gera miklar gælur við ofbeldis, víndrykkju og heimtu- frekjulýðinn, sem veður upþi i skemmtanalífinu, skólunum og ýmsum pólitískum og ópólitískum félögum. Allt eru þetta greinar af sama meiði, sem miða að því að kollvarpa núverandi þjóðskipulagi. Það er áreiðanlegt að Kremlverj- um og Maoistum hlær hugur í brjósti, þegar'-þeir, sjá vesaldóm ___i____ r_____*__ðKkt ----- vestrærina forustumlnhá1 -gágnváH nútímaálfuriúm. Þegar þeir eru búnir að eitra og sýkja þjóðirnar, þá má segja að brautin sé vel rudd fyrir hina austrænu ofbeldis stefnu. Eitt af því sem þessi lýður lítur illu auga er kirkjulegt starf. Þeir gerðu jafnvel tilraun til að troða sér inn í kirkjumar hér í borg. Þar gerist sama sagan, jafn- vel ágætir kennimenn létu glepj- ast, en líklega verður komið í veg fyrir að þeir nái taki á hurðar- hringnum, því þá gæti farið líkt og í „Dansinum í Hruna“.' Tilbeiðsla, trú og hátíðleiki fyki út í veður og vind. Kirkjulegt starf hryndi. Og það er einmitt einn liður í áætlun nýtízku álfanna. Sem bet- ur fer er þaö lítill hluti unglinga, sem hefur látið gepjast. Það sann- aöi pophátíöin í Laugardalshöll- inni, Með miklu auglýsingabramb- olti tókst að hóa saman ca. 4000 unglingum af öllu Faxaflóasvæð- inu, og sennilega víöar að. Fram- kvæmd og fjármál þessarar „há- tíðar“ lofar ekki góðu þegar sú stund rennur upp er popkommalið- ið tekur völdin í landinu. Hættuleg asta álfahreyfingin grefur um sig innan skólanna. Þó er þaö lítill hluti skólaæskunnar, sem hefur Iátið blekkjast. En þetta er harð- snúið og vel skipulagt lið, og þeir tíðum hundeltir sem neita að taka þátt í álfadansinum. Það er höfuð- nauðsyn að forustumenn þjóðar- innar og þjóðin sjálf taki höndum saman gegn heimtufrekju og upp lausnarlýörium f tæka tíð. Ég ætla að minnast á samtal sem birtist i popblaðinu „Jónínu“, þar sem einn unglingur er spurður, hvaöa áhugamál hann hafi önnur en pop- hljómlist og skemmtanir. Svarið var eitthvað á þessa leið: „Ja, það er nú þaö. Ég hef engin áhugamál önnur.“ Sem sagt: Engin áhugamál, engin stefna, aðe:"s .eitt núll. Full- skapaður álfur á ferð. Og nú reyn- ir á kennimenn eins og áður fyrr, að reyna að hjálpa unglingunum út úr berginu, svo þeir greini aftur hinar fögru hliðar lífsins, og temji sér þá hógværð, reglusemi og hjálpsemi sem er forsenda þess að hægt sé að lifa hamingjusömu lffi hér i heimi. Hjálpið þeim að til- einka sér göfugar hugsjónir fram- fara og bjartsýni. Ég vona að týndu synirnir og dæturnar kom- ist út úr berginu sem fyrst. Þá mundu allir góðir menn gleðjast með þeim, og ef til vill slátra ali- kálfi eins og forðum við heimkomu týnda sonarins. Ingjaldur Tómasson. ÍM TIL JÓLAGJAFA: MS VIÐ BJÓÐUM YÐUR Á ÓTRÚLEGA LÁGU VERÐI SKATTHOL Verö kr. 7.860. Sófasett • Skrifborð • Símaborð Inaskotsborð • Stólar (stakir) Sófaborð • Vegghillur • Frúarstóll KOMIÐ, SKOÐIÐ, SANNFÆRIZT. ÓDINSTORG HF. húsgagnadeild Skólavöröustíg 16 — Sími 14275 'i 'i •' II I / Ú - I• t! i't 1"! r s LANDVÉLAR StF. Síðumúla 11 - Simi 84443 Ívlt&ia$wluxð Magnús E. Baldvinsson Laugavegi 12. — Sími 22804. © Notaðir bílar til sölu <& Höfum kaupendur að Voikswagen og Land-Rover bifreiðum gegn staðgreiðslu. Til sölu í dag: Volkswagen 1200 ’56 ’59 ’62 ’63 ’65 ’68 Volkswagen 1300 ‘66 ‘67 ‘68 ’69 Volkswagen Fastback ’66 ’67 Volkswagen sendiferðabifr. ’66 ’68 Volkswagen station ’67 Land-Rover bensín ’62 ’63 ’64 ’65 ’66 ’67 ’68 Land-Rover dísil ’62 Willys ’66 ’67 Fíat 600 fólksbifr. ’66 Fíat 124 ’68. Fíat 600 T sendiferðabifr. ’66 ’67 Toyota Crown De Luxe ’67 Toyota Corona ’67 Volvo station ’55 Chevy-van ’66 Chevy Corver ’64 sjálfskiptur m. blæju. Volga '65 Singer Vogue ’63 Rússajeppi Gaz. ’66 Benz 220 ’59 Við bjóðum seljendum endurgjaldslaust afnot af rúpigóðum og giæsilegum sýningarsal okkar. S'imi 21240 Laugavegi 170-172 Bezt að auglýsa í Vísi I

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.