Vísir - 08.01.1970, Blaðsíða 4
Viö, sem vinnum
eldhússtörfin
18 ára gömul húsmóðir i Nor-
folk í Virginíu-fylki, Dolores Hell
er að nafni, leiddi nýja árið inn
á heimili sitt með skothvelli frá
haglabvssu. Hún skaut boa- risa-
kyrkislöngu í eldhúsinu sínu.
i Hún kom auga á halann á
slöngunni á iði undir ísskápnum
' sínum og lét sér ekki verða meira
t bilt við en svo, að hún dró slöng
una út á halanum, og skaut hana
með haglabyssu eiginmannsins,
■ sem rauk upp af blundi úr sóf-
anum inni í stofunni, og ætlaði
varla að trúa sírum eigin augum,
i þegar hann sá morgunafrek eigin
, konunnar.
Engin skýring hefur fengizt á
* því, hvemig slangan komst inn i
t húsið.
Dýraveradunarlög
Krókódílar eignuðust nýjan vin
' i raun um daginn, sem er John
» Lindsay borgarstjórinn i New
, York. Hann beitti sér fyrir samn
ingu laga, sem gengu i gildi 1.
jan. og banna sölu á vamingi úr
1 skinni ameriska „alligators“-ins.
, Þung viðurlög em viö broti á
þessum lögum, eins árs fangelsi
eða 1000 dollara Sekt. Þetta er
\ gert til vemdar dýrinu, sem ligg
, ur við útrýmingu vegna ásóknar
skinnasala.
!
I
I
Omar Sharif, kvikmyndaleikar
inn égypzki, lifir sko ekki á kvik
myndum éinum saman. Hann spil
ar einriig bridge og hefur kom-
ið á fót svonefndum Bridge-sirk-
us Sharifs.
Omar Sharif hefur lengi látið
f veðri vaka við blaðamenn, að
hann dreymi um að hætta kvik-
myndaléik, en snúa sér f þess
stað að bridgéspilamennsku, sem
hann er allleikinn í. M.a. hefur
hann spilað í landsliði Egypta-
lands á ólympíumótum, og þótt
hann skara fram úr mörgum öðr-
um og standa ekki langt að baki
þekktustu meisturunum.
Engar horfur eru á því, að
hann hætti kvikmyndaleik f bráð,
en hinn hluti draums hans viröist
ætla að rætast, þvf að á næstunni
mun Bridge-sirkus hans keppa
við nokkra kunna enska bridge-
meistara f rúbertubridge og eru
engir smámunir f húfi — 100
sterlingspund um hverja 100
punkta, auk einhverra hliðarveð-
- mála, en alls. verða spilaðar 100
rúbertur og veröur keppnin á
Picadilly-hóteli.
Kunnugir telja að þarna verði
þv,i spilgð um 10 til 15 milljónir
íslerizkr'a króna.
í Bridge-sirkus Sharifs eru erigir
kvisar í iþróttinni, en auk hans
eru Giorgio rtpfiadonna og Benito
Garozzo (báðir meðlimir ítalska
landsliðsins f bridge, sem haldið
hefur heimsmeistaratitlinum ó-
slitið í 11 ár), Yalloze og Del-
mouly (báðir hafa spilað með
franska l'-dsliðinu annað hvort
í Evrópumótum, Ólympíumótum,
eða heimsmeistarakeppnum).
Englendingarnir, kappar
Sharifs spila við eru Jeremy
Flint og Jonathan Cansino, sem
þekktir eru um meginlandið allt
fyrir spilahæfni, en Flint hefur
spilað í brezka landsliðinu og
skrifað bækur og greinar um
bridge.
Ráðgert er aö sjónvarpið
brezka taki kvikmynd (í litum)
af keppninni, og til þess að
tryggja sér sæmilega aðsókn að
keppninni, hafa Englendingar
sett það skilyrði, að Sharif spili
minnst % hluta keppninnar.
)
)
hreinsarans
Martröð gluggahreinsarans varð
að veruleika. Svífandi milli him-
ins og jarðar — f 160 metra hæð
yfir malbikinu lifði gluggahreins
ari í Toronto i Kanada augnablik
in, sem sérhver gluggahreinsari
óttast og vonar að aldrei hendi
hann.
Ásamt vinnufélaga sínum vann
hann í lyftustól utan á einu há-
hýsi borgarinnar, þegar sigút-
búnaður stólsins stóð skyndilega
á sér og hættan vofði yfir.
Þeim tókst þó að vekja athygli
á örðugleikum sínum, og slökkvi
liðsmenn komu þeim til hjálpar.
Kaðlar voru látnir sfga niöur
til þeiria ofan af þaki hússins,
og hér á myndinni sést lokaatriði
björgunarinnar, þegar glugga-
hreinsaranum er hjálpað upp á
þakið.
Engan skyldi undra þótt
manninn dreymdi ekki vel næstu
nætur.
••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
Lítt hrifnir af
pelsunum hennar
"X ;■
Ginu Lollobrigidu
ítalska kvikmyndastjaman,
Gina Lollobrigida, hefur egnt
dýraverndunarsamtök í Bretlandi
upp á móti sér... eða öllu held-
ur er það innihald klæðaskáps
hennar, sem gerir þeim gramt í
geði, en þar er nefnilega að finna
meðal annars sex .nýlega pelsa
og þar af er einn maxípels úr
tígrisskinni.
„Við gerum ráð fyrir, að leik
konan eigi þama skinn af
minnsta kosti 250 dýrum", sagði
einn af talsmönnum samtakanna.
„Það hefur þurft minnst 10
tfgrisdýr til bes^ að fá nóg skinn
f maxípelsinn, en almennt er tal
ið, að eftir séu aðeins um sex
hundrúð tígrisdýr í heiminum",
sagöi maðurinn ennfremur, —
„en það táknar að ein einasta
kona beri á herðum sér einn sex-
tugasta hluta af öllum stofnin-
um.“
Hin 41 árs gamla leikkona kom
til Lundúna um áramótin, en þar
átti hún að koma fram í sjón-
varpi með fimm maxípelsa —
einn ú tú "isskinni, einn úr hlé-
barðaskinni, tvo úr jagúarskinni,
einn úr zobelskinni og tvo mini-
pelsa úr minkaskinni.
Lafði Dowing er kona, sem
gegnir formennsku fyrir samtök
um, er beitt hafa sér fyrir því,
að kvenfólk gangi ekki f klæðn-
aði, sem hafi leitt af sér kvalir
fvrir skepnur. Frúin lawði einnig
orð í belg um klæðnað Ginu Lollo
brigidu og sagði, að hún væri jú
ekki lengur ung og hún
væri hrædd um, að pelsamir und
irstrikuðu því miður aldur leik-
konunnar.
Til þess að sýna enga hlut-
drægni báru blaðamenn þessi um
mæli undir leikkonuna, sem sagð
ist halda, að aðeins hefði þurft
þrjú tígrisskinn f maxipels ’-ann
ar, og bar hún í bætifláka fyrir
sig með þvf, að tígrisdýrin hefðu
verið þegar dauð, þegar hún fór
á stjá í fatakaupin.
Gina Lollobrigida í jagúarpels
með silfurrefaskinni um kragann,
en þessi mynd var tekin, pegar
leikkonan ’ til Lundúna fyrir
sjónvarpsupptökuna um áramót-
in.