Vísir - 08.01.1970, Side 15

Vísir - 08.01.1970, Side 15
VlSIR . Fimmtudagur 8. janúar 1970. /5 KENNSLA MÁLASKÓLINN MÍMIR Lifandi tungumálakennsia. Enska, danska, þýzka, franska, snánska, ítalska, norska, sænska, rússneska, íslenzka fyrir útlendinga. Innritun kl. 1—7 e. h. Símar 10004 og 11109. Húsbyggjendur — tréverk — tilboð Framleiðum eldhúsinnréttingar, svefnherbergisskápa o.fl. Höfum allar tegundir harðplasts. Harðvið: álm, eik, tekk, palisander. Teiknum og leiðbeinum um tilhögun. Gerum fast verðtilboð. Greiöslufrestur. Uppl. á verkstæðinu. — Hringhraut 121 III hæð og í síma 22594 eftir kl. 7. _ Gíerþjónustan Hátúni 4a, sími 12880 Einfalt og tvöfalt gler. Setjum í gler. Fagmenn. Góð þjónusta. HÚSBYGGJENDUR HÚSEIGENDUR Getum bætt við okkur hvers konar smíði, svo sem ' mótasmíði, breytingum á eldri húsum, endurnýjun á ■ gluggum og gleri, lánum vinnupalla til verksins ef þarf. , Látið faglærða menn annast verkið fyrir yöur. Símar 83462 og 14968. Radíóþjónusta Bjarna, Síðumúla 7, sími 83433 Önnumst viðgerðir á útvörpum og sjónvörpum. Leggjum sérstaka áherzlu á bifreiðaviötæki og allt sem þeim viö kemur. HÚSAÞJÓNUSTAN SÍMI 19989 RAFTÆKJAVINNUSTOFAN Sæviöarsundi 86. Sími 30593. — Gerum við þvottavélar, eldavélar, hrærivélar og hvers konar raftæki. Einnig nýlagnir og breytingar á gömlum lögnum. — Haraldur GCCmundsson lögg. rafverktaki. Simi 30593. HÚSAVIÐGERÐIR — 21696. Tökum að okkur viðgerðir á húsum úti sem inni. Setjum f einfalt og tvöfalt gler. Skiptum um og lögum þök, einnig þéttum viö sprungur og steyptar rennur. Otvegum allt efni, Upplýsingar i síma 21696, SVEFNBEKKJAIÐJAN m BÓLSTRUN1 Klæðum og gerum upp bólstruð húsgögn. Dugguvogi 23. simi 15581. Fljótt og vel unnið Komum með áklæðissýnishom. Ger- um kostnaðaráætlun ef óskað er. Sækjum — sendum. ER LAUST EÐA STÍLFAÐ? Festi laus hreinlætistæki. Þétti krana og WC-kassa. — Hreinsa stífluð frárennslisrör með lofti og hverfibörkum. Geri viö og legg ný frárennsli. Set niður brunna. — Alls konar viðgerðir og breytingar. Þjónusta allan sólarhring- inn Simi 25692. Hreiöar Ásmundsson. GLUGGA OG DYRAÞÉTTINGAR Tökum að okkur að þétta opnanlega glugga, útihurðir og svalahurðir með „Slottslisten" innfræstum varanlegum þéttilistum, nær 100% þétting gegn vatni, ryki og drag- súg. Ólafur Kr. Sigurösson og Co. Sími 83215 frá kl. 9—12 f.h. og eftir kl. 19 e.h. Plasthúðun — húsgagnamálun Plasthúöa og mála húsgögn, bæði gömul og ný og lausar innréttingar. Látið plasthúöa eða mála gömlu húsgögnin og gera þau sem ný. Fljótleg og vönduð vinna, sann- gjarnt verð. Húsgagnamálun, Barónsstíg 11A bakhús. — Sími 19840. — Geymiö auglýsinguna. HEIMILISTÆKJAVIÐGERÐIR Gerum við allar tegundir beimilistækja Kitchen Aid, Hob- art, Westinghouse, Neff. Mótorvindingar og raflagnir. Sækjum sendum. Fljót og góð þjónusta. Rafvélaverkstæði Eyjólfs og Halldórs. Hringbraut 99. Sfmi 25070. Vélritun — fjölritun. Þórunn H. Felixdóttir Tökum að okkur alls konar vélritun og fjölritun. Kennum einnig á rafmagnsritvélar. Áherzla lögð á vandaða vinnu og fljóta afgreiðslu. — Vélritun — Fjölritun s.f., Granda- garöi 7, sími 21719. BIFREIÐAVIÐGERÐiR ALSPRAUTUM OG BLETTUM BÍLA úr hinum heimsþekktu VIEDULUX-bílalökkum. Bfllinn fær háan varanlegan gljáa. Bílasprautun Kópavogshálsi. Sími 40677. BÍLASTILLING DUGGUVOGI 17 Kænuvogsmegin. Bifreiðaeigendur. Framkvæmum mótor- stillingar, ljósastillingar, hjölastillingar og balancermgar fyrir allar gerðir bifreiöa. Sími 83422. fökum að okkur fast viðhald á fjölbýlishúsum, hótelum 1 og öörum smærri húsum hér í Reykjavík og nágrenni. • Límum saman og setjum í tvöfalt gler, þéttum sprungur og rennur, járnklæöum hús, brjótum niður og lagfærum • steyptar rennur, flísar, mosaik og margt fleira. Vanir og . vandvirkir menn. Kjörorð okkar: Viðskiptavinir ánægöir. Húsaþjónustan. Sími 19989. ----- 1 ---------------■ ■ 1 ...............r— Glertækni hf. Ingólfsstræti 4, sími 26395. ' Ný þjónusta. Framleiðum, tvöfalt einangrunargler og sjá- um um ísetningar og einnig breytingar á gluggum og viö- hald á húsum, skiptum um járn og þök o.m.fl. Afborgunar- skilmálar. Vanir menn. Glertækni h.f. Ingólfsstræti 4, sími 26395 Heimasímar 38569 og 81571 ER STÍFLAÐ? Fjarlægi stiflur úr vöskum, baðkerum, WC rðrum og niðurföllum. Nota til þess loftþrýstitæki, rafmagnssnigla og fleiri áhöld. Þétti krana set niöur brunna, geri við biluð rör og m. fl. Vanir menn. Valur Helgason. Slmi 13647 og 33075. Geymið auglýsinguna. ÁHALDALEIGAN SlMl 13728 LEIGIR YÐUR múrhamra með borum og fleyg um, víbratora fyrir steypu, vatnsdælur, steypuhrærivél- ar, hitablásara, borvélar, slipiroltka, rafsuðuvélar. Sent og sótt ef óskað er. — Ahaldaleigan Skaftafelli viö Nesveg, Seltjarnarnesi. Flytur isskápa og píanó. SimJ 13728. BÍLASKOÐUN & STILLING Skúlagötu 32. HJÓLASTILLINGAR MÖTORSTILLINGAR LJÚSASTILLINGAR Látið stilia i tíma. A Fljót og örugg þjónusta. I 13-10 0 2 Þvínæst stillti hann viðtækið á brezka stöð. Náungi söng með Lundúnaframburði og neftónum: „Þú ert mitt sólskin ...“ Leech spýtti um tönn yppti brúnum og ávarpaöi hinn dauða ferðafélaga sinn öðru sinni: „Öll skemmtun fær endi, ekki vantar það... Og maöur er allt af manns gaman jafnvel þótt dauöur sé.“ Hann þagnaði, því að nú nálg- aðist hann varðstöðina, þar sem hreyfilhljóöiö hafði orðið til þer.s að herlögreglumennirnir litu sertv snöggvast annað en í austur og vestur, þar sem meginleiöimar lágu, en beindu þess í stað augum sínum í suöurátt út yfir opna auðnina. Leech kom á veginn þegar hann átti um himdrað metra ó- fama að varðstöðinni, ók hratt, hemlaöi ekki fyrr en á síðustu stundu. Lögregluforingi steig fram um skref. „Skilríki, herra minn?“ sagði hann. „Hvað'.. er það ökuskírteinið, sem þú ert að spyrja um?“ Leech lagði alla þá fyrirlitningu sem hann hafði á þjálfuöum hermönn um og skipulagðri hermennsku, i röddina, þegar hann afhenti for- ingjanum skilríkin. Hann terrði upp þumalfingurinn þegar foring inn hafði lokiö athugun sinni: ,JÉig jgeri ekki ráð fyrir að þú stzefifr isafin um skilríki, þennan“, sagði hann og benti á ferðafélaga sinn. „Eða hvað?“ Foringinn afhenti Leech aftur skilrikin, virti hinn dauða liðs- foringja fyrir sér andartak, þaö brá fyrir hörku í svipnum, en hann sagði ekki neitt. Bar svo höndina aö húfuskyggninu og benti Leech að aka áfram. Leech ók ‘fram hjá honum og hló og þaö fór ósjálfrátt ónotahrollur um lögregluforingann. Aðalbækistöðvunum hafði ver- ið valið heldur óglæsilegt um- hverfi, i miðju, arabísku þorpi, austur og suöur af E1 Alamein, og þær voru jafnvel sóðalegri og óskipulegri en þorpið í kring. — Hvar sem nokkurt rými var, unnu menn aö því að lagfæra Iöskuö ökutæki og setja saman skotvopn, þeir hlógu oft og kölluðu hver til annars á jafnólikum málum og mállýzkum og klæðnaður þeirra var. Enda þótt þeir virtust ekki fara sér að neinu óöslega, var hvert handtak þeirra hnitmiðað, sérhver höfuöhnykkur við átak mótaður af dulinni ákefð og kappi. Rimlagrindurnar í hliðinu á girð ingunni kringum bækistöðvamar skullu upp fyrir krafti jeppans, og Leech ók svo hratt gegnum hliöið að þær sveifluðust ekki til baka fyrr en hann var kom- inn í gegn. — Hann stööv- aði ökutækið á miðju, þröngu svæði hallaði sér andartak fram á stýrið en rétti svo skyndilega úr sér eins og til merkis um að hann tæki ekkert mark á þreytunni. Þegar hann drap á hreyflinum varð allt skyndilega hljótt í kring mennimir lögðu gætilega frá sér áhöldin, störðu spyrjandi augum á þá, sem í jeppanum sátu, þann lifandi og þann dauða. Leech kleif rólega niður úr ekilssætinu, stóð svo kyrr andartak og studdi sig við hreyfilskjólið, og það lék hörkulegt glott um herptar var- irnar, og sló köldu bliki á augun þegar hann horfði yfir að dyrun um á einni byggingunni. Slitinni ábreiöunni, sem not- uð var fyrir dyratjald, var ýtt til hliðar og Masters höfuðsmað ur kom út, nam staðar andar- tak á meðan augun vom að venj ast sólskininu. Hann var maður hár vexti, hirðuleysislega klædd ur í borgaraleg föt, buxur sem hann virtist hafa sofið i nóttum saman, prjónaöa mussu óhneppta með leðurbótum á olnbogum, sokkalaus var hann, en með arab íska ilskó á fótum, órakaður. — Hann hikaði andartak, svipurinn gersamlega rólegur en þó vottaði fyrir áhyggjum í björtum augun um. Hann gekk svo að jeppan- um og á eftir honum kom ungur liðsforingi í hreinum og strokn um einkennisbúningi og bar sig hermannlega. Leech virti þessa gagnólíku menn fyrir sér, þegar þeir nálguðust, reyndi að gera sér grein fyrir styrkleika þeirra og veikleika hvors um sig. Hann þekkti Masters höfuðsmann, unga liðsforingjann Attwood, þekkti hann ekki neitt. naumast f sjón, helzt af oröspori. Leech gerði sér ljóst að hann þyrfti ekki að ótt- ast Masters höfuösmann, hann kunni tökin á honum og höfuðs- maðurinn þurfti á allri aðstoö hans að halda. Hvað Attwood snerti, þá var hann ómerkileg persóna í sjálfu sér, einungis hættulegur fyrir það að hann var annað eyra Blore herforingja, æðsta manns skæruliðadeildanna. Þeir Masters og Attwood virtu hann fyrir sér, eins og þeir geröu, mennimir er höfðu safnazt um- hverfis jeppann. Loks tók Mast- ers höfuðsmaður til máls og það var ekki laust við, aö ásökunar- hreimur væri í röddinni. „Hvað kom fyrir Karinski? Og Möltumennina tvo? og Achmet? Leech yppti öxlum, bandaöi frá sér með höndunum. „Ég kom með unga liðsforingj-. an aftur, eins og þiö sögðuð mér. Þá hina skildi ég eftir“, svaraði hann. Masters höfuösmaður leit á dauða liðsforingjann í sætinu, s£ð an hliðhallt á lifandi liðsforingj- EFTIR ZEN0 ann, sem hjá stóð, herráösforingja Blore, eins og hann vildi sjá við brögð hans. Hann haföi meiri ótta af Attwood en Leech hafði, því að Masters vissi sjálfur bezt hve allt var í óvissu um framtíð skæruliðasveitarinnar, sem laut yfirstjórn hans. Hann leit aftur á Leech. „Hvað gekk úrskeiðis í þetta skiptið?" spuröi hann. Leech leit upp, þreytulegur á svipinn. Hann hafði megnustu andúð á því að vera krafinn ná- kvæmra skýringa eða frásagnar af atburðum. Skeð var skeð og varð ekki aftur tekið frá hans sjónarmiði. „Viö áttum ekki ófarnar nema um tuttugu mílur, þegar sveit árásarflugvéla kom auga á okk- ur“. Attwood tók til máls f fyrsta sinn í þetta skiptið. „Og hvað kom fyrir Evans liðs- foringja, nákvæmlega frá skýrt?“ Leech yppti öxlum. „Ekki annað en það, að hann varð fyrir skoti“. Masters leit snöggt á Attwood og sá greinilega, eða öllu heldur fann, andúðina og fyrirlitninguna í svipnum á vandlega rökuðum vöngunum og f unglingslegu augnatillitinu. Hann ákvað aö ræða einslega við Leech seinna meir. „Við tölumst viö á eftir“, sagði hann. Þegar þú hefur þvegið þér og jafnað þig“. Attwood leit á armbandsúr sitt, án þess að gera minnstu til- raun til að leyna því.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.