Vísir - 27.01.1970, Side 5
V í S I R . Þriðjudagur 27. janúar 1970.
5
Sportlegur fólksbíll
Ford Capri vinsæll hjá Dönum
t skoðanakönnun, sem danskt
tæknitímarit efndi til meðal
lesenda sinna fyrir áramótin
um „bíl ársins“ kom í Ijós, að
Ford Capri virtist vera drauma
bíll Dana.
Af þeim 12 tegundum, sem
valið var á milli, hlaut Ford
Capri flest atkvæöin, eða 5663
af 16226 atkvæðum, en í öðru
sæti varð Peugeot 504 meö
2907 atkvæöi, í þriöja sæti Opel
G.T.. Austin Maxi í fjórða og
Fíat 128 í fimmta sæti.
Engin ástæða var til aó ætla
annað en lesendur veldu þarna
þann bílinn, sem þeim lék mest
ur hugur á að eignast, því að
atkvæðaseðlamir giltu sem happ
drættismiðar, og vinningurinn
átti að verða sá bíllinn. sem vin
sælas'tur þætti.
Ford Capri er framleiddur í
mörgum útgáfum, ef svo má
segja. Það eru 1300, 1300 GT,
1600 GT, 2000 GT og 3000 GT,
og af hverri og einn; þessara
tegunda eru til sérafbrigði. Þaö
var Ford Capri 1600 xL, sem
efstur var í huga Dananna, en
það er tveggja dyra, fjögurra
manna bíll með „coupé"-lagi. í
honum er 4 strokka vél með
1599 rúmsenti metra slagrúmtak
og eru fjórar gangskiptingar,
allar samhæfðar (synkroniserað-
ar) með skiptistöng i gólfi.
Þaö þarf svo sem ekki marga
að undra, þótt Ford Capri gangi
í augu fólks, því að fáir evr-
ópskir bíiaframleiöendur hafa
lagt sig jafnmikið í líma við að
ganga til móts viö óskir almenn
ings og beinlínis gengið út á
götur.og spurt fólk að því, hverj
ar væru þess öskir um bíla. Úr
þeim tillögufjölda, sem þannig
fékkst var svo unnið (þetta var
1965) og svariö var Ford Capri.
Það er fyrst og fremst útlit
bílsins, sem höfðar til kaupand
ans. Hann er sportlegur og þaö
er einhvers konar lúxusbragð
af honum, þegar maður sér bíl
inn á götu, en þó er hann ekki
sportbíjl.
Framsætin í þessum bil minna
á stóru amerísku lúxusbílana.
En sportútlitið og hið aukna
rými frammí, hefur kostað eina
fórn — nefnilega rýmið afturi.
Þar er lágt undir loft og þröngt
um meðalleggjalanga menn, og
afturgluggar hindra farþegumút-
sýni á ferðalögum. Stólbakið aft-
ur í stendur líka nokkuð hátt,
svo aö ökumaður sér ekki of
vel aftur fyrir, þegar hann ek-
ur bílnum afturábak.
Hins vegar er þægilegt at-
hafnarými fyrir ökumann við
stjórntækin og gott að aka bíln
um, og vel eru mælaskífur sjá-
anlegar úr eðlilegri setustöðu
ökumanns. Á mælunum eru
skágler, svo að ekki ehdurkast
ast ljósgeislar af þeim.
Stutt skiptistöngin gerir það
að verkum, að það er fljótlegt
að skipta bílnum milli gira, enda
er bíllinn liðlegur í umferö, og
raunar skemmtilegur í akstri á
góðum vegum. Hann liggur á-
gætlega á vegi í beygjum, þótt
á miklum hraða sé. En á vond-
um, holóttum vegi lætur aftur
endi bílsins illa, sem stafar
sennilega af stífri fjöörun að
aftan.
Ford Capri mun kosta ódýr-
ast um 270.00 kr., en dýrustu
tegundir líklega um 360.000 kr.
UTSALA -UTSALA-UTSALA
Föt — frakkar
jakkar — buxur
STÓRLÆKKAÐ VERÐ
ANDERSEN & LAUTH H.F.
Vesturgötu 17 — Laugavegi 39
© Notaðir bíiar til sölu <&
Höfum kaupendur að Volkswagen og
Land-Rover bifreiðuni gegn staðgreiðslu.
Til sölu i dag:
Volkswagen 1200 ’55 ’62 ’63 ’64 ’68
Volkswagen 1300 ’67 ’68
Volkswagen 1600 TL Fastback ’67
Volksvagen sendiferðabifr. ’62 ’65 ’68
Land-Rover bensín ’62 ’63 ’64 ’65 ’66 ’67 ’68
Land-Rover dísil ’62
Toyota Crown De Luxe ’67
Toyota Corona ’67
Volga '65
Singer Vogue ’63
Benz 220 ’59
Skoda Octavia ’65 ’69
Moskvitch ’68
Renault ’65
Við bjóðum seljendum endurgjaldslaust afnot
af rúmgóðum og giæsilegum sýningarsal okkar.
Sími
21240
HEKLA hf
Laugavegi
170-172
Laxveiðimenn
Miðá í Dölum til leigu. Tilboðum sé skilað
fyrir 1. apríl n. k. til Haralds Kristjánssonar
Sauðafelli, sem gefur allar nánari upplýsing-
ar. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Stjórn Fiskiræktar og veiðifélags Miðdæla.
Skrifstofustúlka
Stúlka helzt vön vélritun óskast sem fyrst.
Gefið uppl. um fyrra starf. Tilboð sendist
Vísi fyrir n. k. laugardag, 31. þ. m. merkt
„Vélritun 6825“.
Skrifstofustúlka
óskast til starfa allan daginn, lágmarksaldur 25 ár.
Æskileg starfsreynsla: Læknaritari eða hliðstæö störf
t. d. við spjaldskrá. Vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist blaðinu merkt „Heilsurækt" fyrir hádegi
laugardag.
Leikfimikennari
Ungur leikfimikennari (stúlka) óskast strax.
Tilboð sendist blaðinu fyrir föstudag merkt
„Leikfimikennari“.
LAUS STAÐA
Viðskiptaráðuneytið vill ráða stúlku til ritara-
starfa. Krafizt er góðrar kunnáttu í vélritun
og tungumálum (ensku og dönsku).
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist viðskiptaráðuneytinn,
Arnarhvoli fyrir 6. febrúar n. k.