Vísir - 27.01.1970, Page 6

Vísir - 27.01.1970, Page 6
6 VISIR . Þriðjudagur 27. janúar 1970. TIL SÖLU Fiskimjölsverksmiðjuhús — án véla — norðan hafnargarðs á Sauðárkróki er til sölu. Tilboð séu miðuð við það, að minnst þriðjung- ur kaupverðs verði greiddur við samnings- gerð. Tilboðum sé skilað fyrir febrúarlok til Fiskimálasjóðs, Tjarnargötu 4, Reykjavík. Reykjavík, 27. janúar, 1970. Fiskimálasjóður. BRA UTRYÐJENDUR sanngjarnra IÐGJALDA HVAÐ SEM TRYGGINGIN NEFNIST ER AÐ BAKI HENNI ÖFLUGT TRYGGINGAFÉLAG Hagtrygging hf. cTVlenningarmál Ólafur Jónsson skrifar um bólcmenntir: Forganga, frumkvæði? Stefan Zweig: LJÓSASTIKAN. Helgisögur. Pálí Þorieifsson íslenzkaöi. Bókaútgáfa Menningar- sjóðs og Þjóðvinafélagsins 1960. 205 bls. Tjað er ekki allténd gott aö greina hvaða rök ráði bóka- vali Menningarsjóðs, allra sízt vali eriendra skáldrita til þýð- ingar og útgáfu. Oft og einatt er engu líkara en hið viröulega ríkisfyrirtæki, þingkjöma út- gáfustjóm sitji með hendur I skauti og bíöi þess að passleg handrit rekist inn um dymar. í fyrra hmkku menn upp við fram haldsleikrit í sjónvarpinu og var þá tekið að gefa út Forystesögu Galsworthys sem fyrir lá i þýö- ingu; þetta er einhver helzti vottur sjálfstæðs framtaks sem orðið hefur vart f forlaginu um skeið. Um eigin hugmyndir, stefnu á þessu sviði þarf ekki að tala, þó það viti heilög ham- ingja að einmitt við kynningu, þýöingu, útgáfu erlendra skáld- mennta á íslenzku þarf eigin fmmkvæðis, forgöngu útgef- enda sem hefur ráð á því og tíma til að vanda verk sitt, þarf ekki að eiga allt sitt undir skyndigróöa á jólamarkaði. Vit og fyrirhyggju þarf auövitað til auk fjármuna, — en er það nokkur ofætlun menntamálaráði og menningarsjöði? Það er svo sem engin ástæða til að amast sérstaklega við Ljósastikunni, fimm „helgisög- um“ eftir Stefan Zweig í þýð- ingu Páls Þorleifssonar, enda væri það áreiðanlega ekki gert ef annar aðili en Menningarsjóð- ur stæði fyrir útgáfu þeirra. Þetta era kunnáttusamlegar frá- sagnir, samdar með viðfelldnu mannviti, og mjög svo læsilegar þótt ætla megi að stíll þeirra, hermdur eftir fomum bók- menntun, týnist að miklu leyti niöur í þýðingunni. Og bókin er prýðilega gerð enda prentuð hjá prentverki Odds Björnssonar fyrir norðan. Stefan Zweig nýt- ur vinsælda hér frá fomu fari og vel má vera að hin nýja bók njóti þeirra á markaðinum. En þó ástæðulaust sé aö amast við bókinni er haria vandséð hvaða frambærileg ástæða sé til út- gáfu hennar, hvað geri þessar stílæfingar Zweigs áhugaverðari hverjum öðrum bókum um þess- ar mundir. En þá kröfu má með sanni gera til Menningarsjóðs, einmitt um útgáfu erlendra skáldmennta: að forlagið gefi ekki út aðrar bækur en þær sem sérstök ástæða þykir til að út komi á íslenzku, láti fyrir enga muni hendingu eða henti- semi ráöa starfsemi sinni. Þegar horft er upp á gffurlega fjárfest- ingu bókaútgefenda hver jól í alls ónýtri bókagerð, fjáraustur þeirra í auglýsingar til aö koma út sinnj óútgengilegu vöm — þá verður enn greypilegri en ella trassadómur og vanræksla þeirra aöilja sem í senn hafa menningarlegri skyldu og hlut- verki að gegna. Svo er tvímæla- laust um bókaútgáfu Menning- arsjóðs: af henni má beinlínis ætlast til fmmkvæðis og for- göngu að þeim verkefnum sem aðrir aðiljar bókagerðar van- rækja. Meir um þaö seinna ef svo vill verkast. Gylfi Gröndal skrifar um sjónvarpið: Fortíð á filmu Caga íslenzkrar kvikmynda- 'J gerðar er hvorki löng né viðburðarík. Telja má á fingram sér þá menn, sem réöust í aö feta á filmu umhverfi, fólk og atvinnuhætti sinnar tíöar upp á eigin spýtur og við hin erfiðustu skilyrði. En með starfi sínu fengu þeir komandi tíma f hend- ur ómetanlegar heimildarmynd- ir. Nokkrar slíkar myndir hafa aö undanfömu verið sýndar í sjón- varpsþætti Magnúsar Jóhanns- sonar Þaö er svo margt. Þetta er hinn þarfasti þáttur, til á- nægju fyrir þá eldri sem muna tfmana tvenna, og til fróðleiks fyrir ungt fólk sem alið er upp við gjörólíka lifnaðarhætti. Nú síðast hefur Magnús sýnt dýr- mætar myndir af fiskveiðum okkar f gamla daga, sem Loftur Guðmundsson hefur tekið, en hann og Óskar Gfslason verða lfklega taldir brautryðjendur kvikmyndagerðar hér á landi. í sföasta þætti sfnum sýndi Magn- ús einnig Reykjavíkurmynd, sem hann tók sjálfur árið 1957. Þótt mynd þessi sé ekki nema þrettán ára gömul, er hún um margt fróðleg til samanburðar við nútímann. Borgin breytist 6- trúlega fljótt; það sem mótar svip hennar hverju sinni getur fyrr en varir heyrt sögunni til. En að heimildargildinu slepptu var Reykjavfkurmynd Magnúsar of væmln i köflum, ekki sfzt textinn, og hálfgerður kosninga- blær yfir- hennt í þessu- sam- bandi mætti minnast á aðra Reykjavíkurmynd, sem Óskar Gíslason tók í tilefni af 160 ára afmæli borgarinnar 1946. Hún hét „Reykjavík vorra daga“ og sýningartími hennar var hvorki meira né minna en f jórar klukku Magnús Jóhannsson. stundir. Ýmsir hlutar þessarar myndar eru vafalaust nú þegar söguleg og verðmæt heimild, sem vert er að sýna. Óskar heim- sótt! meðal annars Ásgrím Jóns- son, Kjarval og' Rikharð Jóns- son. Og einn kaflinn er af Ein- ari Jónssyni myndhöggvara á vinnustofu sinni, eina kvik- myndina sem til er af honum. Óskar Gíslason hafði óbilandi áhuga á að kvikmynda frétt- næma atburði á sínum tíma. Hann mun hafa tekið myndir af öllum helztu viðburðum í Reykjavík á árunum 1945—50, og sjást þar ýmsir merkir Reyk- víkingar, sem nú em komnir undir græna torfu. Við eigum áreiðanlega eftir að iðrast þess að hafa ekki tekið fleiri heimildarkvikmyndir. Skilningur manna á nauðsyn þess var ekki ýkja mikill til skamms tíma. Þö skal sízt van- metið óeigingjamt starf þeirra fáu manna, sem tóku það litla sem til er, og skerfur þeirra mun vissulega koma að góðu gagni, þegar farið verður að rifja upp löngu liðna tíð. Með tilkomu sjónvarpsins urðu þáttaskil í fslenzkri kvikmynda- sögu. Og með þættinum Það er svo margt sýnir stofnunin fyrsta vott um ræktarsemi við fortíð kvikmyndagerðar hér á landi og fátæklega en verðmæta sögu hennar. Æskilegt væri að vinna betur úr þeim gömlu heimildar- myndum sem til em og gera skipulegar myndir um ákveðna þætti með ftarlegum texta. Von- andi er báttur Magnúsar Jó- hannssonar aðeins fyrsta skref- ið 1 áttina að slíkri starfsemi.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.