Vísir - 27.01.1970, Blaðsíða 10
V í S'I R . Þriójudagur 27. janúar 1970.
Alþjóðleg skák
Talsverðar sviptingar eru á
alþjóðlega skákmótinu, sem
haidið er í Reykjavik um þessar
mundir, og ekki er hægt aó
segja annað en frammistaða
hinna íslenzku skákmanna hafi
verið með ágætum. Með gangi
mótsins er fylgzt með nokkrum
spenningi, ekki sízt af unga fólk
inu, en fjöldi ungra manna fyig-
ist vel með í þessum efnum og
teflir talsvert í frístundum og
innan ýmissa félagasamtaka.
Það er ánægjulegt að slikt
mót skuli haldið hérlendis, þvi
slik mót eru örvandi á al-
mennari þátttöku ungs fólks í
skákiþróttinni, en almennt er
það álitið þroskandi fyrir hug-
ann að tefla. Skákíþróttin er
því ákjósanleg tómstundaiðja
fyrir skólapilta, sem og annaö
ungt fólk.
Vonandi fylgir i kjölfar þessa
alþjóðamóts alda minni móta
sem gefur fjöldanum taekifæri
á að spreyta sig, til ánægju og
þroska.
Afrek einstaklinganna hafa
þá fyrst gildi, ef þau verka örv-
andi á þátttöku fjöldans, og á
það auðvitað við, hvort sem um
er að ræða iþróttir hugans eða
aðrar íþróttir, Þess vegna er
fengur að sliku móti sem og
öðrum íþróttamótum, sem lik-
leg eru til að örva fjöldann til
almennrar hlutdeildar í íþrótt-
Skák Guðmundar og Hechf
1. e4 — e6 17. Rf4 — Be7 33. Dc5 — Hc8
2. d4 - d5 18. fxe6 — • Bxe6 34. Bf7 — Hxg8
3. Rd2 — Rf6 19. Rh4 - Dd7 35. Bxg8 - Dd7
4. e5 — Rf-d7 20. Rxe6 - - Bxh4 36. Bb4 - Kb7
5. f4 — c5 21. Dxh4 - — fxe6 37. Df8 — Rxd4
6. c3 — Rc6 22. Hf3 — Ha-d8 38. Bc5 — Rc6
7. Rd-f3 — cxd4 23. Ha-fl - - Hxf3 39. Dxh6 — Rbxc6
8. cxd4 — Rb6 24. Hxf3 - - He8 40. Dxe6 — Dxe6
9. Bd3 — Bd7 25. Bg6 - He7 41. Bxe6 — Kc6
10. a3 — a5 26. Df2 — Kb7 42. Bd4 — Rd3
11. Rh3 - a4 27. Hf8 — - Dc7 43. h4 — Rdxb2
12. O—O — h6 28. Hg8 - - Hd7 44. h5 — b4
13. Del — Dc7 29. Df8 - Hd8 45. h6 — bxa3
14. Bd2 - Rc4 30. Dxg7 Hd7 46. h7 - a2
15. Bc3 - b5 31. Df8 - Hd8 47. h8D — alDx
16. f5 — 0-0-0 32. Be8 — Ka6 48. Kh2 — gefið.
t
ANDLAT
Aðalbjörg Vigfúsdóttir, skrif-
stofustúlka, Skógargerði 4, andað-
ist 22. janúar s.l., 64 ára að aldri.
Hún verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju á morgun kl. 1.30.
Kvennaskóladeilur
Furðuleg deila er risin, þvi nú
er farið að mótmæla því, að
Kvennaskólinn fái réttindi til
að útskrifa stúdenta. Auðvitað
i má líta á þetta mál tvennum
augum eins og öll önnur. Hins
vegar var deilt um það í fyrra
og hitteðfyrra, að námsleiðir
væru of fáar og ungt fólk hefði
úr of fáum námsleiðum að
velja.
Ekki ætla ég að leggja dóm á
réttmæti eða óréttmæti þess, að
Kvennaskólinn fái þessi rétt-
indi, en hitt hygg ég að sé nærri
lagi, að margt af þessu unga
fólki sem stillir sér úpp í mót-
mælaþyrpingu fyrir framan
skólann með spjöld, sé frekar
að skeyta skapi sínu eða sé
haldið þörf á útrás, heldur en
að mótmælin séu sprottin af
einlægum skoðunum. Það er
svo mikill órói I sumum hópum
ungs fólks, og getur það komið
af vöntun á tækifærum til að
beita sér.
Það er slæmt að viðleitni til
að bæta skólakerfið og fjölga
námsleiðum skuli valda deilum, ,
því margir fullorðnir og ráðsett-
ir, meira að segja nokkur hópur \
kvenna er á móti því að Kvenna |
skólinn fái aukið sviö og rétt- (
índi. Vonandi er það ekki af
vöntun á athafnasviöi sem hinir 1
fullorðnu leggjast á móti og ;
byrja að deila, en óneitanlegá ,
stangast margar af peim kröf-
um á, sem fram hefur verið 1
slengt. I
Þrándur í Götu.
FELAGSLIF
Knattspyrnul'élagið Vikingur,
knattspymud. Aðalfundur deild-
arinnar verður haldinn 28. janú-
ar kl. 20 i Réttarholtsskóla (sam-
komusal). Venjuleg aðalfundar-
störf. Félágar fjölmennið.
Stjórnin.
Sig. Sigurdsson
íþróttafréttastjóri
sjónvarps 50 óra
Hann Sigurður Sigurðsson, í-
þróttafréttamaður sjónvarps og
útvarps er fimmtugur í dag. Ég
vildi nota tækifærið við þessi
tímamót og þakka Sigurði á-
nægjuleg samskipti áundanförn
um árum á innlendum vettvangi
sem erlendum. Sigurður á að
baki langan og merkan feril í
starfi, byrjaði lýsingar á íþrótta
mótum 1948 á OL i London
og hefur síðan unnið brautryðj-
endastarf hér á landi bæði i út-
varpi og sjónvarpi.
-jbp-
Kvennaskólinn
og stúdentsprófið
j viótölum sem ég hef átt við
ýmsa um frumvarp það, sem
liggur fyrir Alþingi um heimild til
Kvennaskólans um að brautskrá
stúdenta, vil ég leiðrétta þann mis-
skilning, sem ég hef orðið vör við,
1 að Kvennaskölinn yrði lagður niður
í sinni núverandi mynd og algjör-
Iega breytt í menntaskóla.
Kvennaskólanum á alls ekki að
breyta þannig. Hann á að starfa
áfram f sinni núverandi mynd, út-
skrifa námsmeyjar úr 4. bekk meö
hinu góðkunna Kvennaskólaprófi
eins og fyrr.
En nú er skólamálum þannig far-
ið, að stúdentspróf þarf til margra
starfa, sem áður þurfti aðeins gagn-
fræðaskólamenntun, svo að skóla-
nefndinni þykir nauðsynlegt að
geta veitt þeim stúlkum, sem taka
hér landspróf, kost á að halda námi
hér áfram, ef þær óska þess, en
auðvitað er þeim frjálst að leita í
hina menntaskólana, sem þess óska,
og getur skólinn þá einnig tekið við
nemendum, sem lokið hafa lands-
prófi við aðra skóla.
Frumvarpið felur því í sér að
stofnuð verði menntaskóladeild í
áframhaldi af landsprófsdeildinni.
Þessi réttindi til handa skólanum
finnst mér alveg sjálfsögð.
Skólinn hefur nú starfað nærri
heila öld við mjög góðan orðstír
og hefur Kvennaskólaprófið ávallt
þótt góð menntun og meðmæli með
hverri stúlku, sem því hefur lokið.
Tímamir eru nú svo breyttir eins
og allir vita, að nú eru mikið færri
leiðir opnar fyrir stúlkur með
Kvennaskólaprófi en áður var, nú
er krafizt stúdentsprófs á mjög
mörgum sviðum, bæði í atvinnulíf-
inu og til framhaldsnáms.
Þessi menntaskóladeild myndi að
sjálfsögðu verða máladeild meö
ýmsum sérgreinum, sem námsmeyj
unum myndi koma vel að læra, svo
sem uppeldisfræði, sálarfræði
bama, hýbýlaprýði, bókmenntum,
undirbúningi undir ýmis rannsókn-
arstörf og svo mætti lengi telja. Ég
álít að þessi deild ættí að fara inn
á nýjar kennslubrautir, sem ef til
vill ekki eru kenndar í ninum
menntaskólunum, ásamt hinum
venjulegu námsgreinum, sem heimt
aðar eru ti! stúdentsprófs.
Hvað viðkemur þvi að óhollt sé
I j DAG B IKVÖLD1
SKEMMTISTAÐIR #
Þórscafé. Sextett Ólafs Gauks
ásamt Vilhjálmi leika og syngja
í kvöld.
Röðull. Hljómsveit Magnúsar
Ingimarssonar, söngvarar Þuríður
Sigurðardóttir, Pálmi Gunnarsson
og Einar Hólm.
Tónabær. Opið hús kl. 8 — 11.
Hljómsveitin Friður kemur f
heimsókn. Spil — diskótek —
leiktæki.
HLKYNNINGAR
FRÁ SJLKRASAMLAGI rf.ykjavIkur
Henrik Linnet
læknir hefir sagt upp störfura sem heimilis-
læknir frá og með 1. febrúar 1970. Þeir sam-
lagsmenn;, sem hafa haft hann að heimilis-
lækni, snúi sér til afgreiðslu samlagsins, hafi
samlagsskírteini meðferðis og velji nýjan
heimilislækni.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur
HEf.
AEþingi —
¥*—>■ 16. siðu.
deildar, þar sem enginn annar
var fyrir, og svöruðu spurning-
um fólksins á svölunum. Hvatti
hver annan til dáða. Nefnd
gekk á fund þingforseta, Sigurð
ar Bjarnasonar, og kom hann tii
viðtals við fólkið í ganginum.
Sagði forseti að unga fólkinu
væri velkomið að hlýða á um-
ræður um málið, næst þegar
það væri . á dagskrá. ef það
hefði ekki hávaða i frammi.
Rektorar menntaskólanna,
Einar Magnússon og Guðmund-
ur Arnlaugsson, komu i húsið
og reyndu að fá sín skúlabörn
til aö fara heim. Lögregluþjón-
ar tóku sér stöðu í gangi ann-
arrar hæöar, en höfðust ekki
BBöESBr- -&ZT
VEÐRIÐ
n
Suöaustan gola
og síðar stinn-
ingskaldi. Dálítil
rigning með
kvöldinu. Hiti
0—2 stig og síðar
5 stig.
Kveníélaji Hallgrfmskirkju. —
Fundur í félagsheimilinu mið-
vikudaginn 28. janúar. Spiluð fé-
lagsvist verðlaun veitt. Kaffi, —
Stjórnin.
JUDO. Æfingatímar á mánu-
dögum, þriðjudögum og fimmtu-
dögum frá kl. 7 á kvöldin. Á
laugardögum frá kl. 2 e.h., í
húsi Júpíters og Mars á Kirkju-
sandi. Byrjendur athugi, að þeir
geta látið innrita sig á þessum
tíma og fengið allar upplýsingar
um æfingatíma.
Judofélag Reykjavíkur.
•••••••••••••••••••••••
fyrir stúlkur að vera í sérskólum
má lengi deila um, en sérlega skaö
Iegt held ég að það sé ekki, þar
sem reynslan sýnir, að í allflestum
menntaskólum hér eru sérdeildir
fyrir stúlkur og aðrar fyrir pilta og
mundi sá háttur að sjálfsögðu ekki
vera hafður á, ef aö reynslan hefði
ekki sýnt aö það hefði borið betri
námsárangur.
Þessi ósk skólans um að fá að
veita nemendum sinum stúdents-
menntun er jafn gömul skólanum,
en þröngur fjárhagur hefur hamlað
framkvæmdum. Lengi vel störfuðu
aðeins stundakennarar við skólann,
sem enga þóknun fengu yfir sum-
armánuðina. En meö lö,ggjöf árið
1946 voru fyrstu föstu kennararnir
ráðnir að skólanum og breytti það
að sjálfsögðu hag skólans til hins
betra.
Ég hef þekkt Kvennaskölann síð-
astliðin 55 ár, fyrst sem nemandi
hans, síðan sem kennari í 35 ár,
og í skólanefnd hans til þessa dags
og öll þessi ár og lengur hefur það
verið óuppfyllfur draumur skólans
að geta útskrifað stúdenta ásamt
hinu góðkunna Kvennaskólaprófi.
Árið 1974 verður Kvennaskólinn
100 ára og vona ég að draumurinn
megi þá rætast að Kvennaskólinn
útskrifi sína fyrstu stúdenta.
Sigríður Brieni Thorsteinsson.
„Hugsa sér! Tölvan bókstaflega
bræddi úr sér, þegar ég bað hana
að koma reglu á ávisanaviðskipt-
in mín.“
VISIR
fifrir
árum
Borð- og divan-teppi með alls,
konar verði. Afar stórt úrval ný-
komið í Brauns Verslun Aðal-
stræti 9.
Vísir 27. janúar 1920.
FUNDIR I KVÖLD •
KFUK — AD. Fundur í kvöld
kl. 8.30. Svipmyndir frá starfi
KFUK á liðnum árum. Einsöngur.
Fíladelfía Reykjavik. Almenn
samkoma í kvöld kl. 8.30. Að,
komnir ræðumenn.
St. Freyja nr. 218. Fundur I
kvöld kl. 8.30 í Templarahöllinnl
Eiríksgötu 5. Fundarefni: Kosning
og innsetning embættismanna. —
Kaffi eftir fund. — æ. t
að á þeirri þriöju. „Verndarar"
yngismeyjanna voru áberandi,
og voru piltar sízt færri en
stúlkur í hópnum. Sendu þessir
,,stuðningsmenn“ kvennanna,
eins og þeir kölluðu sig, full-
trúa sína til forseta ásamt þeim
stúlkum, sem töldu sig fulltrúa
nemenda Kvennaskólans. „Þing
menn verða að skilja það, að
Alþingi er i höndum nemenda
Kvennaskólans,“ kölluðu þeir
og vildu fá þingmenn, sem með-
mæltir voru Kvennaskólafrum-
varpinu til að koma til viðtals
úr þingsal, á sama hátt og
kommúnistar höfðu gert.
Eftir tveggja og hálfrar
klukkustundar setu á þriðju
hæð Alþingishússins, yfirgáfu
þessi skólaböm húsið.
Stúdentafélag Háskóla is-
lands hefur boðað til almenns
fundar um málið á morgun.
.æSOTiS