Vísir - 02.02.1970, Síða 8

Vísir - 02.02.1970, Síða 8
8 VISIR Otgefandi: Reykjapresjt h.f. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinson Kréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannessen Augiýsingar: Aöalstræti 8. Símar 15610, 11660 og 15099 Afgreiösla: Aöalstræti 8. Simi 11660 Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Askriftargjald kr. 165.00 ð mánuði innanlands I iausasölu kr. 10.00 eintakið Prentsmiöja Vlsis — Edda hJ. Sex milljarðar á 25 árum AlþÍHgi hefur nú til meðferðar frumvarp ríkisstjóm- ^ arinnar um iðnþróunarsjóð þann, sem Norðurlöndin koma sérstaklega á fót til að efla íslenzkan útflutn- ingsiðnað. Jóhann Hafstein iðnaðarmálaráðherra mælti fyrir málinu á fimmtudaginn og urðu þá nokkr- ar umræður um það. Ljóst er, að frumvarpið verður samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta á Alþingi. Sjóðurinn er mikilvæg stoð í hinni erfiðu en nauð- . synlegu sókn íslenzks iðnaðar inn á erlendan mark- að. Stofnfé sjóðsins er greitt út á 4 árum, rúmlega hálfur milljarður á ári. Endurgreiðslur stofnfjár hefj- ast á 10. ári og lýkur þeim á 25. ári. Allan þennan tíma er stofnféð vaxtalaust. Norðurlöndunum verður greidd til baka sama upphæð og þau lögðu fram. Að 25 árum liðnum verður sjóðurinn orðinn svo öflugur af innlendum endurgreiðslum og vöxtum, að hann getur af því fé einu haldið áfram útlánum af full- um krafti. Núna fyrstu árin verða lánaðar 275 millj- ónir króna á ári, en á öllu tímabilinu verða útlán að meðaltali 242 milljónir á ári. Alls verða þetta yfir 6 milljarðar, sem lánaðir verða út á tímabilinu. Það munar um þessar upphæðir. Ríkisvaldið hefur kappsamlega unnið að því að . styðja iðnaðinn í að sækja inn á nýjar brautir. Fyrir . ári störfuðu 18 nefndir iðnrekenda í hinum ýmsu greinum iðnaðarins að athugun EFTA-málsins og höfðu þær samstarf við sérfræðinga ríkisstjómarinn- ar. Árangurinn af þessu starfi kom síðan fram í kröf- um þeim, sem fulltrúar íslands lögðu fram í samning- unum við EFTA og fengu samþykktar, þar á meðal ákvæðin um tíu ára aðlögunartíma iðnaðarins. Frá því í fyrravor og fram á þennan vetur vann Guðmundur Magnússon prófessor með aðstoð fleiri manna að gerð ýtarlegrar skýrslu um ástand og horf- ur einstakra greina iðnaðarins. Þessi skýrsla hefur hlotið verðskuldaða viðurkenningu. Til viðbótar tók Efnahagsstofnunin svo saman skýrslu um útflutn- ingsmöguleika iðnaðarins, þar sem fram koma fróð- legar upplýsingar fyrir iðnrekendur og aðra, sem áhuga hafa á framtaki í útflutningi. Iðnrekendur og aðrir útflutningsaðilar eiga því að geta gert sér ljósa grein fyrir ástandinu og möguleik- unum. Áður hafði iðnaðurinn aðgang að nokkru fjár- magni, einkum í Iðnaðarbankanum og Iðnlánasjóði. En með tilkomu iðnþróunarsjóðs margfaldast mögu- leikamir á fjármagni til útflutningsiðnaðar. Það ætti því að vera unnt að afla nægilegra lána til skynsam- legra, vel hugsaðra og vandlega undirbúinna aðgerða til að koma upp og efla útflutningsframleiðslu. Það fer svo að sjálfsögðu eftir hagkvæmni og hyggjuviti iðnrekenda, hvemig þeir standast samkeppnina og hvemig þeir nýta tækifærin, sem þátttakan í EFTA og iðnþröunarsjóðurinn skapa þeim. En gmnnurinn er þegar steyptur. II V I S I R . Mánudagur 2. febrúar 1970. ☆ „Flestir þeir nemendur, er neyta áfengis, geta sótt skemmtistaði utan skólans, þar sem þeim gefst tækifæri til að gleðjast með áfengi sér við hönd. Einmitt þess vegna ættu þeir að nota skemmtanir skólans sem stað, þar sem þeir Á að leyfa veitingu léttra víntegunda á skemmtunum eldri nemenda framhaldsskólanna? „Félagslífið ætti að gagna sem sálarstoð44 Nemendur Kennaraskólans gera athyglisverða tilraun til oð hindra Jögleiðslu ruddaskaparins i félagslifinu" geta glaðzt í góðra vina hópi, án ótta um feimni eða hégóma, því að mað ur skyldi halda, að sam- vist þeirra við aðra nem endur í félagslífi og hinu daglega lífi skólans ætti að koma þeim að gagni, sem sálarstoð.“ annig kemst einn nemenda Kennaraskólans að orði ( áróðursbæklingi. sí\m skölafélag skólans sendi frá sér fyrir nokkru ( þvi skyni aö stuðla að áfengislausri skemmtun nem- enda, sem haldin var í sl. viku. — Frétt, sem Vísir birti um það, hvað þessi skemratun var talin hafa farið vel fram, hefur vakið talsverða athygli, þó að almenn- ingur telji það ekki eins sjálf- sagðan hlut eins og hatrn er al- gengur, að skólaæskan eigi að gangast fyrir svallveizhim. — Það ánægjulega I bessu máli er þð ekki það, að takast skyldi að halda áfengi algjörlega utan við skemmtunina, heldur hitt, að nemendur hðföu sjálfir frum- kvæðið i málinu. — að vísu að nokkru leyti * ^mráði við skóla- stjóra. Það er athyglisvert að kanna þá leið, sem nemendur völdu sjálfir til að hafa áhrif á skóla- bræður sína og systur. — Áróð- urspésinn sem vitnað var til í upphafi greinarinnar sýnir að- ferðina nokkuð vel. f pésanum er hvergi að finna þessi vanalegu slagorð sem notuð hafa verið í baráttu gegn áfengisneyzlu hér á landi. Bindindismannaprédikanir er þar hvergi að finna, heldur er höfðað tfl almennrar félags- hyggju nemenda, skynsemi og réttlætistilfinningar Áfengis- neyzla sem slfk er hvergi talin vera undhrót ails ills eða neitt í þá áttina. Á einum stað er t.d. sagt: „Hér skal ekki um það deilt, hvort áfengisneyzla sé æskileg eða ekki. — Það er hlutur, sem hver og einn verður að gera upp við sjálfan sig. En nemendur verða einnig að gera sér þaö ljóst, að áfengisneyzla er bönn- uö á skemmtunum skólans og verða nemendur að breyta eftir því. Þær skemmtanir sem Skóla- félagið heldur, eru til þess aö gefa nemendum tækifæri til þess að skemmta sér á sem bezt- an hátt, án þess að áfengi sé haft þar um hönd. Þar með hef- ur verið lögð áherzla á að gefa nemendum tækifæri til að tjá sig og gleöjast án notkunar áfeng- is.“ Pésinn gefur að mörgu leyti innsýn í þau vandamál, sem framhaldsskólar borgarinnar eiga við að etja, Það hefur t.d. aldrei frétzt af því aö skemmt- anir Kennaraskólans væru slak- ari en skemmtanir annarra skól borgarinnar, nema síður væri. Þó segir í pésanum í upp- hafi, að áfengisnotkun á síðustu dansleikjum Skólafélags hafi verið það mikil, að ekki verði við það unað. Eigi Skólaféláginu að vera fært að halda þessum skemmtunum áfram verði breyt- ing á að verða. Annars er hætta á að yfirvöld taki f taumana. Síðan er skýrt frá því að ekki sé um nema tvær leiðir að velja: í fyrsta lagi að kynna málið með upplýsingastarfsemi. hamla gegn ásókn utanskóla- manna og stjóm Skólafélagsins hafi eftirlit með höndum og vísi mönnum út fyrir brot. Hinni leiðinni er lýst sem neyöarúr- ræði, Óeinkennisklæddir lög- regluþjónar leiti áfengis á gest- um við innganginn, brotlegum nemendum vísað frá félagslífi og máli þeirra, sem ftreka brot- in visað til skólastjóra af nem- endum sjálfum. „Það eruð þið, sem hafið úr- skurðarvaldið (þ.e. um það hvor leiðin veröur farin framvegis). . Viö treystum því, að þú hugsir , þig vel um, áöur en þú verður þess valdandi, að ruddaskapur- inn verður lögleiddur í félags- ' lífi Kennaraskóla íslands". — > Með þessum orðum og ýmsum . fleiri höfðu nemendumir, sem stóöu fyrir þessari áróðursher- ferð til annarra nemenda með árangri, sem sennilega allir 1 framámenn Reykjavfkurskól- • anna hefðu veriö fyllilega á-. nægöir með. — Raunar skrifar dr. Broddi Jóhannesson, skóla- stjóri einnig grein I þennan pésa ! nemenda, en 1 þeirri grein minn- > ist hann hvergi einu orði á á- , fengismál. — Greinina nefnir hann „Vald regluþembingur 1 eða óskráð lög“ og húnfjallarum ! það. í niðurlagi greinarinnar segir hann: „Vangaveltur, fjarstæðu- , kenndar viö fyrstu sýn, um fimm eöa sjö skotglaða pilta, er taka mættu eina litla höfuðborg j hefur orðið mér grimmilegt dæm'i um skuggalega mynd valdsins og opinberun um lán 1 þess samfélags, sem teygir ekki , klóna né framlengir hramminn í vigvél og valdbeitingu né held- ur einstrengingslegan reglu- .> þembing, en nýtur óskráðra laga , í prúðmannlegu dagfari, góðvild og sjálfráðum ákvörðunum.“ Að lokum má geta þess til viðbótar, sem athyglisvert má teljast. í pésanum gera nemend- ur grein fyrir því, að ekki sé verið að taka afstöðu til áfeng- isnotkunar sem slfkrar. „Hér er heldur ekki til umræöu, hvort æskilegt sé að leyfa áfeng- isnotkun á samkomum fram- haldsskólanema. Þaö er allt ann- að mál sem raunar væri vert að taka ti! almennrar umræðu.“ Þarna er hreyft athyglisverðri hugmynd. Það hlýtur a.m.k. að vera leyfilegt að velta fyrir sér þeirri hugmynd að skólarnir leyfðu einhverja neyzlu léttra víntegunda undir eftirliti á skemmtunum elztu nemenda framhaldsskólanna. Ef skóla- æskan kemst hvort sem er í allt þaö áfengi, sem hún kærir sig um. hlýtur það a.m.k. að vera til bóta, að tilsögn í smá vín- menningu fái að fljóta með. - vj -

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.