Vísir - 02.02.1970, Blaðsíða 8
8
VISIR
Otgefandi: Reykjapresjt h.f.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinson
Kréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannessen
Augiýsingar: Aöalstræti 8. Símar 15610, 11660 og 15099
Afgreiösla: Aöalstræti 8. Simi 11660
Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Askriftargjald kr. 165.00 ð mánuði innanlands
I iausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiöja Vlsis — Edda hJ.
Sex milljarðar á 25 árum
AlþÍHgi hefur nú til meðferðar frumvarp ríkisstjóm-
^ arinnar um iðnþróunarsjóð þann, sem Norðurlöndin
koma sérstaklega á fót til að efla íslenzkan útflutn-
ingsiðnað. Jóhann Hafstein iðnaðarmálaráðherra
mælti fyrir málinu á fimmtudaginn og urðu þá nokkr-
ar umræður um það. Ljóst er, að frumvarpið verður
samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta á Alþingi.
Sjóðurinn er mikilvæg stoð í hinni erfiðu en nauð-
. synlegu sókn íslenzks iðnaðar inn á erlendan mark-
að. Stofnfé sjóðsins er greitt út á 4 árum, rúmlega
hálfur milljarður á ári. Endurgreiðslur stofnfjár hefj-
ast á 10. ári og lýkur þeim á 25. ári. Allan þennan
tíma er stofnféð vaxtalaust. Norðurlöndunum verður
greidd til baka sama upphæð og þau lögðu fram.
Að 25 árum liðnum verður sjóðurinn orðinn svo
öflugur af innlendum endurgreiðslum og vöxtum, að
hann getur af því fé einu haldið áfram útlánum af full-
um krafti. Núna fyrstu árin verða lánaðar 275 millj-
ónir króna á ári, en á öllu tímabilinu verða útlán að
meðaltali 242 milljónir á ári. Alls verða þetta yfir 6
milljarðar, sem lánaðir verða út á tímabilinu. Það
munar um þessar upphæðir.
Ríkisvaldið hefur kappsamlega unnið að því að
. styðja iðnaðinn í að sækja inn á nýjar brautir. Fyrir
. ári störfuðu 18 nefndir iðnrekenda í hinum ýmsu
greinum iðnaðarins að athugun EFTA-málsins og
höfðu þær samstarf við sérfræðinga ríkisstjómarinn-
ar. Árangurinn af þessu starfi kom síðan fram í kröf-
um þeim, sem fulltrúar íslands lögðu fram í samning-
unum við EFTA og fengu samþykktar, þar á meðal
ákvæðin um tíu ára aðlögunartíma iðnaðarins.
Frá því í fyrravor og fram á þennan vetur vann
Guðmundur Magnússon prófessor með aðstoð fleiri
manna að gerð ýtarlegrar skýrslu um ástand og horf-
ur einstakra greina iðnaðarins. Þessi skýrsla hefur
hlotið verðskuldaða viðurkenningu. Til viðbótar tók
Efnahagsstofnunin svo saman skýrslu um útflutn-
ingsmöguleika iðnaðarins, þar sem fram koma fróð-
legar upplýsingar fyrir iðnrekendur og aðra, sem
áhuga hafa á framtaki í útflutningi.
Iðnrekendur og aðrir útflutningsaðilar eiga því að
geta gert sér ljósa grein fyrir ástandinu og möguleik-
unum. Áður hafði iðnaðurinn aðgang að nokkru fjár-
magni, einkum í Iðnaðarbankanum og Iðnlánasjóði.
En með tilkomu iðnþróunarsjóðs margfaldast mögu-
leikamir á fjármagni til útflutningsiðnaðar. Það ætti
því að vera unnt að afla nægilegra lána til skynsam-
legra, vel hugsaðra og vandlega undirbúinna aðgerða
til að koma upp og efla útflutningsframleiðslu. Það
fer svo að sjálfsögðu eftir hagkvæmni og hyggjuviti
iðnrekenda, hvemig þeir standast samkeppnina og
hvemig þeir nýta tækifærin, sem þátttakan í EFTA
og iðnþröunarsjóðurinn skapa þeim. En gmnnurinn
er þegar steyptur.
II
V I S I R . Mánudagur 2. febrúar 1970.
☆
„Flestir þeir nemendur,
er neyta áfengis, geta
sótt skemmtistaði utan
skólans, þar sem þeim
gefst tækifæri til að
gleðjast með áfengi sér
við hönd. Einmitt þess
vegna ættu þeir að nota
skemmtanir skólans
sem stað, þar sem þeir
Á að leyfa veitingu léttra víntegunda á skemmtunum eldri
nemenda framhaldsskólanna?
„Félagslífið ætti að
gagna sem sálarstoð44
Nemendur Kennaraskólans gera athyglisverða
tilraun til oð hindra Jögleiðslu ruddaskaparins
i félagslifinu"
geta glaðzt í góðra vina
hópi, án ótta um feimni
eða hégóma, því að mað
ur skyldi halda, að sam-
vist þeirra við aðra nem
endur í félagslífi og hinu
daglega lífi skólans ætti
að koma þeim að gagni,
sem sálarstoð.“
annig kemst einn nemenda
Kennaraskólans að orði (
áróðursbæklingi. sí\m skölafélag
skólans sendi frá sér fyrir
nokkru ( þvi skyni aö stuðla að
áfengislausri skemmtun nem-
enda, sem haldin var í sl. viku.
— Frétt, sem Vísir birti um það,
hvað þessi skemratun var talin
hafa farið vel fram, hefur vakið
talsverða athygli, þó að almenn-
ingur telji það ekki eins sjálf-
sagðan hlut eins og hatrn er al-
gengur, að skólaæskan eigi að
gangast fyrir svallveizhim. —
Það ánægjulega I bessu máli er
þð ekki það, að takast skyldi að
halda áfengi algjörlega utan við
skemmtunina, heldur hitt, að
nemendur hðföu sjálfir frum-
kvæðið i málinu. — að vísu að
nokkru leyti * ^mráði við skóla-
stjóra.
Það er athyglisvert að kanna
þá leið, sem nemendur völdu
sjálfir til að hafa áhrif á skóla-
bræður sína og systur. — Áróð-
urspésinn sem vitnað var til
í upphafi greinarinnar sýnir að-
ferðina nokkuð vel.
f pésanum er hvergi að finna
þessi vanalegu slagorð sem
notuð hafa verið í baráttu gegn
áfengisneyzlu hér á landi.
Bindindismannaprédikanir er
þar hvergi að finna, heldur er
höfðað tfl almennrar félags-
hyggju nemenda, skynsemi og
réttlætistilfinningar Áfengis-
neyzla sem slfk er hvergi talin
vera undhrót ails ills eða neitt
í þá áttina. Á einum stað er t.d.
sagt:
„Hér skal ekki um það deilt,
hvort áfengisneyzla sé æskileg
eða ekki. — Það er hlutur, sem
hver og einn verður að gera upp
við sjálfan sig. En nemendur
verða einnig að gera sér þaö
ljóst, að áfengisneyzla er bönn-
uö á skemmtunum skólans og
verða nemendur að breyta eftir
því.
Þær skemmtanir sem Skóla-
félagið heldur, eru til þess aö
gefa nemendum tækifæri til
þess að skemmta sér á sem bezt-
an hátt, án þess að áfengi sé
haft þar um hönd. Þar með hef-
ur verið lögð áherzla á að gefa
nemendum tækifæri til að tjá sig
og gleöjast án notkunar áfeng-
is.“
Pésinn gefur að mörgu leyti
innsýn í þau vandamál, sem
framhaldsskólar borgarinnar
eiga við að etja, Það hefur t.d.
aldrei frétzt af því aö skemmt-
anir Kennaraskólans væru slak-
ari en skemmtanir annarra
skól borgarinnar, nema síður
væri. Þó segir í pésanum í upp-
hafi, að áfengisnotkun á síðustu
dansleikjum Skólafélags hafi
verið það mikil, að ekki verði við
það unað. Eigi Skólaféláginu að
vera fært að halda þessum
skemmtunum áfram verði breyt-
ing á að verða. Annars er hætta
á að yfirvöld taki f taumana.
Síðan er skýrt frá því að
ekki sé um nema tvær leiðir að
velja: í fyrsta lagi að kynna
málið með upplýsingastarfsemi.
hamla gegn ásókn utanskóla-
manna og stjóm Skólafélagsins
hafi eftirlit með höndum og vísi
mönnum út fyrir brot. Hinni
leiðinni er lýst sem neyöarúr-
ræði, Óeinkennisklæddir lög-
regluþjónar leiti áfengis á gest-
um við innganginn, brotlegum
nemendum vísað frá félagslífi
og máli þeirra, sem ftreka brot-
in visað til skólastjóra af nem-
endum sjálfum.
„Það eruð þið, sem hafið úr-
skurðarvaldið (þ.e. um það hvor
leiðin veröur farin framvegis). .
Viö treystum því, að þú hugsir ,
þig vel um, áöur en þú verður
þess valdandi, að ruddaskapur-
inn verður lögleiddur í félags- '
lífi Kennaraskóla íslands". — >
Með þessum orðum og ýmsum .
fleiri höfðu nemendumir, sem
stóöu fyrir þessari áróðursher-
ferð til annarra nemenda með
árangri, sem sennilega allir 1
framámenn Reykjavfkurskól- •
anna hefðu veriö fyllilega á-.
nægöir með. — Raunar skrifar
dr. Broddi Jóhannesson, skóla-
stjóri einnig grein I þennan pésa !
nemenda, en 1 þeirri grein minn- >
ist hann hvergi einu orði á á- ,
fengismál. — Greinina nefnir
hann „Vald regluþembingur 1
eða óskráð lög“ og húnfjallarum !
það. í niðurlagi greinarinnar
segir hann:
„Vangaveltur, fjarstæðu- ,
kenndar viö fyrstu sýn, um
fimm eöa sjö skotglaða pilta, er
taka mættu eina litla höfuðborg j
hefur orðið mér grimmilegt
dæm'i um skuggalega mynd
valdsins og opinberun um lán 1
þess samfélags, sem teygir ekki ,
klóna né framlengir hramminn
í vigvél og valdbeitingu né held-
ur einstrengingslegan reglu- .>
þembing, en nýtur óskráðra laga ,
í prúðmannlegu dagfari, góðvild
og sjálfráðum ákvörðunum.“
Að lokum má geta þess til
viðbótar, sem athyglisvert má
teljast. í pésanum gera nemend-
ur grein fyrir því, að ekki sé
verið að taka afstöðu til áfeng-
isnotkunar sem slfkrar. „Hér
er heldur ekki til umræöu,
hvort æskilegt sé að leyfa áfeng-
isnotkun á samkomum fram-
haldsskólanema. Þaö er allt ann-
að mál sem raunar væri vert að
taka ti! almennrar umræðu.“
Þarna er hreyft athyglisverðri
hugmynd. Það hlýtur a.m.k. að
vera leyfilegt að velta fyrir sér
þeirri hugmynd að skólarnir
leyfðu einhverja neyzlu léttra
víntegunda undir eftirliti á
skemmtunum elztu nemenda
framhaldsskólanna. Ef skóla-
æskan kemst hvort sem er í allt
þaö áfengi, sem hún kærir sig
um. hlýtur það a.m.k. að vera
til bóta, að tilsögn í smá vín-
menningu fái að fljóta með.
- vj -