Vísir - 02.02.1970, Side 9
V 1 S I R . Mánudagur 2. febrúar 1970.
9
TÍSISm:
Gætuö þér hugsað yður
að ganga í síðum kjól
sérstaklega sniðnum fyr
ir kartmenn, eins og nú
er í tízku í París?
Kjartan Guöbjartsson, nemi í
Gagnfræöaskóla Austurbæjar:
„Já, ég gæti vel hugsað mér
þaö. Mér finnst þetta mjög
smart klæðnaöur".
Bárður Níelsson, landsprófs-
nemandi: „Nei, svo sannarlega
ekki. Ég kynni engan veginn
við mig í slíkum klæönaði".
Páll Pálsson, nemi í píanólei
„Nei alls ekki. Ég kann eng
veginn viö, að karlmenn gar
i kjólum. Slíkur klæðnaö
finnst mér nú eingöngu fyi
kvenfólk".
Einar Björnsson, skrifstofumað-
ur: „Nei, það gæti ég alls ekki
hugsaö mér. Þetta er nú einum
°f broslegur klæönaður til þess,
uöég vildi klæðast honum“.
............ .. ' il i
Magnús Kjartansson, löf
þjónn: „Engan veginn.
nó helzt hafa kvenfólkiö
iwUm. ^éir finnast þei:
^inlfnis heppilegur klæi
•yrir karlmenn'*
Opinberum starfsmönnum
ge fnar einkunnir
Ráðuneytisstjóri fær 970 sfig, bréfberi 265 stig — Langt komið að
ganga frá fyrsta raunhæfa starfsmatinu á Islandi
Lögregluþjónar fá 420 stig. Þeir eru me'ðal fárra stétta, sem
fá stig fyrir vinnuskilyrði og þeim eru gefin all mörg stig
fyrir áreynslu.
□ Átökin um það, hvernig
skipta skuli ytri gæðum
þjóðarinnar á milli þegnanna,
hafa verið mjög áberandi á
íslandi, enda hafa erlendir
menn oft sérstaklega orð á
því. Tortryggni, illindi, róg-
ur og svo óhjákvæmilega
verkföll, stundum algjörlega
að nauðsynjalausu hafa ver-
ið óhjákvæmilegar afleiðing-
ar skorts á raunhæfu viðmið-
unarkerfi, sem gæti raðað
launþegum í eðlilega launa-
flokka. Lausnin á óánægju
ýmissa stétta og hagsmuna-
hópa með laun sín og kjör
hefur oft verið fólgin í því
að stinga eins lítilli dúsu
upp í þessa hópa og komizt
hefur verið af með hverju
sinni. Og um leið og einn
hópur hefur fengið upp í sig
sína dúsu, sem nægt hefur
til friðar hverju sinni hefur
annar komið í staðinn, sem
hefur heimtað sinn snúð.
Stundum hafa kröfugerðim-
ar verið réttlætanlegar, stund
um ekki.
Á stæöur þess, aö þetta vanda-
mál hefur veriö hér meira
áberandi en í mörum öðrum
löndum eru sjálfsagt margvís-
legar, en það kann aö vera, að
okkar stéttalausa þjóöfélag og
hvað íslenzkt nútímaþjóöfélag
hefur byggzt upp á skömmum
tíma, hafi hindrað eðlileg laima-
hlutföll á milli starfshópa.
Launamismunur á íslandi eftir
vinnustéttum viröist í mörgum
tilvikum ærið tilviljunarkennd-
ur, bæöi hjá opinberum starfs-
mönnum og jafnvel á hinum al-
menna launamarkaöi.
Flestir hafa aftur á móti gert
sér grein fyrir því á undanföm-
um árum, að æskilegt væri að
finna kerfi, sem raöa ætti mönn-
um í eftir ákveönum hlutföllum
og skipta síðan þjóðártekjunum
eftir þvi. Viöhorf einstakra
manna til slíks kerfis hlýtur þó
að fara mikið eftir þvi hvar
viðkomandi telur stöðu sína í
slíku kerfi.
Um þessar mundir er verið
að gera fyrstu alvarlegu tilraun-
ina hér á landi til að gera slikt
kerfi. Það er Bandalag starfs-
manna ríkis og bæja og fjár-
málaráöuneytið, sem hafa unnið
að þessum málimi frá áramótum
1966—67, en auk fulltrúa ríkis-
valdsins og BSRB hefur fulltrúi
Bandalags háskólamanna átt
þess kost að fylgjast með þess-
um störfum og getað gert grein
fyrir sjónarmiðum háskóla-
manna.
Drög að starfsmatinu hafa
legið fyrir viðkomandi aðilum
nú síðan í september á fyrra ári,
en er búizt er við að aðilar geri
grein fyrir viðhorfum sinum
fljótlega upp úr næstu mánaða-
mótum. Drögin eru algjör frum-
smíð, en ekki er kunnugt um, að
til sé starfsmannakerfi, sem
nær yfir jafn fjölbreytilegt
verksvið og um er að ræða hjá
íslenzka ríkinu.
Starfsmat eins og þetta er
mjög vandasamt verk, enda eru
deilur um laun og ákvörðun
! ■■■■■ !■ : ■■■
þeirra meðal vandasömustu fé-
lagsstarfa. Það er því ekki viö
þvi að búast, að allir muni fella
sig við starfsmatið og að ekki
megi finna vankanta á því.
Jafnvel þó að algjörlega „rétt“
starfsmat yrði samið er augljóst,
aö það yrði háð sífelldum end-
urskoðunum.
Fjórar gerðir starfsmats
koma til greina í flestum til-
vikum; röðunarkerfi, flokkunar-
kerfi, þáttasamanburðarkerfi og
stigakerfi Síöasta kerfið var
valið, enda talið, að það hafi
marga ótvíræða kosti. Það er
útbreiddast starfsmatakerfa og
hefur ýmsa kosti fram yfir hin.
Helzta einkenni kerfisins er það,
að valdir eru þættir eða ein-
kennj starfa, sem eiga aö hafa
áhrif á röð þeirra. Þessir þættir
eru skilgreindir á eins ljósan og
ótvíræðan hátt og kostur er.
Af ýmsum ástæðum urðu
eftirtaldir þættir fyrir valinu:
Menntun, starfsþjálfun, sjálf-
stæði og frumkvæði, tengsl, á-
byrgð, áreynsla og vinnuskil-
yrði. Þessir þættir eru mishátt
metnir. Þannig er ábyrgð hæst
metin. Hlutfall hennar af heild-
armatinu er 23.3%. Næst kem-
ur sjálfstæöi og frumkvæði
22.4%, menntun 20.7%, starfs-
þjálfun 17.2%, áreynsla 8.6%,
tengsl 5.2% og vinnuskilyrði
2.6%.
Þessir þættir skýra sig að
mestu leyti sjálfir. Menntun er
t.d. sú lágmarksþekking, sem
starfsmaður þarf að hafa til-
einkað sér til þess að geta gegnt
starfinu á fullnægjandi hátt.
Starfsþjálfun er sú þekking,
sem ávinnst i starfi og telst
ekki beinlínis til menntunar.
Tengslin þar.f kannski að skýra
sérstaklega út. 1 þeim felast
þær kröfur, sem starfið gerir til
starfsmanns um tjáningargetu
og um samskipti við aöila utan
stofnunárinnar og innan. Tján-
ingargetan lýsir sér 1 því að
veita upplýsingar, túlka staö-
reyndir og setja fram vandasöm
mál. ...
í hverjum gtarfsþátta eru
gefin mismúnándi möfg stig
eftir því, hvaöa kröfur starfið
gerir til þess ákveðins þáttar.
— Ábyrgö er þannig metin frá
30 upp í 270 stig og er þar
margt tekið til greina. Hámarks-
stigafjöldi í öðrum greinum eru:
Fyrir sjálfstæði og frumkvæði
260 stig. menntun 240, starfs-
þjálfun 200, áreynslu 100, tengsl
60 og vinnuskilyrði 30 stig.
1 sýnishorni á stigagjöf nokk-
urra starfshópa kemur í ljós, að
þar fá aílir starfshópar einhver
stig fyrir alla þætti nema á-
reynslu og vinnuskilyrði. Fyrir
vinnuskilyrði fá þannig engir 1
sýnishominu stig nema bréfber-
ar, linumenn og lögregluþjónar.
Fyrir áreynslu fá nokkrir starrs-
hópar engin stig, þar á meðal t.
d. ráðuneytisstjórar, forstjórar
rikisfyrirtækja, dómarafulltrúar
og sóknarprestar.
Mjög mikil breidd er í „eink-
unnagjöf" sem hinir einstök
starfshópar fá. í sýnishorninu
fá símaverðir lægstu stigatöluna
eða 255 stig. — Ráðuneytis-
stjórar eru hins vegar lang-
hæstir með 970 stig. í þeirra
tilviki er þaö veigamest, að þeir
fá hámarksstigafjölda fyrir á-
byrgð, sjálfstæði og frumkvæði
og starfsþjálfun. Hins vegar fá
þeir aðeins 190 af 240 stigum
fyrir menntun. Þá eru þeir ekki
taldir þurfa aö fullnægja mestu
kröfum, sem geröar eru í
tengslaflokknum eða eftirtöld-
um kröfum: „Störf. sem gera
sérstaka kröfu til túlkunar- eöa
tjáningarhæfileika. Otskýringar,
umræður og sannfæringarmátt-
ur skipta meginmáli við að afla
skilnings almennings og stjóm-
valda"
í starfsmatinu er gerð grein
fyrir launakjörum ytri viðmið-
unarstarfa, þ.e. laun starfshópa
á almennum vinnumarkaði, en
þessum starfshópum eru einnig
gefnar „einkunnir**. Gerð er
grein fyrir því. að við vægi ein-
stakra þátta starfsmatsins
hafi verið nauðsynlegt að taka
mið af þessum hópum. Launa-
kjör þessara starfshópa var
miðað við júnímánuð sl. og
fundnar rammatölur, sem laun
hinna einstöku hópa féllu að
mestu innan. Laun símavarða,
sem fá einkunina 255 eins og
áður var skýrt frá voru talin
11.700—13.800. Hæstu laun
þessarra viðmiöunarhópa höfðu
hins vegar deildarverkfræöing-
ar, 26.800—40.000 kr„ en þeir
fá einkunnina 740 stig. Deildar-
stjórar höföu 27.000—29.000
kr„ en þeir fá einkunnina 555 st.
Ef reiknaö er út gróflega hæsta
og lægsta stigatala og hæstu og
lægstu laun viðmiðunarhópsins
sést, aö munur á launum og
stigafjölda er alveg sambærileg-
ur. Launin og stigafjöldinn er í
báðum tilvikum þrisvar sinnum
hærri í hæsta flokknum.
Þetta kerfi, sem verið er að
móta, tekur þó enga afstöðu til
beinna ákvarðana launa og er
það einmitt talið þvi til gildis.
Með kerfinu er unnt að halda
eiginlegu starfsmati og beinni
ákvörðun launa aöskildu. Það
kann því vel svo að fara, aö
verði starfsmatið tekið upp í nú-
verandi mynd eða með einhverj-
um breytingum verða ekki bein-
ar krónutölur á bak við hvert
stig, heldur verði stigin aðeins
notuð til að skipa mönnum í
eins réttláta launaflokka og
unnt er. — Réttlætið verður þó
án efa aldrei alfullkomið, a. m.
k. ekki hvaö viövíkur einstök-
um mönnum. Einnig er eðlilegt
að álita, að misjöfn stigatala
veröi ekki látin virka fyrr en
neðstu starfshópar eru komnir
á lágmarksrauntekjur, sem lif-
andi er af. Það verður síðan að
fara eftir ástandi þjóðarlíkam-
ans á hverjum tíma, hvað hægt
er að láta hópa með hærri eink-
unnir njóta þess f ríkum mæli.
Hvernig sem þetta starfsmat
kann að verða notað er það
augljóst, að hinum almenna
vinnumarkaði á Islandi veitir
ekki síöur af slíku starfsmati.
Það væri því óskandi, að annaö
starfsmat fylgdi í kjölfar þessa.
Það er ekki víst, að verkföll yrðu
eftir það alveg eins algeng.
— vj —
‘
\
\
\
[