Vísir - 02.02.1970, Blaðsíða 9

Vísir - 02.02.1970, Blaðsíða 9
V 1 S I R . Mánudagur 2. febrúar 1970. 9 TÍSISm: Gætuö þér hugsað yður að ganga í síðum kjól sérstaklega sniðnum fyr ir kartmenn, eins og nú er í tízku í París? Kjartan Guöbjartsson, nemi í Gagnfræöaskóla Austurbæjar: „Já, ég gæti vel hugsað mér þaö. Mér finnst þetta mjög smart klæðnaöur". Bárður Níelsson, landsprófs- nemandi: „Nei, svo sannarlega ekki. Ég kynni engan veginn við mig í slíkum klæönaði". Páll Pálsson, nemi í píanólei „Nei alls ekki. Ég kann eng veginn viö, að karlmenn gar i kjólum. Slíkur klæðnaö finnst mér nú eingöngu fyi kvenfólk". Einar Björnsson, skrifstofumað- ur: „Nei, það gæti ég alls ekki hugsaö mér. Þetta er nú einum °f broslegur klæönaður til þess, uöég vildi klæðast honum“. ............ .. ' il i Magnús Kjartansson, löf þjónn: „Engan veginn. nó helzt hafa kvenfólkiö iwUm. ^éir finnast þei: ^inlfnis heppilegur klæi •yrir karlmenn'* Opinberum starfsmönnum ge fnar einkunnir Ráðuneytisstjóri fær 970 sfig, bréfberi 265 stig — Langt komið að ganga frá fyrsta raunhæfa starfsmatinu á Islandi Lögregluþjónar fá 420 stig. Þeir eru me'ðal fárra stétta, sem fá stig fyrir vinnuskilyrði og þeim eru gefin all mörg stig fyrir áreynslu. □ Átökin um það, hvernig skipta skuli ytri gæðum þjóðarinnar á milli þegnanna, hafa verið mjög áberandi á íslandi, enda hafa erlendir menn oft sérstaklega orð á því. Tortryggni, illindi, róg- ur og svo óhjákvæmilega verkföll, stundum algjörlega að nauðsynjalausu hafa ver- ið óhjákvæmilegar afleiðing- ar skorts á raunhæfu viðmið- unarkerfi, sem gæti raðað launþegum í eðlilega launa- flokka. Lausnin á óánægju ýmissa stétta og hagsmuna- hópa með laun sín og kjör hefur oft verið fólgin í því að stinga eins lítilli dúsu upp í þessa hópa og komizt hefur verið af með hverju sinni. Og um leið og einn hópur hefur fengið upp í sig sína dúsu, sem nægt hefur til friðar hverju sinni hefur annar komið í staðinn, sem hefur heimtað sinn snúð. Stundum hafa kröfugerðim- ar verið réttlætanlegar, stund um ekki. Á stæöur þess, aö þetta vanda- mál hefur veriö hér meira áberandi en í mörum öðrum löndum eru sjálfsagt margvís- legar, en það kann aö vera, að okkar stéttalausa þjóöfélag og hvað íslenzkt nútímaþjóöfélag hefur byggzt upp á skömmum tíma, hafi hindrað eðlileg laima- hlutföll á milli starfshópa. Launamismunur á íslandi eftir vinnustéttum viröist í mörgum tilvikum ærið tilviljunarkennd- ur, bæöi hjá opinberum starfs- mönnum og jafnvel á hinum al- menna launamarkaöi. Flestir hafa aftur á móti gert sér grein fyrir því á undanföm- um árum, að æskilegt væri að finna kerfi, sem raöa ætti mönn- um í eftir ákveönum hlutföllum og skipta síðan þjóðártekjunum eftir þvi. Viöhorf einstakra manna til slíks kerfis hlýtur þó að fara mikið eftir þvi hvar viðkomandi telur stöðu sína í slíku kerfi. Um þessar mundir er verið að gera fyrstu alvarlegu tilraun- ina hér á landi til að gera slikt kerfi. Það er Bandalag starfs- manna ríkis og bæja og fjár- málaráöuneytið, sem hafa unnið að þessum málimi frá áramótum 1966—67, en auk fulltrúa ríkis- valdsins og BSRB hefur fulltrúi Bandalags háskólamanna átt þess kost að fylgjast með þess- um störfum og getað gert grein fyrir sjónarmiðum háskóla- manna. Drög að starfsmatinu hafa legið fyrir viðkomandi aðilum nú síðan í september á fyrra ári, en er búizt er við að aðilar geri grein fyrir viðhorfum sinum fljótlega upp úr næstu mánaða- mótum. Drögin eru algjör frum- smíð, en ekki er kunnugt um, að til sé starfsmannakerfi, sem nær yfir jafn fjölbreytilegt verksvið og um er að ræða hjá íslenzka ríkinu. Starfsmat eins og þetta er mjög vandasamt verk, enda eru deilur um laun og ákvörðun ! ■■■■■ !■ : ■■■ þeirra meðal vandasömustu fé- lagsstarfa. Það er því ekki viö þvi að búast, að allir muni fella sig við starfsmatið og að ekki megi finna vankanta á því. Jafnvel þó að algjörlega „rétt“ starfsmat yrði samið er augljóst, aö það yrði háð sífelldum end- urskoðunum. Fjórar gerðir starfsmats koma til greina í flestum til- vikum; röðunarkerfi, flokkunar- kerfi, þáttasamanburðarkerfi og stigakerfi Síöasta kerfið var valið, enda talið, að það hafi marga ótvíræða kosti. Það er útbreiddast starfsmatakerfa og hefur ýmsa kosti fram yfir hin. Helzta einkenni kerfisins er það, að valdir eru þættir eða ein- kennj starfa, sem eiga aö hafa áhrif á röð þeirra. Þessir þættir eru skilgreindir á eins ljósan og ótvíræðan hátt og kostur er. Af ýmsum ástæðum urðu eftirtaldir þættir fyrir valinu: Menntun, starfsþjálfun, sjálf- stæði og frumkvæði, tengsl, á- byrgð, áreynsla og vinnuskil- yrði. Þessir þættir eru mishátt metnir. Þannig er ábyrgð hæst metin. Hlutfall hennar af heild- armatinu er 23.3%. Næst kem- ur sjálfstæöi og frumkvæði 22.4%, menntun 20.7%, starfs- þjálfun 17.2%, áreynsla 8.6%, tengsl 5.2% og vinnuskilyrði 2.6%. Þessir þættir skýra sig að mestu leyti sjálfir. Menntun er t.d. sú lágmarksþekking, sem starfsmaður þarf að hafa til- einkað sér til þess að geta gegnt starfinu á fullnægjandi hátt. Starfsþjálfun er sú þekking, sem ávinnst i starfi og telst ekki beinlínis til menntunar. Tengslin þar.f kannski að skýra sérstaklega út. 1 þeim felast þær kröfur, sem starfið gerir til starfsmanns um tjáningargetu og um samskipti við aöila utan stofnunárinnar og innan. Tján- ingargetan lýsir sér 1 því að veita upplýsingar, túlka staö- reyndir og setja fram vandasöm mál. ... í hverjum gtarfsþátta eru gefin mismúnándi möfg stig eftir því, hvaöa kröfur starfið gerir til þess ákveðins þáttar. — Ábyrgö er þannig metin frá 30 upp í 270 stig og er þar margt tekið til greina. Hámarks- stigafjöldi í öðrum greinum eru: Fyrir sjálfstæði og frumkvæði 260 stig. menntun 240, starfs- þjálfun 200, áreynslu 100, tengsl 60 og vinnuskilyrði 30 stig. 1 sýnishorni á stigagjöf nokk- urra starfshópa kemur í ljós, að þar fá aílir starfshópar einhver stig fyrir alla þætti nema á- reynslu og vinnuskilyrði. Fyrir vinnuskilyrði fá þannig engir 1 sýnishominu stig nema bréfber- ar, linumenn og lögregluþjónar. Fyrir áreynslu fá nokkrir starrs- hópar engin stig, þar á meðal t. d. ráðuneytisstjórar, forstjórar rikisfyrirtækja, dómarafulltrúar og sóknarprestar. Mjög mikil breidd er í „eink- unnagjöf" sem hinir einstök starfshópar fá. í sýnishorninu fá símaverðir lægstu stigatöluna eða 255 stig. — Ráðuneytis- stjórar eru hins vegar lang- hæstir með 970 stig. í þeirra tilviki er þaö veigamest, að þeir fá hámarksstigafjölda fyrir á- byrgð, sjálfstæði og frumkvæði og starfsþjálfun. Hins vegar fá þeir aðeins 190 af 240 stigum fyrir menntun. Þá eru þeir ekki taldir þurfa aö fullnægja mestu kröfum, sem geröar eru í tengslaflokknum eða eftirtöld- um kröfum: „Störf. sem gera sérstaka kröfu til túlkunar- eöa tjáningarhæfileika. Otskýringar, umræður og sannfæringarmátt- ur skipta meginmáli við að afla skilnings almennings og stjóm- valda" í starfsmatinu er gerð grein fyrir launakjörum ytri viðmið- unarstarfa, þ.e. laun starfshópa á almennum vinnumarkaði, en þessum starfshópum eru einnig gefnar „einkunnir**. Gerð er grein fyrir því. að við vægi ein- stakra þátta starfsmatsins hafi verið nauðsynlegt að taka mið af þessum hópum. Launa- kjör þessara starfshópa var miðað við júnímánuð sl. og fundnar rammatölur, sem laun hinna einstöku hópa féllu að mestu innan. Laun símavarða, sem fá einkunina 255 eins og áður var skýrt frá voru talin 11.700—13.800. Hæstu laun þessarra viðmiöunarhópa höfðu hins vegar deildarverkfræöing- ar, 26.800—40.000 kr„ en þeir fá einkunnina 740 stig. Deildar- stjórar höföu 27.000—29.000 kr„ en þeir fá einkunnina 555 st. Ef reiknaö er út gróflega hæsta og lægsta stigatala og hæstu og lægstu laun viðmiðunarhópsins sést, aö munur á launum og stigafjölda er alveg sambærileg- ur. Launin og stigafjöldinn er í báðum tilvikum þrisvar sinnum hærri í hæsta flokknum. Þetta kerfi, sem verið er að móta, tekur þó enga afstöðu til beinna ákvarðana launa og er það einmitt talið þvi til gildis. Með kerfinu er unnt að halda eiginlegu starfsmati og beinni ákvörðun launa aöskildu. Það kann því vel svo að fara, aö verði starfsmatið tekið upp í nú- verandi mynd eða með einhverj- um breytingum verða ekki bein- ar krónutölur á bak við hvert stig, heldur verði stigin aðeins notuð til að skipa mönnum í eins réttláta launaflokka og unnt er. — Réttlætið verður þó án efa aldrei alfullkomið, a. m. k. ekki hvaö viövíkur einstök- um mönnum. Einnig er eðlilegt að álita, að misjöfn stigatala veröi ekki látin virka fyrr en neðstu starfshópar eru komnir á lágmarksrauntekjur, sem lif- andi er af. Það verður síðan að fara eftir ástandi þjóðarlíkam- ans á hverjum tíma, hvað hægt er að láta hópa með hærri eink- unnir njóta þess f ríkum mæli. Hvernig sem þetta starfsmat kann að verða notað er það augljóst, að hinum almenna vinnumarkaði á Islandi veitir ekki síöur af slíku starfsmati. Það væri því óskandi, að annaö starfsmat fylgdi í kjölfar þessa. Það er ekki víst, að verkföll yrðu eftir það alveg eins algeng. — vj — ‘ \ \ \ [

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.