Vísir - 12.02.1970, Page 6

Vísir - 12.02.1970, Page 6
6 V í S IR . Fimmtudagur T2. febrúar 1970. Iðnaðarmálaráöherrar Norðurlanda á fundi í Reykjavík 8.2. 1970. Talið frá vinstri: Swerre Walter Rostoft, Noregi; Knud Thomsen, ; Danmörku; Jóhann Hafstein; Váinö Leskinen, Finnlandi; Krister Wickman, Svíþjóð. Norrænt samstarf í kjarnorkumálum Fundur iðncf&arráðherra Norðurlanda i Reykiaivik „Má ekki hjóða h ér einn mola?" „Heitir þú Geir?‘‘ „Ertu borgarstjóri?“ „Má ekki bjóða þér einn raola?“ Þannig hljómuðu spumingarn ar, er Geir borgarstjóri fékk að svara fyrir nokkru. Þær komu beint frá hjörtum og barnslegum hugum gesta um borð í brezka eftirlitsskipinu Orsino er hér var I höfn á þriðjudag. Gestirnir voru börn af vist- heimili Reykjavikurborgar við Dalbraut. Skipshöfnin bauð þeim að skoða skipið, í þakklæt isskyni við alla þá aðstoð og hjálp, er Islendingar hafa jafn- an veitt brezkum sjómönnum í sjávarháska hér við strendur landsins. Auk þess, sem börnunum var sýnt skipið hátt og lágt, horföu þau á kvikmyndir og þáöu góm sætar veitingar um borð. -mv- íslenzki ráöherrann lagði áherzlu á, að sem fyrst bærust tilnefningar frá hinum Norðurlöndunum um fulltrúa í stjórn sjóðsins, þannig að fyrsti fundur gætj orðið haldinn hér fyrri hlutann í marz, en gildis- taka samningsins um norræna iön þróunarsjóðinn miðast við 1. marz, eins og gildistaka þátttöku okkar í EFTA. Aðalefni fundarins var hugsan- leg norræn samvinna um kjarn- orku. Af hálfu nefndar þeirrar, er iðnaðarráðherrar Norðurlandanna, annarra en íslands, höföu skipað, var framlögð greinargerö um störf in hingað til. Ráðherrarnir fólu nefndinni aö starfa áfram og hafa satmráð við iðnaðarstofnanir hver i sínu landi, til þess að reyna á þanm hátt að mynda raunhæfan samstarfsgrund- völl. Hér er um að ræða samstarf um hagnýta notkun kja-morku, en á öðru sviði er þegar unnið að vísindalegri norrænni samvinnu um kjamorku og hafa íslendingar ver- ið þátttakendur á því sviði. Ekki var fastmælurn bundið um tímasetningu næsta fundar iðnaðar ráðherranna, en gert ráö fyrir, að hann verði haldinn I Helsinki. Tvisvar á ári. — Miðstöð viðskipta og tækni. Kaupstefnan í Leipzig sýnir hina hröðu framþróun Þýzka Alþýðulýðveidisins og býður kaupsýsiumönnum einstakt tækifæri tii að kynnast öllu því nýjasta f framleiðslu neyzlu- og iðnaðarvara. Kaupstefnan I Leiþzig, sem var stofnr.ett fyrir átta öidum, safnar vöruframboði úr viðri veröid til sýois gestum sinum hvaðanæfa að. Hittumst I Leipzig! Vorsýningin í Leipzig 1.—10. marz 1970 Haustsýningin í Leipzig 30. ágúst—6. september 1970 Kaupstefnuskírteini og allar upplýsingar, svo og um ferðir til Leipzig fást hjá umboðinu: Kaupstefnan - Reykjavik Pósthússtr. 13 - símar 24397 og 10509 KAUPSTEFNAN LEIPZIG ÞÝZKA ALÞÝÐULÝÐVELDIÐ Fundur iðna&arráöherra Norður- landa var haldinn i Reykjavík 8. febrúar 1970. í forsæti á fundin- um var íslenzki iðnaðarráðherr- ann, Jóhann Hafstein. Fundinn sátu ennfremur þessir iðnaðarráð- herrar: V. Leskinen, Finnlandi, S. W. Rostoft, Noregi, K. Wickinan, Svíþjóö og K. Thomsen, Dan- mðflUI? en' hartn -'fér' jafnframt- með verzlunarmáL •• Ráðherramir 'fjölluðú um .nor- ræna samræmingu á sviði vísinda og tækni og gagnkvæmar upjplýs- ingar og skýrslugerðir. Þá var og rætt um alþjóða upplýsingastarf- semi og hafrannsóknir innan tak- marka iðnþróunarmöguleika.; Á þessum fundi var gerð grein fyrir slíkum rannsóknum. Einnig var í þessu sambandi rætt um rannsókn- ir landgrunnsins, bæði varðandi hugsanlega möguleika á jarðefna- vinnslu og við olíuborun. Gerði ís- lenzki ráðherrann grein fyrir ný- lega settum landgrunnslöguni ís- lendinga og einnig athugunum á olíuborun, sem að vísu þætti að svo komnu máli ekki líkleg til ár- angurs. Af Islands hálfu var gerð grein fyrir norræna iðnþróunarsjóðnum.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.