Vísir - 21.02.1970, Blaðsíða 4
'AWVW
V í SIR . Laugardagur 21. felsrúar 1970.
4
V.WV.VAV^AVA'.WAV.WiVAV.V/.W.V.W.VWA*.
A f mörgum öflugum skákmót-
um sem haldin voru á árinu
1069 var mótið á Palma de
Maliorca það sterkasta. Þar
voru mættir til leiks þrír fremstu
skákmenn Sovétríkjanna um
þessar mundir, heimsmeistarinn
Spassky, Petroshan og Kortsnoj.
Frá Danmörku kom Larsen. og
Hort frá Trékkóslóvakíu. Að
auki tefldu ýmsir þekktir meist
arar. Najdorf, Mecking, Unzick-
er o. fl.
Á móti sem þessu hlaut margt
óvænt að gerast. Þegar í 1. um-
ferð tapaði Larsen gegn hinum
17 ára Brazilíumanni Mecking,
eftir að hafa sótt heldur óvægi-
lega. í 2. umferð tefldu þeir
saman Spassky og Larsen. Var
það af mörgum talin úrslitaskák
mótsins, enda urðu harðar og
miklar sviptingar. Spassky fóm
aöi snemma peði og fékk sóknar-
færi fyrir. Larsen varðist af hug-
kvæmni og er skákin fór í bið
virtist staöa hans unnin. En
vinningurinn lá ekki á lausu,
heimsmeistarinn neytti allra
þeirra færa sem staöan bauð upp
á og að lokum féll Larsen í
lúmska gildru. Spassky var ekki
seinn á sér, fómaði drottning-
unni og Larsen gafst upp fyrir
óstöðvandi frípeði.
Þessi skák hafði ó'lík áhrif á
þá félaga. Spassky slakaði sýni-
lega á, vann aðeins tvær skákir
eftir þetta og gerði fjöldann all
an af jafnteflum. Larsen færðist
hins vegar allur í aukana og er
fjórar umferöir vom e-ftir var
hann kominn í efsta sætið ásamt
Petroshan, með 8V2 vinning af
13 mögulegum. Enn einu sinni
sýndi Larsen sitt frábæra
keppnisskap, hlaut 3y2 vinning
af síðustu 4 og hreppti einn
efsta sætið með 12 vinninga af
17 mögulegum. í 2. sæti varð
Petroshan með lU/2 vinning og
3.—1. Kortsnoj og Hort með
IO14. Spassky varð að láta sér
lynda 5. sætið, hlaut 10 vinninga
og tapaði engri skák.
Að lokum skulum við lita á
hina mögnuðu baráttu Spasskys
og Larsens í 2. umferð.
Hvítt: Spassky.
Svart: Larsen.
Spánski leikurinn.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rge7
Fyrir síðustu aldamót var
þessi leikur aigengur, en hefur
nú að mestu horfið af sjónar-
sviðinu. Larsen er mikill fom-
leifafræðingur, grefur upp gaml-
ar byrjanir sem hann síðan end-
urbætir. Þessi vinnubrögð hafa
reynzt danska meistaranum
notadrjúg og gefið honum marg-
an vinninginn.
4. 0-0
Fyrir tæpum hundrað árum,
eöa nánar tiltekið 1873 lék
Blackburn gegn Steinitz 4. d4
exd 5. Rxd RxR 6. DxR Rc6 7.
Dd5 Be7 8. Rc3 Bf6 9. Bd2 og
hvítur fékk betri stöðu.
4......a6 5. Ba4 d6 6. c3 Bd7
7. d4 Rg6 8. Hel Be7 9. Rbd2
0-0 10. Rfl De8
Hótar Rxd sem vinnur peð.
11. Bb3 Bg4 12. Re3!?
Djarflega leikið. Hvítur fórnar
peði fyrir sókn. Rólegri le}kir
svo sem 12. Be3 eru ekki að
skapi heimsmeistarans.
12.....BxR 13. DxB exd 14.
Rf5 Bf6 15. Bd2 dxc 16. Bxc
BxB 17. DxB De5 18. Hacl Hfc8!
Eftir 18.....DxD hefði svart-
ur lent í kröggum. T.d. 19. HxD
Hac8 20. Bd5 Rd8 21. Rxd. Eða
19..... Hfc8 20. Bd5 Rd8 21.
Hacl og hvítur vinnur peðið
aftur með betri stöðu.
19. Dd2 Rge7 20. f4 Df6 21.
RxRt DxR 22. Bd5 Dd7 23. Hc3
Hab8 24. Hg3 Re7 25. Dc3 g6
26. Bb3 c5 27. f5 c4 28. Bdl Db5
29. f6 Rc6 30. Dcl Dc5t 31. Khl
Df2
Svartur hefur varzt af prýði
og haldið peðinu. Eina von hvíts
liggur í veikingu svörtu kóngs-
stöðunnar og um hana geisar
baráttan.
32. Bf3 He8 33. Hfl Dd4 34.
e5!
Ef 34. Dg5 h6 35. Dh4 He6
36. Bg4 Hxe 37. Dxh Dxf 38.
Hgf3 (Ekki 38. HxD Helt og
mátar) Dh8 og svartur er slopp-
inn.
34. ...Dxe 35. Bd5 Rd4
Ekki 35...... DxB? 36. Dh6
og mátar.
36. Bxc Re2! 37. BxR
Þvingað. Ef 37. Dh6 RxHt
38. hxR Dh5t og vinnur,
37..... DxB 38. Hgf3 Kh8
39. Dh6 Hg8 40. Hlf2 Delf 41.
Hfl De2 42. Hlf2 De5
Larsen hafnar jafnteflinu og
teflir til vinnings.
43. He3 Dd5
Svartur má ekki fara af 5.
reitaröðinni vegna drottningar-
fórnar hvíts á h7.
44. h4 Hbc8 45. He7 g5!
Hraustlega leikið. Svartur er
skyndilega kominn með hættu-
lega mótsókn. Nú dugar ekki 46.
hxg Hxg 47. Kgl Hclt og
vinnur.
46. Kh2 Hc4 47. hxg Hg4 48.
He8! Hxg5 49. HxHt KxH 50.
Kgl Ddlt 51. Hfl Dd4t 52. Hf2
Ddlt 53. Hfl Dd4t 54. Hf2 De3
Enn hafnar Larsen jafnteflinu
og hótar nú að vinna drottning-
una með Hxgt.
55. Dh4 h6 56. Dc4 Delt 57.
Hfl De3t 58. Hf2 Hc5 59. Dg4t
Dg5 60. De4 He5 61. Dd4 Dg3
62. Dd2 h5 63. Kfl Dg6 64. Kgl
He6 65. Dc3
Þessi leikur gerir meira en
valda peðið á f6, hann hótar
skjótum vinning, Og eitt augna-
blik gleymir Larsen sér.
65..... h4?? 66. Dc8t Kh7
67. DxH! og Larsen gafst upp.
Óvæntur endir á stórkostlegri
skák. Jóhann Sigurjónsson.
• •' • o m m m m 1
Samvinnubankinn
hefur opnað útibú í Vík í Mýrdal.
Afgreiðslutími kl. 9.30—12 og 13.30—16.
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS.
Úrva! úr dagskrá eiæstu viku
SJÚNVARP m
Sunnudasur 22. febr.
18.00 Helgistund. Séra Ágúst Sig
urðsson, Vallanesi.
18.15 Stundin okkar. Leynilög-
reglumeistarinn Karl Blóm-
kvist.
Leikrit eftir samnefndri sögu
Astrids Lindgrens.
Þýöandi Hulda Valtýsdóttir.
Leikstjóri Helgi Skúlason.
Leikendur: Björn Jónasson, Sig
urður Grétarsson, Tinna Gunn
laugsdóttir, Steindór Hjörleifs-
son, Borgar Garðarsson. Daníel
Williamsson, Erlendur Svavars
son og Arnhildur Jónsdóttir.
Áður sýnt í tveimur hlutum 29.
og 31. desember 1968.
Umsjón: Andrés Indriöason og
Tage Ammendrup.
19.15 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.20 Skautahátíðin í Inzell.
Hátíðahöld þar sem koma
fram m.a. frægir skautadans-
arar frá ýmsum löndum.
21.20 Réttur er settur. Þáttur í
umsjá laganema við Háskóla Is
lands. Ósætti verður milli
bónda nokkurs og ungrar
stúlku, sem veriö hefur ráðs-
kona hjá honum og eignazt
með honum barn. Fjallað er
um kröfu hennar til ráöskonu
launa og ráðspjallabóta og
lagður dómur á það, hvort hún
megi fara með barnið til út-
landa gegn vilja þess, þótt
hún hafi umráðarétt yfir því.
22.35 Dagskrárlok.
Mánudagur 23. febr.
20.35 Einn, tveir, þrír ... Finnska
söngkonan Ann-Christina og
hljómsveitin Kössi Hármá
syngja og leika í sjónvarpssal.
ÚTVARP m
21.00 Höfnin. Mynd frá Reýkja-
víkurhöfn, unnin af ungum
kvikmyndageröamema, Þor-
steini Jónssyni, árið 1967.
21.15 Markurell. Framhalds-
myndaflokkur í fjórum þáttum,
gerður af sænska sjónvarpinu
eftir skáldsögu Hjalmars Berg-
mans. Þýð. Ólafur Jónsson. —
3. þáttur.
22.10 Frá sjónarheimi. 4. þáttur.
Hér þarf aö mála mynd.
Franski málarinn J. L. David
og nýklassíski stíllinn. Um-
sjónarmaður Björn Th. Björns-
son.
Þriðjudagur 24. febr.
20.30 Stainaldarmennirnir.
Tengdamamma kemur í heim-
sókn.
20.55 Um uppruna og eðli Islend-
ingasagna. Umræðuþáttur.
Þátttakendur eru Bjarni Guðna
son, prófessor, Jón Böðvarsson,
menntaskólakennari og Óskar
Halldórsson, lektor, sem jafn-
framt stýrir umræðum.
21.30 Stúlka í svörtum sundföt-
um. Nýr sakamálamyndaflokk-
ur í sex þáttum, gerður af
brezka sjónvarpinu BBC. Þýð-
andi Rannveig Tryggvadóttir.
1. þáttur.
21.55 Landkönnun á norðurslóð-
um II. Tveir síðari þættirnir af
fjórum, sem Kvikmyndaráð
Kanada lét gera um ferðir og
ævistörf Vilhjálms Stefánsson-
ar og Henrys Larsens.
Miðvikudagur 25. febr.
18.00 Denni dæmalausi. Sá á
•kvölina:.; °’
18.25 Hrói Höttur. Silfurpening-
arnir.
20.30 Ferðalag um furðuslóðir.
(21. öldin). Vísindin hafa skap-
að undursamlega möguleika til
könnunar á innri gerð líkam-
ans, ekki sízt meö myndatækni. i
20.55 Chaplin. Leikmunavörður. I
21.05 Miðvikudagsmyndin. Vinur
í raun. Frönsk kvikmynd, gerö
árið 1«8S.
Föstudagur 27. febr.
20.35 Þúsund kann ég kvæðL
Gömul, sænsk þjóðkvæöi og
þulur. Bætt hefur verið við iá-
einum, íslenzkum hliðstæðum. '
Flytjandi íslenzku kvæðanna er ;
Óskar Halldórsson, lektor, en
Jón Marinó Samsonarson, mag. ’
art. þýddi sænsku kvæöin og j
valdi hin íslenzku.
21.00 Fræknir feðgar. Máttur j
orösins. I
21.50 Erlend málefni. Umsjónar- j
maður Ásgeir Ingólfsson.
I
Laugardagur 28. febr. |
16.00 Endurtekið efni. 1 jöklanna
skjóli. Annar hluti mynda-
flokks, sem gerður var að til- j
hlutan Skaftfellingafélagsins í 1
Reykjavík á árunum 1952—54. j
Fýlatekja og meltekja. .
16.20 I góðu tómi. Umsjónarmað-
ur Stefán Halldórsson. 1 þætt-
inum koma fram Gerður Guð-
mundsdóttir Bjarklind, Guö-
mundur Sigurjónsson, skákmaö
ur, og hljómsveitin Roof Tops.
Einnig er rætt við nokkra
badmintonmenn.
17.00 Þýzka í sjónvarpi.
17.40 Krabbamein í brjóstL
Fræðslumynd. Þýðandi og þul-
ur Þórarinn Guðnason, læknir.
20.25 Neskaupstaður. Sjónvarps-
dagskrá frá síðastliðnu sumri.
Umsjón: Markús Öm Antonss.
20.50 Dísa. Ekki er allt sem sýn-
ist.
21.15 Tónupptaka. Mickey Most
hefur þann starfa að stjóma
upptöku á hljómplötum ýmissa
þekktustu popphljómsveita og
söngvara í Bretlandi.
21.40 Áfram, draugar. Brezk gam
anmynd frá árinu 1966. Leik-
stjóri Gerald Thomas.
heimsmeistarakeppninnar.
20.45 Leikrit: „Landafræði“ eftir
Martin Walser. Leikstjóri:
Helgi Skúlason.
22.25 Spurt og svaraö. Ágúst
Guðmundsson leitar svara við
spumingum hlustenda um ætt-
amöfn o. fl.
Föstudagur 27. febr.
19.35 Efst á baugi. Magnús Þórð-
arson og Tómas Karlsson segja
frá.
20.20 Á rökstólum. Björgvin Guð
mundsson stjórnar viðræðu-
fundi.
21.05 Samleikur í útvarpssal. Sig
urður J. Snorrason og Guðrún
Kristinsdóttir leika.
22.45 Kvöldhljómleikar: Óperan
„Meistarasöngvararnir frá
Niirnberg" eftir Richard Wagn
er. Þorsteinn Hannesson kynn-
ir annan þátt óperunnar.
Laugardagur 28. febr.
13.00 Þetta vil ég heyra.
14.30 Pósthólf 120.
15.15 Laugardagssyrpa í umsjá
Þórðar Gunnarssonar og
Björns Baldurssonar.
17.30 Meðal Indíána í .Awieríkil
Haraldur Ólafsson dagsrtrár-
stjóri flytur þáttinn.
20.00 Iþróttalýsing frá Frakk-
landi. Jón Ásgeirsson lýsir
handknattleik íslendinga og
Dana, er fram fer í Hagond-
ange og er annar leikur ís-
lenzka liðsins í heimsmeistara-
keppninni.
21.15 Á háaloftinu. Jökull Jakobs
son rótar enn á ný í gulnuð-
um blööum og rykföllnuw
grammótonpiotum.
22.25 Danslagafónn útvarpsins.
ÚTVARP m
Sunnudagur 22. febr.
14.35 Handknattleikskeppni ís- i
lendinga og Bandaríkjamanna > j
Laugardalshöll. Sigurður Sig- j
urðsson lýsir síðari hluta
seinni landsleiksins.
20.10 Kvöldvaka.
a. Lestur fornrita. Dr. Finn-
bogi Guðmundsson les Orkp- I
eyingasögu (6). •
b. Sigurður Fljótsdælaskáld. ■
Eiríkur Eiríksson bóndi í I
Dagverðargerði flytur frásögu- j
þátt. j
c. Skóhljóö. Baldur Pálmason
les ljóð og stökur eftir Sigur j
bjöm Stefánsson frá Gerðum í |
Óslandshlíð.
d. íslenzk lög. Karlakór Akur-
eyrar syngur. Söngstjóri: Ás- j
kell Jónsson.
e. Möðrudals- og Brúaröræfi. :
Jónas Pétursson alþm. flytur
ferðaþátt.
f. Harmleikur á leið í ver. Jón
as St. Lúðvíksson segir frá.
g. Þjóðfræðaspjall. Árni
Björnsson cand. mag. flytur.
Mánudagur 23. febr.
19.30 Um daginn og veginn. Hall i
dór Blöndal kennari talar.
19.50 Mánudagslögin.
20.20 Marína. Séra Jón Thoraren-
sen les kafla úr skáldsögu sinni.
21.10 Um almenningsbókasöfn.
Stefán Júlíusson bókafulltrúi
ríkisins flytur síðara erindi sitt j
22.25 Kvöidsagan: „Grímur kaup-
maður deyr“ eftir Gest Pálsson
Sveinn Skorrj Höskuldsson
lektor les (1).
Þriðjudagur 24. febr.
18.00 Félags- og fundarstörf —
4. þáttur.
19.30 Viösjá. Ólafur Jónsson og
Haraldur Ólafsson sjá um
þáttinn.
21.05 Námskynning: Svíþjóð.
Stefán Baldursson sér um þátt-
inn, en auk hans koma frarn
Þorsteinn Helgason, Þorgeir
Guömundsson, Þórarinn Magn-
ússon og Sigrún Júlíusdóttir.
22.55 Á hljóðbergi. Sabinakonurn
ar, gamanleikur í fjórum þátt-
um eftir Franz og Paul Schönth
an.
Miðvikudagur 25. febr.
19.35 Tækni og vísindi. Dr. Guð-
mundur Eggertsson flytur fyrra
erindi sitt um erfðarannsóknir.
19.55 Serenata fyrir fiðlu og
strengjasveit, • hörpu og slag-
verk eftir Leonard Bernstein.
20.30 Framhaldsleikritið „Dickie
Dick Dickens", útvarpsreyfari
í tólf þáttum eftir Rolf og Al-
exöndru Becker. Síðari flutn-
ingur sjötta þáttar.
21.05 Einsöngur: Guðmundur Guð
jónsson syngur íslenzk lög.
21.30 Fíknilyf og félagsleg við-
horf. Þóröur Möller yfirlæknir
flytur erindi.
Fimmtudagur 26. febr.
19.30 Bókavaka. Jóhann Hjálmars
son og Indriði G. Þorsteinsson
sjá um þáttinn.
20.00 I'þróttalýsing frá Frakklandi
Jón Ásgeirsson lýsir síðari hálf
leik í handknattleikskeppni Is-
lendinga og Ungverja, er fram
fer í Mulhouse og er ryrsti leik
ur ísl. liðsins í síðustu lotu