Vísir - 21.02.1970, Blaðsíða 16

Vísir - 21.02.1970, Blaðsíða 16
Allir flokkarnir / Kópavogi sameinaðir um prófkjör Það var heldur betur handagangur í öskjunni á bókamarkaöinum í Iðnskólanum í gærdag skömmu eft ir hádegiö. Þar voru hundruð manna, sem kíktu á þá furöulágu prísa, sem gamlar en í mörgum til- fellum ágætar bækur, eru þarna seldar á. Okkur sýndist raunar að deild „þjóðlegs fróðleiks“ nyti hvað mestra vinsælda, — en hér er mynd af viðskiptamönnum á markaöinum í gær. uninn og stendur til kl. 21, fer þaö þannig fram að menn fá af- henta atkvæðaseöla eins og við venjulegar kosningar en bak við tjaldið veröa fimm kassar merkt ir flokkunum í staö eins kassa eins og venjulega. Kosningarnar eru því fyllilega leynilegar. Heildarþátttaka í kjörinu verö ur ekki gefin upp, en til að geta betur áttað sig á gildi slíks próf kjörs, er ákveðið að geyma kjör skrá og önnur kjörgögn er gildi hafa, undir innsigli og f vörzlu kjörstjómarinnar, þar til fram yfir bæjarstjórnarkosningarnar 31. maí. Skömmu fyrir kjördag verður leiöbeiningum komið í hvert hús í Kópavogi um kjörið. Forráðamenn flokkanna sögðu í gær að ekki væri vitað um kostnaðinn við slíkt prófkjör, en hann væri einkum fólginn f prentun og öðru slíku. Á listum þeim, sem lagðir eru fram verða nöfn allt aö 18 manna og kvenna í stafrófsröð en að auki auðar línur fyrir 5 menn, sem kjósendur kunna að vilja koma á framfæri viö flokk sinn. Setja skal raötölur frá 1—5 á listann þann er kjósendur vilja hafa áhrif á. Aö kosningu lokinni fær síðan hver flokkur sína kjörkassa til úrvinnslu og eftir kjörinu verð ur farið, þegar flokkamir stilla upp endanlegum listum sfnum fyrir bæjarstjómarkosningamar. -JBP- Kjósendur fá jbannig tækifæri til að hafa áhrif á framboðin fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar 31. mai Kröfur kjósenda um auk in áhrif á framboð til bæjarstjórnarkosninga virðast hafa borið árang ur, og prófkjör fara nú fram um allt land. I Kópavogi hafa stjórn- málaflokkarnir fimm, sem gera má ráð fyrir að bjóði fram lista til bæjar stjórnarkosninga í vor, fitjað upp á algjöru ný- mæli, sameiginlegu próf kjöri, sem fer fram í tveim skólum Kópavogs sunnudaginn 8. marz Skriflegt samkomulag hefur nú veriö gert um framkvæmd prófkjörsins, en sömu menn og sitja í yfirkjörstjóm munu sjá um stjórn prófkjörsins, þ.e. þeir Ámi Guðjónsson, Bjami Jónas- son og Gísli Þorkelsson, og gera það í sjálfboðavinnu en ekki sem yfirkjörstjórnarmenn. f Kópavogi eru á kjörskrá eitthvað á 6. þúsund manns að þessu sinni, og fá 20 ára og eldri aö taka þátt í prófkjörinu. Prófkjörið hefst kl. 9 um morg ÞÝZK TILLAGA UM MÁT- STEiNSHÚS ÞÓTTI BEZT Úrslit í samkeppni um hlaðin einbýlishús, sem fyrirtækið Jón Loftsson hf. efndi til meðal arki tekta voru tilkynnt í gær. Nið- urstaðan varð sú, að Ulrik Stahr hlaut 1. verðlaun, 40 þúsund kr., en af 10 tillögum, sem bárust voru 5 valdar til frekari út- færslu. Þetta er í fyrsta sinn, sem fyrirtæki efnir til sam- keppni meðal arkitekta. Önnur verðlaun í samkeppninni, Hóteliö v/ð Mývatn faegar hálfbókað fyrir sumarið Óhagstæð lán fyrir hótel almennt st'óðva allar bollaleggingar um stækkanir, segir hótelstjórinn ■ Við erum þegar búnir að fullbóka 20 daga í sumar og aðra 20 daga er orðið mjög lítið pláss eftir, sagði Amþór Björns- son hótelstjóri á Hótel Reynihlíð við Mývatn í samtali við Vísi í gær. Mun meiri aðsókn ferðamanna viröist ætla að vera í sumar en í fyrra, a.m.k. bera bókanir það með sér. — Þaö er þó fallvalt að treysta um of á bókanir, sagði Arn þór, því að töluverð brögð voru að því í fyrrasumar, að ekkj var staðið við þær pantanir, sem inn- lendar og erlendar ferðaskrifstofur höfðu gert. Þessir aöilar reyndu að vísu að láta vita af slíku, þegar ljóst var hvert stefndi, en það kem ur því miöur oft að litlum notum. í fyrrasumar varð nýting hótels- ins því ekki nema um 90% 3 sum armánuðina, sem er tæplega nógu mikið til að halda uppi hótelinu allt áriö eins og Hótel Reynihlíð er orð iö nú. Þaö hefur að vísu komið sér vel fyrir hótelið, að töluverð gist- ing hefur veriö í því í vetur og fyrravetur, vegna framkvæmda við Kísiliðjuna, gufuveituna og gufu- aflstöðina, en hæpið er, að byggja megi mikið á því til frambúðar. Þó aö nýting hótelsins , virðist ætla að verða góð, og augíjóst er að unnt væri að fá mun fleiri ferðamennn ef meira gistirými væri fyrir hendi, sagði Arnþór, að ekki kæmi til greina að stækka hótelið strax, vegna þeirra afleitu lánakjara, sem hótel eiga við að búa. Lán, sem við getum fengið eru gengistryggð, en það eru lán, sem Ferðamálaráð hefur milligöngu með. Það brenndu sig nægilega margir síðast, þegar skuldirnar hækkuðu um helming á rúmu ári, til þess aö menn séu nú ginn- keyptir fyrir slíku sagöi Arnþór. -vj- 25 þúsund, hlutu Guðmundur Kr. Guðmundsson, Manfreð Vilhjálms- son og Þorvaldur S. Þorvaldsson. Þriðju verðlaun, 15 þúsund krónur, hlaut Magnús Skúlason. Samkeppnin var liöur í kynningu á hleðslusteini frá Jóni Loftssyni hf., sem fyrirtækið hóf haustið 1968 með útgáfu leiðbeiningabækl- ings um hleðslu húsa, en tilgangur hennar er sá að fá fram úrval teikninga, er geröar séu af sérfræö- ingum, viðskiptamönnum fyrir- tækisins til afnota. Verkefnið var í því fólgiö að teikna einbýlishús, staðlað fyrir hleðslustein, fyrir 3—5 manna fjölskyldu. Kvaðir voru að upp- fyllt væru skilyrði byggingar- samþykktar fyrir skipulagsskylda staði, húsin væru lánshæf fyrir húsnæðismálastjórnarlán og Stofn lánadeild landbúnaðarins, húsin væru hóflega nýtt, einföld að gerð og látlaus í útliti. Innan fárra daga mun bæklingur meö myndum af fimm beztu tillög- unum verða afhentur hjá Bygginga þjónustu A. í. og hjá Jóni Lofts- syni hf. Haldin verður sýning á öllum tillögunum, sem bárust í samkeppn ina í húsnæði Byggingaþjónust- unnar og verður hún opin í dag og á morgun frá kl. 16—22 og næstu viku frá 13—18. í dómnefnd voru: Loftur Jónsson forstjóri. Kristján Eiríksson, fram- kvæmdastjóri, Birgir Breiðdal, arki teki, Hrafnkell Thorlacius arkitekt, Ólafur Sigurösson, arkitekt. Trún- aðarmaður dómnefnflar: Ólafur Jensson, fulltrúi. -SB- Þýzki arkitektinn, sem hlaut verð launin fyrir lausn sína varðandi ís- ienzkan hleðslustein, er hér með módel að einbýlishúsi eins og hann hugsar sér það. Skótor „messu" í Langhohskirkju Sóknarpresturinn spilar undir Óvenjuleg guðsþjónusta verður haldin í Langboltskirkju n.k. sunnu dag, en þá mun Skátafélagið Skjöld ungar halda helgistund, þ.e. guðs þjónustu f kirkjunni án nokkurrar aðstoðar þeirra geistlegu, nema hvað Árelíus Níelsson, sóknarprest ur mun spila undir á orgel. Skjöldungar fá aö gera þetta í tilefni skátadagsins, sem er á sunnudaginn og hefst helgistundin kl. 10.30. Meðal þess, sem mun ger ast, er að nýir félagar verða vígðir inn í dróttskátadeildina „Sagitari- us • en í dróttskátadeildunum, sem eru þjálfaðar sérstaklega til neyð arhjálpar og annarrar hjálparstarf semi. eru aðeins eldri skátar, og töluvert snúið að komast inn í þann félagsskap. — Félagarnir I „Sagit- arius vöktu m.a. athygl; fyrir það nýlega, að þeir efndu til óvenjulegr ar björgunaræfingar, þar sem hin hroðalegustu slys voru sett á svið og sveitin látin spreyta sig á að leysa vandamáliö, en frá þessari æfingu var skýrt frá í Vísi á sín- um tíma. _vj.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.