Vísir - 27.02.1970, Side 6
6
V1SIR . Föstudagur 27. febrúar 1970.
Stefnan í
æskulýðs-
málum
iL
GJALLAR-
HORN
HEIMDALLAR
Helgi Þórsson
og
Hreinn Skagfjörð Hákonarson
Gjallarhornið lagði eftirfarandi spurningu fyrir
sex unga menn og konur: Að hverju telur þú að
stefna beri í æskulýðsmálum Reykjavíkur?
þeirra, er vinna við þessi xnál,
því að þannig held ég, að ekki
þurfi að óttast, að unglingarnir
styðji ekki æskulýðsstarfiö sjálf
Karl Jóhannes Karlsson pípu-
lagninganemi, Ásgarði 17, er 20
ára. Hann er kvæntur Guð-
björgu Fanneyju Sigurjónsdótt.
ur.
Karl Jóhannes Karlsson
TKað ber að stefna að því fyrst
og fremst aö hafa næga at-
vinnu fyrir æskufólk í framtíð-
inni, vegna þess að næg atvinna
fyrir unglinga er forsenda fyrir
þvi, að vel takist til meö annað,
svo sem tómstundir. Margt hef
ur veriö gert til Urbóta I þessum
efnum. Til dæmis hefur ungl-
ingavinna borgarinnar bætt mik
iö úr.
Íþróttalíf þarf að efla í borg
inni. Með forystu skólanna á
þessu sviði er hægt að gera þátt
töku almennari. Fræða þarf
æskufólk á menntunarvali í dag.
Ég vil að síðustu vona, að
æskufólk tjái sínar skoðanir á
málefnum borgarinnar í fram
tíðinni.
Halldór Runó'fsson, Hverfis-
götu 40, er 30 ára. Hann er í
varastjórn Óðins. — Hann er
kvæntur Björgu Stefánsdóttur.
Halldór Runólfsson
TVúverandi borgarstjórn hefur
sett markið mjög hátt i
æskulýðsmálum sem og öðrum
málum. Hefur stefna borgar-
stjórnarinnar verið ÁFRAM.
Æskan í dag er frjálsari í fram
komu en æska undangenginna
kynslóða. En höfum við staðið
okkur nógu vel í æskulýðsmál
um? Hvað hefur ekki verið gert
fyrir æsku nútímans? Að mínu
áliti vantar nútímaæsku öryggi,
félagslegt öryggi. Það unga
fólk, sem i dag heitir æska, hef-
ur lifað við þá mestu velmegun,
sem þjóðin hefur búið við.
Stefna f æskulýðsmálum ætti
því að vera sú að auka ábyrgöar
tilfinningu æskunnar, aö auka
raunhæfar umbætur í félagsmál
um æskunnar, að auka fræöslu
£ bindindismálum og þá ekki
seinast að auka sumarvinnu
skólafólks. Stefna ber að því að
hver nemandi geti haft atvinnu,
því ekkert er verra fyrir æsku-
fólk en atvinnuleysi.
Guðmundur Gíslason deildar-
stjóri, er 29 ára. Hann er þekkt
astur fyrir íslandsmet sín í
sundi. Hann er kvæntur Erlu
Sigurjónsdóttur.
Guðmundur Gíslason
l^ljótt á litið virðast helztu
A vandamál við framkvæmd
æskulýðsmála vera fjárhagslegs
eðlis, en mér virðist auðséð, að
annað atriði eins veigamikið, sé
að hér vantar okkur nauðsyn-
lega miklu fleiri einstaklinga til
að taka virkan þátt í félagsstörf
um. Hér er algengt, að sömu
aðilarnir séu í stjórn eða farar-
broddi margra félagasamtaka
og þar af leiðandi oft ofhlaðn-
ir störfum. Ég tel því, að stefna
beri að því að fá hæfa borgara
til að hjálpa til við æskulýðs-
störfin í enn rfkarj mæli en nú
er. Euinlg stuðla að meiri og
betri menntun og þjálfun
Sveinn Kr. Guöjónsson kennara
skólanemi, Nesvegi 60, er 22
ára. Hann leikur f hljómsveitinni
Roof Tops.
Sveinn Kr. Guðjónsson
'C’yrir tveimur árum heföi þess
ari spurningu verið svaraö
þannig, að skortur á samastað
fyrir æsku borgarinnar væri
mjög tilfinnanlegur og því bæri
að skapa viðunandi aðstöðu fyr-
ir unglinga til að stíga dans og
hlusta á pop-tónlist, sem hug-
ur þeirra flestra stendur til.
Með tilkomu Tónabæjar hefur
þessu vandamáli verið bjargað
við a.m.k. að nafninu til. Stað-
reyndin er samt sú, að þótt
Tónabær sé í núverandi mynd
rekinn eins og bezt veröur á
kosiö, bendir síminnkandi að-
sókn á, að æskulýðurinn sé enn
þá leitandi eftir einhverju til
að svala athafnaþrá sinni. í því
sambandi tel ég að bæta beri
aðstöðu ungmenna til útiveru
og íþróttalífs og glæða áhuga
þeirra til slíkra iðkana minn-
ugir þess, að hraust sál býr i
hraustum líkama. Dyr íþrótta-
félaganna standa ekki opnar
nema að mjög takmörkuðu
leyti. Þangað fara ekki aðrir en
þeir er skara fram úr. Hvað verð
ur um alla hina? Einnig tel ég
það mjög aðkallandi, að biliö
verði brúað milli skóla og at-
vinnulífs. Engrar samræmingar
gætir þar á milli og því nauðsyn
legt, að þar verði breyting á
sem allra fyrst.
getur orðiö henni til góðs, eink
um heilbrigðismálum og skipu
lagsmálum, fræðslu- og æsku-
lýösmálum. Hvað snertir spurn
inguna langar mig aö benda á,
aö það er hlutverk heimilis og
skóla að fræða unglinginn og
ala hann upp, jafnframt því að
veita honum nokkra aðstööu til
tómstundastarfa. Af einhverj-
um ástæðum eru skólarnir fast
mótaðar og ósveigjanlegar
stofnanir og þær þarfir, sem
þeir fá ekki fullnægt, verður
æskulýðsstarfsemi að sjá um.
Slík starfsemi vill oft verða
skipulögð af forvígismönnum,
en mér þykir rétt, að ungt fólk
sé virkjað sem mest til sjálf-
stæðs verkefnavals, þannig að
það skapi sér verkefni sjálft en
taki ekki við því tilbúnu frá
öðrum. Það er ungu fólki holl-
ast að starfa sjálft að eigin mál
um og ráöa fram úr vanda sín-
um, en hlutverk borgarinnar á
IÉM
Katrín Fjeldsted læknanemi,
Stóragerði 8, er 23 ára og hefur
starfað í Stúdentaráði. Hún er
gift Valgaröi Egilssyni lækni.
þessu sviði hlýtur að vera að
veita aðstöðu fyrir þau áhuga-
mál, sem unglingarnir hafa á
hverjum tíma.
Pétur J. Eiríksson menntaskóla-
nemi, Álfheimum 52, verður 20
ára í vor.
Pétur J. Eiríksson
'É’g tel, að þaö beri að stefna
aö því, að skapa sérhverj-
um æskumanni aðstöðu til að
veita athafnaþrá sinni útrás á
heilbrigðan og hömlulausan
hátt. Það að ungt fólk þarf að
ganga aðgeröarlaust, er sjúk-
leikamerki á þjóðfélaginu, enda
leiðir það oft til vafasamra at-
hafna, sem hefur neikvæð áhrif
á mótun unglingsins.
Reykjavíkurborg ber £ því
sambandi að leggja áherzlu á
tvennt. Að tryggja unglingum
atvinnu yfir sumarmánuöina,
sem um leið mundi treysta
tengsl ungs fólks við atvinnu-
vegi þjóðarinnar. Og gangast
fyrir öflugu tómstundastarfi
innan hverfanna, þannig að ungt
fólk þurfi ekki að Ieita til ann
arra borgarhluta til þátttöku f
félagsstarfi. Ég tel, að borg-
in eigi sem minnst að fara ínn
á starfssvið æskulýðssamtaka,
sem þegar eru starfandi, held-
ur styrkja þau og bæta aðstöðu
þeirra Hins vegar ber aö stefna
að stofnun æskulýðsheimila í
öllum hverfum, þar sem ungt
fólk getur komið saman og
sjálft byggt upp starfsemi sam
kvæmt eigin áhugamálum.
Katrín Fjeldsted
Cem borinn og bamfæddu’
^ Reykvfkingur hef ég áhuga
á þvf, sem borgina varðar og
V£BÐ KR. 50,—
opegillinri
1.tb!.40.árg
FEBRÚAR
1970
Hláturinn lengir lífið
Lítið í Spegilinn
Nýtízku gluggatjaldabrautir frá Gardinía og allt til-
heyrandi — Þær fást meö eöa án kappa, einfaldar
og tvöfaldar, vegg eöa loftfestingar.
Úrvai viðarlita, einnig spónlagöir kappar í ýmsum
breiddum.
Gardínubrautir sf.
Laugavegi 133,
sími 20745.
SCHAUB-LORENZ
Stereo-tœki
GELLIR sf.
Garðastræti 11
Simi 20080