Vísir - 04.03.1970, Blaðsíða 3

Vísir - 04.03.1970, Blaðsíða 3
VlSIR . Miðvikudagur 4. marz 1970. í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Pompidou þakkar fyrir sig Pompidou Frakklandsfor- seti og kona hans komu Aðsúgurað Kennedy í Dublin Edward Kennedy öldungardeild- arþingmaður hefur sjaidan orðiö fyr ir barðinu á þeim, sem mótmæla stefnu Bandaríkjanna í Víetnam. Hann hefur sjálfur verið einn ákaf- asti gagnrýnandi þeirrar stefnu. Nú gerðist það í gærkvöldi á írlandi, að höpur stúdenta gerði aðsúg að honum, er hann hafði flutt ræðu í háskólanum í Dublin. Hrópuðu þeir: „Niður með heimsvaldastefnu Bandaríkjanna". Margir hlutu minni háttar meiðsli í átökunum, sem urðu, þeg ar mótmælendur söfnuðust um bif reið Kennedys. Mótmælin voru þáttur í and- bandarískri viku, sem róttækir vinstri stúdentar boðuðu til. Kenne dy talaði um brezka heimspeking- inn Edmund Burke í ræöu sinni í háskólanum. Einn stúdent stökk á fætur undir ræðunni og hrópaði „Lengi lifi Mao“. Var honum fleygt á dyr. í nótt heipi til Parísar eftir níu daga för sína í Banda- ríkjunum. Chaban-Delmas forsætisráðherra og aðrir ráðherrar tóku á móti þeim á flugvellinum. Pompidou sagðist vera ánægður með ferðalag sitt. Hann heföi þjón aö málstað friðarins. Kvaðst hann mundu gera frekari grein fyrir nið urstöðum á fundj með ráöherrum í dag. Á leiðinni vfir Atlantshafið sendi Pompidou Nixon forseta Bandaríkj anna skeyti og þakkaði þá gest- risni, sem Nixon haföi sýnt honum. Sérstaklega þakkaöi hann Nixon, að hann hafði gert sér sérstaka ferö til New York á mánudaginn til að taka þátt í veizlu, er haldin var til heiöurs franska forsetanum. Umsjón: Haukur Helgason „Við eigum í algerri styrjöld' „HOLDUM AFRAM AO RÁDAST Á HUeVÉLAR‘ — segir foringi „alþýðufylkingar Palestinu' Foringi hins róttæka fé- lags róttæka félagsskapar „alþýðufylkingin fyrir frelsi Palestínu“ segir í morgun í viðtali við franskt blað, að menn hans muni halda áfram að ráð- Gyðingar í Munchen syrgja ástvini, er hermdarverkamenn felldu. ast á farþegaflugvélar frá ísrael og „heimsvaldasinn- um, sem styðja Gyðinga“. Dr. Georg Habash sagði þó, að félagsskapurinn bæri ekki ábyrgð á því, er svissneska flugvélin var sprengd í loft upp í lok febrúar og 47 nienn týndu lífi. „Við mun- um,“ sagði hann, „eyðileggja eigur Gyöinga og bandamanna þeirra f Evrópu.“ Hinn 44 ára skæruliði segir, að samtök hans muni hvergi hika í bar áttunni, þótt aðgerðir þeirra kynnu að valda gagnrýni frá öðrum sam- tökum Araba. „Viö eigum í al- gerri styrjöld,‘ segir doktorinn, „en við munum ekki gera þeim Evrópu- mönnum neitt til miska, sem ekki hafa blandað sér í stríðið." Hermdarverkamenn Araba hafa látið æ meira að sér kveða í Evrópu í seinni tíö. Þeir hafa rænt flug- vélum, brennt elliheimili Gyðinga í Múnchen og sprengt í loft upp far- þegaflugvél og reynt að granda fleiri: flugvélum. Síðustu vikurnar hafa margir beðiö bana með þess- um hætti. Gyðingar og aðrir. Hið algera strfö Arabanna felur f sér ofsókn á hendur öllum Gyð- ingum, hvar sem er í heiminum. Samkvæmt ummælum skæruliða- foringjans f morgun er ætlun hinna róttækustu Araba aö valda sem mestu manntjóni og skemmdum á eignum Gyðinga í Evrópulöndum. Arabar hafa lýst þvf yfir, að styrjöJd þeirra gegn ísrael sé „heil- agt stríð“, og skuli það háð í nafni Allah og Múhammeðs spámanns. Hins vegar eru Arabarnir sem fyrr ósammála, hversu langt skuli geng- iö, og margir Arabaleiðtogar mót- mæltu þvf, er skæruliöar grönduðu hinni svissnesku farþegaflugvél á dögunum. S6..ALDEMÓKRATAR UNNU Á í DANMÖRKU Flokkur Baunsgaards tapaði mestu # Sósíaldemókratar sigruðu { bæja- og . sveitarkostningunum í Danmörku í gær. Höföu þeir sam- Deilur um hjónaskilnaí tefju fyrir stjórnarmyndun kvæmt tölum í morgun bætt viö sig 8,2% miðað við kosningamar 1968. Flokkur Baunsgaards forsætisráð- herra, Radikale venstre, tapaði 5 af hundraði, og vinstri sósfalistar töpuðu 2,6% og ihaldsmenn 0,8%. Vinstri flokkurinn bætti við sig 1.3%. Kosiö var nú samkvæmt nýrri skipan. Voru sveitarfélög stækkuö, ALDO MORA byrjar í dag tilraunir sínar til að mynda stjórn á Ítalíu, en nú eru Aldo Moro — aftur í brennidepli. þrjár vikur, frá því að minnihlutastjórn kristi- legra demókrata fór frá. Moro er einnig í flokki kristilegra demokrata. Moro er 53ja ára og var forsætis- ráðherra í fjögur og hálft ár, frá 1963 til 1968. Annar leiðtogi kristilegra demó- krata Mariano Rumor gafst á laug- ardaginn upp við tilraunir sfnartil að mynda nýja samsteypustjórn mið- og vinstri flokka. Einn aöalvandinn við myndun slíkrar stjórnar er breyting á lög- um um hjónaskilnað, en þau hafa verið mjög ströng í hinni kaþólsku ftalíu. Neðri deild þingsins hefur samþykkt að gera lögin frjálsari, og kemur breytingatillagan fyrir öldungadeildina innan tíðar. Páfi er andvígur breytirígunni. og hef- ur hann óskað viðræðna viö ríkis- stjórnina um málið, Kristilegir dem ókratar vilja, að um máliö verði 'fjallað við páfa en aðrir flokkar telja þetta óheyrileg afskipti páfa- dóms af stjórnmálum Italfu. Krag — vann Baunsgaard — tapaði. þannig að sveitahéruð umhverfis bæina sameinuðust þeim f mörgum tilvikum. f Danmörku er við völd stjórn borgaraflokkanna. Hún hefur und- anfarið átt við erfiöleika að stríöp i kjaramálum og verkföll veriö tíð. Svo sem menn minnast, gerði Jens Otto Krag-, foringi sósíaldemó- krata, Hilmar Baunsgaard forsætis- ráðherra, tilboð um stjórnarsam- starf, þegar þeir félagar sátu þing Noröurlandaráðs í Reykjavík fyrir skömmu. Baunsgaard vísaði þeirri málaleitan á bug. /

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.