Vísir - 04.03.1970, Qupperneq 4
4
VISIR . Þriðjudagur 3. marz 1970.
Allt brást
INGÓLFUR
— en jbó var jbað um seinan — 19:20 gegn
„sólarsonunum" i leiknum i Paris i gærkv'óldi
' Frá Magnúsi Gíslasyni,
París:
Synir sólarinnar bræddu
sannarlega ísinn af „son-
‘W
um elds og íss“ hér í kvöid.
Japanir unnu þennan
fyrsta landsleik þjóðanna
'með einu marki, — þegar
flautan gall við til merkis
um að leik væri lokið, áttu
áttu íslendingar sannar-
lega færi á að jafna í 20:20,
en sonum sólarinnar var
bjargað.
Þessi leikur íslenzka liðiö var
Jurðu lélegur, eða allt þar til Ing-
ólfur Óskarsson tók á sig rögg, er
12 minútur voru til leiksloka, og
staðan i!0:14 fyrir Japan.
Leikur Ingólfs var afburðaieikur,
og nú sannaðist það, að hávöxnu
mennirnir dugðu bezt gegn Jap-
önunum. Ingólfur skoraði 3 mörk
sjálfur siðustu mínútumar og var
drifkrafturinn að baki annarra
þriggja. Sannarlega reif fyrirliði ís-
lenzka liðsins liðið áfram með sér,
— en of seint, því miður.
Japönsku leikmennimir eru ann-
ars góðir sendingar eldsnöggar og
beinskeyttar, þeir eru sterkir og þó
liprir, og leiftursnöggir upp.
Mörk virtust þeir geta skorað hvar
og hvenær sem er, af línu, með
gegnumbrotum eða langskotum,
aiit eftir því sem hentaði.
Mikla athygli mína og annarra á-
horfenda hér í íþróttahöllinni, vaktj
hinn litli leikmaður Kiyoshi Noda,
hann kastaði sér inn í teiginn fjór-
um sinnum úr horni og skoraði
þaðan en enda þótt þetta væri frá-
bærlega útfært hjá honum og stökk-
| ið stórfenglegt, þá tel ég það engu
að síður lélegri markvörzlu að
kenna að þannig skuli hægt aö
skora.
Upphaflega var Hjalti í markinu,
en síðan kom Birgir inn á, og varði
hann síðan mestallan leikinn og
gerði það allvel. Hins vegar var
vörnin mjög svifasein miðaö við
Japanina, sem voru á fleygiferð all-
an leikinn bæði í sókn og vörn.
í hálfleik var staðan 12:9 fyrir
Japan, og sannarlega .syrti rpjfig i
álinn,- þegar staðan varð 14:9 i
byrjun seinni hálfieiks. Heldur átti
þetta þó eftir að lagast, t.d. í 15:12.
Þá kom hins vegar stærsti leikmað-
ur Japananna til sögunnar og skor-
aði að vild í íslenzka markið. þetta
var „risinn“ Minoru Kino, 187
sentimetrar á hæð, góður leik-
maður. sem skoraði 6 mörk í leikn-
um.
Japanir komust í 18:14 óg
skömmu síðar var ógnvekjandi tala
komin á töfluna, 20:14 og 12 mín.
til leiksloka.
Það var þá, sem ísinn bráðnaði af
íslenzka liöinu. Næstu 5 mörk
komu á færibandi og leikurinn var
æsispennandi og enda þótt fæstir
áhorfendanna þetta kvöld hefðu
nokkrar sérstakar taugar. til lið-
anna, þá var engu líkara en að
heimalið væru að eigast yiö í úr-
slitakeppni.
Greinilegt var að Japanir kusu
að halda knettinum sem lengst, ógn-
uðu ekkert, og í eitt skipti var ís-
lendingum dæmdur boltinn vegna
tafar. Þegar tæp mínúta vár eftir
skorar ísland 20:19 og örfáum sek-
úndum fyrir Ieikslok, þegar ieikað-
ferðin maður gegn manni hafði vef-
Víkingar, skíöadeild. — Aðal-
fundur deildarinnar erðu- hald
inn í dag 4. marz kl. 19.30 í fé-
lagsheimilinu. Venjuleg aðal-
fundarstörf. — Stjórnin.
Stríðsöskur
á vellinum
Japanska liðið, sem vann okk-
ur í gærkvöldi sVo naumlega, er
skipað hermönnum. Samtaka-
máttur þessa liðs fannst mér
meö eindæmum, Uðlð var sem
einn maður.
í upphafi leiks gáfu Ieikmenn
frá sér stríðsöskur mikil og það
var engu líkara en þeir grenj-
uðu framan I landana af vonzku.
í leiknum heyrðust heróp
hvað eftir annað, og greinilegt
var að leikmenn stöppuðu stálið
i hVer annan með þessu móti.
Var þetta í senn áhrifaríkt og ó-
venjulegt á handknattleiksvelli.
íslendingamir fengu hins veg-
ar aðrar móttökur og hlýlegri,
er þeir stigu inn á völlinn 1
kvöld, Guðjón Ólafsson, mark-
vörðurinn góðkunni í KR og
landsliðinu fyrir nokkrum árum,
afhenti Ingólfi fyrirliða blóm-
vönd frá íslenzka áhorfenda-
höpnum í Fram-ferðinni.
Japanir klöppuðu líka af aust-
urlenzkri hógværð og stillingu,
þegar leikmenn íslands voru
kynntir, — og þetta guldu ís-
lendingar í sömu mynt, þegar lið
Japananna var kynnt áhorfend-
um. — emm —
ið tekin upp af Islendingunum, náði
Island boltanúm og upphófst nú
ægilegt kapphlaup við allt of fáar
sekúndur. Björgvin Björgvinssón
var kominn upp hægra megin og'
hefði getað sent inn á línu á vel
staðsetta menn þar, —' en þvi mið-
ur, lúðurinn var þeyttur til marks
um að' leik væri lokið.
Okkar stærsta tromp, Geir Hall-
steinsson, var aðeins svipur hjá
sjón í leiknum. gengur ékki heill til
skógar eftir meiðsl. Þetta hefur mið-
ur góð áhrif á liðið. Jón Hjaltalín
var ekki með. Sannarlega hefði
hann verið maðurinn til að valda
usla í japönsku vprninni með hæð
sinni og' stökkkrafti. Jón var hins
vegar að horfa á Frakkana í njósna-
skyni. Ingólfur . var okkar bezti
maður, Einar MagnúSson ágætur
meðan hann var inni og Ólafur
Jónsson sömuleiðis
Eftir
Seikinn
Nilsson, norskur dómari (dóm-
ari með honum Kesthelyi frá
Ungverjalandi, báðir góðir): Is-
lendingar notuðu sér ekki nóg
hávöxnu leikmennina, þar til
fyrirliöinn tók af skarið. Is-
lendingarnir voru alltof of ragir
við að skjóta eftir að þeir voru
búnir að stökkva vel upp yfir
varnarvegginn.
Reynir Ólafsson: Niðurröðun-
in var röng að mínum dómi. Jón
Hjaltalín átti að leika þennan
leik í stað þess að vera settur
út. Eins Bjarni Jónsson og Þor-
steinn átt; að setja í markið.
Vörnin geröi líka allt of lítið til
að hamla á móti hreyfingunni á
Japönunum, sem fengu að fara
allra sinna ferða innan um vöm-
ina án þess að við henni væri
stuggað hið minnsta.
Guðjón Ólafsson: Það var allt
of niikil spenna í liðinu. Það var
jafnvel ekki fyrr en eftir að liðið
var farið að þreytast verulega að
ró var komin yfir menn.
mu b
Fyrsta íslandsmeistaramótið í
Iyftingum fer fram í Reykjavík, eins
og áður hefur verið skýrt frá, helg-
int 21, —22. marz n.k.
Búizt er viö mjög mikilli þátt-
töku í mótinu, og því hefur verið
ákveðið að keppnin í léttari flokkun-
um fari fram á laugardaginn en
keppnin í þyngri flokkunum á
sunnudeginum. Væntanlegir kepp-
endur eru beðnir að athuga þetta.
Tilkynningar um þátttöku þurfa
að berast til Björns Lárussonar,
Grettisgötu 71 eða í síma 22761 —
40255 í síðasta lagi að kvöldi hins
12. marz.
Þátttökutilkynningar, sem kunna
að berast síðar verða eigj teknar
til. greina.
Keppnisstaöirnir verða tilkynntir
siöar.
flímt i Haukadal
íþróttaskólanum í Haukadal er
nýlokið í ár. Síðastliðið sunnu-
dagskvöld fór fram iþróttasýn-
ing í skólahúsinu við Geysi í til-
efni af „vertíöarlokum“.
Sex ungmenni, nemendur úr
skólanum sýndu fimleika og
þreyttu bændaglímu. Harðnaði
leikurinn í glímunni, er dró að
endalokum, og höfðu áhorfendur
skemmtun af.
Mættir voru eldri nemendur
Sigurðar og aörir gestir, per-
sónulegir vinir Siguröar og að-
dáendur skóla hans, sem hann
sjálfur stofnaðj árið 1927 og
hefur rekið óslitið síðan við góð-
an orðstír.
Meöfylgjandi mynd tók Stgr.
af einni lotu bændaglímunnar,
sem var háð í Haukadal fyrsta
þessa mánaöar.
TÖKUM
IDAG
og næstu daga glæsilegt úrval af kápum, síðum og stuttum, kápum með buxum, buxnadrögtum, táningakjólum
síðum og stuttum og frúarkjólum í öllum stærðum. — Allt á lága tollinum. — Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Kjólabixðin MÆR, Lækjnrgötu 2
f