Vísir - 12.03.1970, Blaðsíða 1

Vísir - 12.03.1970, Blaðsíða 1
■ «®§§«§í0e§®« «« 8>free« © ee--ee-e e e-eee e® ee ® e » ® © ©-© ® © © e © © © © ? Deilur um söngtexta í Pilti og stúlku # Venzlamenn Emils Thoroddsen tónskálds, vinna nú að þvi að fá þriá söngtexta, s'em bætt hefur verið viö leikrit hans Piit og stúlku í sjmingu Þ.ióðleikhússins fellda niður. Pað eru söngtextar, sem Úlf- ur Ragnarsson, læknir samdi við lög Emils Thoroddsen, sem ekki voru áöur notuó i leikritinu. Munu venzlaroennirnir vera óánægði.r með Ijóðin en Þjóðlejkhúsið hafði þó áður fengið leyfi hjá erfingja höfundarréttarins, frú Ásiaugu Thoroddsen, ekkju Emils, að bæta þeim við sýninguna. Unnið mun að þvi í mesta bróð- erni að finna lausn á málinu en sennilega verða þessi lög felld út úr leikritinu. — vj — Friðrik teflir frekar // segir Bent Larsen um skaeÓasta keppinaut sinn á móti stórmeistaranna i Luganó i Sviss „Ég haföi frétt, að Friðrik hefði staðið sig ilia á svaeða- mótinu og á mótinu í Reykja- vík í vetur, en nú teflir Frið- rik frekar vel.“ Þetta sagði danski stórmeistarinn Bent Larsen í vlðtali við Vísi í morgun. Larsen sagði, að Friðrik hefði oft komizt í hann krappan meö svörtu, en bjargazt úr klipunni með list. Til dæmis hefði hann verið illa staddur á móti Donner í gær, en fórnað skiptamun og unnið skákina. ,,Ég var kvefaður og ekki vel upplagður, og mér mistókst“, sagði l.arsen um skák sina við Unzicker, sem hann tapaði í síðustu umferðinni. Larsen taldi sig mundu sigra á mótinu, en þó ekki „auðveldlega". Larsen sagði, að Friðrik hefði ekki átt að sig á óvenjulegri byrjun í skák þeirra, og hefði það kostað Friðrik peð. Skákin hefði verið erfið og löng en peðið hefði nægt sér til sigurs ér lauk. Bent Larsen hefur ekki teflt við Friðrik um langt skeið fyrr en á þessu móti. Virðist hann telja að styrkur Friðriks væri nú ekki fjarri því að vera hinn sami og var fyrir nokkrum ár- um Friðrik hefur lfka staöið sig svo vel á þessu móti stórmeist aranna í Lugano, að mikiM sómi er að og alls ólíkt því, sem verið hefur siðasta árið. Larsen aot- aði orðin „frekar vel“ (rather well)) um taflmennsku Friðriks að sínum dómi. Er það vissulega væglega aö orðí komizt miðað við vinningatölu Friðriks. Friðrik vann Donner ráttundu umferðinni, en Larsen tapaði fyrir Unzjcker. Munar þá aöeins hálfum vinningi á þeim félögum. Röðin er þessi: 1. Larsen 6 vinningar, 2. Friðrik 5V2, 3.-4. Byrne og Unzicker 4, 4. Gligor- ic 3V2, 6. Szabo 3'og biðsk, 7. Kavalek 2 y2 og biðsk, 8. Donn er 2i/2. ” —HH BOGGI BLAÐAMAÐUR er með á nótunum eins og fyrri daginn og er með sneki um Friðrik á hraðbergi í Waðinu í dag, siá bls. 12. Ska^bótamál ó Windsor-liótei „Samkvæmt nióurstöóum rannsóknarinnar á slysi þvi, er Rúnar Vilhiálmsson, varð fyrir i London og beið bana af, er hér ekkj um refsiábyrgð að ræða af hálfu Windsor hót- elsins," segir Helgi V. .Tónsson lögfræóingur, er fylgzt hefur með málinu fyrir hönd Knatt- spyrnusambands Islands. „Við getum því ekki hafið op- inbeft refsimál, heldur einungis faríð fram á skaðabætur, þar sem hótelið er tvímælalaust skaðabótaskylt samkvæmt skaða bótalögum, þar eð allur aðdrag- andi slyssins er Ijós. Við höld- um þessu þvi ótrauðir áfram og er nú i undirbúningi skaðabóta- mál, en þau eru einkamál og taka jafnan lengri tima heJdur en opmber mál. í skaðabótamáli þarf að gera kröfur um ákveön- ar bætur og rökstyðja þær.“ ?egir Helgi ennfremur. -MV- Furðuljós á miklum hruðu yfír Reykjavík í gærkvöldi — Sást á radarskermum i Prestvik og á Gander — Talið aÓ um hluta úr gerfihnetti sé að ræða — Hundruð manna fylgdust með fyrirbærinu £ Fjjöldi manns horfði í gærkvöldi á furðulegt fyrirbæri, sem leið yfir kvöldhimininn, Ijóskuiu, sem lýsti upp og stefndi að því er virtist frá vestri til austurs með eld ingarhraða niður á við, og dró reykslóð á eftir sér. Um ellefuleytið í gærkvöldi bárust fréttir frá fiugstjórninni í Gand er um að NORAD, kjarn orkustofnun Bandarikj- anna teldi líklegt, að hér hefði verið um að ræða hluta úr gervihnetti, sem komizt hefði inn í gufu- hvolfið og hefði verið að brenna upp. Þessi sýn hefur sézt vtöa, því að flugvélar staddar 300 míiur suðaustur af Islandi gerðu fyrir spurnir til næstu landstöðva um það hvað hér værj á ferðinni. Flugstjórnirnar í Gander á Ný- fundnalandi og í Prestvík í Skot landi gerðu fyrirspurnir til flug stjörnarrrianna héf, og Kéfla- víkurradarinn spurðist fyrir um það á Reykjavíkurflugvelli hvort þessj ,,umferð“ væri þeim til- heyrandi. Kannaðist turninn hér þá ekki víð, að nein umferó væri um svæðið. S|á bls. 10 viðtöl við sjónarvotta. Vinstrí hreyfíngin þrí- skipt í næstu kosningum 9 hað verður vandlifað fyrir vinstra sinnaðan kjósanda í borgarstjórnarkosningunum i vor. ,,Úrvalið“ af framboðsiist- um verður slíkt, að aðeins þeir, sem bezt eru heima í völundar- húsi vinstri stjórnmálanna munu rata á sinn rétta bás. Þar verð- ur hægt að velja um C-lista, G-lista, I-lista og jafnvel fjórða listann, sem Æskulýðsfylkingin mundi þá standa að, þó að frek- ar ósennilegt sé að úr því verði. Sósíalistaflokkurinn var lagður liður á sínum tíma, þegar Alþýðu- sandalaginu var breytt f stjórn- málaflokk úr kosningasamtökum rinstri manna eins og hann var tal- iin vera. En ,,sósialistar“ hurfu ikki út úr myndinni, þó að flokk- jrinn hefði verið iagður niður. íósfalistafélag Reyk.iavikur hefur ildrei verið lagt niður, en það hef- ir mi i huga að bjöða fram lista I vor. — „Það eitt er vist, að Sósíai- istafélag Reykjavíkur mun ekki lát.a þessar kosningar afskiptalaus- ar,“ sagði Sigurður Karlsson, vara formaóur félagsins í viðtali við Vísi í morgun. Ekki er Ijóst. hvaða menn verða þar fremstir á lista, en formaður þess er nú Guðni Guönason, lög- fræðingur, Fyrrverandi formaóur er Steinerímur Aöalsteinsson, bif- reiðarstjórj og fyrrv. alþingismað- ur og Stefán Ögmundsson prentari, en hann býr ekki j Reykjavík. Þó er sennilegt að yngri menn verði frekar fyrir valinu. — Mál- gagn félagsins Ný Dagsbrún, kem- ur nú út hálfsmánaðarlega. en verður gefið út vikulega, þegar nær dregur kosningum. Lítill vinskapur mun vera milli Alþýðubandalagsins og sósíalista- félagsins, en almenn skoðun er, að sósiaJistar muni taka af Alþýðu- bandalaginu vinstra megin, meðan Hannibalistar taki af flokknum hægra megin, Að því er Kristján Jóhannsson, starfsmaður Hannibalista sagði í viðtali við Vísi í morgun verður framboð þeirra ekki ákveðið fyrr en um næstu mánaðamót. Ætlun þeirra er að hafa kosningabarátt- una st.utta en harða og veröur út- koma málgagnsins „Nýs lands, frjálsrar þjóöa>“ vikulega fram eft ir vetri, en verður sennilega fjölg- aö þegar dregur að kosningum. Heyrzt hefur að Hannibalistar vilji fara út fyrir samtökin í leit | að mönnum í framboð og iafnvel. að Hannibalssynir verði ekki í fram | boði til að losna við fjölskyldu- j myndina, sem verið hefur á flokkn- um. Munu m.a. hafa verið born- ar víurnar í Markús Einarsson, veðurfræðing, en hann neitað. Hvað, sem út úr þessu öllu kann að koma, er þó eitt vist: Nú verð- ur gaman. -vj- m ■ • ■w „Kaldur befur ’ann verið, og enn er bara hálfnuð göa, en samt get ég ekki að mér gert — ég er farin að hlakka sírax til vorsins. Þessi vorhugur kemur ósjálfrátt í mann, þegar þessari vorfata- tízku er gaukaö svona framan í mann, eins og þeir gera á vor- fatakaupstefnunni. Kannski maður skreppi og máti einn bikiní eða svo, rétt eins og hinar“.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.