Vísir - 12.03.1970, Blaðsíða 8

Vísir - 12.03.1970, Blaðsíða 8
? V í SIR . Fimmtudagur 12. marz 1970. y VISIR Utgefandi: Reykjaprem n.» Framkvæmdastjóri: Sveinn R. EyjóltBson Ritstjóri: lónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýstngar; AOalstræti 8. Slmar 1565.0. 11660 og 15099 Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Sfmi 11660 Ritstjórn: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur) Askriftargjald kr. 165.00 ð mánuði innanlands I lausasölu kr. 10.00 eintakið Prentsmiðja Visis — Edda h.f. Minkaárið Qft nefna menn ár eftir einhverjum þeim atburðum, sem einkenndu það, kosningum, náttúruhamförum eða öðru slíku, sem eftirminnilegt þykir. Af árinu 1970 eru ekki liðnir nema rúmir tveir mánuðir. Því er of snemmt að spá um, hvað helzt verði talið ein- kenna árið. En Ijóst er samt, að árið 1970 verður a. m. k. minka- ár á íslandi. Átta hlutafélög eru nú í óða önn að und- irbúa minkaeldi, og ætla nokkur þeirra að hef ja rekst- ur þegar á þessu ári. Um næstu áramót mun því íbúa- tala landsins hafa auklzt um nokkur þúsund minka. Þessi nýja atvinnugrein mun springa út á árinu. Ef til vill verða aðrir hlutir taldir markverðari um síðir, en upphaf nútíma minkaræktar verður þó vafa- laust talið eitt þeirra atriða, sem einkenndu árið 1970. Fjögur minkabú eru ráðgerð í nágrenni Reykjavík- ur. Það eru Loðdýr h.f. á Kjalarnesi, Pólarminkur h.f. í Reykjavík, Fjarðarminkur.h.f. í Hafnarfirði og Dal- bú h.f. í Mosfellssveit. Fjögur eru ráðgerð utan þessa svæðis. Þau eru Grávara h.f. í Eyjafirði, Loðfeldur h.f. á Sauðárkróki, Húsminkur h.f. á Húsavík og Arktikminkur h.f. á Akranesi. Flestir þessir aðilar hafa fyrir löngu byrjað undir- búning sinn. Þeir hafa sent menn til útlanda, einkum til Noregs, til þess að læra þessa ræktun. Um þessar mundir er álitlegur hópur manna að mennta sig í greininni. Ennfremur munu sum búin fá hingað er- lenda menn til að stjóma rekstri búanna til að byrja með. Byggingaframkvæmdir eru hafnar hjá Loðdýrum h.f. á Kjalarnesi og fleiri munu hefja byggingu í vor og sumar. Rekstur á að hefjast hjá Loðdýrum þegar í næsta mánuði. Pólarminkur og Fjarðarminkur ráð- gera að hefja rekstur í sumar og Arktikminkur og Grávara fyrir eða um næstu áramót. Nú ríður á, að vel sé vandaður allur öryggisbún- aður þessara búa, — fyllsta öryggis sé gætt við bygg- ingu og rekstur þeirra, svo að tryggt sé, að minkar sleppi ekki úr þeim. Hin slæma reynsla fyrri ára hefur kennt okkur, að eftirlit með þessum málum verður frá upphafi og æ síðan að vera í fullkomnu lagi. Minkaræktarmennirnir þykjast yfirleitt ekki fara með neinu flani út í þessa grein, og hinn vandaði undirbúningur virðist vera til vitnis um það. Margir þeirra hafa viðað að sér mikilli þekkingu á undan- förnum árum og aðrir eru erlendis að afla sér hennar. Þetta er líka nauðsynlegt, því að minkarækt er mjög áhættusöm grein. Framleiðsla getur hæglega mis- tekizt og verð getur hrunið með stuttum fyrirvara. En hagnaðurinn er líka mikill, ef vel gengur. Það er góður vottur um framtak þjóðarinnar, að svona margir aðilar skuli vilja hætta sér út í þessa nýju grein. Vonandi tekst þeim öllum að feta rétt í undirbúningi og rekstri, svo að bæði þeir og þjóðin í heild megi hafa hag af því. Enginn skyldi vanmeta O’Brien Veðmál hans er, að demókratar eigi leikinn Demókrataflokkurinn í Banda- ríkjunum er í miktlli lægð um þessar mundir. Kemur þar margt til, vinsældir Nixons forseta, skortur demókrata á forsetaefni og himinháar skuldir flokksins. Demókratar vona nú, að þetta I sé að snúast við og binda eink- um miklar vonir við starf O’Brien, sem fyrir nokkru var valinn framkvæmdastjórl flokks- ins. Hinn þekkti fréttaskýrandi James Reston ritar um þetta grein f Herald Tribune. Hann vill ekki gera mikið úr þeirri út- breiddu skoðun, að O’Brien hafi fómað sér fyrir flokkinn með því að láta undan einróma beiðni flokksleiðtoganna um að taka að sér framkvæmdastjórastarfið. Hann segir, að bað sé mjög grunsamlegt, að O’Brien skyldi verða einróma fyrir valinu. Hann segir demókrata aldrei hafa verið sammála um neitt, nema að betra sé að hafa forset- ann en hafa hann ekki. Og marg- ir demókratar frá Suðurrfkjun um séu raunar í vafa um það Ifka. ( Enginn engill í Ennfremur megi alls ekki J lfta á Larry O’Brien sem neinn i j engil, sem kunni bezt við sig í i töpuðum bardaga. Hann hafi l verið helzti ráðgjafi og skipu- ) leggjandi byltingar Kennedys ( heitins forseta í flokknum árið ) 1960 og þess vegna ekki of vel l séður af mörgum gömlum leið- 1 togum. Reston kallar O’Brien \ „rauðhærðan fjárhættuspilara, / sem þekkir góð veðmál, þegar Íhann kemur auga á þau.“ I Reston skýrir þessa staðhæf- ingu sína nánar. Hann segir . O’Brien þekkja vel hinar póli- ) tisku staðreyndir líðandi stund- ( ar. Nixon er hátt skrifaður með ) þjóðinni. 58% hennar styöja ( Nixon. Repúblikanaflokkurinn er I í sjöunda himni, bjartsýnn og \ með nóga peninga. Demókratar I séu hins vegar margklofnir og \ skuldum hlaðnir. I ( Vandinn versnar ÍHins vegar hafa demókratar hina sagnfræðilegu þróun með sér. Stríðið í Víetnam heldur á- fram af fullum krafti. Og það er smám saman að færast inn f Laos líka og jafnvel Cambodíu. I Laos er þáttur Bandarfkjanna orðinn alvarlega mikill. Á sama tíma heldur verðbólg- an áfram. Þess vegna verður Nixon að haida sköttum háum og sömulelðis atvinnuleysl. Þetta kemur til með að skaða hann í næstu kosningum. Þetta veit O’Brien ög hann veit líka, hvemig kosningar fara á miðju kjörtímabili forseta. Aðeins einu sinni frá dögum þrælastríðsins hefur flokkur for- seta unniö þingsæti í kosningum á milli forsetakosninga. Franklin Delano Roosevelt tókst það árið 1934, en þá voru aðstæður að öílu leyti mjög sérstakar. Eisenhower forseti var vin- sælli eftir eitt ár f embætti en Nixon er núna eftir sitt fyrsta ár. Samt tapaði flokkur Eisen- howers 47 þingsætum í næstu kosningum á eftir. Von í Wallace Vera kann að vísu, aö Nixon og Agnew hafi nú tekizt að mynda þvílíkt bandalag vestur- og suðurríkjanna, að þessar gömlu kenningar gildi ekki leng- ur. Þeir eru líka að draga úr kostnaði Bandaríkjanna erlendis og að draga úr margvíslegri eyðslusemi sem hefur einkennt stjómir demókrata, einkum á sviðum velferðar og miðstjórnar valds. En George Wallace, ástmögur suðurríkjamanna, heggur inn í sama fylgi og repúblikanar á þessum sviðum. Og þótt demó- kratar Iítj á hann sem liðhlaupa, kann hann að vera bjargvættur þeirra, þegar til kaatanna kem- ur, með því að draga fylgi frá repúblikönum. O’Brien veif, að baráttuaðferð- ir Nixons ganga vel núna, en hann virðist hafa það á tilfinn- ingunni, að svo gangi ekki lengi. Stefna Nixons leiði til þess, að Bandaríkjamenn skiptist æ meira i andstæðar fylkingar. Hún veldur verkalýðsfélögunum gremju, sömuleiðis hinum fá- tæku hinum ungu háskóla- mönnum og einkum þó og sér i lagi svertingiunum. Þessi gremja. Víetnamstríðið og verðbólgan er veðmálið, sem O’Brien spilaði um þegar hann gerðist fram- O’Brien veit sínu viti Nixon vanmetur O’Brien vafalaust ekki Kennedy átti margt O’Brien að þakka kvæmdastjóri flokksins, segir ! Reston. ) Reston bendir á, að O’Brien ) sé útfarinn stjórnmálamaður, ‘ sem þekki hve skjótt veður geta 1 skipazt í lofti í bandarískum ) stjórnmálum. Alténd sé rangt að \ líta á hann sem eitthvert fóm- I arlamb tapaðrar baráttu. f írskur en hagsýnn ! Hann er að hluta frskur og . rómantfskur og að hluta hag- / sýnn og jafnvel bersýnn og 1 háðskur, Hann veit að flestir j veðja nú á repúblikana en hann veit líka. að beztu veðmálin ger- . ast, þegar maður er viss um sig- • ur þess, sem virðist vera minni- máttar veðjar á hann og vinnur veðmáliö. Hann heldur, að thn- inn og sagan séu honum sjálfum f vil. Það er hans veðmál.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.