Vísir - 12.03.1970, Side 10

Vísir - 12.03.1970, Side 10
ro Rabbað v/ð sjónarvotta: Sást 300 mílur frá landinu Guðbjörn Charlesson flugmað ur frá ísafirði hefur sennilega verið fyrstur manna hér til að sjá fyrirbærið klukkan 20.17. — Hann hringdi í Flugturninn kl. 21.40 og lét vita af þessu en þó höfðu þegar nokkrir hringt úr Reykjavík. — Ég var á leið upp bæinn, á ieið inn á flugvöll, sagði Guð björn í viðtalj við blaöiö 1 morg un. Þá sá ég uppljómað far, sem gekk frá vestri til austurs yfir bæinn. Þunn háskýjahula var yfir bænum og sást greinilegt Ijós í gegnum hana. Sýnin gat ekki verið flugvél, þær eru ekki svona uppljómaðar en hins veg ar hvarflaði það ekki að mér, að þetta gæti verið gerfitungl. Ásbjörn Magnússon hjá Loft leiðum sagði Vísi í morgun, aö hann hefðj staðið á Miklatorgi og séð þessa sýn. „Þetta kom úr stefnu utan af flóa og loks þurftu menn að horfa beint upp til að sjá þetta. Birtan var mikil en ekki gat ég greint neinn hvin eða hljóð vegna umferöargnýs á torginu. Fyrst hélt ég að þetta væri þota, en sá strax að það gat ekki verið, þetta hafði meiri út biásturskraft en þota.“ Flugturninum í Reykjavík bárust margar upphringingar i gær frá fóiki, sem hafðj séð fyr irbærið. Helgj Pálmarsson varð stjóri sagði að þotur, sem hefðu verið staddar 300 mílur í suð- austur af Reykjavík hefðu orð iö varar við þetta. — Flugstjórnirnar bæði í Gander og Prestvík fóru að spyrja okkur um þaó hvort við ( hefðum einhverja umferð. — Rúmlega ellefu i gærkvöldi hringdj flugumferðarstjórnin i Gander og sagðist hafa komizt að því hvað þetta gæti verið, en NORAD telji víst, að hér hafi verið partur úr eldflaug að koma inn í gufuhvolfið og brunnið upp. Það er ótrúlega mikið af þessum aðskotahlutum utan gufuhvolfsins mig minn- ir að talað hafi verið um þrjú þúsund. Það má því búast við að sjá svona fyrirbæri oftar en áður var. Þetta hefur sézt ákafiega víða og allir hafa lýst þessu eins, að þessi hlutur hafi sézt fljúga mjög hátt úr vestri til austurs. Hann hefur flogið það hátt, að öllum hefur fundizt hann færi yfir viðkomandi stað. Tilkynn- ingar bárust frá Reykjavik og nágrenni og frá ísafirði. SB/JBP 5 unglingar hand teknir vegna i áfengisþjófnaðar ■ Stálu 36 fl'óskum af visk'i úr vöruskemmu • Eimskipafélagsins BROTIZT var inn í nótt í A- skála Eimskips viö Reykja- víkurhöfn og stolið þaóan úr sérstakri hirzlu 3 kössum af viskí, ailt 5 peia flöskur af Old Taylor-viskí. Þjófarnir náöust og upp komst um þjófnaðinn fyrir ár- vekni ieigubilstjóra á Hreyfli, sem veitti eftirtekt unglingum, er voru að laumast yfir Eim- skipafélagsportið kl. 4.45 í nótt, og gerði hann lögreglunni við- vart, en hún handsamaði piltana á Kalkofnsvegi. Á því stigi hafði innbrotið ekki verið uppgötvað, en lög- reglumennirnir báru strax kennsl á unglingana báða, sem á undantörnum árum hafa átt sök á fjölda innbrota og þjófn- að, svo varla hefur liðiö vika, án þess lögreglumenn hafi haft þá til yfirheyrslu vegna slikra afbrota — eða þá tortryggilegra laumuferða að næturþeli, því að svo oft hafa þeir veriö viðriðnir þjófnaði á síöustu þrem árum, að enginn lögreglumaður lætur þá afskiptalausa, sjái hann þá á ferli úm stræti eftir miðnætti. En þegar piltarnir voru teknir í nótt, fundust á þeim þrjár 5 pelaflöskur af áfengi. Að sjál.f- sögðu vaknaði grunur lögregl- unnar urn hið sanna, og við nán- ari athlugun kom líka í ljós að einhver hafði klippt sér leið í gegnum vírnetsgirðingu í vöru- skemmu Eimskips og farið inn um illa lokaðan glugga, enda kom síðar meir á daginn, aó stolið haföi verió úr A-skálan- um 3 kössum, eða 36 flöskum af viski. Við leit í næsta nágrenni við, þar sem piltarnir voru handsam- aðir, fundust faldar í portum hér og hvar 26 fiöskur — með þeim 3, sem á pillunum fundust. Auk þessara tveggja pilta voru 3 fé- lagar þeirra, sem í vitorði voru með þeim, handteknir einnig. Piltarnir voru hafðir í haldi í nótt og færðir til sakadóms í morgun tíl yfirheyrslu, en nú eiga þeir yfir höfði sér reiddan refsivönd laganna, þótt þeir hafi ningað ti! jafnan sloppið við refsingu vegná ungs a’.durs. Eru þeir nú komnir yi'ir 16 ára ald- ur og eiga langan afbrotaferil að baki þegar. Fram til þessa hat'a yfirvöld staöið næsta hjálparlítil gagn- vart piltunum, eins og revndar flestum afbrotaunglingum, sem ekki veröur komið lögum yfir aldurs þeirra vegna, en að feng- inni játningu drengjanna í hvert sinn, hefur jafnan orðið að sleppa þeim lausum. svo aó stundum hal'a lögreglumenn, sem stóðu þá að verki að nóttu, mætt þeim á göngu að morgni (og þá stundum fengiö langt nef). —GP— V í S I R . Fhnmtudagur 12. marz 1970. ALÞINGI 1 DAG: Efri deild: 1. Sala Holts í Dyrhólahreppi, frh. 2. umræðu. Atkvæöagreiðsla. 2. Dýralæknar, frh. 2. umræöu. — Atkvæðagreiðsla. 3. Skipun prestakalla 3. umræða. 4. Skipan opinberra framkvæmda. 3. umræða 5 Fjárhagur Rafmagnsveitna ríkis- ins. 3 umræða. Komið úr Neðri deild. 6. Framleiðsluráð landbúnaóarins. 2. umræða. 7 Umferöarlög. 2. umræða 8. Verkfall opinberra starfsmanna. 1. umræða. Neðri deild: 1. Gagnfræðanám, frh. 2. umræðu. Atkvæðagreiðsla. 2. Gerðardómur í kjaradeilu at- vinnuflugmanna, frh 3. umræðu. Atkvæðagreiðsla. 3 Álbræðsla við Straumsvík, 2. umræða. 4. Bjargráðasjóður Islands, 2. um- ræða. 5. Fiskveiðasjóður íslands, 1. um- ræða. 6. Sauðfjárbaðanir, 1. umræöa. 7. Gjöld til holræsa og gangstétta á Akureyri, 2. umræða. 8. Atyinnuleysistryggingar, 2. um- 9. Námskostnaöarsjóður, 1. um- ræða. Ámundi Halldór Ámundason, Þrastagötu 7 B, andaðist 6 marz sl. 53 ára að aldri. Hann veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju á morgun klukkan 10.30. Magnús Einarsson, framkvæmda- stjóri, Skipholti 17, andaðist 6. marz sl. 65 ára aö aldri. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju á morgun kl. 1.30. Haukur Þorláksson, vélstjóri, Mávahlíö 9, andaðist 4. marz sl. 44 ára aö aldri. Hann verður jarö- sunginn frá Háteigskirkju á morg- un kl. 1.30. Jónína Vilborg Ólafsdóttir, Mið- túni 42, andaðist 8. marz s.I. 66 ara að aldri. Hún verður jarðsung- in frá Fossvogskirkju á morgun kl. 3.00. BÍLAVIÐSKIPTI Óska Ttir aó Kanps Moskvítch fólksbifreiö árg. '59 og yngri til niðurrifs, Uppl. í síma 66255. Sölumaður óskar eftir atvinnu. Er vanur vöruþekkingu á mat- vöru og fatnaði. Er kunnugur í bænum og úti á landi. Hef bíl. Meömæli ef óskað er. Tilb. sendist Vísi merkt. „Sölumaöur 343“ fyrir hádegi mánudag. ÓSKASI KEYPT Bílaþvottatæki eða litill gufuket- ill óskast til kaups. Sínu 51814. 2 stúlkur oskast t;! garðyrkju- starfa strax. Upplýsmgúr i snna 2-4214 eftir kl. 5 : dag. SpegUlinti SÖLUBÖRN — SÖLUBÖRN KOMIÐ I DAG KL 1-5 AÐ HVERFISGÖTU 4 OG SELJIÐ SPEGILINN - SÖLULAUN 10 KR. FYRIR EINTAKIÐ ITT SCHAUB-LORENZ * Utvarpstœki GELLIR sf Garðastræti 11 Simi 20080 1 Í DAG IÍKVÖLdI BELLA „Hárið þitt er einnig mjög fallegt í kvöld, Hjálmar.“ V'EÐRIÐ DAfi Auslan gola og síðar kaldi með lítils háttar snjó- muggu, suðaust- an kaldi og dá- lítil rigning í nótt. riLKYNNINGAR • Kvenfélag Kópavogs. Aöalfund urinn verður í félagsheimilinu fimmtudaginn 12. kl. 10.30. Venju leg aöalfundarstörf. Lagabreyting ar. Önnur mál. — Stjórnin. Langholtssofnuður. Spilakvöld bræðrafélagsins verður i safnað- arheimilinu fimmtudaginn 12. marz og hefst kl. 8.30. Stjómin. Kvenfélag Laugarnessóknar býður eldra fólki í sókninni til skemmtunar og kaffidrykkju i Laugarnesskólanum sunnudaginn 15. marz kl. 3. Þeir sem óska eftir að verða sóttir, hringi í síma 33634 eftir kl. 1 á sunnudag. Fræösluíundur Garðyrkjufélags Islands verður í Domus Medica laugardaginn 14. marz kl. 2 síð- degis. Fundarefni: Hafliði Jóns- son, garðyrkjustjóri talar urn grasflatir, áburð og umhirðu. Sam talsþáttur um vorlauka. Mynda- sýning, — Stjórnin. FUNDIR I KVÖLD • Félag austfirskra kvenna. Aðal- fundurinn er í kvöld kl. 8.30 að Hverfisgötu 21. — Stjórnin. KFUM—AÐ. Fundur í kvöld kl. 8.30 í húsi félagsins við Amt- mannsstíg. Aðalfundur. Venjuleg aðalfundarstörf. Heimatrúboðið. Almenn sam- koma í kvöld að Óðinsgötu 6 a kl. 20.30. Hjálpræóisherinn. Almenn sam koma í kvöld kl. 8.30. SKEMMTISTAÐIR • Þórscafé. Gömlu dansamir i ‘ kvöld Hljómsveit Ásgeirs Sverr- issonar, söngkona Sigga Maggý. Röðull. Hijómsveit Magnúsar Ingimarssonar, söngvarar Þuríður Sigurðardóttir, Pálmi Gunnarsson og Einar Hólm. Fjöllistamaður- inn og gamanleikarinn Bobby Kwan skemmtir. Templarahöllin. Bingó í kvöld kl. 9. Glaumbær. Acropolis leika. Hótel Loftleiðir. Hljómsveit Karls Lilliendahl, söngkona Hjör- dís Geirsdóttir, Andrée Paris skemmtir.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.