Vísir - 26.05.1970, Page 1

Vísir - 26.05.1970, Page 1
Hver lægðin á fætur annarri Allar líkur á löngu verkfalli — segir varaformaður Dagsbrúnar — Ekki útlit fyrir samkomulag fyrr en i fyrsta lagi eftir helgi, segir framkvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambands Islands 0 Engar líkur eru tald- ar á því, að til sam- komulags dragi á fundi þeim, sem sáttasemjari hefur boðað með deilu- aðilum í vinnudeilunni klukkan fjögur í dag. — Um 7 þúsund manns í sex verkalýðsfélögum munu því hefja verkfall á miðnætti í nótt. Þar á meðal eru verkamanna- félagið Dagsbrún í Reykjavík, Hlíf í Hafnarfirði, Eining á Ak- ure’yri, Vaka á Siglufirði. Allt atvinnulíf á þessum stöðum mun því stöðvast eða lamast stórlega. Verkakonur í Reykjavík og Hafnarfiröi hafa svo boðaö verk- fall annaö kvöld og verkalýðs- félöigin í Árnessýslu á fimmtu- dagskvöld. Þrettán félög málm- og skipasmiða hafa einnig boð- að verkföll á iaugardag og Sjó- mannafélag Keflavíkur og verka konur í Keflavík og Njarðvíkum boða verkfall 2. júní. Það er ómögulegt að segja, hvaö kann að gerast eftir helg- ina, en það eru engar líkur á því að samkomulag náist fyrir helgi, sagði Björgvin Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambandsins, í viötali við Vísi í morgun. PóÍItíkin hefur of mikil áhrif á þetta finnst manni. Borgarstjórnarkosningarnar nú um heigina hafa sín áhrif á samningana. — Útlitið er sem sagt ekki gott, að minnsta kosti ekki fram yfir helgi. Atvinnu- rekendur hafa ekki formað nein ákveðin ný tilboö ennþá. Við munum sjá til hvað verður. — Mér lízt þannig á, að hér verði um langt verkfall að ræða, sagði Guðmundur J. Guðmunds- son, varaformaður Dagsbrúnar, er Vísir ræddi við hann f morg- un. Það er ekkert sem bendir til þess að þetta gangi saman alveg á næstunni. — Þó að samkomulag næðist, tekur það minnst sólarhring að fella þetta saman, þannig að einsýnt er alla vega að til verkfalls kemur. —JH- Dubcek ýtt út i yztu myrkur Nú er talið víst að Alexander Dubcek verði endanlega þokað burtu af sjónarsviðinu í Tékkó- slóvakíu. Þar verður ýtt út f yztu myrkur þjóðarhetju lands- ins. Sjá bls. 3. Konurnar starfræktu bjófafélag Fyrir nokkru var afhjúpað í Kaupmannahöfn þjófafélag hús- mæðra. Þær höfðu í nokkra mán uði stolið klámbókum og tfma- ritum frá forlagi nokkru í borg- inni. Þýfið nam eitthvað á aðra milljón króna. Sjá bls. 2. „1 BILI er bara ein djún lægð að nálgast landið úr suðvestri, hún hefur það í för með sér, aö sennilegt er að hlýni fyrir norð- ar og rigni talsvert í öðrum landshlutum, á Suöurlandi og á Austfjörðum. I dag verður mikil rigning meðfram suðurströnd- inni“, segir Knútur Knudsen veð urfræðingur. Vísir haföi samband viö Veð- urstofuna f morgun ti! að for- vitnast um lægðimar, sem hafa svipt Reykvíkinga sól að mestu undanfarna daga, líkt og geröist í fyrrasumar. —SB— meiri kauphækkun? Ozðið , ,gengishækkun“ er lftt 1 þekkt hér á landi. Við höfum haft meira af gengislækkunum að segja. Umræður hagfræð- inga um hinar nýstárlegu tillög- ur að hækka gengi krónunnar fóru fram um sfðustu helgi og segir frá þeim í blaðinu f dag. Sjá bls. 9, Fyrirliðinn settur i varðhald sakaður um stuld á armbandi? Á FAO-ráðstefnunni í Súlnasal Hótel Sögu. Myndin er tekin í gaer, er fjallað var um fiskileit. Bátar sendir út með salt fyrir verkfallið — Mikill viðbúnaður að koma bátunum út til veiða — Undanbágur engar veittar nema til að halda sjúkrahúsum gangandi o.b u.l. Mikið annríki hefur verið við höfnina síöustu dagana. Allt kapp hefur verið lagt á að koma bát- um út á veiðar fyrir verkfall og fara margir út í dag, sumir á síld- veiðar f Norðursjó, aðrir á troll og skak. Hafa sumir stærri bát- anna verið sendir út með salt á skakveiðar með það fyrir augum að þeir gætu haldið út langt verk fall. Togararnir hafa tekið ís með það fyrir augum að sigla með afl- ann ef þörf krefur. Að sögn Benedikts Gunnarsson- ar hjá Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna hefur allt kapp verið lagt á útskipun freðfisksins núna síðustu daga til þess að skipin lentu ekki f verkfallinu og munu þrjú skip vera á leiðinhi eða um það bil að leggja af stað með fullfermi af freðfiski, Lagarfoss og Brúarfoss til Ameríku og Hofsjökull til Rúss lands. Mjög mikið annríki er f Siippn- um í Reykjavik og mörg skip á biðlista að sögn Jóns H. Sigurðs- sonar forstjóra Slippstöövarinnar og myndi verkfallið hafa ófyrirsjá- anlegar afleiöingar fyrirútgerðina í sumar, þar sem eftir er að ljúka við mörg skip eftir vertíöina. Starf semi skipasmíðastöðva og slipp- stöðva lamast að sjálfsögðu í kvöld eins og flest annað, en auk þess fara svo málm- og skipasmiöafélög in í verkfall á laugardaginn. Að sögn Guðmundar J. Guð- mundssonar, varaformanns Dags- brúnar, veröa litlar undanþágur veittar í verkfallinu. Sagði hann að Dagsbrún væri ekki enn búin að ákveða endanlega hvernig þeim yrði háttað, en undanþágur yrðu naumast veittar nema til hins allra nauðsynlegasta, svo sem l það til dæmis að veita sjúkrahúsum starfs aðstöðu. — JII ij „Sfelpurnar j: svo miklar ■ :■ Fjssllað um fiskileit og snurpunætur á FAO-rdð- stefnunni FAO-ráðstefnan var sett í Há- skólabíói sl. sunnudag og er henni nú haldið áfram í Súlnasal Hótel Sögu. í gær var einkum fjallaö um fiskileit og flutt 22 erindi en í dag fjalla flest erindin um snurpi nót og snurpinótaveiðar. Meðal þeirra sem flytja erindi í dag er I Þjóðverjinn D. Tucker, sem fjallar I unt iramtíðarþróunina í sónatækn- inni og Hilmar Kristjónsson fjall- ar um snurpinætur og sýnir mynd- ir af þeim. Þá mun O. Nakken frá Noregi fjalla um norskar síldveið- ar. í gær var móttaka I ráðherra- bústaðnum, og tók sjávarútvegs- málaráðherra þar á móti þátttak- endum ráðstefnunnar, en síðar í vikunni verður fariö að Þingvöllum og snæddur þar hádegisverður, og annað kvöld verður fariö út i norska rannsóknarskipiö G. O. SARIS, sem liggur hér í höfninni. Ráðstefnunni lýkur á laugardag. þs. Þær fréttir bárust i morgun að hinn heimsfrægi fyrirliði enska landsliðsins í knatt- spyrnu, núverandi heimsmeist- ara Bobby Moore, hafi verið settur í varðhald, grunaður um að hafa stolið 120 þús. króna gullarmbandi í Bogota í Colum- bíu. i Sjá bls. 4. ( Gengishækkun eða

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.