Vísir - 26.05.1970, Blaðsíða 2

Vísir - 26.05.1970, Blaðsíða 2
★ Það fór svo sem margan grun- aöi, aö ameríska háö- og skop- myndin, M.A.S.H. hreppti gull- pálmann á kvikmyndahátíöinni í Gannes, og var hún þar kjörin bezta mynd ársins 1970. Hér fyrir nokkru gerðum viö grein fyrir áliti flestra kvik- myndagagnrýnenda, sem spáöu henni sigri. Stjómandi M.A.S.H., sem fjallar um læknabúöir að baki vlglínu í Kóreustyrjöldinni, er Robert Altman, en handrit myndarinnar skrifaöi Ring Lardn er, jr. Byggðist myndin að mestu á leik Dona'lds Suther- lands og Elliot Gould, sem fóru með hlutverk herlækna, og Sally Kellerman, sem fór með hlutverk yfirhjúkrunarkonu. Nokkrir þeirra, sem verðlaun hlutu á hátíðinni í Cannes. Frá vinstri talið: leikstjórinn Stuart Hagmann (Strawberry Statement), leikkonan Candice Bergen, framl. Ingo Preminger, leikstj. Robert Altman og leikkonurnar Sally Kellerman og Jo Ann Pflug (öll úr M.A.S.H.) og síðast brezki leikstjórinn John Boorman (Leo the last). M.A.S.H. bar být um 1 sigur Lannes ur Verðlaun sem bezti leikari árs ins hlaut Marcello Mastroianni fyrir túlkun sína á hinum ást- hrifna múrara í ítölsku mynd- inni, „A drama of jeglousy", og bezta leikkonan var valin Otta- via Piccoli fyrir leik sinn í ann- arri ítalskri mynd „Metello", sem fjallar um félagslegt umrót í Flor ence 1890. John Boorman var valinn bezti leikstjórinn fyrir tillag sitt í brezku myndinni ,,Leo the last“, og ítalska myndin „Investigation of citizen above suspicion" hlaut sérstaka viðurkenningu dóm- nefndarinnar. Aðrar myndir, sem viðurkenn ingu hlutu, voru ungverska mynd in „The Falcons", bandaríska myndin „The strawberry state- ment", sem fjallar um stúderita- óeirðir, og „Hoah-Binh“, sem er hálfgerð fræðslumynd og fjallar um víetnamskan dreng, sem miss ir heimili sitt í stríðinu. Rúmlega 400 kvikmyndir voru sýndar þessar tvær vikur, sem 23. kvikmyndahátíðin I Cannes stóð yfir. Þessi hátíö var í mörgu ólík mörgum hinna fyrri. Færri „uppákomur" uröu, þar sem ó- þekktar leikkonur reyndu að vekja á sér athygli með nektar- göngu eða einhverju áþekku, en hins vegar voru rekin mikil við skipti á hátíöinni, þar sem menn skiptust á pöntunum kvikmynda, réðu nýja leikstjóra og leikara o. s. fcv Um 10.000 gestir sóttu hátiö- ina, og þar á meðal voru um 800 blaðamenn og gagnrýnendur. Þjófafélag hús- mæðra afhjúpað í Kaupmannahöfn Til varnar ryði i bílum Amerísku bílaverksmiðjurnar hafa nú tekið upp þá nýbreytni að framleiða ýmsa bílhluta, eins og ljósarammana og „grillið“ aö framan úr trefjagleri til varnar gegn ryöi og á sú framleiðsluað ferð.vafalaust eftir að hljóta vin- sældir meðal bíleigenda, sem eiga sér varla skæðari óvin en einmitt ryðiö. Eins og myndirnar tvær aö of an bera með sér, er þarna um aö ræða „krómhlutana“, eins og t.d. luktarammann aftan á Mercury Montego á efri mynd inni, og svipaö á Pontiac Tempest á neöri myndinni. Fróðir menn spá því, aö ekki muni líða á löngu þar til evrópsk ir bílaframleiðendur muni taka upp þessa nýbreytni í framleiöslu sinni. Það vakti mikla athygli í Kaup mannahöfn, þegar afhjúpað var á dögunum heilt þjófafélag hús- mæðra, sem í nokkra mánuði hafði stolið klámbókum og tima ritum frá forlagi einu þar í borg, sem aðallega fæst við útgáfu slíkra bókmennta. Þýfið mun hafa numið að verö mæti eitthvað á aðra milljón ís- lenzkra króna, en svo vel hafði konunum tekizt að leyna þess- ari iðju sinni, aö engan grunaði þær — ekki einu sinni eigin- menn þeirra eða börn — fyrr en lögreglan barði að dyrum hjá þeim einn góðan veðurdag. Tveir meðlimir þjófafélagsins voru 44 ára gamlar húsmæður, en sú þriðja var 62 ára, en allar lutu þær yfirstjóm eins karl- manns. Tókst manninum að flýja til Svíþjóðar samdægurs og kon urnar voru þandteknar, en lýst hefur verið eftir honum og leitar sænska Iögreglan hans dyrum og dyngjum. Það voru'yngri konurnar tvær, sem þjófnaðina frömdu. Sú elzta veitti þýfinu móttöku og annað- ist dreifingu bókanna og tímarit anna, sem munu hafa verið flutt til Þýzkalands og Ítalíu og seld þar. Yngri konurnar báöar störf- uðu í pökkunardeild útgáfufyrir tækisins, og hafa starfað þar í 13 — 14 ár. Eins og í glæpareyf- urum voru þær aftast á lista yfir hina grunuöu, en þjófnaðurinn varð uppvis, þegar farið var yfir reikninga og bókhald fyrirtækis- ins vegna rúmlega einnar millj- ón króna skekkju, sem komið hafði fram í bókhaldinu. Önnur konan byrjaði að stela fyrir rúmu ári. Stal hún af vörubirgðum fyrirtækisins og bar daglega heim með sér úr vinn- unni nokkur hundruð eintök af klámritum. Þýfið afhenti hún svo fyrrv. eiganda klámbókabúðar, 62 ára gamalli konu, sem síðar í yfirheyrslunum sagðist hafa tek ið upp á þessu í leiðindum og að- gerðaleysi, síðan hún seldi klám- bókabúðina sína fyrir fimm ár- um. Hin yngri konan, sem starfaði í bókaforlaginu og stal af lag- ernum eins og sú fyrri, brast í grát í yfirheyrslunum og sagð- ist hafa leiözt út i þjófnaðina vegna fjárhagserfiðleika, sem hún hafði lent í. Er hún kona fráskilin og haföi fyrir þrem böm um að sjá. Karlmaðurinn, sem þjófafélag- inu stýrði, bjó með þessari 62 ára og seldu þau í sameiningu þýzkum ferðamönnum klámritin og nokkrum föstum viðskipta- vinum í Noregi og Ítalíu. ; Konurnar vom allar dæmdar í sjö daga fangelsL

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.