Vísir - 18.06.1970, Síða 3
V í SIR . Fimmtudagur 18. júní 1970.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND
Wilson spáð 2— 7% meira fylgi
í morgun spáð meirihluta í
Kosið i Bretlandi / dag
Verkamannaflokknum var j kosningunum í Bretlandi í
dag. Sýndu skoðanakann-
anir milli 2% og 7% meiri-
hlutafylgi hans meðal kjós-
enda, en það mundi gefa
honum milli 20 og 90 þing-
sæta meirihluta. Áherzla
var þó lögð á það, að skoð-
anakannanir gætu reynzt
rangar.
Ef Verkamannaflokkurinn vinn-
ur í þessum kosningum, verður
Harold Wilson forsætisráðherra
þriðja kjörtímabilið í röð. Það yrði
met. Verkamannaflokkurinn hefur
aldrei fyrr í sinni 70 ára sögu set-
ið eins lengi að vöidum og raun
mundi verða á, ef svo færi.
íhaldsmenn hafa hvergi nærri
sætt sig við óhjákvæmilegan ósig-
ur, þótt skoðanakannanir gefi hann
til kynna. Flokkurinn treystir því,
að hann hafi betra skipulag en
andstæðingurinn og kjósendur
hans muni taka betri þátt I kosn-
ingunum en stuðningsmenn Wil-
sons, sem ef til vill eru of sigur-
vissir.
Wilson — treystir á pípuna.
Edward Heath hefur verið flokks
leiðtogi íhaldsmanna síðan 1965,
og hefur hann barizt hart síðustu
vikumar. Heath gerir sér ijóst, að
ósigur íhaidsflokksins mundi vafa-
lítið binda endi á forystu hans í
flokknum.
Harold Wilson hefur forðazt ýt-
arlegar umræður við Heath, en
hefur £ þess stað treyst á persónu-
legar vinsældir sinar meðal kjós-
endanna, með pípu sína I munn-
vikinu. Wilson treystir því, að
hann sé mun fylgismeiri persónu-
lega en andstæöingur hans, Heath.
Á kjörskrá eru 39.363.384. Kosn-
ir verða í dag 630 þingmenn í
Neðri málstofuna, og kemur þing
saman 2. júlí.
Aðaiflokkarnir eru Verkamanna-
flokkur og íhaldsflokkur, auk
Frjálslyndra, en að auki eru fram-
bjóðendur frá kommúnistum og
þjóöemissinnum i Skotlandi og
Wales.
Umsjón: Haukur Helgason
Heath — telur sig hafa betra
skipulag.
Bandaríkjaþing lækkar
kosningaaldur i 18 ár
Samiþykkt hefur verið meö Óvíst er, að lækkun kosninga
miklum meirihluta á þingi aldurs með slíkri samþykkt
Bandaríkjanna að lækka kosn- þingsins sé í samræmi við á-
ingaaldurinn niður í 18 ár. Einn kvæði stjómarskrárinnar. Nix-
ig voru samþykkt lög, sem eiga on forseti hafði kosið, að annar
að auöveida svertingjum i Suð- háttur yrði á hafður þótt hann
urrikjunum að greiða atkvæði i sé talinn fylgjandi lækkuninni.
kosningunum.
ormn
var drukkinn
ISLENZKAR BÆKUR
, DANSKAR BÆKUR
! 0GBLÖÐ,
I
Rannsókn á járnbrautarslysi, er
varö í Danmörku fyrir viku, leiddi
í Ijós, aö orsök þess var sú, að
lestarstjórinn var ölvaður og stöðv-
aði ekki við rautt ljós.
Farþegalest rakst á flutningalest
skammt frá Hróarskeldu. Farþegar
voru 102, og slösuöust 40, en fæst-
ir alvarlega, — Myndin sýnir far-
þegalestina eftir áreksturinn.
N0RSKAR BÆKUR
íbúar Phnom Penh óttast árás
Hersveitir Víetkong færast
stöðugt nær höfuðborg
Kambódíu, Phnoni Penh.
Þær hófu einnig í gær mik-
ii áhlaup á þrjá mikilvæga
staði í norðurhluta lands-
ins.
Taliö er, að kommúnistar ráði
nú yfir svæðum í þrjár áttir frá
höfuðborginni og líkur séu til þess,
að þeir nái einnig héruöunum í
suðvestur og umkringi þar með
borgina.
Ótti greip um sig í gær í Phnom
Penh, og töldu sumir hættu á, að
ráðizt yrði á borgina strax í dag.
Víetkong brauzt í gær inn í bæ-
inn Kompong Cham, og þeir hafa
skotið á annan bæ, Kompong
Thom, 130 kílómetrum fyrir norö-
an Phnom Penh. Hins vegar hefur
stjórnarherinn náð aftur Kompong
Speu, 40 kílómetrum suðvestur af
höfuöborginni,
Flugvélar frá Suöur-Víetnam
hafa varpaö napalmsprengjum á
kambódískt land í fyrsta sinn, síð-
an innrásin var gerð í byrjun maí.
Var árásin gerð á tuttugu kíló-
metra svæði utan við Kompong
Thom.
I höfuðborginni hafa verið sett
upp götuvígi við aðalpósthúsið og I arhúsum. Börum er lokaö klukkan
símstöð. Lögregla og her hefur leit sex á kvöldin og veitingahúsum
aö logandi ljósi að vopnum í Ibúö- klukkan níu.
RITSIJÓRN
LAUGAVEGI 178
SÍMI 1-16*60
ÞYZKAR BÆKUR
0GBLÖÐ
]
FRANSKAR BÆKUR
0G BLÖÐ,
I
r —
TRJAPLONTUR
SKRAUTRUNNAR
Mikið úrval, fallegar plöntur.
Rætumar vel varðar í nestispokanum.
RÓSASTILKAR í pottum
Má planta hvenær sem er.
Komið og veljið — við sendum.
FJÓRIR ÚTSÖLUSTAÐIR:
v/Miklatorg, sími 22822.
v/Sigtún, simi 36770.
v/Hafnarfjarðarveg, simi 42260.
Breiðholt, býlið, sími 35225.
RITFÖNG
Bókaverzlun Æ >
SWÆBJARWARÆ&
Hafnarstræti M)
v ENSKAR 0G
AMERISKAR BÆKUR
UTVEGUM ALLAR >
FAANLEGAR BÆKUR
SÍMAR1428113133 11936