Vísir - 18.06.1970, Blaðsíða 8

Vísir - 18.06.1970, Blaðsíða 8
8 V1SIR . Fimmtudagur 18. júní 1970. Útgefanii: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Bröttugötu 3b Simar 15610. 11660 Afgreiðsla: Bröttugötu 3b. Sími 11660 Ritstjón: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 165.00 á mánuði innanlands I lausasölu kr. 10.00 eintakið Prentsmiðja Vfsis — Edda hf. Stærrí sveitarfélög Jónas Guðmundsson beitti sér fyrir stofnun Sam- bands íslenzkra sveitarfélaga fyrir 25 árum. Þessi samtök, sem nú virðast svo sjálfsögð, áttu við ramm- an reip að draga á uppvaxtarárunum. Samskipti sveit- arfélaga einkenndust á þeim tíma af hrepparíg. Hrepp- arnir grunuðu hver annan um græsku. Þessi viðhorf hafa gjörbreytzt. Enn eimir að vísu eftir af gamla hrepparígnum, en farsællar samvinnu milli sveitarfélaga gætir hvarvetna. Stærri heildir koma meira fram en hinar smærri. Kostir samstarfs sveitarfélaga á fjölmörgum svið- um hafa reynzt svo ótvíræðir, að síðustu ár hefur verið stigið skrefi lengra. Fram hafa komið hugmynd- ir og tillögur um sameiningu margra sveitarfélaga í eitt. Ýtarleg rannsókn hefur verið gerð á möguleik- um á slíkri sameiningu, og Alþingi hefur lýst vilja sínum, að stefnt verði að henni. Segja mætti, að gömlu fjórðungarnir séu að vakna til nýs lífs, að vísu í gjörbreyttri mynd. Gerðar hafa verið framkvæmdaáætlanir fyrir landshluta, og sam- bönd þeirra stofnuð. Með því er sveitarstjórnin færð í æðra veldi. Hringurinn stækkar. Fólk gerir sér æ betur Ijóst, að verkefni tuttugustu aldar verða ekki leyst nema til komi víðtækt samstarf. Hinir fámennu hefðbundnu hreppar fá nú litlu aorkað á eigin spýtur. Það hlýtur því að vera jafnt hagsmunamál íbúa litlu hreppanna sjálfra og þjóðarinnar í heild, að sveit- arfélögin eflist og sterkari stoðum verði rennt und- ir þau. Hugmyndunum um sameiningu sveitarfélaga hef- ur verið betur tekið en ætla hefði mátt að óreyndu. Að vísu eru enn fá dæmi um beinar framkvæmdir í þeim efnum. Hæst ber þar samþykkt íbúa á ísafirði og í Hnífsdal nú í vetur um sameiningu þessara tveggja sveitarfélaga, og standa vonir til, að þessi viljayfirlýsing fólksins muni fá farsælan framgang. Hitt cr ef til vill merkara, að sameiningarstefnunni hefur yfirleitt ekki v^rið mótmælt í hreppunum. Þvert á móti hafa nær allir verið til viðtals um hana. Er þess því að vænta, að þróunin sé hafin og hún verði ekki stöðvuð. Forvígismenn Sambands íslenzkra sveitarfélaga fyrir aldarfjórðungi geta litið stoltir yfir farinn veg. Sambandið lætur ekki mikið yfir sér, og margir munu aldrei hafa heyrt þess getið. Það mun hafa eina fjóra starfsmenn á sínum vegum. Þessi samtök hafa þó orð- ið vettvangur bættra samskipta sveitarfélaganna og átt sinn mikla þátt í að útrýma hrepparígnum og leggja grundvöllinn að þeirri samvinnu, sem bætt hefur hag fólksins. Verkefni næstu framtíðar er að treysta innviði sam- takanna með eflingu sveitarstjórnanna. Til þess þarf þolinmæði, því að mörgum yrði slík sameining vafa- laust sár í fyrstu. Stækkun sveitarfélaganna með skynsamiegum og frjálsum aðferðum yrði tvímæla- laust framfaraspor. Líffræðingurinn Medvedev hefur fengið uð sitju í geðveikruhæli uf því uð hunn ufhjúpuði vís- indulegt hneyksli í Sovétríkjunum # Erfðafræðin eru hrein stjómmál i Sovétríkjunum. Hlvers kyns kenningar skjóta þar upp kollinum, og erfða- fræðingar koma og fara, eftir því, hvemig veltur um æðstu völd í kommúnistaflokknum. Þetta kemur til af því, að landbúnaðurinn er lykilgrein í atvinnulífinu, og miklu skiptir, hvort unnt er að auka Svetlana Stalínsdóttir varð að skilja við mann sinn vegna deilna við „skottulækninn“ Lysenko. BúfræSin er pólitískast framleiðsluna með ýmsum „töfrabrögðum“. • Það vakti athypli fyrir skömmu, er virtur líffræðing- ur, Jaures Medvedev, var sett ur á geðveikrahæli, en það er helzta aðferð kommúnista- flokksins tii að losna við erf- iða andófsmenn. — Ýmsir menntamenn hafa mótmælt meðferðinni á Medvedev, og orsakir hennar eru þær, að líffræðingurinn Ieyfði útgáfu bókar erlendis, er hafði verið hafnað í heimaiandi lians. 1 þessu máli má sjá i hnot- skurn ástandið í Sovétríkjun- um og aðstæður, er mennta- menn búa þar við. • Nú herma fréttir, að Medevedev hafi verið látinn Iaus. „Raspútín“ í jurtakynbótum Það var fyrir byltinguna 1917 að fátækur aðalsmaður, Michur- in að nafni, reyndi að rétta viö hag fjölskyldu sinnar með þvi að bæta ávaxtaframleiðsluna. Hann studdist við ..fingurgóma- tilfinningu" að mestu. Kommún istar tóku tilraunum hans vel, og hann hélt þeim áfram eftir byltinguna. Frægasti búfræðingur Rússa var á sfnum tíma raaður að naifni Lysenko. Lysenko upphóf dýrkun á nafni Michurins og stefnu þá er kölluð var Michur inismi. Stalin gein við kenn- ingum Lysenkos og hóf'.hann til skýjanna. Fræðimenn gerðu alltaf gys að Lysenko og furðulegum hug myndum hans um kynbætur á plöntum. Enfðafræðingum var hann þyrnir í auga og þeir köll uðu hann skottulækni, sem lifði f anda Raspútíns gamla, sem naut hylli við hirð keisarans forðum daga. Stalin skeytti slfk um mótbárum engu og gerði hann Lysenko að „hetju bylting arinnar". í náðinni hjá Stalín og Krúsjeff Rússar þráðu þá eins og enn f dag að þeir mættu endurbæta landbúnaðinn og hefja hann til vegs. Landbúnaðurinn áttj við llllllllllll 'M) ŒM5 Umsjón: Haukur Helgason mikla erfiðleika að etja vegna mistaka f samyrkjubúum sem bændur tóku yfirleitt illa. Á 4. tug aldarinnar lýsti Lysenko því yfir að hann mundi framleiða endurbætt hveiti innan þriggja ára. Fræðimenn sögðu, að þetta værj ögerlegt. Erfðafræðingar i Sovétríkjunum helga sig mest tandbúnaði, af þvf að það er talið bera vott um kynþáttafor- dóma að velta vöngum yfii erföalögmálum manna. Lysenko kvaðst geta á ódýran hátt skapað byltingu f landbún aðarframleiðslunni. Lysenko mistókst hvaö eftir annað að framkvæma hinar byltingar- kenndu fyrirætlanir, en hann var samt f náöinni allt til dauða Stalins. Hann tók þá að koma sér í mjúkinn hjá öðrum for- ingjum og fékk hylli Krúsjeffs. Maður Svetlönu íhaldssamari t þeirri atlögu áttj Lysenko f höggi við Andrei Zadanov, sem lengst af var talinn krónprins Stalins. Sonur Zadanovs, Yuri, var þá kvæntur dóttur Stalins, Svetlönu, eins og til að tryggja stöðu Zadanovs. Þeir feðgar voru æðstu menn í vísindalegum efnum í Sovétríkjunum. Þeir voru fhaldssamari og varfærnari en Lysenko svo að vegir hlutu að skiljast. Þrátt fyrir mótmælj eigin- manns og tengdaföður Svetl- önu Stalinsdóttur tókst and- stæöingum þeirra að sannfæra Stalin. Árið 1948 fékk Lysenko algert einveldi f lfffræðilegum efnum. Yuri varð að skrifa op- ið bréf og biðjast afsökunar á andstöðunni við Lysenko. Var þá sýnt, að vegur Zadanovs til æðstu metorða var að lokast. Zadanov dó skömmu síðar, og Yuri og Svetlana slitu samvist- um Lysenko var enn á tindinum og laut ekki í lægra haldi fyrr en með falli Krúsjeffs áriö 1964. Lysenkohneykslið afhjúpað Mál líffræðingsins Medvedevs kemur vip þessa sögu. Medve- dev hafðj sem sé samiö bók um allt hneykslismál Lysenk- os. Krúsjeff bannaði útkomu hennar. En við fall Krúsjeffs hugðist Mededev enn á ný koma út verki sínu, þar sem afhjúpað er hið sjúka valdakerfi í Sovétríkjun- um á tíma Stalins. Hinir nýju valdhafar vilja ekki, að Stalins hneykslið sé opinberað heims- byggð meira en orðið er. Fyrir Krúsjeff vakt; að halda vemdar hendi yfir skjólstæðingi sínum, Lysenko. Fyrir núverandi vald höfum vakir hins vegar að varpa ekki frekari rýrð á Stalin. Medvedev tók loks þann kost inn að leyfa útkomu bókarinnar erlendis og kom hún út í fyrra. Þetta er glæpur í Sovétríkjun- um og kallað að ófrægja land sitt erlendis. Því fannst nú pláss fyrir lif- fræðinginn á geðveikrahæli.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.