Vísir - 20.06.1970, Page 1
80. árg. — Laugardagur 20. jiiní 1970. — 136. tbl.
Borgin lifnar við
Olíulaust úti á landi
leiðinni skip með oliufarm og
verða Vestmannaeyingar búnir að
fá sína olíu, ef farmannaverkfall
skellur á í kvöld. Búizt er við al-
variegu ástandi á Vestfjörðum og
víða á Norðurlandi ef farmanna-
verkfallið verður, en þar er nú Mikil ös myndaðist við bensínsölustaðina í gær. Ekki komust þó öll farartæki af eigin rammleik
orðið mjög olfulítið. — SB til að ná í þennan vökva, sem var orðinn mönnum svo dýrmætur í verkfallinu.
Taprekstur á listahátíðinni
Getur ekki borgað sig þrátt fyrir 3 millj. i styrki
Mikill aukakostnabur vegna verkfallanna
0 Strax, þegar Dagsbrúnarfund-
inum lauk í gær, hófst ys og þys
í borginni. Fyrirtæki og stofnanir
höföu „gert klárt‘‘ til þess aö hefja
starfsemina að nýju og fyrstu bila-
eigendumir komu að bensínstöðv-
unum. Við bensínstöðvamar mynd-
uðust biðraðir, en um hálf fjög-
urleytið var byrjaö að afgreiða
fyrsta bensínið á bíla, skömmu síð
ar tðk umferöin aftur að aukast
um götur borgarinnar.
Olíufélögin byrjuðu að keyra
bensín á stöðvarnar þegar Dags-
brúnarfundinum lauk klukkan þrjú
og byrjað var að losa olíuskipið
Bowcedar frá Rotterdam í Hafnar-
firði, sem var með flugvélaelds-
neyti og gasolíu en þar á eftir var
byrjað að dæla úr tveim rússnesk
um skipum sem hafa beðið i átta
daga eftir losun og em með 22
þús. tonn af svartolíu, bensíni og
gasolíu. Á það verk að taka tvo
til þrjá sólarhringa. Einnig fóru bif
reiðir með bensin út á land.
Víða úti á landi er að verða olíu
laust og er ástandið verst i Vest-
mannaeyjum, en þangað er nú á
Þénaði 7 jbús.
á laxveiði-
0 „Það er fyrirsjáan-
legt að þessi Listahá-
tíð getur ekki borgað sig
peningalega, þó að ó-
beint sé gert ráð fyrir,
að hátíð sem þessi
borgi sig smátt og smátt,
Ld. í auknum ferða-
mannastraumi og vegna
landkynningarinnar sem
slík hátíð er“, sagði Páll
Líndal, er blaðið hafði
samband við hann í gær,
en hann er form. fram-
kvæmdanefndar Listahá
tíðarinnar, sem sett verð
ur í dag.
„Það er einnig fullljóst að
verkföllin hafa aukið mjög kostn
aðarliði við sýninguna. T.d. verð
um við að láta vinna mjög mik
ið í helgidagavinnu nú um helg
ina, til aö hægt sé að hafa hús-
næði og ýmsa aðstöðu vegna há
tíöarinnar timúna á réttum tíma.
T.d. þarf mikla pressu til að
Ijúka við Laugardalshöllina á
sínum tíma, en það tekst þó aö
öllum líkindum", sagði Páll.
„Hvað kostar þessi hátið á-
ætlað?'
„Ennþá er ógerlegt að segja til
um kostnaöinn, þar sem eimþá
stendur yfir miðasala og ýmsir
samningar en ófrágengnir. Einn
ig eru ýmsir dagskrárliðir styrkt
ir og því erfitt að segja hvað
eru tekjur. En við fáum í beina
styrki 1,5 milljón frá borginni,
750 þúsund frá ríkinu og 600
þúsund frá Menningarmálasjóði
Norðurlandanna. Vonandi nægja
þessir styrkir til að greiða þann
mismun, sem að öllum líkindum
verður á tekjum og útgjöldum
hátíðarinnar", sagöi Páll að lok
um. — ÞS
i
túrnum
0 Margir eru þeir, sem veigra
sér nú við því að fara í laxveiði
vegna hins mikla kostnaðar, sem
þvi er samfara. Þeir eru þó ekki
aliir, sem fara öfugir út úr sam-
skiptum sínum við þann göfuga
fisk, laxinn.
Veiðimaður nokkur, sem hafði
leigt sér stöng i borgfirzkri laxá
í tvo daga kom a. m. k. ekki slypp
ur og snauður til baka. Hann
greiddi 6 þús. krónur fyrir dag-
ana tvo, en þegar heim kom seldi
hann hóteli einu laxinn fyrir 13
þús. krónur, fékk 300 krónur fyrir
kílóið. Það er sem sé hægt að detta
í lukkupottinn í laxveiðinni, þó að
það muni ekki vera ásetningur
góðra sportmanna, en varla slá
nú margir hendinni á móti slíku
samt. — VJ
Góður samningsvilji
— segir formaður Farmannasambandsins
0 Það er góður samningsvilji hjá
báðum aðilum og maöur vonar hið
bezta, sagði Ingólfur Stefánsson,
formaður Farmannasambandsins
fyrir samingafundinn í gær, en þar
var meðal annars fjallað um kaup-
kröfur stýrimanna, vélstjóra og
bryta á kaupskipaflotanum. Náist
ekki samkomulag verður kaupskipa
flotinn bundinn við bryggju enn
um sinn, þar sem varla er búizt
við að það takist að losa neitt skip
anna fyrir annað kvöld.
Klukkan fimm í gær var byrjað
að losa skip í Reykjavíkurhöfn.
Reiknað var með að hægt yrði að
klára að losa Fjallfoss, en hann
var byrjað að losa fyrir verkfall.
Leiguskipin mega hins vegar fara
allra sinna ferða, þar sem erlendar
áhafnir eru á þeim og þær vinna
samkvæmt allt öðrum samningum.
Fjögur leiguskip Eimskipafélagsins
eru nú stöðvuð, þar af raunar eitt
íslenzkt, Askja.
Að sögn Ingólfs var ógjörningur
að segja neitt til um samningslíkur
fyrir fundinn í gær. Upphaflega
fóru farmenn fram á allt að 40%
hækkun á grunnkaupi í lægstu
flokkunum, en þar var grunnkaup
ið mjög lágt, aðeins rúm 10 þús.
Haldið áfram með
nvjuni sáttasemjurum
Litil von að samið verði við farmenn, iðnað-
armenn og mjólkurfræðinga fyrir helgi
Samningaviðræður og sátta-
fundir héldu áfram milli at-
vinnurekenda og þeirra at-
vinnuhópa, sem ekki sömdu
I fyrrinótt, en þeir eru iðnað
armenn, farmenn og mjólkur-
fræðingar. Talin var lítil von
til þess i gærkvöldi, að samið
yrði við þessa hópa fyrir
helgi, en sáttafundur með
þessum aðilum hófst kl. 4 í
gær í Alþingishúsinu.
Tveir sáttasemjarar eru nú
komnir í stað Torfa Hjartarson
ar, sem var búinn að ráðstafa
sér fyrir nokkru á fund með toll
stjórum Norðurlandanna. Þetta
eru varasáttasemjararnir, hæsta
réttardómararnir Logi Einars-
son, sem stýrir sáttafundum
með farmönnum og byggingar
iðnaðarmönnum og Einar Am-
alds, sem stýrir fundum með
málmiðnaðarmönnum og mjólk-
urfræðingum.
Að því er Björgvin Sigurösson
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins sagði í gær-
kvöldi var búizt við stöðugum
funduni um helgina með þessum
aðilum. — VJ
Síðan hafa viðhorfin breytzt mjög
svo sem vegna vísitölubótanna.
- JH
¥ásir í vikulokín
fylgir blaðinu í dag
til áskrifenda
Flugvél
til Hafnar
eftir vörum
Mörg atriði listahátíðarinnar
hefðu trúlega farið út um þúfur ef
verkfalliö hefði staðið nokkrum
dögum lengur. Danska brúðuleik-
húsið hefðj til dæmis ekki komið
tækjum sínum í tæka tíð, en í gær-
kvöldi var Cloudmastervél frá
Flugfélagí ísiands send út til
Kaupmannahafnar til bess að sækja
búnað brúðuleikhússins og ýmsan
annan varning sem safnazt hefur
fyrir vegna verkfallsins og bráð-
nauðsynlega verður að komast til
landsins strax.
Flugfélagið fór auþ þess í gær
vöruflutningaferðir til Isafjarðar og
Vestmannaeyja en farþegaflug
hófst strax og verkfallinu var af-
létt og var flogið á alla stærstu
staðina í gær, en áætlunarflug
verður ineð venjulegum hætti í
dag. — JH
Enn þungt
haldinn
• Líðan mannsins, sem slasaðlst,
þegar bifreið hans rakst á
umferðarljósin við Miklubraut og
hentist 25 m eftir götunni, er enn
við það sama. Hann liggur ennþá
jafnþungt haldinn á sjúkrahúsi og
hefur öðlazt lítinn bata.
• Málaraneminn, sem hrapaði
niður af fjórðu hæð f Hvassa-
leiti, þegar vinnupallur hans utan
á húsi siitnaði úr festingum fimmtu
daginn 11. júní, liggur ennþá á
sjúkrahúsi. Hann var illa brotinn
á báðum ökklum, svo að hætt er
við að hann eigi langa legu fyrir
höndum. — GP
Keyrt á
þotuna á
Keflavíkur-
0
flugvelli
Vörutrukkur, sem notaður er við
losun flugvéla á Keflavíkunflugvelli
keyrði í gær á þotu Flugfélagsins
og skemmdj hana smávegis. Lenti
trukkurinn á vöruflutningahurð
vélarinnar og tók tvo tfma áð gera
við hana. Þotan var að koma nr
flugi frá Grænlandi og á leið til
Danmerkur og tafðist dálítið af
þessum sökum. — JH