Vísir - 20.06.1970, Blaðsíða 16
Laugardagur 20. júhí 1970.
Öskufall hjá
BúrfeUi
Öskufalls gættj hjá Búrfelli i
gasr og fyrradag, en vindur hefur
staðið þangað af gosstöðvunum.
Öskufallið er ekki mikið, sést að-
eins á bílum eftir nóttina, sam-
kvæmt því sem Helgi Arason að-
stoðarstöðvarstjóri tjáði blaðinu
í gær. Gosið í Heklu virðist vera
svioað og áður, eldur sást síðast,
þegar farið var að gosstöðvunum
í einum gíg og hraun vellur fram
á nokkrum stöðum sunnan- og
vestanvert við gossprunguna. Aðal-
liráunið er komið fram undir Sauða-
feli.
Dregið hefur úr mannaferðum
við gosstöðvarnar og sagði Helgi,
að síðast hefði verið farið til gos-
stöðvanna frá Búrfelli fyrir síðustu
helgi, en núna síðustu daga hefir
bensínið verið sparað vegna ber:-
sínskortsins. — SB
Led Zeppelin fá 630 þás.
fyrír íslandsferðina
Tæki þeirra
vega 3 tonn
áP Hljómsveitin heims-
fræga, Led Zeppelin,
verður að öllum líkind-
um ein helzta tekjulind
Listahátíðarinnar, þrátt
fyrir það, að hljómsveit
in tekur 3000 pund fyrir
að koma hingað og er
allt innifalið í þessu
verði.
Er þetta í íslenzkum krónum
rúmar sex hundruð þúsundir.
Þrátt fyrir þennan mikla kostn-
að við að fá þessa hljómsveit og
ýmsan aukakostnaö sem fylgir
tónleikum hljómsveitarinnar, er
gert ráö fyrir að mikill hagnað-
ur verði af tónleikunum, en sem
kunnugt er seldust miðarnir
4000 allir upp á svipstundu. Gert
er ráð fyrir að hljómsveitarmeð-
limimir komi til landsins á
sunnudag, en í dag eru tæki
hljómsveitarinnar væntanleg til
landsins, og er það enginn smá-
ræðis farangur. Stór vörubíll
verður sendur til Keflavíkur til
að sækja þau, en þau munu
vega um þrjú tonn, samkvæmt
upplýsingum Ivars Eskeland, for
stöðumanns Norræna hússins,
en hann er framkvæmdastjóri há
tíöarinnar. Er hér um að ræða
m.a. magnaratæki, sem aðeins
eru til 5 af í heiminum. Eru
þau 2000 vött, en hér á landi
mun algengast að notuð séu 200
vött. Einnig er hugsanlegt að
með séu einhver sérstok ljósa-
tæki, en Ivar Eskeland sagði þó
aö þeim væri ekki kunnugt um
það. - ÞS
‘'-Ifl
STÚLKA HVERFUR VIÐ
SKJÁLFANDAFLJÓT
Óttazt, að hún hafi dottið / fljótið — Málið i rannsókn
C® „Menn óttast, að stúlkan
hafi fallið í Skjálfandafijót,
en þó er ekki útilokað, að hún
hafi farið upp á þjóðveginn og
fengið far með annarri bifreið,
en sú von er veik“, sagði Sigurð-
ur Gunnarsson, lögregluþjónn á
Kúsavík, sem í fyrrinótt tók þátt
í leit, er gerð var að 18 ára
stúlku frá Akureyri.
® Stúlkan hvarf frá samferða-
mönnum, sínum við brúna yf-
ir Skjálfandafljót hjá Fosshóli.
Hvarf hennar bar mjög skyndi-
lega að, og síðan hefur ekki
fundizt svo mikið sem spor eftir
hana. Hún er frá Akureyri, er
til heimilis að Hriseyjargötu 1
og heitir Guðrún Bjarnadóttir
Hjaltalín.
Þau fóru fimm í bíl frá Akureyri
í fyrradag Guðrún og 4 piltar um
tvítugt. En við brúna hjá Fosshóli
námu þau staðar að austanverðu,
og í góða veörinu varð þeim geng-
ið niður í hvamm sunnan við brúar-
sporöinn til þess að teygja úr sér
eftir ökuferðina. Tveir piltanna
gengu síöan upp úr hvamminum að
bænum Fosshól, til þess að hringja.
„Það kom fram í yfirheyrslum
sem stóðu yfir í allan gærdag, að
stúlkan hafði reikaö eitthvað frá
piltunum tveim, sem eftir voru í
hvamminum, en síðan áttuðu þeir
sig ekki á því, að hún var horfin
sjónum þeirra, fyrr en hinir tveir
komu,“ sagði Gísli Ólafsson, yfir-
lögregluþjónn á Akureyri.
„Þeir gerðu Iögreglunni á Húsa-
vík viðvart kl. 18.20, þegar þeir
höföu leitað hennar um stund, án
árangurs.“
l»->- bls. 5
/,' ' " '
y„//V""'/V,"'" 'ff/""""//"""''' ' '/"//, "" ' '''
,/,,,/,"""'"///"/////'fp'/////.
Nú um helgina er unnið af miklu kappi.við að srníða palla og ým-
islegt tréverk fyrir tónleika Led Zeppelin á mánudagskvöldið í
Laugardalshöllinni. Myndin er tekin í gær, er smiðir voru að byrja
vmnuna.
\
I
!
*
Stærsta standmynd á Islandi
Stærsta standmynd, sem sett hefur verið upp hér á landi er nú risin á Hagatorgi. Mynd þessi er
eftir Jón Gunnar Árnason og er sett upp í tilefni Listahátíðar. Hún er átta metra há og annað eins
á breiddina. Inni í þessari risastóru grind verður auga, sem snýst, og sést það hér á myndinni
hanga í krana. Þetta auga á eftir að stara á gesti Listahátíðarinnar og aðra vegfarendur við Haga-
torg núna næstu dagana. — SJá bls. 9.
Ashkenazy og Jónas Haralz
á fyrstu kvöldvökum stúdenta
Stúdentafélag Háskólans ætlar i
sumar að halda þræðinum í fé-
lagslífi stúdenta með því að
efna til eins konar kvöldvöku
einu sinni í viku. Félagið hefur
fengið húsnæði í Glaumbæ uppi
og geta stúdentar hitzt þar öll
mánudagskvöld og rætt saman
um landsins gang og nauðsynjar.
Engin eiginleg dagsltrá verður
hins vegar á þessum kvöldum.
Að sögn Magnúsar Gunnarssonar.
formanns Stúdentafélagsins verða
þetta óformlegar samkomur, aðeins
til þess gert að stúdentar viti þann-
ig af einum samastað þar sem þeir
get.l hitzt.
Exgðj Magnús að reynt yrði að
fá sérstaka gesti hvert kvöld,
listamenn. stjórnmáiamenn eða
einhverja þá sem hefðu eitthvað
athyglisvert fram að færa og væri
þegar búið að fá gesti tvö fyrstu
kvöldin. Á mánudaginn kemur mun
Jónas Haralz tala við stúdentana,
en hann er sem kunnugt er banka-
stjóri, fyrrverandj forstöðumaöur
Efnahagsstofnunarinnar og formað-
ur háskólanófndarinnar frægu.
Næsta mánudag á eftir mun svo -
píanóleikarinn frægi Ashkenazy
verða gestur stúdentanna. — Þess-;
um kvöldvökum verður fram hald-t
ið, þar til skóli byrjar í haust, í!
október, ef vilji verður fyrir hendi 1
hjá stúdentum. — JH '
Unnið dog og nóft
við sorphreinunðna
Unnið er dag og nótt að því að
hreinsa sorp úr borginni eftir verk-
fallið en fyrstu vinnuflokkarmr
fóru út klukkan fimm í gær til aé
ráðast á haugana, sem hafa hrúg-
azt upp í kringum sorptunnur und-
anfarnar vikur.
Verður unnið við sorjohreinsunina
alla helgina og tveir vinnuflokkar
skólapilta vinna á næturnar við
hreinsunina. Venjulega tekur það
viku að hreinsa borgina alla at
sorpi, en nú má búast við því að
verkið taki lengrj tíma þar sem
sorp hefur hlaðizt upp. — SB