Vísir - 04.07.1970, Blaðsíða 2
□□□□□□□
Michael
Caine
hjóna-
band
□□□□□□□
Það hefur eitthvaö undarlegt
komið fyrir hann Michael Caine.
Þessi frelsiselskandi kvikmynda-
stjama, frægust fyrir myndina
„Alfie“ og „Funeral in Berlin“,
hefir átt miklu fleiri ástkonur í
einkalífi sínu, heldur en á hvíta
tjaldinu.
Og nú, þegar hann er orðinn
36 ára, lýsir hann því yfir að
hann hafi hug á að koma sér
upp friðsælu heimili með kon-
unni sem hann elskar.
„Nú orðiö kæri ég mig ekki um
aö vera á eilífum pilsaveiöum,
ég kæri mig ekki um aörar kon-
ur“, sagði hann og virtist orðinn
ráösettur eins og sextugur hús-
eigandi og afi.
Þessi kvenholli leikari virðist á
ferli sínum aldrei hafa hætt
kvennafari. Stúlkur hans gætu
eflaust nægt til að fylla þátttak-
endafjölda alheimsfegurðarsam-
keppninnar en núna hefir hann
sett persónulegt met í ástafari:
Hann hefir búið með sömu kon-
unni í meira en heilt ár! En stúlk
an sú er fínleg austurlenzk stúlka
sem heitir Minda Fellciano.
„Ég þekki ekki margar austur-
lenzkar konur“, segir Caine, „ég
met þessa mjög mikils, og það
eru nokkrar vitleysur sem mig
langar til að leiðrétta í sambandi
við skoðanir fólks hér á austur-
lenzkum konum: Það er fárán-
legt að ímynda sér að austur-
lenzkar konur hafi þrælslund.
Evrópskar konur eru miklu und-
irgefnari, en hins vegar ræður
sú austurlenzka yfir manni með
því að þjóna manni. Sú evrópska
reynir að láta líta svo út að hún
ætli að taka völdin í sínar hend-
ur, en á endanum verður hún
miklu þýlyndari en sú austur-
lenzka“.
Rockefellerarnir geta verið
erfiðir i sambúð, ekki síður en
annað fólk, eða svo hefir henni
önnu Marfu Rasmussen frá Nor-
egi eflaust fundizt.
Hún er dóttir norsks verzlunar
manns, sæmilega efnum búins.
Þrátt fyrir gott atlæti í heima-
húsum langaöi hana að litast um
í veröldinni og upp úr 1955 fór
hún til Bandaríkjanna í atvinnu-
leit. Fljótlega fékk hún vinnu hjá
Nelson A. Rockefeller, sem vinnu
kona á heimili hans. Rockefeller
átti þá, og á reyndar enn, son
einn efnilegan, Stephen Rocke-
feller, sem átti glæsta framtíð
fyrir höndum sem bankamaður.
Árið 1959 elti Stephen Önnu
til Noregs, en þangað var hún
þá snúin aftur, og kvæntist henni
þar. Bandarísku blöðin skrifuðu
mikið um atburðinn og hjóna-
band þeirra, lýstu því sem „eitt
ævintýra H .C. Andersen hefði
orðið að raunveruleika".
Um síðustu helgi skildi svo
Anna María, nú frú Rockefeller
við Stephen. Skilnaðurinn kom
til framkvæmda í bænum Juarez
í Mexíkó og var sagður vera
vegna „ósamræmanlegs geöslags"
Rockefeller yngri mun hafa verið
einkar örlátur viö konu sína viö
skilnaðinn, en hún fékk að halda
börnum þeirra þrem og hún býr
nú með þeim að Pocantico hæð-
um þar sem Rockefeller fjölskyld
an á gríöarstórt einbýlishús.
ENDALOK
ÆYINTÝRIS
Yonazt til að Heath verði
veitull húsbóndi í númer 10
Bretar hafa að undanförnu bor
ið nokkrar áhyggjur I brjósti út
af honum Heath vesalings forsæt
isráðherranum þeirra. Það er eink
um kvenkyniö sem fjasar um að
,það þýöi ekkert að vera meö ó-
kvæntan forsætisráðherra. Hann
geti naumast boðið til sín gest-
um, algjörlega ófaglæröur maöur
inn í kúnstum heimilishalds.
Þá eru þeir að benda á þaö,
fullir innblásturs, að piparsveinn,
einkum þó, þrautþjálfaður pipar-
sveinn, eins og Heath, sé miklu
betri en venjuleg ráðherrafrú í að
skipuleggja veizlur. Þess vegna
þurfi brezkir ráðuneytisstjórar,
fulltrúar, þingmenn og erlendir
sendimenn ekki að óttast að víður
gjörningur veröi ekki sæmilegur i
númer 10 við Downingstreet. —
Heath hefur frábæra skipulags-
gáfu, þegar veizlur og kokteilboð
eru annars vegar og veit hvað
hverjum kemur bezt. Heath segja
brezkir blaðamenn og aðrir þeir
er áhyggjur hafa af húshaldi í
nr. 10, er hreinn og beinn karl-
Einhver stórkostlegasta læknis
aðgerð okkar tíma, hefir nýlega
verið framkvæmd, að minnsta
kosti á hvíta tjaldinu. Kvikmynd-
in fjallar um leikara, Hywell
Bennett (þennan á myndinni) en
lækni einum tekst að koma
manndómi hans í samt lag meö
þvl að nota lækningameðaliö
„Percy“.
Myndin fjallar svo um það,
aö fyrst komum við að leikaran-
um þar sem hann liggur í rúmi
sínu og er að reyna að ná sér
eftir ígræösiu, sem er engu ó-
merkilegri en hjartaígræðsla.
Og svo tekur læknirinn til
sinna ráða til að fá útbúnaðinn
til að starfa rétt aftur. Hann nær
í Percy, sem er nektardansmær
frá Soho, klæðir hana í
hjúkrunarkonu, og svo er
hennar verkefni að „koma leik-
aranum til“,.
Kvikmynd þessi er að sögn öll
hin spaugilegasta, en leikarann
leikur sem fyrr segir
Bennett, en hjúkrunarkonuna
kátu leikur stúlka að nafni
tonia Ellis.
Heath.
allt út úr höndunum í tauga-
veiklunarkasti, eins og
má búast við af húsmæörum
Vonandi að mennirnir hafi
fyrir sér, en það er víst ekki hægt
að sannprófa nema meö því
láta einhvern bjóða sér í
hjá Híþ.
maður, sem mun aldrei láta það
henda sig, hvorki í stjómarstörf
um, húshaldi eöur öðru, að missa
SINATRA
með krampa
Sinatra gamli söngvari er ný-
kominn heim til sín i Palm
Springs eftir uppskurð sem lækn-
ar gerðu á hægri hendi hams.
Þessi fimmtíu og fjögurra ára
gamli töffari þjáðist af sjúkdómi
sem lýsti sér þannig, að skyndi-
lega skrapp vöðvinn í hendinni
saman, og hún varð að litlum,
glerhörðum hnefa.