Vísir - 04.07.1970, Qupperneq 5
Vf-SÍ R. Laugardagur 4. júlí 1970,
5
KJil-N O G
i
„Eftir að hafa heyrt um trú
yðar, grundvallaöa á Drottni
Jesú, og um kærleika yðar
til allra heilagra, hefi ég
þess vegna ekki heldur lát-
ið af að þakka fyrir yður,
, er ég minnist yðar í bænum
mínum, og biðja Guð Drott-
ins vors Jésú Krists, föður
'dýrðarinnar, að gefa yður
anda speki og opinberunar,
svo að þér fáið gjörþekkt
hann, og að upplýsa sálar
sjón yðar, svo að þér skilj-
ið, hver sú von er, sem hann
hefur kallað yður til, hver
rfkdómur þeirrar dýrðar,
sem hann ætlar oss að erfa
meðal hinna heilögu, og
hver hinn yfirgnæfandi mikil
leiki máttar hans gagnvart
oss, sem trúum.“
(Páll postuli í Efesus-
bréfi 1:15-19)
Vísindaleg bekking
Við liifum á tímrm feikilegr-
ar útþenslu á sviði vísindalegr-
ar þekkingar. Alls konar þekk-
ing er mjög svo eftirsótt og í
allmiklu verði, í sumum löndum
að minnsta kosti. Okkar kyn-
slóð leitast við að kynna sér
geiminn og jaifnframt innstu
gerð allra hluta. Fróðir menn
segja, að nú tvöfaldist þelck-
ingarforði mannkyns á hverj-
um áratug.
En áherzlan hefur yfirleitt
verið á svonefndri vísindaiegri
þekkingu, söfnun staðreynda,
. uppgötvun og hagnýtingu eðlis
lögmála náttúrunnar. Minna hef
tir verið lagt upp úr mannþekk-
ingum, heimsspeki eða lífspeki,
sem er betra orð, — siðfræði
og öðru slíku. Svo mikil rækt
hefur verið lögð við skynsemi
mannsins að tilfinningalif hans
hefur viljað gleymast.
' Þekking heitir hugvekja
Kirkjusíðunnar í dag. Hún er
rituð af presti Ölfusinga séra
Ingþór Indriðasyni í Hvera-
gerðL i
Hann er fæddur á Akureyri
1935 en varð stúdent í Reykja-
vík 19 ára gamall og iauk guð
fræðiprófi frá Hásk. ísl. vorið
1959. Það sama vor 22. júni
var hann vígður til Herðubreið
arsafnaðar í Langruth, Man. Can
og starfaði síðan sem prestur
í Vesturheimj næstu 5 árin. Eft
ir heimkomuna gerðist hann
ferðaprestur þjóðkirkjunnar o«
þjónaði þá Ólafsvíkurpresta
kalli. Síðan 1968 hefur hann
verið prestur í Hveragerði.
Kona sr. Ingbórs er Guð-
munda Gunnur Guðmundsdóttir
frá ísafirði.
Það er alls fjarri mér að
kasta rýrð á nokkra sanna
þekkingu. Öll þekking heillar
mig og ég heifi fjarska gaman
af að læra um undur tilverunn-
ar og tæknj mannanna. En við
megum ekki láta töfra vísinda
legrar tækni og velmegunina,
sem tæknin færir okkur í hinu
ytra, blinda okkur svo, að við
missum sjónar af öðrum sviðum
þekkingar, sem eru ekki síður
mikilvæg fyrir líf okkar og
heill.
Við megum ekki vera skjót
til að gleyma þeirri lexíu, sem
ríki Hitlers kenndi okkur. Það
var ríki vísinda og tækni á
hæsta stigi á þeim tfma, riki
kaldrifjaðrar skynsemi, en lífs-
skoðunin og siðfræðin sem að
bakj var, var heiðin lífsskoð-
un víkiriganna færð í nútíma
búning og framkvæmd, ekki
með atgeir, heldur með bitr-
um vopnum nútíma tækni.
Vísindaleg þekking er
skemmtileg og gagnleg, þegar
vel er með hana farið, en það
sem ræður örlögum einstakl-
inga og þjóða er eitthvað ann-
að og meira. Þetta hafa menn
lengi vitað og því eru mörg
orð viðhöfð. svo sem þekking,
fróðleikur, innsýn, skilningur,
vízka. Mikil þekking á þröngu
sviði vísinda nægir ekki, til að
maður geti talizt vitur, það þarf
meira til. Sviðið er stærra.
Mannbætandi þekking
Sú tegund þekkingar, sem okk
ur skortir frekast í nútíman-
um, er þekking sem veitir frið,
þekking sem er mannbætandi,
bæti uppeldið, eykur á öryggi
og lífsgleöi. Okkur skortir þá
innri sýn. sem lætur vonina
lifa.
Þetta finnur margur og sér
og nú heyrast æ sterkari radd-
ir hér á íslandi um þörf fyrir
þjóðfélagslegar umbætur. Á-
standið í skóla- og uppeldismál
um þjóðarinnar er nærtækt
dæmi. Og svo á að grípa í
snatri til töfra vísindaaðferöa
og tækni, sem hafa gefizt svo
vel við að leysa fjölmörg vanda
Hjallakirkja í Ölfusi
Þetta er ein af þeim þrem kirkjum, sem séra Ingþór Indriðason í Hveragerði þjónar. Hinar
eru Strandarkirkja í Selvogi og kirkjan á Kot strönd í Ölfusi.
mál í hinu ytra, til þess að vinna
að mannbótum. Hér eru að eiga
sér stað mikil mistök. Það duga
ekki sömu aöferðir við að
rækta menn og t- d. grös eða
holdanaut. Vandamál skólanna
verða ekki öll leyst nieð hag-
ræðingu, skipulagi, rannsókn-
um. tækjakaupum og öðru slíku,
sem kann að gefast mjög vel
viö fiskveiðar.
Maðurinn er annars eðlis en
umhverfi hans, hann er lika
annars og meira eðlis, en grös
eða fiskar. Maðurinn er lifandi
sál. Vandamál skólanna er sið-
ferðilegt, trúarlegt. Hér er um
að ræða lífsstefnu. afstöðu til
lífsins og til annarra manna.
Hér er um að ræða innsýn,
vizku í víðari merkingu. Hér
er um mennsku og manndóm
að ræða.
Við getum kynnt okkur alla
veröldin og geiminn líka, þekkt
alla sögu skilið öll lögmál
sem eru að verki i tilverunni,
hagnýtt alla hugsanlega tækni,
kannað alla mannlega hegðun og
hugsun, breytt erfðaeiginleik-
um okkar og framléitt mann í
tilraunastofu með því að líkja
eftjr gangi náttúrunnar, en
samt verður þessi þekking öll
samanlögð ekki nægileg til að
fullnægja manninum. Ekkert
nægir minna en innsýn í hina
endanlegu þekkingu, að þekkja
hver er höfundur líifsins og að
vitá hvernig og til hvers hann
ætlast til aö við Iifum.
Hin dýrasta þekking
Hin allra dýrasta þekking, hin
állra dýpsta speki er fólgin i
þvi að þekkja Guð, hann sem
hefur skapað okkur og átWa
þessa stórkostlegu tilveru. Eikk
ert er einstaklingnum jafn dýr
mæt reynsla og að finna sig
í sambandi viö Guð, finna til
þess, að lífið sé gjöf frá Guði,
og Guð láti sig varla líf
hans.
Þetta var sú reynsla, sem Páll
postuli varð fyrir er hann
komst í kynni við Krist. Páll
, fann, að boðskapur Krists og líf
ið sem hann lifði færði honum
hina dýrustu þekkingu og snert
ingu við Guð. Hrifning Pálsvar
slík. að hann varði öllu lífi sínu
til þess að deila þessari stór-
kostlegu og máttugu innsýn
með öðrum. Páli hafði hlotnazt
algjörlega ný útsýn yfir Iffið
og tilveruna.
Kirkja byggð í Hveragerði
j miklu óveðri, sem gerði í Ölf
usi haustið 1908 . skekktist
kirkjan að Reykjum á grunni
og skemmdist mikið. Arnarbæl-
iskirkja var þá mjög hrörleg orð
in og þurfti mikilla endurbóta
við. Sýndist og ýmsum, að kirkj
an í Arnarbæli væri ekki vel í
sveit sett. Þar því úr, að árið
1909 voru Reykjasókn og Arn-
arbælissókn sameinaðar og á-
kveðið að reisa nýja kirkju nokk
urn veginn mitt á milli kirkn-
anna, eða að Kotströnd. Kot-
strandarkirkja var svo byggð
sumarið 1909 og vígð þá um
haustið.
En þegar fram liðu stundir
tók að myndast byggðarkjarni i
Hveragerði og vorið 1946 varð
Hveragerði að sérstökum hrepp.
Enn áttu Hvergerðingar þó sókn
til fCotstrandar um tvo áratugi.
En þegar kom fram yfir 1960
varð Ijóst, að fyrr eða síðar
hlytj að korna að því, að i Hvera
geröi risi kirkja, ef þorpið
héldi áfram að vaxa. Árið 1962
varð svo Hveragerði sérstök
sókn og fékk þá hugmyndin um
kirkjubyggingu nokkurn byr.
Annars unnu sóknarpresturinn,
séra Helgi Sveinsson og konur í
kvenfélagi þorpsins, hvað öiui-
legast að því að vinna hugmynd
inni fylgi.
Byggingarnefnd var kosin og
áhugafólk vann ötullega þar til
bygging kirkjunnar var hafin,
árið 1967. Síðan framkvæmdir
hófust hefur nefndin unnið und
ir ötulli forstöðu Árna Ásbjarn
arsonar, forstjóra, og allur
fjöldi Hvergerðinga hefur veitt
málinu stuðning.
Of langt yrði upp að telja
alla þá sem lagt hafa fram
vinnu og fé til kirkjubyggingar-
innar, þar sem þeir heyra frem
ur til undantekninga, einstakl-
ingar og fyrirtæki sem ekkert
hafa Iagt fram. Enda væri bygg
ing þessi óhugsandi í lítilli sókn,
ef ekkj kæmi til almennur stuðn
ingur við hana.
Til þess að lesendur, einkurn
Reykvíkingar, átti slg á stærð
viðfangsefnisins fyrir þessa 800
manna sókn þá svarar fé það
sem varið hefur verið til kirkju
byggingarinnar á undanförn-
um þrem árum til þess, að í
Reykjavík hefði verið varið 350
milljónum króna til kirkjubygg
inga á undanförnum þrem ár-
um. Og má þá hver maður sjá,
hvílíkt átak er hér um að ræða.
Hveragerðiskirkja er nú. risin
af grunni og setur nú begar
svíp á þorpið, enda má hún
heita fokheld um þessar mund-
ir.
Kirkian ei teiknuð af Jör-
undi Pálssyni. Henni er ætlað
að rúma 200 kirkjugesti, en síö
an er gott rúm til að bæta
við aukasætum og auk þess
unnt að opna inn í hliðarsal og
auka þannig rými til mikilla
muna. Safnaðarheimili hefur
verið steypt upp samhliða kirkju
skipinu og verða þar salur, er
rúmar 60 — 80 manns, lítið eld
hús skrifstofa prests, og tvö
önnur herbergi, auk fatageymslu
og snyrtiherbergja. Anddyri er
rúmgott. Lögð verður áherzla
á að ljúka við hluta safnaðar-
heimilisins þannig að unnt
verði að taka salinn þar í notk
un sem fyrst.
Kirkjusmíðina hefur Jón Guð-
mundsson annazt og það af
sérstakri árvekni. Sóknarnefnd
Hveragerðissóknar, undir hand
leiðslu Ólafs Steinssonar hefur
unnið með byggingarnefndinni
að kirkjubyggingunni og stjórn
Hveragerðishrepps herur sýnt
málinu skilning og stutt bygg-
ingu kirkjunnar. Einnig hefur
bankastjóri útibús Búnaðar-
banka íslands, Tryggvi Péturs-
son. sýnt þessu verkefni sfciln-
ing og göðvilja.