Vísir - 04.07.1970, Qupperneq 10
ÍO
223
V í SIR . Laugardagur 4. júlí 1970.
Umsjón Hallur Símonarson.
Islenzka lands-
liðið gegn Dönum
íslenzka landsliðið í knattspyrnu,
sem leikur gegn Dönum á þriðju-
dag verður þannig skipaö. (Aðal-
og varamenn);
Þorbergur Atlason, Fram
Magnús Guðmundsson, K.R.
Jóhannes Atlason, Fram
Einar Gunnarsson, Í.B.K.
Þorsteinn Friðþjófsson, Val
Ellert Schram. K.R.
Guðni Kjartansson, Í.B.K.
. Haraldur Sturlaugsson, f.A.
Eyleifur Hafsteinsson, f.A.
Halldór Björnsson, K.R.
Skúli Ágústsson, Í.B.A.
Ásgeir Elíasson, Fram
Matthías Hallgrímsson, Í.A.
Guðjón Guðmundsson Í.A.
Etmar Geirsson, Fram
Hermann Gunnarsson, Í.B.A.
Jón Ólafur Jónsson, Í.B.K.
i
Tveir finnskir
badmintonleikarar
á íþróttahátíð
í sambandi við Íþróttahátíðina
verður haldið hátíöarmót í bad-
minton, og er það langstærsta mót
í badminton, sem haldið hefur ver-
ið hér á landi. Þátttakendur eru
135 víösvégíir af landinu. Þá koma
til mótsins tveir af beztu badmin-
tonleikurum Finnlands. Keppt verð
ur í íþrótbhöllinni í Laugardal og
hefst mótið með setningarathöfn
mánudaginn 6. júlí kl. 14, en keppni
hefst strax þá á eftir. Mótið heldur
siðan áfram á þriðjudaginn og
hefst kl. 14.30 en þá verða leiknir
Undanúrslita og úrslitaleikir. Alls
verða leiknir 150 leikir og verður
leikið á átta völlum samtímis.
Eins og áöur sagði koma hingað
tveir af beztu badmintonleikurum
Finnlands, þeir eru:
EERO LAIKKÖ, 22 ára, dýra-
læknastúdent. Hann er finnskur
meistari í einliðaleik í ár og hefur
veriö meistari í tviliðaleik árið 1966
,og í tvendarkeppni árið 1968 og
1969. Hann hefur leikið 13 lands-
leiki í badminton.
MARTIN SEGERERANTZ, 28
ára tannlæknir. Hann var finnskur
meistari í einliðaleik árin 1967 og
1969, meistari í tvíliðaleik 7 ár í
röð 1963—1969 og í tvendar-
keppni 1963 — 1966 og 1970. Hann
hefur leikið 16 landsleiki í bad-
minton,
Finnarnir Ieika hér við okkar
sterkustu menn bæði í einliðaleik
og tvíliðaleik.
Stórdansleikur
í Laugardalshöllinni, sunnudaginn 5. júlí kl. 21.00.
Hljómsveitirnar ÆVINTÝRI
og NÁTTÚRA leika, söngvarar
Björgvin Halldórsson og
Pétur Kristjánsson
AÖgangseyrir kr. 150,00.
Aldurstakmark 14 ára. Ölvun er
stranglega bönnuð.
MESSUR
Langholtsprestakall. Guðsþjón-
usta kl. 10.30. Séra Sigurður
Haukur Guðjónsson.
Háteigskirkja. Lesmessa kl. 10
Séra Arngrímur Jónsson. Messa
kl. 2. Séra Jón Þorvarðsson.
Neskirkja. ^Juðsþjónusta kl. 11.
Séra Jón Thorarensen.
Dómkirkjan. Messa kl. 11 á
sunnudag. Séra Óskar J. Þorláks
sson.
LauBameskirkja. Messa kl. 11.
Séra Garðar Svavarsson.
Grensásprestakal). Messa í safn
aðarheimilinu Miðbæ kl. 11. Séra
Felix Ólafsson.
Hallgrítnskirkja. Messa kl. 11.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson.
Sumarleyfisferöir í júlí .
1. Miönorðurland 4.—12. júlí
2. Fljótsdalshérað —
Borgarfjörður 11. —19. júli
3. Vestfirðir 14.—23. júlí
4. Kjölur —
Sprengisandur 14.—19. júli
5. Suðausturland 11.—23. júlí
6. Skaftafell —Öræfi 16.—23. júli
7. Skaftafell —Öræfi 23.—30. júli
8. Hornstrandir 16.—29. júli
9. Fjallabak — Laki
Núpstaðaskógur 18. — 30. júli
10. Kjölur — Sprengi-
sandur 23.-28. júli
Ennfremur vikudvalir í sæluhús-
um félagsins, i Þórsmörk, Land-
mannalaugum, Veiðivötnum, Kerl-
ingarfjöllum og Hveravöllum.
Leit'ð nánari upplýsinga og
ákveðið yður timanlega.
Ferðafélag íslands ,
Öldugötu 3, símar 11798 — 19533.
Sigurður Stefánsson, Grjóta-
götu 4, Iézt 28. júní, 63 ára
að aldri. Hann verður jarðsunginn
frá Dómkirkjunni k). 10.30 á mánu
dag.
BELLA
Það er frá bankanum — mað
ur gæti haldið að það væri ekk-
ert annað en peningar og aftur
peningar, sem kæmist aö í koll-
inum á þeim þar.
SKEMMTISTAÐIR •
Templarahöllin. Sóló leikur í
kvöld til kl. 2. Sunnudagur félags
vist, dansað á eftir Sóló leikur
tii kl. 2.
Lindarbær. Gömlu dansarnir í
kvöld. Hljómsveit hússins leikur
til kl. 2. Sunnudagur Rondóklúbb
urinn, Rondó leikur gömul dans
ana til kl. 1.
Silfurtungliö. Opið 1 kvöld og
á morgun. Trix leika bæði kvöld
in.
Skiphóll. Ásar leika i kvöld
til kl. 2.
Tónabær. Sunnudagur kl. 3—6
Ádeila leikur.
Hótel Loftleiðir. Opið í kvöld
og á morgun. Hljómsveit Karls
Lilliendahl, söngkona Hjördís
Geirsdóttir, og tríó Sverris Garö
arssonar skemmta bæði kvöldin.
Hótel Saga. Opið í kvöld og á
morgun. Ragnar Bjarnason og
hljómsveit leika bæði kvöldin.
Ingólfscafé. Gömlu dansarnir í
kvöld. Hljómsveit Þorvalds
Björnssonar leikur til kl. 2. —
Sunnudagur bingó kl. 3.
Tjarnarbúð. Pops leika til kl.
2 í kvöld.
Hótel Borg. Opiö i kvöld og á
morgun. Sextett Ólafs Gauks og
Svanhildur leika og syngja bæði
kvöldin.
Sigtún. Opið í kvöld og á morg
un. Haukar leika. Ted og Jaz
skemmta bæði kvöldin.
Þórscafé. Gömlu dansarnir í
kvöld. Hljómsveit Ásgeirs Sverr
issonar, söngkona Sigga Maggý.
Röðull. Opið i kvöld og á morg
un. Hljómsveit Elvars Berg ásamt
söngkonunni Önnu Vilhjálms
skemmta bæði kvöldin.
Tapast hefur grár hestur 26.
t. m. mark: tvístíft a. v., spjald i
tagli merkt: „Gunnlaugur Ár-
túni.“ Hver, sem hittir téðan hest
er vinsamlega beðinn að koma
honum á Bergstaðastræti 33, —
Reykjavík.
Vísir 4. júlí 1920.
ULKYNNINGAR •
Tónabær. — Tónabær. Félags
starf eldri borgara, mánudagmn
6. júlí verður farin skoðunar
ferð um Reykjavík. Leiðsögumað
ur verður Árni Óla ritstjóri. Lagt
af stað frá Austurvelli stundvís-
lega kl. 2 e.h. Kaffi drukkið í
Grillinu Hótel Sögu kl. 3 e.h. —
Þátttökugjald er kr. 175, kaffi
innifaliö. Uppl. í síma 18800.
Kvenfélag Óháða safnaðarins.
Kvöldferðalagið verður n. k.
mánudagskvöld 6. júlí kl. 8. —
Farið verður frá Sölvhólsgötu viö
Arnarhól. Kaffi í Kirkjubæ á
eftir. Allt safnaðarfólk velkomið.
Húsmæðrafélag Kópavogs. —
Dvalið verður að Laugum Dala
sýslu 21.—31. júlí. Skrifstofan
verður opin i félagsheimilinu 2.
hæö þriðjudaga og föstudaga kl.
4—6 frá 1. júlí. Upplýsingar i
simum 40689 (Helga) og 40168
(Fríða).
Fjallagrasaferð Náttúrulækn-
ingafélags Reykjavíkur. Farið
verður að Veiðivötnum á Land-
mannaafrétti 11. júlí kl. 8 frá
matstofu félagsins Kirkjustræti 8.
Þátttakendur hafi með sér tjöld,
vistir og góðan viðleguútbúnað.
Heimkoma sunnudagskvöld. Á-
skriftalistar liggja frammi á skrif
stofu félagsins Laufásvegi 2,
sími 16371 og NLF-búðinni Týs-
götu 8, sími 10262. Þátttaka til-
kynnist fyrir kl. 17 föstudags-
kvöld 10. júlí. Ferðagjald kr. 600.
Stjóm NLFR.
MINNINGARSPJÖLD •
Minningaspjöld Háteigskirkju
eru afgreidd hjá: Guðrúnu Þor-
steinsdótt..r, Stangarholti 32,
sími 22501, Gróu Guðjónsdóttur,
Háaleitisbraut 47, sími 31339,
Sigríöi Benónýsdóttur, Stigahlíð
49, sími 82959. — Ennfremur i
b^kabúðinni Hlfðar Miklubraut
68, -vg Minningabúðinni Lauga-
, vegí 56.
Vegaþjónusta Félags íslenzkra
bifreiðaeigenda 4.—5. júlí 1970.
FIB-1 Árnessýsla (Hellisheiöi,
Ölfus og Flói)
FÍB-2 Árnessýsla, Laugarvatn.
FÍB-3 Akureyri og nágrenni.
FÍB-4 Hvalfjörður, Borgarfjörð-
ur.
FÍB-5 Út frá Akranesi
FlB-6 Út frá Reykjavík.
FÍB-S Árnessýsla og víðar.
FÍB-11 Borgarfjörður.
Ef óskað er eftir aðstoð vega-
þjónustubifreiða veitir Gufunes-
radíó, sími 22384, beiðnum um
aðstoð viðtöku.