Vísir - 16.07.1970, Blaðsíða 5
V'l'S'l R . Fimmtudagnr 16. júlí 1*976.
Valur—KR 0-1
f*að var Ktil reisn yfir leik
gömlu keppinautanna Vals
og KR á Laugardalsvellin-
um í 1. deildarkeppninni í
g 2rkvöMi og mikil var
he-ípni KR-inga að hljóta
bæði sfigin í þeirri viður-
eign. En bæði liðin hafa
reyndar afsökun, því
hvasst og kalt var meðan
leikurinn fór fram og því
oft erfitt að sýna einhverja
snilli.
Og Þorsteinn Friðþjófsson, sá
leikreyndi maður, getur alveg tek-
ið á sig aila sök, að félag hans
hlaut ekki að minnsta kosti annað
stigið. Þorsteinn hafði í fyrri hálf-
leiknum átt í útistöðum við Hörð
Markan og var orðinn argur í skapi
— og svo stuttu síðar sló hann
knöttinn algerlega að ástæðulausu
Staðan í
1. deild
Staðan í 1. deild eftir leikina
þrjá í gærkvoldi er nú þannig:
KR 6 3 3 0 7rl 9
Akranes 6 3 2 1 10:7 8
Fram 5 3 0 2 8:7 6
Keflavík 5 2 1 2 8:7 5
Víkingur 5 2 0 3 7:8 4
Valur 5 1 1 3 5:8 3
V.eyjar 3 1 0 2 4:8 2
Akureyri 3 0 1 2 3:6 1
Næstj leikur í mótinu er á
laugardag. Þá leika Vestmanna-
eyjar—Víkingur á leikvellinum
í Eyjum.
innan vítateigs Vals og það var
ekkert annað að gera fyrir dómar-
ann, Jörund Þorsteinsson, en að
dæma vítaspyrnu á Val. Úr henni
skoraði fyrirliði KR, Ellert Schram
eina mark leiksins. Þetta var leið-
inlegt fyrir prýðispiltinn Þorstein
— og vont þegar skapvonzkan bitn
ar á eigin félögum og félagi.
Já, KR-ingar höfðu líka heppn
ina með sér oftar í leiknum — því
lengi vel í síðari hálfleiknum sóttu
Valsmenn stíft og reyndu að jafna
— og þá skall hurð nærri hælum
við mark KR. En KR-ingar sluppu
og mest og bezt á 30. mn., þegar
Valsmenn áttu hörku-stangarskot,
knötturinn hrökk út aftur og til
Valsmanns sem spyrnti á mark —
en markvörður KR-inga Magnús
Guðmundsson sýndi oft snilldartil
þrif leiknum — var þá á leið aft-
ur f markið knötturinn lenti milli
fóta hans og festist þar!
Leikurinn var frekar jafn i fyrri
hálfleiknum, en í þeim síðari náði
Valur yfirtökunum — mest fyrir
lítinn baráttu vilja framlínumanna
KR — en KR-vörnin með Ellert og
Þórð Jónsson var sterk og þegar
eitthvað brást hjá þeim kom Magn
ús markvörður tH skjalanna og var
bæði heppinn og góður. En yfirleitt
var leikuritm þófkenndur og lítið
um snillibrögð.
Áhorfendur urðu fyrir vonbrigð-
um með KR-liðið, sem sýndi nú
mun lakari leik, en áður í mót-
mu, framlínan — að Herði Mark
an undanskildum — bitlaus og
sýndi aftar lítinn baráttuvilja, og
uppbygging tengiliðanna Jóns Sig
urðssonar og Halldórs Bjömssonar
heldur léleg. KR-ingar hafa forystu
í mótinu, en verða áreiðanlega að
gera betur, ef þeir ætla að halda
henni lengi.
Valsliðið virðist — þó erfitt sé
að dæma það beint eftir þessum
leik — í framför, og mestu mun-
ar, að ungur piltur, Helgi Björg-
vinsson er nú miðvörður og skilar
því hlutverki vel. Hefur Valsvörn-
in, sem var aðalhöfuðverkur liösins
lagazt mikið við þessa breytingu
og Helgi gefur liðinu aukið öryggi.
Mesta hjólreiðakeppni heims
og ein erfiðasta íþrótta-
keppni, sem háð er í heimin-
um, Tour de France, stendur
nú yfir og lýkur á sunnudag-
inn, þegar hjólreiðakapparn-
ir halda inn í Parísarborg.
— Belgíski kappinn Eddy
Merckz, sem sigraði í keppn-
inni í fyrra, er nú einnig
mjög sigurstranglegur — og
þegar keppni lauk í gær hafði
hann 10 mínútna forskot á
næsta keppanda, sem er
hollenzkur. Þessi skemmti-
lega mynd er frá keppninni
— og þar fær einn kalda gusu
úr garðkönnu.
Akureyri—Akranes 1—3
Skagamenn skoruiu þrjú
mörk fyrsta hálftímann
í blíðskaparveðri á Akur-
eyri í gærkvöldi ^engu
Skagamenn óskabyrjun í
1. deild og áður en hálf-
tími var af leik hafði knött
urinn þrívegis hafnað í
marki heimamanna. Þetta
var eins og reiðarslag fyr-
ir fjölmarga áhorfendur,
sem mættu á völlinn fullir
bjartsýni eftir stórsigur Ak
ureyringa í bæjakeppni
gegn Vestmannaeyjum sl.
sunnudag.
En Skagamenn mættu ákveðnir
til leiks — náðu góðum tökum á
miðjunni og voru hættulegir viö
markið, þótt svo þeir skoruðu ekki
nema eitt gott mark í leiknum.
• Það var á 17. mín., þegar
Matthias Hallgrímsson lék i
gegn og skoraði með föstu
skoti. Og örfáum mínútum sið
Þjóðverjarnir góðir — en Banda-
ríkjamenn hafa þó 10 st. forustu
Stuttgart 15/7. NTB. —
Eftir fyrri daginn í frjáls-
íþróttakeppni á Neckar-
leikvellinum í Stuttgart
hafa Bandaríkin forustu
gegn Vestur-Þýzkalandi
með 58 stigum gegn 48 í
sjöundu landskeppni milli
þjóðanna. í kvennaflokki
hafa þýzku stúlkurnar
hins vegar örugga forustu
eins og reiknað var með —
37 stig gegn 25. Banda-
risku stúlkumar sigruðu
aðeins í einni grein, 200 m.
hlaupi.
Merkasti viðburðurinn í karla-
keppninni var, að Þjóðverjinn Sepp
Sohwarz jafnaði Evrópumet Rúss-
ans Ter-Ovanesians í langstökki —
stökk 8.35 metra, sem auðvitað er
nýtt þýzkt met. Gamla metið átti
Austur-Þjóðverjinn Klaus Beer 8.19
m sett á Ólympíuleikunum í Mexí
kó 1968. Þetta var eitt af þremur
metum Þjóðverja í keppninni. —
Heinfried Birlenback sigraði í kúlu
varpi með 20.35 m og bætti eldra
met sitt um 17 sentimetra og i
spjótkasti náði Klaus Wolvermann
83.92 m, en það en 30 sm lengra
en eldra mct hans. Ekki nægði það
þó til sigurs I greininni, því Bill
Skinner kastaði 88.94 m.
] Bandaríkjamaðurinn Ben Vaughn
| hljóp 100 m glæsilega á 10.0 sek.
i — og var sekúndubrotj á undan
! bandaríska meistaranum á vega-
i lengdinni. Keppnin hófst á 400 m
j grindahlaupi og heimsmethafinn i
440 jördum Ralph Mann sigrgði á
49,3 sek. en þýzki heimsmethaf-
inn í 1000 m hlaupi Júrgen May
sigraði síðan í 1500 m hlaupi á
3:40,7. Bandaríkjamenn hlutu tvö
faldan sígur í stangarstökkj — en
urðu að láta sér nægja tvö neðstu
sætin í sinn; áður sterkustu grein
— kúluvarpinu. Aðeins 15000 áhorf
endur voru á vellinum, enda var
kalt og hvasst. Helztu úrslit:
Langstökk. Josef Schwarz, VÞ,
8.35 Hermann Latzel VÞ 7.91, Ron
Coleman USA 7,88, James Moore
USA 6.40.
, 4x100 m boðhlaup. USA 39.3,
! Þýzkaland 39,6.
j 400 m grindahlapp. Mann USA
; 49,3 Rainer Schuber VÞ 49,8 Ron
i Whitney USA 50.0, Maníred Klaus
i er VÞ 50.4.
! 1500 m hlaup. May VÞ, 3:40.7,
i Michael Howel), USA 3:43.1, Jerry
van Dyk, USA, 3:43.5.
400 m hlaup. John Smith.. USA,
45,1 Wayne Collett, USA, 45.3,
Thomas Jordan, VÞ 45.4 Horst Rud
efger VÞ 45.9
100 m Vaughan USA, 10.0 Croc-
hett 10,1, Gunther Nickel VÞ 10,4
Klaus Bieler 10,4.
10000 m hlaup. Manfred Letzer-
ich VÞ 28:50,4, Gary Björklund
USA 28:50,4 og var keppni þeirra
gffurleg. Lut/. Phillip VÞ 28:55,8,
Rick Riley, USA, 29:33,8.
M-P- 4. siðu.
ar stóð 2—0, þegar Árni Gunn
arsson, útherji Akureyringa
sendi knöttinn í eigið mark, en
hann var kominn í vömina og
ætlaði að hreinsa frá. Og aftur
liðu örfáar míúntur og enn lá
knötturinn í marki heima-
manna. Eftir aukaspyrnu mynd
aðist mikii þvaga inni í víta-
teig Akureyringa og að lokum
tókst Eyleifi Hafsteinssyni að
pota knettinum í mark, 3—0 og
útlitið var ekki gott fyrir Ak-
ureyringa, en mikil forföll voru
hjá þeim, Magnús Jónatansson
og Skúli Ágústsson meiddir —
og Eyjólfur Ágústsson lék held
ur ekki með.
En ekki fengu þeir þó á sig fleiri
mörk í leiknum. Það var þó ekki
vegna þess, að Skagamenn fengju
ekki tækifærin — þau komu, en
voru misnotuð, en leikur þeirra var
oft ágætur úti á vellinum og vöm
in var mjög sterk.
Þegar 15 mín. voru til leiksloka
lagaðist staöan aðeins fyrir Akur-
eyringa. Knötturinn var á leið í
mark Skagamanna — þegar annar
bakvörður liðsins kom á eftir hon
um með miklum hrhöa, og ætlaði
að bjarga. Hann náði til knattar-
ins, spyrnti og knötturinn fór í
stöngina og í bakvörðinn ög hrökk
í markið. Rétt á eftir átti Hermann
Gunnarsson fast skot, sem hafn
aði í stöng Akraness-marksins, en
yfirleitt komst Hermann lítið áleið
is í leiknum og var vandlega gætt
— venjulega af tveimur Skaga-
mönnum.
Hjá Akurnesingum voru beztir
Þröstur Stefánsson, Eyleifur Haf-
steinsson og Matthjas — en hann
átti við æfingarlausan mótherja að
etja — en hjá heimamönnum stóöu
,sig bezt Pétur Sigurðsson í vöm-
inni og Þormóður Einarsson.
Heppnisigur
KR gegn Val!