Vísir - 03.09.1970, Blaðsíða 3
Kiruntudagur 3. september 1970.
í MORGUN ÚTLÖNDÉ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
3
i
Moshe Dayan setur úrslitakosti
Umsjón: Gunnar Gunnarssos.
— segir af sér, ef Israel heldur friðarviðræðum áfram
$ Moshe Dayan, varna-
málaráðherra ísraels,
cg áhangendur hans, eru
ákveðnir í að fá því með
einhverjum ráðum fram-
gengt, að ísrael hætti frið-
arsamningum við Egypta-
land, og ætlar Dayan að fá
ísraelsku ríkisstjómina til
að taka þessa ákvörðun, er
hún kemur saman í dag tii
að taka endanlega afstöðu
til friðarviðræðanna —
hvort þeim skuli haldið á-
fram eða hætt þegar í stað.
Röksemdir Dayans eru þær
helztar, að Egyptar hafi virt
friðaráætlun Bandaríkjamanna
að vettugi með því að flytja
eldflaugar á skotpalla rétt við
Súezskurðinn og þannig eflt víg
stöðu sína — af þessum ástæð-
um fer Dayan fram á að Golda
Meir forsætisráðherra sendi út
opinbera tilkynningu að afstöðn
um fundinum í dag, hvar í hún
kunngeri að ísrael taki ekki
hinn minnsta þátt í friðarvið-
ræðum fyrr en Egyptar hafi
flutt eldflaugamar aftur frá
skurðinum.
Stjómmálamenn hafa margir
hverjir þá skoðun, að með þessari
ákveðnu afstöðu vilji Dayan sýna
fram á áhrifamátt sinn og ef hans
stefnu verði fylgt, geti það haft
alvarleg vandræði í för með sér
fyrir ísraal — Dayan mun fullviss
um að Gdlda Meir mun; ekki haida
áfram f rfkisstjóm sem hann er
ekki í.
Einstaka kunnugir menn segja þó
að það eigi að vera hægt að kom-
ast að einhvers koear málamiðlun,
Fækkun tunglferðanna
mælist illa fyrir
— geimfarar hóta að segja upp
— visindamenn vonsviknir
• Hinn mikli niðurskurður á geim-
ferðaáætlun Bandaríkjamanna hef-
ur valdið miklum vonbrigðum og
gremju Apollo-geimfara og vísinda
manna og óttazt er að allir þeir
geimfarar, sem ekki hafa fengið
að fara f geimferðir, eða ekki verið
valdir til einhverrar sérstakrar
geimferðar, muni segja upp störf-
um í stórum stfl.
Ákvöröun NASA, geimrannsókn-
arstofnunar Bandaríkjanna, um að
fækka tunglferðum úr sex niður í
fjórar var tekin þvert ofan f á-
ætlanir æðstu manna. Þær tvær
tunglferðir, sem féllu fyrir sparn-
aðaröxinni, voru Apollo 15 og Ap-
ollo 19. NASA heldur að það fé,
sem vinnst viö þessar spamaðar-
ráðstafanir, muni nægja tii að
standa undir stöðugt vaxandi kostn
aði við langtima áætlanir.
Charles Conrad, foringinn í Ap-
ollo 12-ferðinni, segir, að geimfarar
séu famir að komast aö raun um
að möguleikar á að komast f tungl-
ferð eru nú orðnir minni en áður
var. „Við erum mjög vonsviknir,'1
sagði hann, og lét að því liggja.
að hann væri næsta viss um að
margir þjálfaðir geimfarar myndu
segja upp störfum hjá NASA.
Anthony Calio, einn helztu geim-
vísindamanna við geimrannsóknar-
stöðina í Houston, Texas, segir að
það að missa tvær geimferðir merki
25% tap á vísindalegum upplýsing-
um, sem áætlað var að verða sér
úti um með Apollo-áætluninni. —
Hann bjóst samt ekki við að vls-
indamenn myndu hætta hjá NASA
vegna þessa.
Samningaviðræður í Amman
—■ skæruliðar koma til fundar við rikisstjórnina |ar báöir friðaráætlun-
nnn.
Ástandið í Amman er enn mjög
varhugavert eftir tilræðið við
Hussein kóng. Hvenær sem er
getur allt farið þar í bál og
brand, en þó eru menn allt í
einu komnir með aukinn friðar-
vilja, að því er virðist, að
minnsta kosti ætla leiðtogar
skæruliðahreyfinganna að koma
f dag til fundar við ríkisstjóm
landsins, en markmið fundarins
«3 að reyna að stöðva bardag-
ana í höfuðborg Jórdaníu, Amm-
an.
í Amman er sagt að fundurinn
í dag og sú staðreynd, að Egyptar
styðji kröfur Pafestínu-Araba um
funl Arabaleiðtoganna, eigi að
bæt.a nokkuð ástandið í Jórdaníu og
að mkH>.--ía kosti koma í veg fyrir
að nýir bardagar brjótist út.
Þetta segja menn þó vera veika
von, þar sem loftið sé enn eins og
nettað tundri í Amman, eftir morö
árásina á Hussein kóng, var bar-
izt í borginni í fjórar klukkustund-
ir á götunum. Al-Fatah samtökin
halda því fram að í þessum götu-
bardögum í Amman í gær hafi 10
manns verið drepnir og 40 hafi
hlotið einhver meiðslj og hafi það
verið stjómarhermönnum að kenna
en skæruliðar ráða nú fleiri mikil-
vægum stöðum í Amman en stjórn-
arhermenn, og hafa víða reist vígi.
Stjórnmálamenn halda því fram,
að ágreiningur sé orðinn svo mik-
ill í Amman milli skæruliða ann-
ars vegar og stjórnarinnar hins veg
ar, að samkomulag sé óhugsandi á
fundinum í dag.
Leiðtogi A1 Fatah, Yasser Arafat,
sagði í gær i Amman, aö banda-
ríska friðaráætlunin væri dæmd til
að mistakast svo lengi sem fynd-
ust byssur í fórum arabískra skæru
liða.
Hussein og Nasser hafa hins veg-
sem Dayan muni gera sig ánægð-
an með — einkum vegna þess að
Bandaríkin hafa nú greinilega við-
urkennt sannanir Israelsmanna fyr-
ir vopnahlésbroti Egvpta.
um að Golda Meir mun; ekki halda
ríkisstjórn Goldu Meir saman, og
munu þau Golda og Dayan ræðast
einslega við áöur en ríkisstjómar-
fundurinn hefst í dag.
Golda Meir og Nixon. Golda hefur haldið fast við að reyna að ná
friðarsamningum við Araba, en nú eru allar líkur á að stjórn
hennar muni springa á þessu máli. Varnarmálaráðherrann, Dayan,
hótar afsögn ef ekki verði strax hætt við framkvæmd friðaráætl-
unar Bandaríkjamanna. Orsökin er vopnahlésbrot Egypta, sem
ísraelsmenn hafa margsinnis kært þá fyrir, og Bandaríkin hafa
nú loksins viðurkennt sem staðreynd.
Fjölmennar
mótmælaaðgerð-
ir í Phnom Penh
— mannfjöldinn krefst áhrifameiri
hernaðaraðgerða
Margar þúsundir ríkisstarfsmanna
og stúdenta hópuöust út á götur
Phnom Penh, höfuðborgar Kamb-
ódíu í gær og fóru í mótmælagöng-
ur gegn Norður-Víetnömum og Ví-
et Cong. FóDdð gekk um göturn-
ar og hengdi borða og spjöld milli
húsa og á húsveggi. Á þessum borð
um stóðu slagorð, sem fordæmdu
Norður-Vfetnam og Þjóðfrelsis-
hreyfingu Víetnam — kröfur voru
og á lofti um að bandamenn Kamb-
ódíu ættu nú að grfpa inn í stríðs-
ganginn í Kambódíu og Víetnam
og eyða gersamlega herafla norð-
anmanna.
Kambódíanski herinn var mjög
hylltur fyrir sitt tillegg til barátt-
unnar. Sagt er, að skipulagning því
líkra mótmælaaðgerða geri mikiö
gagn til að halda baráttuþreKinu
við í fólkinu, en Phnom Penh hef-
ur verið hætt komin með að falla
í hendur skæruliða þessa síðustu
daga.
Bardagamir halda nú áfnam sjö-
unda daginn 1 röð suövestan við
höfuðborgina, rétt viö borgina Sri-
ang. Stjómarhermenn em sagðir
mæta sterkri andspvmu skæmliða
og Norður-VIetnama, sem munu
hafa komiö sér sérlega vel fyrir,
segir í fréttum frá Phnom Penh,
sem samtímis er lögð áherzla á að
staða Kambódíumanna sé betri.
Hermdarverk mistókst í Aþenu
— meint tilræði við bandariska sendiráðið
Maður frá Kýpiu og ítöisk kona
létust i gær við það er öfl-
ug sprengja sprakk á bifreiðastæði
framan við bandaríska sendiráðiö
í Aþenu.
Sprengingin var svo öflug, að
rúður brotnuðu i sendiráösbygging-
unni og öðrumbyggingum þar í
nágrenninu. Bíllinn, sem sprengj-
unni var komið fyrir undir, þeytt-
ist upp í loftið og leystist upp í
frumeindir sínar.
Lögreglan segir, að burðarmaður
af hóteli hafi strax borið kennsl
á fólkið, sem fyrir sprengingu-n-.i
varð, þótt líkin hafi verið dla fcr-
in. Vom þau 25 ára gamail mað-
ur frá Kýpur og 31 árs ítölsk kona,
en áöur en hótelmaðurinn bar
kennsl á þau, hafði gríska lögregl-
an lýst þvi yfir að fólkið hecöi
verið tveir Svíar. Eldur kom upp
í bílnum og breiddist út í fjóra
næstu bíla.
ömggt er taliö, að þetta hafi
átt aö vera árás á bandaríska sendi
ráðið.
I