Vísir - 03.09.1970, Blaðsíða 7
V í SIR . Fimmtudagur 3. september 1970.
Voru
KINKS
ekki hættir...?“
— spurðu margir i gær, er frétfist af hingaðkomu hljómsveitarinnar
— En Kinks eru hreint ekki dauðir úr ‘óllum æðum enn....
□ Sú fregn kom eins og þruma úr heiðskíru lofti
í gær, að brezku bítilmennin The Kinks muni koma
fram á hljómleikum í Laugardalshöllinni n. k.
mánudagskvöld. „Hva... voru þeir ekki löngu
hættir?“, varð mörgum að orði og ekki að undra, að
svo hafi kunnað að virðast, því ákaflega lítið hefur
heyrzt til þeirra félaganna undanfarin tvö ár eða
síðan lagi þeirra „Days“ tókst að skríða upp á miðj
an vinsældalistann brezka og dóla þar um nokkurt
skeið, en það féll svo loks í gleymsku — ásamt að-
standendum sínum, Kinksurunum.
17« þaö hafur sem sé komið
í ljós núna, að hljómsveitin
er enn við lýði og það sem
meira er, þeir eru skrifaðir fyrir
lagi því, sem nú situr í efsta
sæti brezka vinsældalistans og
allir Bretar blístra nú og raula
fyrir munni sér daginn út og
daginn inn. Heitir lag þetta
„Lola“ og er, eins og raunar
flest lög Kinks, eftir aðaldrif-
fjöður hljómsveitarinnar, bassa-
leikarann Ray Davies. En lagið
var hljóðritað fyrir um það bil
tveim mánuðum og komst i
fyrstu atrennu í 22. sæti vin-
sældalistans og fikraði sig það-
Látlausar hljóðritanir
fyrir ísl. hljómplötur
Meðal annars hefur fyrsta stereó - platan verið hljóðrituð hérlendis
Það er engin hætta á að þeir
sjúklíngar og sjómenn, sem
unna íslenzkum iðnaði eigi þaö
fyrir höndum að verða uppi-
skroppa með ný íslenzk lög í
óskalagaþættina sína, þvf ekk-
ert lát virðist ætla að verða á
útgáfu íslenzkra hljómplatna á
næstunni að minnsta kosti.
Þrjú vinsælustu þjóðlagatríó
landsins eru t. d. öll komin með
hljómplötur á steypirinn, en þar
er um að ræða Ríó tríó, Fiðrildi
og Þrjú á palli.
Svo sem frá hefur verið skýrt
áöur hér í blaðinu er upptaka
fyrirhuguð á næstunni fyrir
fyrstu plötu Ríósins og fer sú
upptaka fram á sérstökum
hljómleikum í Háskólabíói —
líklega í næstu viku. Verða not-
uð til upptökunnar ný stereó-
upptökutæki, sem Pétur Stein-
grímsson hefur komið sér upp,
en tækin notaði hann í fyrsta
sinn í síðustu viku, er hann
hljóðritaði næstu L.P.-plötu trí-
ósins „Þrjú á palli“. Fór sú upp-
taka fram í einni hljómfegurstu
kirkju borgarinnar og voru ýms
ir aukabljóðfæraleikarar tríó-
inu til aðstoðar í sumum laganna
og voru þeir tuttugu þegar bezt
lét.
Þau lög, sem þarna voru
hljóðrituð með „Þrem á palli“
eru satt bezt að segja sömu lög-
in og hljóðrituð voru í London
í fyrra um leið og hin vinsæla
hljómplata með lögunum úr
„Jörundi“, en þar voru þá eng-
in aukahljóðfæri með I spilinu
og ýmis atriði önnur, sem
gerðu það að verkum, að tríóið
vildi láta taka lögin upp aftur,
en þau eru öll með íslenzkum
textum, sem Jónas Árnason
hefur gert við írsk og brezk
þjóðlög.
Platan, sem Fiðrildi sendir
frá sér einhvern næstu daga er
með fjörum barnalögum, banda-
rískum að uppruna, en með ís-
lenzkum textum.
Varð hugmyndin að plötu
þessari til er Fiðrildi kom fram
í einum af barnatímum sjón-
varpsins síðasta vetur og söng
þar nokkur lög með aðstoð
barna úr Mýrarhúsaskólanum.
Það eru þó ekki sömu börn,
sem aðstoða Fiörildið á plöt-
unni, en útkoman er engu að
síður jafnskemmtileg.
Um útgáfu nýrra pop-laga-
platna, íslenzkra verður fjallað
í næstu Pop-punktum.
Dave Davies. „Það voru of margir í Ameríku, sem töldu
KINKS hafa verið löngu hætta, þegar við komiun þangað.“
an örhratt upp í það efsta á
aðeins hálfum mánuði.
Kinks voru á hljómleikaferða
lagi um Bandaríkin og Kanada,
þegar þeim bárust tiðindin um
velgengni „Lolu“ sinnar í Bret-
landinu, og var Dave Davies,
gítarleikari þljómsveitarinnar
þá sendur umsvifalaust heim
rétt sem snöggvast til að fylgja
vinsældum lagsins eftir meö
fagurgala í brezku blööunum.
Tjáði Dave Bretum þá skoðun
sína, að „Lola“ hefði eiginlega
ekkj átt annað skilið en þessar
undirtektir, þvi lagið væri ár-
angur af sex mánaða striti
hljómsveitarinnar við æfingar
og tilraunir til aö skapa eitt-
hvað nýtt og ferskt.
Af hljómleikaför Kinks vestur
um haf, hafði Dave ekki nema
allt gott að segja. Kvað það
hafa verið ákaflega ánægjulegt
að hafa loksins komizt til Kan-
ada, en þangað hefðu þeir í
Kinks aldrei kornið áöur. Einnig
sagöi hann það vera ánægju-
legt, að spila og syngja fyrir
Ameríkanana — það hefði bara
orðið til að skyggja töluvert á
þá ánægju, hve þeir heföu verið
margir þar, sem hefðu álitið að
Kinks hefðu verið hættir fyrir
löngu.
— Við höfum verið hekiur
latir við að koma fram á hljóm-
leikum þar til við fórum vestur
um daginn, og satt að segja
saknaði ég senunnar ekkert
þann tíma. En núna, þegar mað-
ur er aftur farinn að heyra
hljómleikagestina hrópa upp
yfir sig af hrifningu, nýtur maö
ur þess að vera aftur kominn í
sviðsljósið, sagði Dave að lok-
um. Hann fær svo sannarlega að
njóta sviðsljósanna á næstunni,
því síðan „Loia“ komst á vin-
sældalistann, hefur Kinks bor-
izt fjöldinn allur af hljómleika-
tilboðum hvaðanæva að og eru
þeir nú bókaöir á hljómleika
út um allar trissur, næstum
alla þá daga, sem þeir verða
ekki í hljóöupptökum fyrk
næstu L.P.-plötu þeirra, sem
þeir vilja koma sem skjötast á
markaðinn. — ÞJM
Hótel Borgarnes
Oss vantar nú þegar 2 stúlkur til framreiðshrstarfa i sarl. Uppl. hjá hótelstjóranum og í síma 30109 frá
kl. 17—22 í kvöld. Hótel Borgarnes.
HÓP- (
FERÐA-
BÍLAR allar stærðir B.S.Í Umferðarmiðstöðinni
alftaf trl leigu Sími 22300.
Hvar næst ?
Hver næst ?
Vinningar gera hvorki mannamun né staðarmun. Gleymið ekki að
endurnýja. Síðustu forvöð fyrir hádegi dráttardags. Happdrætti SÍBS
Dregið mánudaginn
7. september