Vísir - 09.09.1970, Blaðsíða 5

Vísir - 09.09.1970, Blaðsíða 5
^®SS$R . Miðvrkudagur 9. september 1970. 5 KR hjálpaði Skagamönnum nær settu marki í gær — YfirburÓir KR, er þeir sigruðu Keflvikinga 2:0 % Aður fyrr hefði það þótt saga til næsta bæjar að KR-ingar hjálp- uóu Akurnesingum til að verða íslandsmeistarar. — Þetta gerðist í bálviðrinu vestur á Melavelli í gær- kvöldi. KR hafði yfirburði yfir iið íslandsmeistaranna — 2:0 var sízt of stór sigur. KR-ingar 'léku undan norðangarr anum, sem hindraöi áhorfendur þó eíldq i að sækja völlinn á aiversta tiíma, þ.e. kl. hálf-sjö. Þetta hefur efilaust haft sín áhrif, —• KR-ingar sóttu mun meira og voru líka hætitulegri. Frá upphafi var engu Mkara en að Keflvíkingum væri með öilu fyrir munað að leika knettinum mili; sín Lítið !hef ftg séð til ísienzkra knatt spyrnumanna í sumar, en hafandi séð þrjá leiki hjá Keflavík, þá undr- ast ég það, hvernig stendur á því að þeir eru í baráttunni í æðrj enda deiidarinnar. S'kýringin er þó sú, að vörn þeirra er sterk. og mark vöröurinn, Þorsteinn Ólafsson, er Mklega einhver sá farsælasti, sem þá stöðu leikur í 1. deild. Fyrri hálfleikurinn var heldur ieiðintegri en sá siðar; enda þótt bæði mörk leiksins væru þá skoruð. KR-ingum tókst ekki eins vel upp með samleikinn undan vindinum og KePlvikingar virtust alls ekki gera neinar áberandi tilraunir til samieiks. MÖRKIN: Baldvin Baldvinsson skorar 1:0 á 16. mínútu. Tekin var auka- spyrna um miðjan vallarhelming Keflavíkur alveg úti á vinstra kant inum. Knötturinn lenti hjá Bald- vini, sem sneiddi knöttinn aftur fyr ir sig með skaLla, mjög laglega gert, og lenti hann í horninu hægra megin gjörsamlega óverjandi mark. Hörður Markan fékk óvænt tækifær; á 32. mínútu, fékk knött inn á áikjósanlegum stað innan víta teigs Keflavíkur. Og það furðulega var e.t.v. það að enginn hinna ár- vöku varnarmanna hafði gætur á Herði, sem notfærði sér tækifærið eins og hægt var, skaut með jörðu föstu skoti í hornið vinstra meginn. Keflvíkingar byrjuðu á að skora í seinnj hálfleik, en reyndust rang stæðir. Á 7. mín. lyfti Baldvin Bald vinsson yfdr opið mark Kef'iavíkur. E.t.v. átti rokið einihvern þátf í að eyðideggja þetta skot, virtist 'heldur rffa knöttinn upp með sér. Á 15. mínútu bjargaði Björn Árnason, hægrj bakvörður KR meis.tarate'ga á Mnunni eftir að féiaga hans mis- tókst í vörninni. Segja má að Keflvlkingar hafi sótt meira undan vindinum. Kr- ingar tóku lið sitt aftur og létu sækja á sig, en öðru hvoru geystust þeir fram og stundum virtust Ketf! vfkingar full fáir fyrir til varnar. Baldvin Baldvinsson átti stórkost- lega gott tækifæri undir lok leiks- ins á ný. Hann komst inn fyrir vörnina, stakk hana hireinlega af, en Þorsteini tókst að pota í knött inn og forða frá marki. Þá er að geta þáttar Magtiúsar Guðmundssonar í marki KR. Magn ús er í miikiíl; framför eftir að hafa verið i lægð undanfarin 2—3 sum- ur. Varði hann mjög vel t.d. skot frá Friðriki Ragnarssyni af mark- teig, gott skot, en enn betur varið. Hættulegt sko.t varði Magnús Wka frá Vi'lhjálmi Ketilss. utan af kant- inum, og raunar mörg önnur ágæt skot, fyrir utan hvað hann greip oft fallega inn í. Dómarinn, Einar Hjartarson, geröi sannarlega sín mistök í þess um leik. Ég veiit að hann getur gert betur og vonandi var hér aðeins um einn af hans slæmu dögum að ræða. —jbp— Fjölmenni á fyrsta opna mótinu hjó Leyni Stör hópur golfmanna kom í heiimsóikn til Akraness um helgina og lék f fyrstu opnu golfkeppninni hjá Leyni. Leiknar voru 18 holur með og án forgjafar um farand- gripi, sem Sementsverksmiðja rfk- isins hafði gefið tii eignar. Ails voru keppendur 44 talsins, þar á meöal margir þekktustu kylfingar tendsins. Siguirvegar; í keppni án forgjafa.' var Jóhann Óli Guðmundsson, GR, Iék á 80 'höggum (40 og 40), annar varð félagi hans í GR, Ólafur Skúla son á 84 hög'gum eftir aukafceppni við Jóhann Beneditotsson, Suður- nesjameistarann. sem varð atf keppni meistaranna f GoLfklúbbi Ness sama dag. í keppninni með forgjöf sigraöi Einar Matfhfasson, körfuiknattTeiks maðurinn kunni. Hann lék á 89 höggum, en hafði 21 högg í for- gjöf og hafði því 68 högg nettó. Jöhann Óli hafði sama högga- fjölda nettó, en kastað var hlut- kesti um það tel'dist sigurvegarinn og vann Einar hluitikestið. Ásgeir Pétursson. stjómarformað ur SementS'Verksmdöjunnar afhenti verölaunin að keppni lokinni. VONZKA Á MELAVELLI Það virðist ætla að verða segin saga eftir hvern kappleik á vellinu að allt lendi upp í loft. Ef það er ekki áhorfandi gegn dóniara, bá er það áhorfandi gegn starfsmönnum vallarins. Þetta gerðist í gærkvöidi, þeg ar óveðursský voru á lofti. VaTlarverðir höfðu náð að hand sama einn valiargestanna úr Keflavf'k, ungan pilt, sem hafði framið þá iðju að vera fyrir aft an mark Keflavíkur og reynt að hjálpa liði sínu með því að ná í knöttinn, þegar hann fór aft- ur fyrir markið, en með þessu gat hann gert sitt gagn, Eitthvað kunnu vallarverð- irnir þessu iilla bæði að þessi og aðrir Keflvfkingar skyidu gera þetta. Endaði þetta sem sé með handtöku piiltsins, — sem slapp þó frá þeim, þegar komið var með hann að dyrum vailar- varðar. Þet'ta var ósköp l'ítilmótlegt at vik en minnir á tvennt. Er ekki fulil ástæða til að hafa drengi fyrir aftan mörkin, ekki sízt, þegar mikið rok er eins og i gær? Er ekki líka fuilil ástæða tii að vallarverðir gæti þess eftir megni að dómara sé ekki unnið mein áf áhorfendum, sem flykkj ast inn á völ'linn? Það er áberandi að margir á- horfenda virðast dálitið van- stiiTltir á köf'lum, einkum þeir sem hafa með sér brjóstbirtu á völlinn. Sumir þessara manna eru að því er viröist til aiTs lfk- legir. E.t.v. mundi löggæzla á vellinum koma að ti'lætluðu gagni, menn bera alltaf virðingu fyrir búningnum. —jbp MARKVERÐIR HEILAGIR. — Fyrir nokkrum dögum birtum viö þessa mynd. Hún sýnir atvik, sem gerðist í leik Akraness og KR í Laugardal. Magnús Guðmundsson, hinn ágæti markvörður KR, stökk þama upp á bakiö á Teiti Þórðarsyni, þannig að báðir féllu við. — Margir hafa látið frá sér heyra út af þessari mynd og allir eru sammála um eitt: Markverðirnir eru látnir njóta einhvers konar forréttinda, það virðist alltaf dæmt á sóknarmanninn, aldrei á markvörðinn. — Hvemig væri að blása rykið af reglunum, dómarar góðir? JON LOFTSSON h/f hringbraut i2I,símí 10600 £ Tilboð óskast í olíustöð á Þórshöfn, Langanesi, ásamt til- heyrandi hafnarleiðslum, lælustöðvum og lóðarmannvirkjum og tveimur olíugeymum, að stærð 635 rúmmetra og 94 rúmmetra. Gera má ráð fyrir að leiguióðarréttindi fylgi. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri 24. september kl. 11 f. h. Sölunefnd varnailiðseigna Austurstræti 7.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.