Vísir - 17.09.1970, Side 1
Ekki hægt að komast
hjá landspjöllunr*
en svæð/ð, sem ekið verður um, verður bætt — segir
forsvarsmaður torfæruaksturskeppni
Viða má sjá ógróin sár í landinu I Björgunarsveitin Stakkur hefur
eftir ferðir jeppa um vegleysur. | fullan hug á því að bæta skaðann,
Undu sokkana sína áður en
þeir fóru inn á sviðið
Flóð i búningsklefum i Iðnó
Leikarar Leikfélags nýtt leikhús í nótt eftir
Reykjavíkur hefur að hafa vaðið elginn í
sjálfsagt dreymt um kjallaranum í Iðnó á
□
Margar hendur á lofti við austurinn. Þannig byrjaði æfing i Iðnó
í roorgun. Þarna má sjá Steindór Hjörleifsson, Guðmund Pálsson,
Guðmund Guðmundsson, sýningarstjóra, og Jón Sigurbjömsson
pumpa og handlanga fötur.
/5,5% gesta Slysavarð-
stofu 5 ára og yngri
ÞAÐ er sjparkað í fleira en bolt-
ann á íjíróttavöllum borgarinn-
ar. íþróttir em meðal helztu
siysavalda samkvæmt yfirliti,
sem Slysavarðstofan hefur gert
fyrir árið sem leið.
Á árinu 1969 heimsóttu 18.904
einstaklingar Slysavarðstofuna, en
heimsóknafjöldinn þegar áfram-
haldandi meðferð er tekin með í
reikninginn, var 33.788.
Samkvæmt flokkuninni um slysa
valda kemur það í ljós., að flestir
haifa slasazt eða hlotiðmeiðsili vegna
falls eða byitu eða 30% þeirra, sem
heimsóttu Slysavaröstofuna. I véla-
eða verkfæraslysum slösuðust 7.5%
þeirra, sem komu á Slysavarðstof-
una, í íþróttum 4.8%, í umferðar-
slysum 4.7%, við ölvun 4.6%.
Þetta eru helztu flokkamir yfir
slvsavalda.
Á bls. 13 í blaðinu í dag er nánar
sagt frá slysavöldum og aldri þeirra
sem heimsóttu Slysavarðstofuna.
Þar kemur m. a. í ljós, að helming-
ur þeirra sem leituðu til S'lysa-
varðstofunnar á s,l. ári, var inn-
an við 20 ára aldur. — SB
leíksýningu í gærkvöldi.
Á stórstraumsflóöi í
gær hækkaði vatnsborð
Tjarnarinnar svo að hún
flóði inn á gólf í búnings
klefum leikaranna í
Iðnó.
Stöðugt var verið að ausa
vatni úr kjallaranum al'la leik-
sýninguna og leikaramir urðu
að þurka rækilega af sér áður
en þeir fóm inn á sviðið, þar
sem verið var að leika Kristni-
hald undir Jökli eins og ekkert
hefði í skorizt. — Margir urðu
að vinda sokkana áður en þeir
stigu á svið.
Vatn mun hafa komizt í fleiri
kjallara við Tjörnina í þessu
stórstreymi í gærkvöldi, en
hivergi hefur frétzt af alvarleg-
um skemmdum.
Það má til sanns vegar færa
að leikarar Leikfélagsins flýi
hús í þessum flóðum, því að um
þessar mundir sýna þeir gaman-
leikinn Spanskfluguna á sviðinu
i Austurbæjarbíói — og einmitt
tii ágóða fyrir nýtt leikhús.
1 morgun var enn verið aö
ausa í Iðnó, en þar eru að byrja
æfingar á nýju leikriti, ensku,
og nefmist það Hitabylgja, eftir
Ted Wiltlis. Auk þess er nú verið
að æfa upp Jörund hundadaga-
konung og „Það er kominn
gestur“ hvort tveggja var sýní
í vor.
Þetta er raunar ekfci í fyrsta
skiptd, sem flæðir inn í kjallar-
ann í Iðnó meðan á leiksýningu
stendur. Það kom kannski held-
ur ekkj að sök í þessu leikriti,
vegna þess hve margdr eru á
stfgvélum, svo sem tíðkast und-
ir Jökli. — JH
sem kann að verða eftir torfæru
aksturskeppni, sem björgunarsveit
in gengst fyrir á Suðumesjum á
sunnudaginn kemur.
1 viðtali viö blaðið í morgun
sagöi Garðar Sigurðsson, að björg
unarsveitin hefði tvisvar sinnum
áður efnt til slíkrar keppni og
hefði í bæði skiptin verið samið
um þaö við landeigandann, að
björgunarsveitin lagfærði svæðið
eftir keppnina, sái í það og beri á.
„Yfirleitt höfum viö fengiö mjög
góðar undirtektir og svæðin hafa
reynzt verða betri eftir en áður,
og við höfum aldrei verið í vand
ræðum me ðað fá aftur svæöi und
ir slíka keppni. I sumar fórum
við og athuguöum árangurinn af
starfi okkar 1 vor, þegar lagfært
var eftir síðustu keppni og sáust
engin spor. Það er ekki hægt að
komast hjá því, að það verði ein-
hver landspjöll eða skemmdir, en
það verður lagfært næsta vor.“
Þá sagöi Garöar, að ákveðnar
reglur giltu í þessari keppni, hinar
sömu og hjá Bifreiðaklúbbi Reykja
víkur. Reiknað er með þvi að 7—8
taki þátt í torfæruaksturskeppn-
inni, sem verður á svipuöum slóð
um og keppnir undanfarinna ára.
— SB.
Ástarinnsigli á tíu
þúsund krónur
Þrátt fyrir „breytta tíma“ virð-
ist unga fólkiö enn halda sig á
troðnum sióðum í ýmsum görnl-
um hefðum, t.d. hringtrúlofar
fólk sig engu síður en á tfm-
um ömmu og afa. Salan á hring-
unum eykst stöðugt, segja gull-
smiðimir. Nánar um trúlofanir
á 'ris. 9.
HAFA LENT Á 70 FLUG-
VÖLLUM VÍÐA UM HEIM
— Liklegf að Rolls Royce vél flytji fullfermi
af kjöti utan i septemberlok — Tvær vélar
nú i þjónustu Cargol
Vélárnar eru þegar búnar að
lenda á yfir 70 flugvöllum víða
um heim, sagði Friðrik Theo-
dórsson, sem verið hefur sölu-
stjóri dótturfyrirtækis Loftleiða,
Cargolux, undanfarið ár, en fé-
lag þetta var stofnað í fyrra og
standa að því auk Loftleiða,
Luxair og sænska skipafélagið
Saleinia.
Tvær Rolls Royce-vélar, sem voru
í eigu Lofleiða, hafa nú verið tekn
ar í leiguflug hjá félaginu. Sú fyrri
er eina vél Loftleiða, sem ekki
hafði veriö lengd en síðan var í
ágúst í sumar tekin í notkun önn
ur vél, lengd og er það eina vélin
af Rolls Royce-gerö, sem er 1 vöru
flutningum í heiminum.
Að sögn Friðriks er von á ann
arri vélinni heim til íslands seinna
í mánuðinum, eða jafnvel núna
þann 24. september og kemur vél-
in þá með fullfermi af þvottavélum
fyrir Pfaff. Sagði Friðrik að athug
aðir hefðu verið möguleikar á
farmi til baka og kæmi heizt til
greina að flytja utan kjötfarm. —
Einnig hefði verið kannað, hvort
ekki væri hægt aö flytja fisk ut-
an með vélinni, en hún tekur 28
tonn og erfitt gæti orðiö að fylla
hana af ferskum fiski á skömmum
tíma, auk þess sem erfitt væri að
ná til dreifingaraöila, sem gætu
tekið við svo miklu magni í einu.
Vélarnar hafa farið víða, meðal
annars í leiguflugi fyrir önnur flug
félög. Meðal annars til Pakistan,
til Bombay á Indlandi og Teheran í
íran. í júlí var mikið um flutninga
til Englands vegna verkfallsins. —
Meðal annars fór vélin tíu ferðir
á jafnmörgum dögum með svína-
kjöt frá Danmörku yfir til Eng-
lands.
Að sögn Friðriks er í ráði að
semja um fastar ferðir fyrir aöra
vélina, en hin mun veröa áfram 1
lausaferðum. íslenzkar áhafnir eru
á þessum vélum. Framkvæmda-
stjóri félagsins er Einar Ólafsson,
en danskur maður hefur nú tekið
við starfi Friðriks.
Keöjubréfastöö lokað
— vegna umferðar
Keðjubréfamiðstöðinni að Stekk
við Hafnarfjörö var lokað í
morgun. Lögreglan kvað ekki
annað gerlegt vegna umferðar-
öngþveitis, sem myndað’st við
2 Keflavíkurvegnn — nú verður
• að notast við póstinn eftirleiðis,
• en heimilisfang miðstöðvarinnar
J er hið sama. — Sjá bls. 16.
: Bílar merktir B
2 Bílar merktir B eru taldir frem
J ur viðsjárverðir, þ.e. ekki þeir,
• sem koma úr Barðastrandarsýsl
2 unni, heldur þeir, sem koma frá
• Belgíu. Belgar eru taldir slök-
• ustu ökumenn í hemii. —
2 Sjá bls. 2.
„Hún á eftir að lenda í
snekkju einhvers olíu-
kóngsins"
Þetta var haft eftir de Gaulle
Iöngu áður en Jackie Kennedy,
nú Onassis, giftist skipakóngn-
um sínum. Er frá þessu sagt í
bók eftir einn ritstjóra Le
Monde, þar sem hann segir frá
ýmsum „skemmtilegheitum" á
tímábili de Gaulle í Frakklandi.
Sjá bls. 8.
íþróttir á bls. 4 og 5.
Kvikmyndagagnrýni á bls. 7.