Vísir - 20.10.1970, Qupperneq 5
VfcSIR . Þriðjudagur 20. október 1970.
5
Ensku meistararnir teknir
í kennslustund hjá Arsenal
— Bobby Charlton bætti markametið hjá
Manchester United
0 Það var mik,ill glæsibragur yfir leik Lundúna-
liðanna í 1. deild á laugardag. Þrjú þeirra sigr-
uðu, en hin tvö, West Ham og Tottenham, gerðu
jafntefli innbyrðis á Upton Park 2—2 í frábærum
leik og þar var mesti áhorfendafjöldi, sem verið
hefur á leik hjá West Ham, 42.322. Glæsilegastur
var sigur Arsenal á Highbury og þar voru ensku
meistararnir, Everton, teknir í kennslustund í þess-
um hundraöasta leik félaganna í deildakeppninni.
Fjögur urðu mörkin, sem höfnuðu í markinu hjá
Rankin áður en yfir lauk og það var ekki marki
of mikið. Arsenal hafði yfirburði á öllum sviðum,
en Everton sýndi hins vegar lítið af þeirri getu,
sem gerði liðið að sigurvegara í 1. deild í vor. Það
var hinn sterki leikmaður Raymond Kennedy, sem
vörn Everton réð ekki við og hann skoraði tvö
fyrstu mörk Arsenal með fimm.mínútna millibili
— og hefur þar með skorað 11 mörk í haust, og
er markhæstur í 1. deild. Hin tvö mörk Arsenal
skoruðu Skotinn Eddie Kelly og Peter Storey úr
vítaspyrnu. „The Gunners“ hafa verið á skotskón-
um í haustog skorað flest mörk allra deildarliðanna.
|
f Peter Dobing, fyrirliði Stoke, brotnaði illa á laugardag, og ólík-
| legt talið, að hann leiki knattspyrnu framar.
Everton-liðið er nú aðeins
svipur hjá sjón, og þar breytti
litlu, þótt framkvæmdas tjór-
inn, Harry Catterick keypti fram
vörðinn Henry Newton frá
Nottrn. Forest í örvæntingu í vik
unni fyrir 150 þúsund sterlings
pund — eða rúma 31 milljón
íslenzkra króna. John Hurst
missti stöðu sína í liðinu, ag var
Colin Harway miðvörður ásamt
Roger Kenyon, en Newton fram
vörður með Howard Kendall. Að
öðru leyti voru allir helztu leik-
menn Everton með eins og t.d.
Aian Balil og Tocnmy Wright, en
það hafði ekkert að segja gegn
Arsenal, sem nú hefur náð öðru
sæti í deildinni, tveimur stig-
um á eftir Leeds.
Liðin úr Suöur-Lundúnum-
Cheisea og Crystal Palace, náðu
ágætum árangri. Ohelsea sigraði
í Derby og það þótt heimaliðið
skoraði fyrsta markið, en Keith
Weller, sem Ohelsea keypti
mjög óvænt frá Millvall f vor,
skoraði tvivegis og það nægði
til sigurs. Crystail Palace sigr-
aði WBA með 3—0 og það voru
fyrrum Chelsea-leikmennimir
Alan Birohenall og Bobby Tambl
ing sem skoruðu mörkin, Bobby
tvö. Palace er það liðið, sem
langmest hefur komið á óvart,
og er nú i fimmta sæti meö 17
stig — eða sama stigafjölda og
Manch. City og Tottenham, sem
hafa aðeins betri markatölu.
Leikurinn í Austur-Lundúnum
milli West Ham og Tottenham
var afar skemmtilegur fyrir á-
horfendur. Tottenham náði tvi
vegis forustu, en WH tókst að
jafna. Fyrsta markið í leiknum
skoraði fyrirliði Tóttenham, A1
an Muliery, en Peter Eustace
jafnaði. Þá fór hinn stóri mið-
vörður Tottenham Mike Eng-
land, eitt sinn upp í hornspyrnu
og tókst að skail’la í mark, en
þegar fimm mínútur voru til
leiksloka jafnaði sá frægi kappi
Geoff Hurst fyrir West Ham og
þar við sat. Báðum leikjum lið
anna i haust hefur því lokið með
jafntefli, 2—2.
En við s’kulum nú líta á úrslit-
in í 1. deildinni.
Arsenail—Everton 4—0
Blackpool—Huddersf ield 2—2
Coventry— N. Forest 2—0
C. Palace—WBA 3—0
Derby—Chelsea 1—2
Ipswidh—Stoke City 2—0
Leeds—Manch. Utd. 2—2
Liverpool—Bumiey 2—0
Manch City—Southampton 1—1
West Ham—Tottenham 2—2
Wolves—Newcastle 3—2
og í leiknum í 2. deild á get-
raunaseðlinum milli Cardiff og
Leioester varð jafntefli 2—2.
Þarna kemur langmést á ó-
vart jafnteflið í Leeds, en þó leit
út fyrir góðan sigur heimaliðsins
þegar það náði tveggja marka
forustu. Jackie Charlton skoraði
fyrsta markið í leiknum eftir
hornspymu, og var það mjög
umdeilt mark, eins og svo mörg
af mörkum Jackie við svipaðar
aðstæður. Og þegar 10 mín. voru
af s.h. skoraði Terry Hibbitt ann
að mark Leeds. En þá var eins
og leikmenn United vöknuðu.
Bobby Charlton tók hornspymu
á 65. mín og eftir hana tókst
John Fitzpatrick að skora. Elftir
það var um nær stanzlausa sókn
að ræða á Leeds-markið og
þremur mínútum fyrir leikslok
lék Johnny Aston upp kantinn
og splundraði vöm Leeds með
frábærri sendingu og Bobby
Charlton sendi knöttinn í net-
ið — 199 mark hans fyrir
Manch. Utd. og markmet ein-
staks lei'kmanns hjá félaginu. —
Leikurinn var talsvert harður og
George Best og Jaokie Charlton
voru bó’kaðir af dómara.
Úlfarnir halda strikinu — sigr
uðu 1 sjötta lei’knum í röð — og
eru nú komnir í sjöunda sæti.
Wyn Davies skoraöi fyrsta mark
ið í leiknum fyrir Newcastle, en
þeir Mike Bailey og Bobby
Gould löguðu stöðuna í 2—1 fyr
ir Úlfana. Þá varð John Hols-
grove á að senda knöttinn í
eigið mark og staöan var jöfn
2—2, en David Wagstaffe skor
aði sigurmarkið.
Stoke tapaði i Ipswich og
varð fyrir miklu álfalli, þegar fyr
irliðinn Peter Dobing var borinn
aif velli, illa fótbrotinn, þar sem
Dobing er kominn á fertugsald
urinn, er sennilegt að leikferli
hans sé lokið, en hann hefur
veriö einn litdkasti leikmaður á
Englandi síðasta áratuginn með
Stoke, Manoh. City og Black-
burn. Og þá var „bezti mark-
vörður heims“ Gordon Banks
bókaður af dómara í leiknum,
þegar hann mótmælti fuM ákaf
ur vítaspyrnu. fyrsta bókun, er
þessi frægi markvörður fær á
löngum leikferli.
Ron Yeates, hinn þrekvaxni
og stóri leikmaður Liverpool,
lék nú með eftir langa fjarveru
sem bakvörður og hann skoraði
fyrsta mark Liverpool gegn
Burnley við mikil fagnaöarlæti
Mersey-búa. Síðara markið skor
aði stúdentinn, sem ég sagði
ykkur frá í síðasta þætti, en
nafn hans misritaðist þá á furðu
legan hátt og var reyndar óskilj
anlegt. Þessi 22ja ára írski stúd
ent heitir Stephen Heighway.
Nú, ofar við Mersey-ána átti
Manch. City í miklum erfiðleik
um með Southampton. Ron Dav
ies skoraði fyrir „The Saints"
þegar hálfbími var af leik, og
það var ekki fyrr en rétt fyrir
lokin að Francis Lee tókst að
jafna fyrir City. En jafnteflið
þýddi, aö Manch. City tapaði
öðru sætinu til Arsenal.
Staðan í 1. deild er nú þapnig:
Leeds 13 8 4 1 20:9 20
Arsenal 13 7 4 2 27:13 18
Manch. C. 12 6 5 1 17:8 17
Tottenham 13 6 5 2 19:10 17
C. Palace 13 7 3 3 15:9 17
Ohelsea 13 5 6 2 16:13 16
Wolves 13 7 2 4 26:27 16
Liverpool 12 5 : 5 2 15:6 15
Stoke 13 4 5 4 18:16 13
Coventry 13 5 3 5 12:11 13
Newcastle 13 4 5 4 15:16 13
South’pton 13 4 4 5 15:13 12
Everton 13 4 4 5 18:21 12
Derby 13 4 3 6 18:20 11
W.B.A. 13 3 5 5 22:30 11
Manch. Utd. 13 3 5 5 13:18 11
Nottm. For. 13 3 5 E i 13:8 11
Huddersif. 13 3 5 5 12:17 11
Ipswich 13 3 3 7 14:15 9
West Ham 13 1 7 5 15:21 9
Blackpool 13 2 4 7 10:23 8
Henry Newton, framvörður-
inn, sem Everton greiddi fyr-
ir rúmlega 31 milljón ísi.
króna í síðustu viku.
Burnley 13 0 4 9 6:22 4
I 2. deild er keppnin mjög
skemmtileg og þar er Hull City
— en lið frá þessari 300 þúsund
manna borg í Yorkshire við
Humherána hefur aldrei leikið
í 1. deild. — efst með 18 stig.
Terry Neill, fyrrum fyridiði Ars-
enal, tók við liðinu í sumar. í
öðru sæti eru Luton Town og
Leicester með 17 stig, en síðan
koma Oxford og Sheff. Utd. með
16 stig. Oxford. sem haft hefur
forustu í deildinni, tapaði óvænt
heima á laugardag fyrir Lund-
únaliðinu Mil'lvalil 3—2, og
missti við það forustu. Annað
Lundúnalið QPR vann góðan sig
ur gegn Birmingham 5—2 og
þar skoraði Rodney Marsh þrjú
mörk. Hin þrjú Lundúnaliðin í
2. deild, Charlton, sem á stærst
an völl altra enskra liöa, og Ori
ent er meöal neðstu liða, Oharlt
on í neösta sæti • meö 6 stig og
Orient fimmta að néöan með 10
stig, og Watlford hefur' 11 stig.
Við höfum mi’kið minnzt á Lund
úni í þessari grein og tvö önn
ur lið frá heimsborginni lei'ka í
deildunum, Fulham, sem er í
efsta sæti í 3. deild og Brentford
í 4. deild. Bæði hafa leikið í 1.
deild og Millvall er hið eina af
Lundúnaliðunum, sem aldrei hef
ur leikið í 1. deild. —hsím.
■iWWIIl LfJI JIB——
FELAGSLIF
HAUKAR handknatt'leiksdeild.
Æfingataf'Ia 1970.
Mfl. karla og 2. fl. karla:
Mánud. 21.45—23, Laugardalsh.
Þriðjud. 20.50—22.30, Lækjarsköli
Föstud. 21.15—23, Seltjarnarnes.
3. fl. karla:
Þriðjud. 20.05—20.50, Lækjarsk.
Föstud. 21.20—22.30, Lækjarsk.
4. fi. Karla:
Þriðjud. 19.20—20.05, Lækjarsk.
Föstud. 20.05—21.20, Lækjarsk.
2. fl. kvenna:
Laugard. 20.15—21, Lækjarsk.
3. fl. kvenna.
Laugard. 19.30—20.15, Lækjarsk.
FRAMARAR — knattspyrnud.
Æfingatafla veturinn ’70—71 i
Álftamýrarskóla.
2. fl. miövikud. kl. 18.50—19.40.
3. fl. sunnud. kl- 14.40—15.30.
4. fl laugard. kl. 15.10—16.
5. fl. A og B miðvikud. kl. 18—
18.50.
5. fl. C og D sunnud. kl. 9.30—
10.20.
Old boys á laugard. kl. 4 e.h.
Fjölmennið og mætið stundvís-
lega. — Stjórnin.
VÍKINGAR Knattspyrnudeild.
Innanhúsæfingar..
4. fl. sunnudagur 33.30 — 5.10
1. fl. sunudagur 3.30—5.10
?. fl. fimmtudagur 9.30—11.10
Meistaraflokkur og 1. fl.
þriðjudaga kl. 7.
Þessi tafla gildir til 1. nóvember.
Stjómin.