Vísir - 12.11.1970, Page 3
VlSIR . Fimmtudagur 12. nóvember 1970.
í MORGUN UTI.ÖNDI MORGUN UTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Umsjón: Haukur Helgason.
1 HÖNDUM LÖGREGLUNNAR. —
Bemard Lortie, 19 ára, einn mann-
ræningjanna í Quebec, hefur gefið
lögreglunni miklar upplýsingar.
I
MYND AF GÍSLINUM? — Þessi
mynd hefur borizt yfirvöldum í
Quebec, og mun hún vera af James
Cross, og hafa ræningjar hans tek-
ið hana.
AMALRIK DÆMDUR ÍDA C
Þriggja ára fangelsi vofir yfir einum kunnasta rit-
höfundi og stjórnarandstæðingi Sovétrikjanna
Ein þekktasta persónan í I í Sovétríkjunum, rithöfund
andstöðunni við stjórnvöld urinn Andrej Amalrik,
250 ÞÚSUND
SÁTU FASTIR
Ógnarástand i neðanjarðarbrautum A/ew York
— Eldsvoðar og skemmdarverk tið
Meira en fjórðungur millj.
manna sat í fyrrakvöld
fastur í yfirfylltum vögn-
um neðanjarðarjámbraut-
anna í New York eða
menn biðu klukkustundum
saman eftir fari. Tæknileg-
ir erfiðleikar og skemmd-
arverk hafa undanfarið
valdið miklum töfum á
þessum samgöngum.
Ofsahræðsla brauzt út í sumum
vögnunum, þegar farþegar urðu að
sitja í myrkri I rúma klukkustund,
en þá fóru þeir að brjóta rúður og
hurðir til að komast út og fálma
sig áfram í myrkrinu í átt til næstu
stöðvar. Straumur var rofinn á öllu
kerfinu af ótta við að fólk kynni
að slasast af ragmagni. Hundruð
þúsunda fólks, sem var á heimleið
frá vinnu, tafðist í margar stundir.
Húsleit víða í
Montreal
LÖGREGLAN í Montreal hefur gert
húsleit víða í borgihni seinustu
daga og leitað aö ræningjum ráð-
herrans Laporte. Bernard Lortie,
einn ræningjanna, sem Iögreglan
hefur náð, hefur gefið mikilvægar
upplýsingar um málið.
Lögreglan hefur ekki skýrt frá
því, hvaða árangur þetta hefur bor-
ið. Skýrt hefur verið frá handtöku
þriggja manna seinustu daga, einn
var tekinn i borginni og tveir utan
við hana.
Leitin að Cross beinist einkum
að borginni.
Þýzkar fjölskyldur
í Póllandi fá að
fara vestur
Pólverjar og Vestur-Þjóðverjar
eru nú að gera lista yfir þær
fjölskyldur af þýzkum ættum,
sem búa i Póllandi, en vilja
flytja til Vestur-Þýzkalands.
Þetta er einn þátturinn í samn
ingaviðræðum, sem hafa staðið
um hríð milli rfkisstjórna land-
anna, þar sem reynt hefur verið
að sætta þessa fomu fjendur.
Fjrrir sendinefndunum eru
Walter Soheel utanríkisráðherra
V-Þýzkalands og Stefan Jed-
rychowski utanríkisráðherra
Póllands. Þeir munu hittast að
máli i dag. Samningaviðræöurn-
ar eru sagðar ganga vel. Hafa
ráðherramir sagt, að þeim muni
f-ljótt ljúka. Áður hafði hins veg
ar verið talið, að nokkur bið
yrði á því.
Meira en 30 slösuöust í þrengsl-
um. Margir féMu I yfirlið af loft-
leysi og ótta. Margt gamalt fól’k
var flutt í sjúkrahús með hjarta-
áfall. A'Mt ti'ltækt lögreglulið, bruna
lið og sjúkralið var kvatt á vett-
vang.
Stjóm brautanna gerði sér fyrst
grein fvrir því, hversu alvarlegt
ástandið var, þegar Iögreglan til-
kynnti, að farþegar væru að skríða
út úr neyðarútgöngum á miöjum
götum. Margir voru þá sem óðir
væru eftir þrengingamar.
Þetta byrjaði með því að lest
stöðvaöist við aðvörunarmerki
skammt frá brautarstöð, og önnur
varð að nema staðar vegna þess
að rör hafði verið lagt yfir teinana.
Þrjár eða fjórar aðrar námu staðar
með þvf að nota neyðarhemla.
Undanfarið hefur verið mikiö um
alvarleg slys og vaxandi skemmd-
arverk. Eru þeir borgarbúar, sem
verða að nota neðanjarðarbrautim-
ar, skelfingu lostnir. Kerfið er svo
yfirfyllt og slitið, .að yfirvöld fara
ekki dult með, að þama geti hve-
nær sem er orðið mikið slys.
Eidsvoði hefur orðið í brautunum
margsinnis sfðan í ágúst, oft af
óþekktum orsökum. Einu sinni lok-
uöust mörg hundruð manna inni í
göngum. Kona beið bana, og 53
veiktust af reykeitmn. Vegna snar-
ræðis lestarstjóra og starfsmanna
tókst að koma í veg fvrir meiri
slys. Fjórum dögum síðar slösuðust
4, þegar 600 manns filýðu í æði,
eftir að eldur brauzt út.
„Okkur finnst, að við ferðumst
með lifið í lúkunum", segir kona
ein um neðanjarðarbrautimar í
New York.
verður dæmdur í dag. —
Hann er sagður eiga á
hættu þriggja ára fangelsi.
Amalrik hefur ritað bækur, sem
forystumönnum kommúnistaflokks-
ins eru ekki að skapi. Meðal verka
hans er bókin „Munu Sovétríkin
lifa eftir 1984?“ og „Nauðungar-
ferð til Síberíu". Hann var hand-
tekinn í maí og ákærður fyrir róg
um Sovétríkin. Bækur hans tvær
vom lagðar fram við réttarhöldin
sem sönnunargögn.
Málsókn á hendur Amailrik hófst
í gær, en vitnaleiðslur gengu hratt
og var þeim lokið samdægurs. Þess
vegna er talið, að dórnur í málinu
fa'lli í dag.
Eiginkona Amalriks fékk ekki að
vera viðstödd réttarhöldin. Amalrik
kaMaði þessi réttarhöld ólögleg í
gær. Hann kvaðst vera saklaus af
rógi og níði um Sovétríkin. Með
honum er ákærður stúdentinn Lev
Ubosjko, sem kveðst safclaus af
sömu ákæru.
'■W'' 'W ' \-'S
Við réttarhöldin
Flugvélarræninginn Mincliiello sýnir dómurum hvemig hann hand
lék byssu sfna, er hann rændi flugvélinni í fyrra. Myndin er tekin
fyrir nokkrum dögum.
MINICHIELLO FÉKK 7 -
ÁRS FANGELSI
Dómstóll í Róm dæmdi I
gær hinn alræmda flugvéla
ræningja Raffaele Mini-
chiello í sjö og hálfs árs
fangelsi. Minichiello er 21s
árs bandarískur sjóliði,
sem rændi bandarískri far-
þegaflugvél í fyrra og lét
fljúga til Ítalíu. Minichi-
ello átti á hættu að hljóta
allt að tíu ára fangelsi á
Ítalíu.
Fréttamenn segja, að Minichiello
muni líklega látinn laus eftir fjög-
ur og hálft ár. Hann hefur nú þeg-
ar setið í fangelsi í eitt ár og beðið
þess, að málið kæmi til dóms. Þá
nýtur hann góös af almennri sakar-
uppgjöf, er nýlega var gefin á ít-
alíu, þar sem öll fangelsisrefsing
var stytt um tvö ár.
Þá var ræninginn dæmdur til að
greiða 370 þúsund lírur, eða um
50 þús. íslenzkar krónur, í sektir.
Þessi flugvélarræningi varð þjóö-
sagnapersóna meðal margra ltala
eftir rániö. Bárust honum mörg
hjónabandstilboð frá yngismeyjum,
sem vildu allar með honum ganga.