Vísir - 12.11.1970, Page 10
VI SI R . Fimmtudagur 12. nóvember l»/v.
10
Það væri sannarlega ekki skemmtilegt að koma heim úr
sumarfríinu sínu og hafa misst kannski af þessari mynd af
elskunni sinni. Kodak varar ferðamenn nú við geisluninní.
Ljósmyndir ferða-
manna
'Í9Ípi
í sfórum stíl
— geislabyssum viða beift við tollskoðun
® Þegar þér ferðizt með
flugvélum milli landa,
gætið þess þá vandlega, að
allar myndir yðar eða ljós-
myndafilmur séu í þeim far-
angri yðar, sem þér hafið við
hendina og ekki fer í venju-
lega tollskoðun. Ef þér gætið
þessa ekki, eigið þér á hættu
að allar myndir yðar verði
ónýtar.
Ofanskráö klausa er ráðlegg-
ing, sem Ijósmyndavörufyrirtæk
iö Kodak, gefur nú viöskipta-
mönnum sínum, því aö kvar.t-
anir hafa borizt um aö á mörg
um flugvöllum sé hllur farangur
skoöaður með þvi aö beina að
töskum X-geisIum. Allar filmur
sem veröa fyrir slíkum X-geisl
um eyðileggjast samstundis.
Geislum þessum er nú beitt í
mjög auknum mæli, einkum
vegnb tíðra flugvélarána, en
þó nokkuð tryggt megi telja, áð
menn komi filmum sínum ó-
sködduðum inn í flugvél með
því að hafa þær í handtösku og
bera þær með sér, þá er hugsan
legt, að geislabyssum sé kom
ið fyrir i dyrum sem fóik geng
ur gegnum út á flugvöll eða inn
í flugvél.
Hermir sagan, aö Spánverjar
hte.fi fyrstir tekið ti] bragðs að
beina geisium að farangri. Vís-
indamenn nokkrir sem til Spán
ar fóru voru hissa á því að fá
að taka með sér a’Iar filmur
sem þeir vildu inn i landið. En
FHanco kunni orðið ráð við
þeim. Er þeir komu heim aftur,
voru filmurnar allar ónýtar.
— GG
eyðilagðar
&
%
©
ANDLAT
ÞJÓNUSTA
SMURSTÖÐIN
ER OPIN ALLA
DAGA KL. 8—i8
Laugardaga kl 8—12 f.h.
HEEKIA HF.
Laugavegi 172 • Simi 21240
Sigfús Vigfússon, Hrafnistu and
aðist 4. nóv. 76 ára aö aldri. Hann
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju kl. 1.30 á morgun.
Ólafur Haukur Ólafsson, stór-
kaupmaður, Reynimel 35, andaðist
7. nðv. 70 ára að aldri. Hann verð
ur jarðsunginn frá Dómkirkjunni
kl. 2 á morgun.
Bina Kristjánsson, Víðimel 70,
andaöist 8. nóv. 64 ára bð aldri.
Hún veröur jarðsungin frá Hall-
grímskirkju kl. 3 á morgun.
! KVÖLD 1 I DAG B j KVÖLlTI
BELLA
Ég vil gjarnan fá sæti alveg
út við neyðarútganginn.
GENGIfl •
1 Bandar.doll 87.90 .88.10
1 Sterl.pund 209.65 210.15
1 Kanadadoll 86.35 . 86.55.
100 D. kr 1.171.80 1.174.46
100 N. kr 1.230.60 1.233.40
100 S. kr 1.697.74 1.701.60
100 F. mörk 2.109.42 2.114.20
100 Fr. frank. 1.592.90 1.596.50
100 Belg. frank. 177.10 177.50
100 Sv frank. 2.044.90 2.049.56
100 Gyllini 2.442.10 2.447.60
100 V-þ m. 2.421.10 2.426.50
100 Lírur 1406 14.10
100 Austurr. s. 340.57 341 35
100 Escudos 307.00 307.70
100 Pesetar 126.27 126.55
BANKAR •
Búnaðarbankinr. Austurstræn 6
opið frá kl. 9.30—15.30. Lokað
laugard.
Iðnaðarbankinn Lækjargötu 12
opiö kl. 9.30-12 og 13-16.
Landsbankinn Austurstræti 11
opið kl. 9.30—15.
Samvinnubankinn Bankastræti 7
opið kl. 9.30-12.30 - 13.30—16
og 17.30—19.30 (innlánsdeildir).
Seðlabankinn: Afgreiðsla ‘
Hafnarstræti 10 opin virka daga
kl. 9.30—12 og 13—15.30.
TILKYNNINGAR •
Templarahöllin. Bingó í kvöld.
Húsmæðrafélag Reykjavikur. —
Bas'arinn og kökusalan verður kl.
2 á laugardaginn að Hallveigar-
stöðum. Félagskonur og velunn-
arar félagsins eru vinsamlegast
beðin að kom‘a basarmununum að
Hallveigarstöðum miðvikudag kl.
1 —6 e.h., kökum á sama stað
föstudagskvöld og laugardags-
morgun.
Kvenfélag Neskirkju heldur
spilakvöld fimmtudaginn 12. nóv.
kl. 8.30 í fél'agsheimilinu, spiluð
verður félagsvist, spilaverðlaun,
kaffi. Stjórnin.
Nemendasamband Kvennaskól-
ans heldur aðalfund í Lindarbæ
(uppi) miðvikud'aginn 18. nóvem-
ber kl. 9 síðdegis. Veniuleg aöal-
fundarstörf. Margrét Kristinsdótt
ir húsmæðrakennari talar um jóla
mat og gefur uppskriftir. Fjöl-
mennið. Stjórnin.
Kvenfélag Hallgrímskirkju. —
Fundur í félagsheimilinu mánu-
daginn 16. þ.m. kl. 8.30. Ævar
Kvaran leikari flytur erindi, Krist
inn H'allsson syngur. Kaffi. Nýir
félagar velkomnir. Fjölmennið. —
Stjómin.
K.F.U.M. - 1» F.U.K. Alþjóða
bænhvika félagawna stendur yfir.
Sameiginleg saiwkoma er því í
húsi þeirra við Amtmannsstig í
kvöld kl. 8.30. ’ífni: „Friður og
ég“. — Fyrirbænarefni dagsins:
Þjóðirnar í Mið-austurlöndum
(Austurlöndum nær). Jóhannes
Sigurðsson talar. — Allir vel-
komnir.
SKEMMTISTAfllR ®
Þórscafé. Hljómsveit Ásgeirs
Sverrissonar, söngkona Sigga
Maggý.
Röðull. Hljómsveit Magnúsar
Ingimarssonar, söngvarar Þuríður
Sigurðardóttir, Pálmi Gunnars-
son og Einar Hþlm.
Hótel Loftleiðir. Hljómsveit
Karls Lilliendahl, söngkona Hjör
dís Geirsdóttir.
Lækjarteigur 2. Trúbrot og
hljómsveit Þorsteins Guðmunds-
sonar leika.
BIFREIÐASKOÐUN •
Bifreiðaskoðun: R-23701 til R
23850.
ÚTVARP KL. 16.15:
VEÐRIfl
I DAG
Allhvass norðan.
Úrkomulaust. —
Frost 2—6 stig.
SÝNINGAR ®
Mokka-kaffi, Skólavörðustig 3a.
Sýning á sjávargróðursmyndum
Ingibjargar Jónsdóttur, kaup-
mannsfrúar frá Eyrarbakka.
Bogasalur: Ágúst F. Petersen
lístmálari sýnir 25 málverk og 2
teikningar. Opiö alla daga frá kl.
2—10 e.h.
Galleri SÚM Vatnsstig 3B: Vil-
hjálmur Bergsson sýnir 15 oliu-
málverk og 5 kolteikningar. Opið
alla diaga frá kl. 4—10 e;h.
FUNDIR í KVÖLD •
Bræðraíélag Fríkirkjunnar. —
Skemmtikvöld í kvöld kl. 8.30 í
Tjarnarbúð í tilefni af 20 ára af-
mæli félagsins.
Félag austfirzkra kvenna. —
Fundur hjá Félagi austfirzkra
kvenna í kvöld. Spilað verður
Bingó. Stjórnin.
Kvenfélag Laugarneskirkju. —
Saumbfundur verður í kvöld kl.
8.30 í fundarsal kirkjunnar.
Basamefndin.
Bræðraborgarstígur 34. Kristi-
leg samkoma í kvöld kl. 8.30.
Heimatrúboðið. Almenn sam-
koma í kvöld að Óðinsgötu 6A
kl. 20.30.
Styrktarféiag lamaðra og fatl-
aðra, kvennadeild. Munið fundinn
í kvöld að Há'aleitisbraut 13.
Kvenfélagið Keðjan. Skemmti-
fundur að Bárugötu 11 í kvöld
kl. 8.30 stundvíslega. Spilað verð
ur bingó.
Fíladelfía. Almenn samkoma í
kvöld kl. 8.30. Ræðumenn Daníel
Glád og Willy Hansen.
Hjálpræðisherinn. Almenn sam
koma í kvöld í Kirkjustræti 2.
VISIR
50sEa
fyrir
Tapað — fundið. Tapast hefir
rauður hestur, auðkenndur með
óljósu ,,Þ. X.“ á iendum. Skilist
gegn borgun til Þórarins Kjart-
(anssonar, Grundarstíg 5.
Vísir 12. nóv. 1920.
Brádum koma blessuð jólin
— með allt jólabókaflóðið
Útvegsbankinn Austurstræti 19
opiö kl. 9.30—12.30 og 13—16.
Sparisjóöur Alþýðu Skólavörðu
stíg 16 opið kl. 9—12 og 1—4,
föstudaga kl. 9—12. 1—4 og 5—7
Sparisjóður Reykjavikur og
r.ágr., Skólavörðustíg 11: Opið kl.
9.15-12 og 3.30—6.30. Lokað
laugardaga.
Sparisjóðarinn Pundið, Klappar
stíg 27 opið kl. 10—12 og 1.30—
3.30, laugardaga kl. 10—12.
Sparisjóöur vélstióra Bárugötu
11: Opinn ki. 12.30—18. Lokað á
laúgardögum.
Verzlunarbanki Islands hf. —
Bankastræti 5: Opið kl. 9.30—
12.30 — 13—16 - 18-19. Lok
að laugárdaga.
Senn liður aö jóium og bóka-
forlögin því farin að drífa jóla-
bækurnar á mark'aðinn hverja af
annarri, þó ekki sé beinlínis hægt
að segja, að jólabókaflóðið sé
enn komið í algleyming. Útvarp-
inu þykir þó ekki ráð nema i tíma
sé tekið og hefur þvi tekið til
við lestur nýrHa bóka í hinum
árvissa útvarpsþætti Á bókamark
aðnum. Sá þáttur verður aðeins
i um 45 minútur á fimmtudög-
um og föstudögum fvrst framan
af, en siðar verður honum aukið
rúm í dagskránni eftir þvi sem
bókaskriöan fer að færast í auk
ana.
Lesarar veljast flestir úr föstu
starfsliði útvarpsins, en einnig er
reynt, að fá höfundana sjálfa til
að lesá, sé þess nokkur kostur.
Á þeim 45 mínútum sem bóka-
markaðnum er ætlað i bili, venju-
lega lesið úr þrem til fjórum bók-
um og lesurunum oftast í sjálfs
vald sett, hvaða bókarkafla þeir
velj'a til lestrar.
Getur oflega verið mjög
skemmtilegt að hlýða á lestur
þeirra kafla, því eins og gefur að
skilja eru þeir ekki valdir af lak
ar*a taginu. —ÞJM