Vísir - 08.12.1970, Blaðsíða 9

Vísir - 08.12.1970, Blaðsíða 9
V í SIR . Þriðjudagur 8. desember 1970. Ofnotkun orða hlýtur að hvetja til andófs — segir Einar Bragi Ijóoskáld ÖLDIN er ljóðlistinni í ýmsu tilliti óhagstæð. Þetta er hávaða söm öld. Þessi ofnotkun orða, svo sem í fjölmiðlum: útvarpi, sjónvarpi blöðum, þar sem það er dagleg iðja fjölda fólks að fara með orð með misjöfnum árangri að sjálfsögðu. — Þetta hlýtur að hvetja til andófs. Og þetta er kannski skýr- ingin á því, hve við erum hljóðlát, Ijóðskáldin. Við finnum okkur knúin til þess að fara varlega með orðin. — Þetta er kannski uggvænleg þróun, svo kynni að sýnast að loka- punktur hennar yrði þögnin sjálf. — /4 liltaf silæðast nokkrar ljóða- bækur inn á „jólabókamark aðinn” — þótt sí'fellt sé á því hamrað, hve lítið seljist af þeim og ‘hve íslendingar lesi litið ljóð nú orðið. — Meðal þess sem for vitnilegt kann að þykja í þess ari yfirlætislausu útgáfu, er ný ljóðabók éftir Einar Braga, „1 Ijósmáiinu” — Einar Bragi er einn þeirra manna, sem eitt sinn voru kaillaðir vond skáld, af því þeir byrjuðu að yrkja án ríms og ljóðstafa, formbyltingar menn og atómskálld. Einn þeirra manna, sem ekki gat sjóazt fyrir austan, síðan sendur tíl mennta í Reykjavík, þaðan hef ur hann svo farið víða um lönd til aö nema bókmenntir og list- ir. — En blaðamaður Vísis hitti hann heima í tvflyftu húsi á Bjarnarstíg, einni af þessum þorpsgötum í miöri Reykjavík. — Ég held að ekki sé hægt að segja með réttu aö fólk lesi lítið Ijóð. Ég held að ungt fólk lesi miiklu meira ljóð heldur en var þegar ég var ungur, seg ir Einar Bragi, þegar við höfum tyllt okkur í stofu yfir kaffi- bolla og glasi. — Ungt fólk yrk ir líka mikið. — Það sést bezt á því, hve ótrúlega margar ljóöa bækur koma út á þessu ári — eftir komunga höfunda. Sama er uppi á teningnum, þegar litið er í skólablöð. í skólunum virðist vera fólk, sem heldur uppi bók menntaumræðu, bæði í ræðu og riti. — Ég átti þess kost að kynn ast þessu lftillega fyrir skemmstu, þegar ég var ásamt öðrum beðinn að koma og lesa upp og spjalla um skáldskap hjá menntaskólanemum. Það var skemmtileg reynsla. Þetta unga fólk er svo opið og' einarðlegt. Mér fannst þetta fólk vera miklu bókmenntasinnaöra heldur en minn ágæti árgangur í skóia þar. Þó var ég í fremur bókmennta- sinnuðum árgangi. TVTútímaljóðlist á kannski ekki ^ ’ eins mikinn hljómgrunn meðal eldri kynslóðarinnar. Fólk sem aliö er upp við rímuðu ljóð in er eðlilega fastheldið á þau. — Svo á það misjafnlega erfitt meö að átta sig á nýjungum. — En ég held að komi ekki nokk ur bók út, sem ort er í sama dúr. Það er annað sem veldur að mér finnst bærilegra að vera ljóðskáld: Fölk sættir sig við orðinn hlut. Hér áður óðu menn fram á bægslunum, og þar á meðail ýmsir mætir menn, þeg ar þessi atómskáld voru að gefa út sínar fyrstu bækur. — Nú er talað um ljóðlist af meira jafn aðargeði, rætt um þetta eins og hverja aöra bókmenntafræðilega staðreynd. Það liggur við jafn- að manni finnist stundum að okkur bessum eldri fufltrúum þessarar ljóðagerðar sé sýnd full mikfl respekt. þú varst um skeið formaður rithöfundasamtakanna, Verð ekki slíkt veraldarvafstur ur hvað hefur áunnizt, hlýtur það líka að koma mér til góöa. Ég er hins vegar vonlítilil um að sú hafi orðið raunin, nema þá ef vera skyldi að höfundar fyndu betur þörfina fyrir að þjappa sér saman. Rithöfundar eru ekki komnir lengra í sinni kjarabaráttu, að þeir hafa ekki fengið viöurkenningu fyrir því' aö þeim beri laun fyrir sín störf þótt hins vegar sé það viður- kennt, í orði kveðnu að minnsta kosti, að þeir vinni þjóðfélaginu gagn. Þeir sem vinna algeng störf, svo sem tii dæmis að — Ljóðskáld finnur sig knúiö til þess að fara varlega með orð. — Ungt fólk les miklu meira ljóð en áður var. — Menn eru hættir að ganga fram á bægslunum yfir órímuðum Ijóðum. — Rithöfundur hefur ekki hlotið viðurkenningu á að honum beri laun fyrir sitt starf. — Pop — verkar á mann eins og viðbót við skvaldur aldarinnar. lamandi fyrir skáldskapinn? — Það stóð skamman tima, þar hafa aðrir lengur og betur að unnið. Því er hins vegar ekki að leyna að þetta er mikið starf. Ég hafði nóg að gera ölium stundum, meðan það stóð. — Sannleikurinn er sá að aðstaða rithöfunda hér á landi er fyrir neðan allar hellur. Ég get þó ekki verið að barma mér. Ef eitt hreinja götur fá viðurkenningu vinnuveitandans á að þeim beri laun fyrir sín störf og í krafti samtakamáttarins knýr hann fram mælikvarða á, hvað honum beri fyrir það sem hann er að gera. Við getum tekið dæmi af með al'bók — sem selzt sæmilega, segjum í 1500 eintökum — á 500 krónur eintakið eða afls 750.000 kr. Af því fara minnst 20% eða 150 þúsund til bóksalans. Fram leiðslukostnaðurinn er varla und ir 300 þúsundum. Þá eru eftir 300 þúsund, sem hugsanlega gætu komið til skipta milli út- gefanda og rithöfundar. Gerum ráð fyrir að höfundur hafi kom ið ár sinni vel fyrir borð og fái helming þessarar upphæðar í sinn hlut. Góðum höfundi er ekki hægt að ætla minna en tvö ár til þess að skrifa eina bók. Það heyrir til undantekninga, ef menn sem fást við ritstörf af einhverri al- vöru, koma út bók oftar en ann að hvert ár. — Ef við ætlum rithöfundi sæmileg laun, eða svona á borð við gagnfræða- skólakennara, ætti hann að hafa 600 þúsund fyrir þetta starf sitt. Þama vantar sem sé upp á 450 þúsund, sem alls ekki er innifal ið I bókarverðinu og ekki gert ráð fyrir að hann fái nokkru sinni. Það skal viöurkennt að no'kkuð er gert af hálfu ríkisins til þess að leiörétta kjör lista- manna, meðal annars með lista mannalaunum. Ef við svo gerum ráð fyrir að höfundurinn, er við tökum sér sem dæmi, sé í efra filokki listamannalauna, hefur hann þar 150 þúsund á þessum tveimur árum. Eftir eru samt sem áður 200 krónur af hverju -iweintaki sem,ikaupandinn fær að . gjðf af laununj rithöfundarins. 'Mfloö -áf þfessúm bókum er keypt af opinberum aðilum, eins og tíl dæmis Reykjavíkurborg og bæjarfélögum, sem ekkert hafa gert til þess að endurgreiða höf- undinum það sem honum ber. — Hins vegar er ekki hægt að hækka verð á bókum. Hér yrði þá ólýðræðisiegra lestrarfyrir- komulag. Það sem vangoldiö er, verður að greiðast af opinberu , fé. — Hvað er ekki gert við land búnaðarvörur? U eta íslenzkir rithöfundar keppt við allt það sem þýtt er af bókum, kannski með litlum tilkostnaði? Og ættum við að koma upp gæðamati á íslenzkar bókmenntir? — Sjálfsagt væri hægt að koma upp siíku mati á bók menntir eins og hvað annað. — Það eru algeng rök að það þýði ekkert að bjóða fólki nema það sem lélegt er, hvort heldur eru bækur eða kvikmyndir, annað seljist ekki. Á þessu hafa kvik myndahúsaeigendur klifað í sí- felilu. — En hvaö gerist svo, þeg ar Háskólabíó, þessi menningar stofnun Háskólans fæst loks til íþess að sinna frambærilegri kvikmyndalist? Raunin verður sú að endurtaka verður mynd irnar mánudag eftir mánudag. — Hvernig verkar pop-menn ingin á skáidskapinn? — Hún orkar ekki inspírer andi. Megnið af þessu verkar einungis á mann eins og viðbót á þetta skvaldur aldarinnar. Ef- laust leynast innan um mörg ágæt poplistaverk og það hlýtur að vera, en þeirra gætir lítið í öllu flóðinu. Þetta er svinað og gerist í öðrum listum, svinað og er að gerast í myndlist hér á landi. — Og fjöimiðlunartæki virðast ligvia a'ven marflöt fvrir þessu. Sumir fjölmiðlar virðast engan greinarmun gera á góðri list og gervimennsku. —JH riSIBSIW Finnst þér kaupmáttur launa binna meiri nú en hin síðari árin? Steinn Karlsison, lögregluþj. nr. 126: ,,Nei, eins og stendur finnst mér hann minni en þegar ég byrjaði í lögreglunni fyrir þrem ur árum. — En kannski það lag ist með staif'smatinu.“ Örlygur Eyþórsson, verzlunarm.: „Tja, eftir niðurgreiðslurnar á matvörunni finnst mér þetta hafa lagazt, já.“ Sigurjón Andrésson, vöruaf- greiðslumaður: „Ég held, að hann . hafi aldrei — eða að minnsta kosti ekki lengi — ver ið eins lítill og núna.“ Sveinbjörn Zophoníaisson, inn- heimtumaður: „Mér finnst hann minni núna en í fyrra. — Þó hef ég ekki reiknað til fuillnustu, hvaða áhrif þessar síðustu lækk anir hafa á heimilishaldlð hjá mér. En við erum aðeins tvö, og' þurfum ékki mikið í mjólk eða matvöru tiil heimilisins." Hh Þorsteinn Kjartansson, frá Svelgsá í Helgafeiflssveit: „Einn stýrisarmur í jeppann minn kostar mig núna einn lambs- skrokk og áttatíu krónum betur. Það er aðeins lakari útkoma fyr ir mig — en áöur en vfir höfuð talað finnast mer kjórtn svipuð — nema olíukaupin sem eru mikið óhagstæðari.“ )

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.