Vísir - 11.12.1970, Blaðsíða 16
11 kindur
brunnu inni
í fjárhúsum
á Akureyri
ELLEFU kindur brunnu inni
í fjárhúsi á Akureyri í gær-
kvöldi, þegar fjárhús og
|Kartöflugeymsla eyðilögðust
í eldsvoða. Tókst þó að
bjarga 14 kindum úr brunan-
um og heyStabbi, sem var
last við fjárhúsin, slapp án
skemmda.
Eigandi fjárins, Jónas Jóhann-
esson, Aftalstræti 74 á Akureyri,
var að gefa því í gærkvöldi um
kl. 22, en hafði féð í fjárhúsi
nokkru sunnan við bæinn, rétt
neðan við Naustaveg. Var Jón-
as að leysa hey og flytja inn í
húsið fyrir féð, og hafði hjá sér
olíulukt til lýsingar.
Talið er, að eldurinn hafi brot
izt út við þaö að luktin hafi
dottið um koll, en Jónas vissi
:j varla fyrri til en logarnir voru
orðnir óviðráðanlegir. Slökkvi-
liði var strax gert viðvart, en
. fjárhúsih voru alelda, þegar þaö
kom á vettvang. Tókst aðeins
að bjarga út 14 kindum af 25,
; sem í húsinu voru, en hins veg-
ar varð heystabbanum bjargað.
Við fjárhúsin var einnig
kartöflugeymsla, og eyðilagðist
hún ásamt nokkrum kartöflu-
birgðum, sem ekki er þó vitaö,
hvað voru miklar. — GP
Hiðurröðunin erfið
Við vonum víst allir, að samn-
ingarnir geti orðið tilbúnir um helg-
ina, en þetta reynist alltaf meiri
vinna en búizt hafði verið við,
þannig að ekki er rétt að slá neinu
föstu til að vekja ekki upp vonir
að ástæðulausu, sagði Guðjón Bald-
vinsson, ritari BSRB, í viðtali við
Vfsi í morgun.
Samningamir verða ekki tilbúnir
fyrr en búið er að undirrita þá af
beggja hálfu og þótt aðeins sé eftir
að raða niður hluta af starfsheitum
í launaflokka er aldrei að vita, hvað
getur gerzt. Þessi niðurröðun er
viðkvæmt mál, sagði Guðjón. — VJ
DAGAR TIL JOLA
Hundavinir meb undirskriftir á 5. þúsund manna:
Vilja fá hunda sína hreinsaða
— og frest til oð fjarlægja þá ef svar borgarrábs verbur neikvætt
■ Einn fulltrúi hundavina,
Gunnlaugur Briem mynd-
Iistarnemi, gekk á fund borgar-
stjóra í morgun og afhenti hon-
um undirskriftir á fimmta þús-
und Reykvíkinga, sem fylgjandi
eru hundahaldi. Jafnframt bað
Gunnlaugur borgarstjóra um
frest á útrýmingu hunda — þ. e.
ef úrskurður borgarráðs verður
neikvæður í garð hunda og
hundavina þann 17. n.k., er mál-
ið verður tekið fyrir.
f
Vill Gunnlaugur biðja um frest-
inn til handa eigendum hunda, svo
þeir geti komið þeim fyrir í sveit,
eða annars staðar. Einnig fara
hundavinir fram á, að yfirvöld
verði hundaeigendum innan hand-
ar með að hreinsa hundana nú um
áramótin, „hvort sem úrskurður
borgarráðs verður neikvæður eöa
ekki“, segir Gunmlaugur Briem, og
í öðru lagi vilja hundavinir fá yf-
irvöld til að vera sér innan handar
ef hundur týnist, þannig að fólk
þori að snúa sér til lögreglunnar
og biðja um aðstoð við leit. f þriðja
lagi fara hundavinir fram á dýra-
vemd — þannig að hægt verði að
kæra hundaeiganda fyrir illa með-
ferð á hundi hans, ef ástæða þyk-
ir til. ' — GG
Viðamestca verk-
efns sjónvarpsins
Galdra-Loftur sýndur
annan dag jóla
Viðamesta verkefni, sem sjónvarp
ið hefur ráðizt í til þessa er Galdra
Loftur eftir Jóhann Sigurjónsson,
sem sýndur verður annan dag jóla.
Undirbúnmgur þessarar upptöku
hefur staðið undangengna tvo ntán-
uði, en hennj er nýlokið. Hörður
Ágústsson skólastjóri og starfsfólk
Þjóðminjasafns var haft tíl ráðu-
neytis um gerð leikmyndar og hún
inga ,en hvort tveggja er verk
Bjöms Bjömissonar. Leikstjóri er
Sveinn Einarsson.
Galdra-Loftur hefur verið sýnt
flestum íslenzkum Ieikritum oftar
á leiksviði sem kunnugt er. Aðal-
hlutverkin í þessari sjónvarpsgerð
leiksins, Ieika Pétur Einarsson
(Galdra-Loft), Kristbjörg Kjeld
(Steinunni), Valgerður Dan (Disu),
Þorsteinn Gunnarsson leikur Ólaf.
Biskupinn leikur Baldvin Halldórs-
son, ráðsmanninn, Jón Sigurbjöms-
son, blinda ölmusumanninn Brynj-
ólfur Jóhannesson. — JII
Fjárlög hækka og hækka enn
Fjárlagafrumvarpið var í gær
samþykkt við 2. umræðu í Samein-
uðu þingi, og er nú eftir ein um-
ræða, áður en það veröur endan-
lega samþykkt. Otgjöld frumvarps-
ins hafa vaxið frá degi til dags í
meðferð þingsins. Fjárveitingar til
bygginga barna- og gagnrræðaskólá
hafa verið hækkaðar um 151
milljón, og framlög til annarra
skólabygginga hafa hækkað tals-
vert. Hækkuð hafa verið framlög
til sjúkrahúsbygginga og hafnar-
gerða, til íþrótta og menningar-
mála.
Enn hefur ekki verið unnt að
taka tillit til þeirra miklu hækk-
unar, sem verða mun á tölum
frumvarpsins vegna kauphækkunar
opinberra starfsmanna, þar sem
ekki hafði veriö gengið frá sarnn-
ingum. Er þess að vænta, að niður-
staða liggi fyrir áður en frumvarp-
iö kemur til 3. pmræðu, og verði
unnt aö samþykkja fjárlög fyrir jól.
Fjölmargar tillögur til hækkunar
bíða 3. umræðu. — HH
Daglegir
samningafundir
í Straumsvík
m Daglegir samningafundir hafá
verið haldnir undanfarið með
fulltrúum launþegafélaganna, sem
eiga félaga í vinnu við álbræðsluna
í Straumsyík og fulltrúum íslenzka
álfélagsins. Eins og Vísir hefur áð-
ur skýrt frá voru samningar lausir
hjá verksmiðjunni 1. desember.
Launþegafélögin sendu ISAL
kröfur sínar sameiginlega í byrjun
i nóvember, en auk þess mun eitt-
hvað hafa verið um sérkröfur af
hálfu félaganna. í sameigintegu
kröfunum er aöeins gert ráö fyrir
10% grunnkaupshækkun, en þess
má geta, aö ISAL hækkaði laun
starfsmanna sinna af sjálfsdáðun
um 17% þegar almennu kjara-
samningamir voru gerðir í júní.
Auk grunnkaupshækkunar fara fé-
lögin fram á vinnutímastyttingu,
aulmingu orlofs og orlofsfjár,
starfsaldurshækkanir, aukin veik-
indafri, hærri tryggingabætur, auk-
ið atvinnuöryggi eftir slys eða veik-
indi með hugsantegri endurmennt-
un og útvegun vinnufatnaóar. Ýms
ar aðrar kröfur eru gerðar, sem eru
fyrst og fremst orðalagsbreytingar
á ákva.'ðum fyrri samninga. —VJ
Drengir stabn-
ir ab innbroti
Tveir unglingspiltar, 12 og 14 P
ára að aldri, voru staðnir að verki |
við innbrot í vinnuskúr í Vatna- |
görðum í gærkvöldi, en komið var |
að þeim, þar sem þeir höfðu brot- I
izt inn í skúrinn. — Höfðu þeir |
tekið til dót, sem þá munaði i, r?
og sett það i noka til þess að hafa ff
á brott með sér.
Vaktmaður er hafður í Vatna-
görðum, og varð hann mannaferða
var í gærkvöldi og gerði lögregl- |
unni viðvart en hún kom á stað- j
inn í tæka tíð, til þess að grípa '
drengina í miðju kafi.
í fyrrinótt var einnig brotizt \
inn á þessum slóðum, og var þá j
farið inn i tvo vinnuskúra. — GP
6ANIRSÝNA
" / SMJÖRI
Við nýlegar rannsóknir á
mjólkurfitu smjörs hefur ekki
fundizt efnið Hexacid (Lindan),
sem notað er til sauðfjárbað-
ana. Þetta segir í fréttatilkynn-
ingu frá Rannsóknarráði ríkis-
ins.
í skýrslu, sem ráðið lét gera
fyrir nokkru segir að í nokkr-
um sýnum mjólkurfitu smjörs
Wafi verið það mikið af efninu
Hexacíd, að það nálgaðist það,
sem varhugavert er talið til
manneldis. Rannsóknum á
þessu atriði sé hvergi nærri
lokið. Efnið hafi fundizt í örfá-
um og ein'angruöum sýnishom-
um, sem tekin voru fyrir all-
löngu, en seinni athuganir hafi
ekki gefið slíkar niðurstööur.
í skýrslunni segir: „Annað
hvert ár eru flutt inn úm 12
tonn af efni, Lindan (Hexacfd),
sem notað er til böðunar sauð-
fjár og er allsterkt eyðingbr-
efni. Fyllsta ástæða er til að
rannsaka, hvað um þetta efni
verður, þegar það hefur verið
notað, hvort því er til
dæmis einf'aldlega veitt beint út
í næsta læk eða á, þar sem það
gæti gert skaða.“ —HH