Vísir - 04.01.1971, Blaðsíða 1
Á GRÍMSSTÖÐUM
SEGJA MÁ, að fimbulvetur sé á
landinu sem stendur, en frostiö
mældist 26 stig á Grímsstöðum á
Fjöllum í morgun. Þá var 22 stiga
frost á Staðarhóli i Aðaldal og á
Hveravöllum, en 17 stiga frost á
Akureyri og nokkrum öðrum stöð-
um á vestanverðu Norðuriandi. í
Reykjavík var 8 stiga frost klukk-
an níu í morgun en mesta nætur-
frostið mældist 9 stig.
Páll Bergþórsson veðurfræðingur
skýrði blaðinu frá þvi í morgun, að
Vestan til á Norðurlandi og inn til
landsins væri logn og heiðskírt og
hörkufrost. Bjóst hann við áfram-
haldandi frosti um landiö næsta
sólarhring, en að drægi heldur úr
vindi. Ekki vildi Páll spá lengra
fram í tímann, en í morgun var
veðurskipið India statt 500 kíló-
metra suður af landinu í sunnan
átt og 8 stiga hita. „Þama eru hita-
skil, en þessi skil berast mjög hægt
að Iandinu,“ sagði Páll.
Þá taldi Páll, að íshraflið, sem
barst meö vestanátt upp að Vest-
fjörðum hlyti að vera mjög lítið.
Hefði það horfið frá Hörnströndum
í gær og einstaka jakar, sem voru
í gær úti af mynni ísafjarðardjúps,
hefðu eflaust verið á leið frá landi.
Hins vegar sagði Páll að ís heföi
aukizt töluvert við Jan Mayen að
undanförnu og ta'di hann aö sú
aukning stafaði liklega mest af ný-
mynduðum ís i vetur. —SB
Og svo sló klukkan 12 slög. 1970 var liðið og síðan skrifa menn 1971 — „Og nú fær tappinn að
fjúka úr kampavínsflöskunni!“ sögðu þau þessi, sem ljósmyndari Vísis hitti á áramótadansleik
í Glaumbæ.
66 fórust á
knottspyrnu-
leikvungi
- sjá bls 3 og 5
Saksóknarí höfðar mál gegn
stýrímanni Steinunnar gömlu
er ákærður fyrir að hafa sigli niður bát með 3 m'ónnum
ÞINGFEST var nýlega í siglinga-
dómi mál, sem ákæruvaldið hef-
ur höfðað á hendur stýrimanni
vélbátsins Steinunnar gömlu. En
eins og menn muna vöknuðu
um það grunsemdir í sumar, að
.Steinunn gamla hefði siglt tk
trillubátinn Ver um 2 mílur suð-
ur af innsiglingunni í Sand-
gerði 16. maí, en af trillubátn-
um fórust tveir menn, hinn
þr.'ji komst af.
Ýtarleg rannsókn fór fram fyrir
sjódómi Gullbringu- og Kjósar-
sýslu og á grundvelli hennar hefur
saksóknari ríkisins höfðað mál á
hendur stýrimanni Steinunnar, —
sem fór meö stjórn hennar á þeim
tíma, sem slysið er talið hafa gerzt.
Krefst ákæruvaldið þess, að stýri-
maður verði dæmdur fyrir brot á
215. gr. hegningarlaganna, sem
tekur til manndráps i gáleysi fram
ið, og fyrir brot á 85. gr. sjðmanna
ganna, sem fjallar um brot í
starfi. Viðurlög við broti á 215. gr.
hegningarlaganna geta varðað allt
frá fjársektum upp í 6 ára fangels
isvist.
Eins og menn muna báru skip-
verjar Steinunnar gömlu það, að
þeir hefðu aldrei orðið neins þess
varir, sem benti til þess að bátur-
inn hefði lent í árekstri. Pilturinn,
komst lífs af trillunni, bar
það hins vegar, að trillan hefði ver
ið sigld niður af Steinunni gömlu.
Við rannsókn á vélbátnum fund-
ust á bógi hans ákomur, sem gátu
hafa stafað fi*á árekstri.
Imönnum, fjórum mönnum sérfróö-
um um siglingamál og fonmanni
sem er HCákon Guðmundsson, yifir-
borgardómari. — GP
Síðustu farþegarnir
komu kl. 3 í nótt
Miklir flutningar stóðu yfir milli
Akureyrar og Reykjavíkur f gær-
kvöldi og fram á nótt. Flutti Flug-
félagið farþega frá Akureyri til
Reykjavíkur og öfugt, en í gær
biðu á fimmta hundrað manns á
Akureyri eftir flugfari til Reykja-
víkur. Hefur mörgum orðið tafsamt
að komast heinian frá sér í skóla
eða á vinnustaö f öörum landshlut-
um eftir nýárið, en misviðrasamt í
hefur verið og flug tafizt.
Hliðarvindur varð til þess í gær
að ekki var hægt að fljúga til Akur-
eyrar fyrr en klukkan að ganga
níu um kvöldið, þá voru famar
fjórar ferðir tii Akureyrar og komu
siöustu farþegamir frá Akureyri
hingað klukkan rúmlega 3 i nótt.
Voru fluttir 270 manns frá Akur-
eyri f gær með þessum ferðum, en
160 manns norður. 1 dag eru áætl-
aðar þrjár ferðir og að hægt verði
þá að flvtja bá sem eftir urðu og
bíða eftir fari. í gær var hægt að
fljúga til Isafjarðar en þangað voru
fiognar fjórar ferðir.
Aðrir farþegar á Akureyri tóku
sér far með Tyggva Helgasyni f
gærdag en hann flaug tvær ferðir
frá Akureyri. —SB
Brssuzt inn og
stul snumnvél
Brotizt var inn í ibúð á Grens-
ásvegi á nýársnótt og háfði þjófur-
inn þaðan á brott með sér fatnað,
skó o. fl:, og meðal annars Pfaff-
saumavél i grárri tösku. Lögregi-
an hafði Uppi á þjófnum, sem gat
skilað mestöllu þýfinu, en ekki
saumavélinni, því að hama bafði
hann látið leigubílstjóra hafif í
pant fyrir greiðslu vegna ökuferð
ar. Lögregian biður nú leigubíl-
stjórann að gefa sig fram með
saumavélina. — GP
FYRSTA BARN ÁRSINSI
Fyrsta barn ársins var stúlka, sem fæddist 70 mínútum eftir a5
nýja árið var gengið í garð. Hérna sjást móðirin Bergrós Hilmars-
dóttir og dóttirin, báðar ákaflega ánægðai með sig.
Hvorki meira né minna en
sex börn fæddust á Fæðingar
heimili Reykjavíkur fyrsta dag
ársins og einnig fyrsta barn
ársins, en á gamlársdag var þar
tíðindalítið og engin fæðing
skráö. Fyrsta bamið fæddist
kl. 01.10 á nýársnótt og var
bað lítil stúika. Hún er dóttir
16 ára móður, Bergrósar Hilmars
dóttur og unnusta hennar Þor-
steins Svavarssonar.
Vísir hafði tal af þeim mæðg
unum á Fæðingarheimilinu og
voru Bergrós og hjúkrunarkon-
an sammála um, aö fæðingin
hefði gengið liómandi vel.
Bergrós var ljómandi af á-
nægju með litiu dótturina og
hin ánægðasta yfir að það
skvldi verð? stúika. ,.r>að sögðu
mér margir að þetta yrði
stelpa það var svona ágizkún“
Svo kvöddu blaðamaður og
Hósmyndari þær mæðgur, en
mamman hefur i huga að klára
fjórða bekk í gagnfræðaskóla í
vor, og ekki verður þess Iangt
að bíða að sú litla hefji sína
skólagöngu.
Á Fæðingarheimilinu voru
skráðar 975 fæðingar á árinu,
sem em færri en í fyrra en á
Fæðingardeildinni var skráð
1191 fæðing, en bamafjöldann
er eftir að telja á báðum stöð-
um. — SB
c