Vísir - 04.01.1971, Qupperneq 8
8
VÍSIR . Mánudagur 4. janúar 1971.
Otgefandi: Reykjaprent bl.
Framkvæmdastióri • Sveinn R. Eyjólfsson
Ritst|6ri Jónas Kristjánsson
Fréttastióri; Jón Birgir Pétursson
Ritstiómarfuiltrúi ■ Valdimar H. Jóhannesson
Augiysingar Bröttugötu 3b Sfmar 15610 11660
Afgreíösla Bröttugötu 3b Simi 11660
Ritstiórn ■ Laugavegl 178 Simi 11660 f5 linur)
Askriftargjald kr. 195.00 á mánuði innanlands
I lausasölu kr. 12.00 eintakiö
Prentsmióia Visis — Edds hí.
Ár góðra vona
Ársins 1970 verður á alþjóðavettvangi fyrst og fremst
minnzt sem þess árs, sem vakti góðar vonir um frið-
samlegri sambúð þjóða, þó án þess að þær vonir rætt-
ust nema að litlu leyti. Árið bar vissulega merki átaka,
styrjalda og stríðsótta, og fólk lifði áfram „í skugga
sprengjunnar'" og óttanum um tortímingu heims-
byggðarinnar. Engu síður kann árið að hafa markað
nokkur þáttaskil í sögu kalda stríðsins, ef áfram verð-
ur stefnt í sömu átt.
Merkustu heimsviðburðir ársins 1970 eru samn-
ingar sem loks tókust milli Vestur-Þjóðverja og
tveggja fornra andstæðinga þeirra í Austur-Evrópu,
Rússa og Pólverja. Við það hafa glæðzt vonir um
að semja megi um lausn annarra viðkvæmra deilu-
mála ríkja.
Harmleiknum í Víetnam lauk ekki á árinu, en
manntjón mun hafa verið hið minnsta um nokkurt
skeið. Átökin breiddust til Kambódíu, svo að vett-
vangur stríðsins stækkaði. Þó binda margir vonir við
þá stefnu bandarísku stjórnarinnar, að unnt verði að
kalla herinn heim frá Víetnam, án þess að Suður-Víet-
nam verði ofurselt kommúnistum. - r 1
•Pl .....■, w-Mt'fejali^ífUiOa Wr-’S ■ " ■ •
Samið var um tímabundið vopnahlé. í Mið-Austur-
löndum og viðræður hafnar um frið. Þó eygja jafnvel
hinir bjartsýnustu menn enga varanlega lausn á deil-
um Araba og ísraelsmanna. Bíafrastríðinu lauk með
ósigri Bíaframanna eftir ólýsanlegar þjáningar og
hungur.
Tveir af fremstu leiðtogum þjóða féllu frá á árinu,
de Gaulle, forseti Frakklands, og Nasser, forseti
Egyptalands. Eftirmenn þeirra hafa til þessa haldið
áfram stefnu fyrirrennara sinna í aðalatriðum. íhalds-
flokkurinn sigraði í kosningunum á Bretlandi.
Ársins 1970 mun einnig verða minnzt sem árs flug-
/élarána og mannrána. Af hinum fjölmörgu flugvéla-
ánum er cfci. ninnilegast. 'þegar arabískir skæruliðar
rændu þremur f-"' "•:;ff pg héldu rúmlega
fjögur hundruð farþegum í gíslingu. í það sinn tókst
íð komast hjá fjöldamorðum, þótt mjóu munaði.
lannrán urðu æ tíðari þáttur í starfsemi pólitískra
Tgamanna. Þau byrjuðu í rómönsku Ameríku en
iáðu til Kanada og Spánar.
Ólga meðal æskufólks setti svip sinn á árið eins
g næstu ár á undan. Eiturlyf breiddust út um heim-
inn. Magnaðar erjur urðu milli kynþátta og milli trú-
flokka víða um lönd.
Enn ein þjóðin bærði á sér undir oki kommúnism-
ons. Almennixigur í Póllandi reis upp og stjórnarskipti
urðu. Sovétríkin halda þó sem fyrr tryggilega um
stýrið.
Hundruð þúsunda biðu bana í einhverjum mestu
náttúruhamförum sögunnar í Austur-Pakistan.
Árið var eins og önnur ár sneisafullt af góðum tíð-
indum og illum, en heildarsvipur þess er, að það var
fyrst os fremst ár góðra vona, en heldur ekki meira.
(
Hvað
er
□ Um áramót skyggnast menn um öxl, líta
yfir farið ár og reyna að meta það. Eins
og undanfarin ár leitar Vísir nú til nokkurra
manna, sem hafa verið í fréttunum á nýliðnu
ári, til að forvitnast um, hvað þeim er minn-
isstæðast frá árinu, sem nú er horfið í aldanna
skaut. Svörin fara hér á eftir.
Frú Auður Auðuns,
dómsmálaráðherra:
Þvi er fljótsvarað, hvaða at-
burður er mér minnisstæðastur,
en það er hið hörmulega frá-
fall dr. Bjarna Benediktssonar,
forsætisráðherra, frú Sigríöar,
konu hans og dóttursonar
þeirra.
Af ánægjulegum stjómmála-
viðburðum kemur mér sú stund
í hug, þegar Ijóst varð um úr-
:Jit borgarstjórnarkosninganna i
ykjavík sí'ðastliöið vor.
M 'íi
£ . i
Eggert G. Þorsteinsson,
sjávarútvegsráðherra:
Mér er að sjálfsögðu minnis-
stæðastur sá sorglegi atburöur,
þegar dr. Bjarni Benediktsson,
kona hans og dóttursonur fór-
ust á Þingvöillum, Slfkir sorgar-
atburðir líða eicki úr hugum
manna fljótt.
Af ánægjulegum tíðindum ný-
liðins árs vil ég fyrst nefna, að
unnt hefur reynzt að fækka at-
vinnuleysingjum • með þvi aö
auka og tryggja atvinnuna í
landinu. Þá var koma hafrann-
sóknarskipsins Bjarna Sæmunds
sonar sérstaklega ánægjulegur
atburður, sem ég vona að verði
bjóðinni til mikillar gæfu og
blessunar. Persónulega hlýt ég
þó að minnast þess með einna
mestri gleði að geta orðið að
liði við björgun ungs pilts og
aldraðs manns frá drukknun í
Visby á Gotlandi í Svíþjóð á sl
sumri.
Gunnlaugur Þórðarson
dr. juris, hæstaréttarlögm.:
Áriö veröur manni minnis-
stæðast vegna hinna mörgu
slysfara og þá ekki sizt þéss
hörmulegasta, sem varð er for-
sætisráðherrahjónin brunnu inni
í Konungshúsinu á Þingvöllum.
Heklu-gosiö var óvæntur atburð
ur, er setti töluverðan svip á
árið en af erlendum vettvangi
mundi ég helzt taka til björgun
bandarisku tunglfaranna, sem
öil heimsbyggðin fylgdist meö.
Ég man ég geröi mér það til
gamans að lita i erlend blöð,
sem um þennan atburð fjölluðu
og hafði mikið gaman af því,
að sjá hvaða atriði hvert þeirra
lagði mest upp úr. Það þýzka
sagði: „dimmt og kalt f himin-
geimnum", það brezka: „nægi-
legt súrefni bráð nauðsyn"
franska blaðið lagði mikla á-
herzlu á það, hve þarna reyndi
mikið á getu einstaklingsins, en
það danska að geimfararnir
hefðu nógan mat meðferðis.
Einn' eftirminnilegan atburv'
frá árinu á ég ótalinn. en það
er akstur rússneska bílsins á
tunalinu Tilkoma hans sannar
má'taekið sem segir að ekkert
sé nýtt undir sólinni.
Henný Hermannsdóttir
„Persónulega veröur mér
þetta ár sennilega þaö eftir-
minnilegasta, sem ég hef upp-
lifað og á nokkum tíma eftir
að upplifa. Allt hófst það með
því. að mér var boðin þátttaka
i keppntnni um titilinn „Miss
Teenager International". Síðan
tiefur hver atburðurinn rekið
annan hver öðrum eftirminni-
legri. Mér verður þó áreiðan-
lega eftirminnilegast þaö augna-
blik, er þaö var hrópaö upp
að ísland hefði sigrað, í fyrr-
nefndri keppni.
Af innlendum viöburðum á
árinu kemur manni vitanlega
fyrst og síðast í hug hið vo-
veiflega lát Bjarna Benediktsson
ar, konu hans og dóttursonar."
Hjörtur Jónsson,
formaður Kaupmannasam-
takanna:
Slysið á Þingvöllum, þar sem
forsætisráðherra Islands dr.
Bjami Benediktsson, kona hans
og dóttursonur fórust, er mér
minnisstæðast svo ekkert kemst
þar nærri.
Nefni ég fleira, þá em próf-
kjör sjálfstæöismanna mér minn
isstæð, og hver getur litið yfir
hið liðna ár, án þess að stöðvast
i huganum við þá velmegun,
sem hér hefur rfkt og rfkir
á öllum sviðum?“
Atburöir i heiminum stóra,
náttúruhamfarir, tækni og tjón,
breyta ekki þessu svari mínu.
Albert Guðmundsson,
stórkaupmaöur:
Mér er minnisstæöastur sá at-
burður er kom fyrir íslenzka
knattspyrnulandsliðið f London
f byrjun febrúar er það var þar
á ferö. Sá hörmulegi atburður
skvggir á allt annað. — Af öðr-
um viöburöum minnist ég kosn
ingabaráttunnar einna helzt.
Sverrir Runólfsson,
vegagerðarmaður frá Kali-
fomíu:
Hörmungarnar I Pakistan em