Vísir


Vísir - 04.01.1971, Qupperneq 9

Vísir - 04.01.1971, Qupperneq 9
VlSIR . Mánudagur 4. janúar 1971 9 mér efst í huga, er ég hugsa til nýliðins árs Sá innlendur at- burður er ég minnist fyrst og fremst, er hið hörmulega flug- Mys er varö í Færeyjum. Kristján Davíðsson, listmálari: Listahátíöin í vor blýtur að vera öllum, sem við list fást, einhver eftirminnilegasti at- burður ársins. Og sem mynd- listarmaður minnist ég þess auðvitað sérstaklega, aö við héld um stærri sýningar en haldnai hafa verið áöur hér á landi — i nýja húsinu á Miklatúni. Þær gefa manni hugmynd um, hvaöa möguieikar hafa skapazt hér með tilkomu þessa húss. Þaö gefur okkur glæstar vonir og má raunar segja að þessi að- staða sé meö þeim betri, sem um er að ræöa á Noröurlöndum. Bftirminnilegasti atburöurinn í mínu einkalífi frá þessu ári, er sá að ég flutti í nýtt hús og það hlýtur að teljast miki'll áfangi fyrir mann á sextugsaldri að komast undir eigið þak. Alfreð Elíasson, forstjóri Loftlelða: Af innlendum atburðum verð- ur mér eftirminnilegast þegar forsætisráöherrahjónin fórust í eldi á Þingvöllum. Af erlendum atburöum minnist ég helzt geim feröarinnar frægu á Appoló 13. Úr starfi Loftleiða er það einkum tvennt, sem kemur upp í hugann, þegar vélin nauðlenti í New York í vor, og aö þar skyldi takast svona giftulega, sem raun varð á. Flugslysið i Dacca er auðvitað ofarlega i huga. Svo minnumst við þess að sjálfsögðu, Loftleiðamenn, að viö hófum þotuferðir á árinu. Erlendur Valdimarsson nýkjörlnn íþróttamaður ársins: — Ég veit ekki hvort ég á nokkuð að upplýsa það, hvaöa atburðir af almennum vettvangi eru mér minnisstæðastir. En ég get svo sem sagt, hvað verð- ur mér eftirminnilegast frá þessu ári af minum persónulegu högum. Það yröi að sjálfsögðu það, að ég var kjörinn Iþrótta- maöur ársins, en næst rifjast það upp fyrir mér, að ég náði 60 metrunum á árinu og fór í viöburðaríka keppnisferð til Norðurlanda. Siðast en ekki sízt vil ég svo nefna Bikárkeppni Evrópu, sem fram fór á Laugar- dalsvellinum á þessu ári, érí hún rennur mér líklega seint úr minni. Dr. Róbert A. Ottósson, söngmálastjóri þjóðkirkj- unríán „Ef ég nefni ekki mfnar eigin hamingjustundir, sem eru marg- ar og erfitt væri að gera upp á milli, þá er mér efst f huga framtak Willy Brandts kanslara til að bæta sambúð austurs og vesturs.‘‘ Karl Guðjónsson albingismaður: Ég tel, að af fjarlægum við- buröum sé merkust samninga- gerð Þjóðverja við Austur- Evrópuríkin. Þá vil ég nefna verkföllin f Norður-Póllandi og f þriðja lagi rússneska tungl- vagninn. Af innlendum viðtourðum man ég bezt eftir opnun Þjórsár- virkjunarinnar og upphafi ál- framleiðslu á íslandi. Loks vil ég nefna Heklugosið, sem er mér minnisstætt, þó að það hafi ef til vill ekki verið annað en „túristagos". eins og Sigurður Þórarinsson sagði. Kristján Albertsson, rithöfundur: „Hinn sorglegi atburður á Þingvöllum aöfaranótt hins 10. júlí, þegar land okkar missti einn af sínum beztu og mestu sonum, konu hans og dóttur- Hekluelda. Við vorum þar þriðju gosnóttina á enda, eina fólkið þama uppi í óbyggðun- um Gosið var tignarlegt og sló eldsbjarma á himininn. Við ornuðum okkur við glóandi hraunjaðarinn og mér fannst sem ég kæmist f persónulegt samband við einhver óskilgrein- anleg frumöfl, kannski ekki andskotann f eigin persónu, heldur öllu fremur einhvern dularmátt sem hafði þann vonda sjálfan á valdi sínu. Oddur Ólafsson læknir, Reykjalundi: „Mér finnst að náttúruham- farimar í Pakistan hafi verið atburður sem leiði hugann að því, að sérhver þjóö sé viðbúin að mæta slíkum ógnum. Á innlendum vettvangi minn- ist ég fráfalls okkar mikilhæfu forsætisráðherrahjóna og dótt- ursonar þeirra. Gildistaka fyrstu laga á Is- landi um starfsendurhæfingu öryrkja er mikilsverður atburð- ur. Að mínu áliti merkisatburð- ur, sem á eftir að hafa bætandi áhrif á líf og hag þeirra þegna þjóðfélagsins, sem eru verst settir. Þá héidum viö hér nor- rænt endurhæfingarþing. sem opnaði augu okkar fyrir v'msum þáttum og ýmsum nýjungum f endurhæfinmi. sem munu skapa okkur betri starfsaðstöðu i framtíðinni. Á m?nu sviði eru þetta þau tvö atnði. sem merk- ust hafa orðið á árinu.“ Jökull Jakobsson rithöfundur: Mér er eftirminnilegust nótt- in, sem ég dvaldi austur við Ingólfur Davíðsson, grasafræðingur: Mér er efst i huga tíðarfarið, kuldinn sl, sumar, veðurblíðan í desember, sem er einstæð. — Einnig minnist ég allra þessara mengunarmála er hafa verið svo mjög til umræðu hér heima og erlendis. Ég minnist leiöangra er ég fór í surpar, dvaldi við garðaskoðun og rannsöknir á villtum gróðri á Breiðafirði or fór i eftirlitsferð vegna útsæðis- ræktunar á Svalbarðsströnd. Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður: Ég efast ekki um aö langflest- um íslendingum komi það sama í hug, þegar þessa er spurt, og vil helzt ekki fara nánar út í þá sálma. Sem blaðamaður í er- lendum fréttum eru kannski efst f huga apríldagarnir þegar Apollo 13 lenti í sínu alræmda basli úti í himingeimnum. Stöð- ugar viðsjár f Mið-Austurlönd- um, andlát Nassers og úthlutun bókmenntaverðlauna Nóbels, svo eitthvað sé nefnt.* i Svona prívat og persónulega hafði ég einna mesta ánægju af 2 ferða lögum sem ég fór í á árinu. — Annað til Bahama-eyja f boöi Loftleiða og hitt á eigin kostnað út í Flatey á Breiðafiröi. Eysteinn Jónsson alþingismaður: Af 'ákvæðum atburðum, sem mér eru minnisstæðir, tel ég mik ilvægasta af erlendum atburðum samninga WiMy Brandts og Scheels við Sovétríkin og Pól- land. Af innlendum atburöum er mér efst ( huga vaxandi barátta fyrir náttúruvernd og gegn mengun, þótt í því efni sé enn jm komið er meira um sán ingu að ræða en uopskeru. Þá nefni ég ó"oniug6ð afla- brögö og allra tíma metverð á fiski, sem gefur eóðar vonir um framtíð na ef við stöndnm okk ir v&] í ’*nrn og umtengninni við hafið og fiski- stofnana. I

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.