Vísir - 05.01.1971, Side 5

Vísir - 05.01.1971, Side 5
5 Gunnlaugur Hjálmarsson er hér að stjórna Iiði sínu nú nýlega I leik við FH, — um helgina fékk hann að vita að hans væri ekki Iengur óskað sem þjálfara og liðsstjóra. Gunnlaugi Hjálmarssyni var sagt upp sem þjáif- ara hjá Fram um helg- ina. Ætlunin var að hann þjálfaði liðið út keppnistímabilið en eins og kunnugt er hefur Framiiðinu ekki gengið allt of vel að undan- förnu. Tap liðsins gegn frönsku meisturunum U.S. Ivry í Evrópubikar- keppninni urðu mikil vonbrigði, og þá byrjaði liðið iila í íslandsmót- inu. „Mér skilst að einhverjir inn- an liðsins hafi verið óánægðir með æfingamar hjá mér og ár- angurinn“, sagði Gunnlaugur. Hann kvaðst hafa fengið munn- iega uppsögn um helgina og væri því laus alíra mála sem þjálfari liðsins. , „Ég ber engar sárar tilfinn- ingar til Fram vegna þessa“, sagði Gunnlaugur og kvaðst eftir sem áfram verða ákafur Framari og væri hans aðstoðar einhvers staðar þörf, þá mundi ekki standa á henni. Því hefur verið haldið fram að lið Framara væri nú í tals- vert umfangsmi'killi mótun. Liðsmenn eru margir hverjir mjög ungir og svo virðist sem eldri liðsmenn æfi ekki alveg eins mikið og æskilegt væri, því að þeir eldri þurfa oftast meiri æfingu en þeir ungu. Hefur Gúnnlaugur ugglaust átt við mikla erfiðleika að etja með liö sem þannig var í bí- gerðinni, — en þegar illa geng- ur, er sökinni oftast velt yfir á þjálfarann, æfingar hans eru slæmar og árangurinn eftir því, segja menn. Þetta hefur greini- lega veriö álit fleiri en leik- manna í liðinu, stjórn hand'knatt leiksdeildar Fram hefur verið sama sinnis og vill því leita á önnur mið eftir þjáifara. Þegar lit'ið er á . árangur Gunnlaugs má þó benda á að hann skilur við Fram sem ís- Iandsmeistara og nú fyrir nokkr um vi'ku tóku liðsmenn hans við Reykjavikurbikaranum, — Evr- ópúbikarinn kemur ekki í ár. Það eru yohbrigði. — JBP Jónas Magnússon kemur þama svífandi inn í vítateiginn í leiknum við ÍR í gæj. Hann stóð sig mjög vel í leiknurr og skoraði drjúgt. 1*í>íoijj5 Uoq .jOitm . injfctö ( ji Bíiífi jólanna setti svip á handknattleikinn Það er ekki fjarri lagi aö ætla að handknattleiksmenn hafi notið jölanna. Það var engu líkara en handknattleikurinn í hraðkeppni HKRR i gærkvöldi bæri þess merki að þungar og miklar steilcur, sæl- gæti og jólaöl hefðu hafnað í maga kappanna í ríkum mæli. Þungir voru þeir niargir a.m.k. og svifa- seinni en að venju. Þó má rei'kna með hörðum lei'kj- um í kvöid;1 þegar úr&lit keppninnar fara fram, en leikirnir eru 2x15 mínútur hver. í kvöld leika fyrst Haukar og Ármann og síöan Fram og FH. Þá verður leikur um 3. og 4. sætið og loks úrslitalei'kur móts- ins. í gær urðu úrslit þau aö ÍR vann Víking meö 13:7, meiri mun en reikna mátti með, þá mörðu Framarar nauman sigur yfir KR með 15:13 eftir 8:6 forystu í hálf- leik. Ármann átti í miklum erfið- leikum gegn Þrótti og aðeins heppni ein gat fleytt þeim upp í 13:10 á síðustu mínútum leiksins. S'kemmtilegasti leikurinn í gær var mil'li Vals og Hauka, Bergur Guðnason jafnaði á síðustu sek- úndunum í 8:8 og var þá fram- lengt um 2x3% mínútu og þá var greini'legt að Hau'kar dugðu betur og komust yfir í 10:8 með tveim mörkum Stefáns og unnu 12:10. Síðasti leikurinn var milli FH, sem sat hjá og ÍR, sem lék nú ann- an leik sinn þetta kvöld. FH átti létt með að sigra 16:10, — en geymdu sér þó báðar aðalskvttur liðsins, Geir Hallsteinsson og Ólaf Einarsson, sem báðir verða með í^kvöld gegn Fram. I Ka-sko. Kdppaféíag skokkara stofnað i heita „pottinum" i sundlaugunum: Að húftryggja hailsu f anna er Meðan ÍSÍ skoðar trimmið sitt á skrifbprðinu eiu talsvert margir áhugamenn um trimm- málefni farnir að starfa, — og það fyrir langa-löngu. Á mið- vikudaginn kl. 12.30 var fyrsta félagið, sem hefur skokk á stefnuskrá sinni stofnað. Þetta eru menn, sem koma saman i Laugardalslauginni i hádeginu og iðka heilsurækt. gamansarhir menn, sem taka þó heilsuræktina alvarlega. Þeir kalla félagið Kappaféíag skokk- ara, skammstafað Ka-sko, og var Gunnlaugur Þórðarsop, c-and. juris. emróma kjörinn for maður félagsins á þessum ó- venjulega stofnfundi, en pottur inn, þar sem stofnfundurinn var haldinn, var fullur af áhugasöm um stofnfélögum, sem voru 20 karlar og ein kona. „Tilgangur félagsins er aö reyna að húftryggja heilsu fé- lagsmanna með ástundun úti- iþrótta. en sérstaklega leggur félagið áherzlu á víðavangs- hlaup, hvar sem er og hvenær sem er og sund“. Svo segir í 2. grein jaga félagsins. í 3. grein segir aö allir íslendingar eigi rétt á að gerast félagsmenn. i 4. grein er sagt. ,,að aðalfund félagsins skulj haida á íslandi ár hvert, milli jóla- og nýárs, helzt undir beru lofti". I 7. og síðustu grein er e.t.v. sneitt lítillega að aðgerðum eða aðgerðaleysi ÍSÍ í þessum mál- um. þvi þar stendur orðrétt: ..Félagið stefnir að því að ger- ast aðili að samtökum íþrótta- manna í landinu (ÍSÍ), þeim til eflingar“. Væntaniega tekur TRE^I við sér við þessa ögrun, mönnum þykir full seint ganga aö koma kerfinu í gang. — JBP

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.