Vísir - 05.01.1971, Page 16
Þriðjudagur 5. janúar 1971.
lólaljós í kirkfri-
garði í síðasta
sinn?
Þeir eru sjálfsagt fjölmargir, sem
lofað hafa hinar fögru jólaljósa-
samstæður, sem Iýst hafa upp Foss-
vogskirkjugarð á s.1. 15 jólum. —
Að sögn Guðrúnar Runólfsson, sem
iiaft hefur með höndum umsjón
með uppsetningu þeirra ljósasam-
stæðna lengst af, er nú allt úf-
'it fyrir, að jólaljósin verði ekki
'endruð þar í garðinum framar. —
Ástæðuna segir hún vera þá, að
nenn Rafmagnsveitunnar telji of
nikla hættu fylgjandi raflínum sem
heim eru fylgjandi og Iiggja ofan-
iarðar.
„Það liggur geysilega mi'kil
vinna að baki þessum Ijósaskreyt-
ingurn", sagði Guðrún. „Upphaf-
lega voru einstaka aðilar að dunda'
við uppsetningu ljósa á leiði sinna
nánustu og tengdu serfurnar við
rafgeyma. Var maðurinn minn heit
inn, Jón Guðjónsson, sem var ralf
virki, þá oft og iðulega fenginn til
aðstoðar.
Er hann þannig kynntist þeim
mikla áhuga, sem fyrir þessu var,
tók hann sig til og fékk leyfi Raf
magnsveitunnar til að fá rafmagn
r.il þessara hluta og gera þannig
enn fleirum kleift, að lýsa upp
leiði sinna nánustu um jólin. Hafði
ég heitið honum því áður en hann
lézt, fyrir um ellefu árum, að halda
uppi þessari þjónustu. Ég hef líka
reynt að halda þessu úti, sem 6-
dýrustu, en auðvitað þarf að hækka
leiguna á seríunum eftir þvl sem
kostnaðurinn eykst. Vinnulaunin
eru þar einn stærsti liöurinn, én
mér hefur verið nauðsynlegt að
ráða um hver jól 30 manna starfs
lið mér til aðstoðar, þrátt fyrir
það, að við í fjölskyldunni vinnum
«11 í þessu, auk rafvirkjanna. —
Það þarf nefnilega meira til, en
stinga seríunum í samband", sagði
Guðrún.
„Viðhaldið er lfka mjög stór lið
ur Fyrir utan það, að nauðsynlegt
er að hafa fastan starfsmann til
að fylgjast með seríunum að stað-
aldri. þarf aukalið stöðugt að vera
að hlaupa til og lagfæra. Ég get
t.d. tekið það sem dæmi að ég var
meira en heilan dag f garðinum
við lagfæringar eftir mestu óveð-
ursnóttina nú um jólin. Það segir
sig sjálft hve mikið spursmál þaö
væri að fara út í það a<ð láta ljósa
mimstæðurnar standa alveg fram til
brettándans eða heila viku í við-
bót“ sagði Guðrún að lokum.
- ÞJM
Nýr veitingasalur — Úðal:
VínveifingoEayfið
á síðustu sfundu
ÓÐAL, hinn nýi veitingastaður
við Austurvöll, opnaði á nýárs-
dag með hátíðarmatseðli — og
vínveitingaleyfi, sem fékkst á
síðustu stundu fyrir staöinn. í
stuttu spjalli við Hauk Hjalta-
son forstjóra Óðals og Nauts,
kom það fram, að þeir eigendur
tveggja fyrmefndra staða hefðu
nú fullan hug á því að verða sér
úti um vínveitingaleyfi til handa
Nautinu.
Kvað Haukur málið raunar vera
enn á algjöru frumstigi og engar
umsóknir hafa enn verið lagðar
fram þar að lútandi. Hins vegar
hefði áhugi þeirra félaganna á því,
að geta boðið matargestum sfn-
um upp á létt vín eins og rauðvín
og hvítvín með matnum verið
töluvert lengi fyrir hendi.
Væri það algjör nýlunda hér, ef
matsölustöðum á borð viö Nautið
yrði veitt vínveitingaleyfi. Hins veg
ar tíðkaðist það mjög víða á mat-
sölustöðum erlendis, að gestum
matsölustaða standi vínveitingar til
boða með mat sínum. —ÞJM
Heimsói
amsins á Seyðis
■ „Nú bíðum við eftir athug-
unum á þeim möguleika að
fá stúlkuna litlu flutta hingað
suður til óhlutdrægs aðila“,
sagði Ólafur Guðmundsson,
bamavemdarfulltrúi í Kópavogi
Vísi í morgun, er við inntum
hann eftir hvað liði máli stúlku
þeirrar, sem dvalið hefur hjá
föður sínum á Seyðisfirði í ó-
þökk löglegs umráðanda, móð-
urömmu sinnar á Vopnafirði.
Sem lesendum Vísis mun kunn-
ugt. fór stúlkan, sem er 10 ára
gömuíl, í heimsókn til föður síns á
Seyðisfiröi í ágúst í sumar. Átti
sú heimsókn að standa í eina eða
tvær vikur, en barnið dvelst hins
vegar enn hjá föður sfnum. Hafa
verið haldnir fjölmargir fundir um
rmálið, en erfiðlega gengur að kom-
ast að niðurstöðu.
Aðspurður sagði Ólafur Guð-
mundsson, fulltrúi í Kópavogi, að
vissulega væri þaö öheppilega fyrir
silík mál, að halda þeim svo lengi
gangandi, því að þeim mun lengur
sem bamið er hjá öðrum málsaðil-
anna, þ.e. nú föður sínum, þeim
mun enfiðara verður það fyrir
barnaverndarnmenn og sérfræð-1 þaðan og koma þvi fyrir annars i sinni, að „vænta mætti lokaniður-
inga hennar að rífa barnið upp | staðar. Sagði Ólalfur Vísi enn einu j stöðu í málinu á næstunni“. — GG
Komu með 250
milljónir milli
jóla og nýárs
— greiðendur opinberra gjalda skilvisir á s.l. ári
- innheimta ársins 197Ó 84,37°/o af gj'óldum
Grelöendur opinberra gjalda
oru skilvísari en oft endranær
5ð Gjaldheimtuna á s.I. ári. Inn-
''imta ársins 1970 nam 84.37%
f gjöldum i árslok, sem er 2,6%
"'tri innheimta en 1969, en þá
mheimtust 81.74% gjalda fyr-
irslok.
Alls innlheimtust 1845,4 miljónir
þeim 2187 milljónum, sem voru
I inn'heimtu og þar af um 500
úlliónir I desembermánuöi. Dag-
arnir milli jóla og nýárs voru anna
samir hjá Gjaldheimtunni en þá
bárust tæplega 250 fnilij. í greiðsl-
um.
Guðmundur Vignis hjá Gjald-
heimtunni sagði í viðtali við blaðið
í morgun að innheimta 1970 hefði
verið með betra móti. Bezt varð
innheimta á sfðustu árum áriö 1965
en þá innheimtust 86,8% en verst
1967 en þá innheimtust 79,7%
gjalda fyrir áramót. — SB
Framreiðslufólk mátti hafa sig allt við að skenkja öl í krúsimar, enda eru það hvorki
meira né minna en 70 manns, sem þátt taka I sýningunni.
Þýzk bjórdrykkja á
sviði Þjóðleikhússins
Að lokinni sýningu á Fást á
sunnudaginn var öl fram boriö
á sviðinu og skálað i þýzkum
bjór. Þýzki sendiherrann bauö
öllum starfsmönnum sýningar
innar til þófs, en um 70 manní
taka þátt í henni sem kunnugí
er.
Þýzki leikstjórinn Karl Vibach
kom aftur til landsins fyrir
helgina, og ineð honum þýzkur
blaðamaöur frá Lubecker
Zeitung og sá hann sýningu á
Fást á sunnudaginn, en hanr
mun Eíðan skrifa um sýninguna
i blaö sitt. Mun hann ennfrem-
ur dvelja hér nokkra daga t
safna efni fyrir blað sitt á öðr
um sviðum.
Mikil aösókn hefur veriö aö
Fást og uppselt var á sýninguna
i sunnudaginn. — JH