Vísir - 27.01.1971, Blaðsíða 1
61 árg — Miðvikudaeur 27. ianúar 1971. — 21. thl
Yfirmennirnir fara fram
á aukin skatthlunnindi
Sáttafundur ekki boðaður. — Togari, sem kostaði
3.5 millj. skilaði yfir 60 millj. á sl.
ari
Heimsmarkaðsverð aldrei
hagstæðara loðnuvertíð
tonnum af frystri loðnu til Jap
ans, en auk þess er Vísi kunnugt
uir þriðja aðilann, sem er að
gera samninga um sölu á veru-
legu magni af frystri loðnu til
Japans. >á er Norðurstjarnan í
Hafnarfirði að vinna að endur-
bótum og aukningu í niðursuðu
á loðnu. Ástæða mun vera til
bjartsýni um árangur þeirrar
starfsemi og hefur Norðurstjarn
an m. a. fundið allálitlegan
markað fyrir niðursoðna loðnu í
Frakklandi.
Japanir eru nú ekki jafn
strangir í kröfum sínum um
flokkun frystu ioðnunnar. í fyrra
— Lýsisverðið ekki jafn hátt siðan i Kóreu-
striðinu og aldrei hærra verð fyrir loðnumj'ólið
Útlit er nú fyrir, að
loðnuvertíð hafi aldrei
verið okkur hagstæðari,
en sú sem nú fer senn að
hefjast, ef aflabrögð
verða svipuð og á undan
fömum árum. Heims-
markaðsverð á loðnu-
mjöli og lýsi hefur hækk
að verulega frá því í
fyrra. Mjölverðið mun
aldrei hafa verið hærra.
Lýsisverðið hefur ekki
verið jafnhátt síðan í
Kóreustríðinu, þegar
það komst upp í svipað
verð og það er nú um
tíma. Með svipuðu afla-
magni og í fyrra ætti
loðnan að skila þjóðar-
búinu hátt í 700 milljón-
ir kr. í útflutningsverð-
mæti.
Auk þess, sem 'heimsmarkaös
verðið á loðnulýsi og mjöli er
mjög hagstsett hef-ur þegar tek-
iat að selja Japönum heimingi
meira nmgn af frystri loðnu, en
í fyrra og fyrir mun betra verð.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
og SfS hafia þegar í sameiningu
gert samning um sölu á 2.000
voru mjög strangar kröfur um
hlutfall á hrognmagni loðnunar
auk þess sem gerðar voru kröf
ur um að loðnuhrygnur væru
hlutfallslega mun fleiri en loðnu
hængar. Af þessu leiðir, að ó-
dýrara verður að frysta Ioön-
una á Japansmarkað, en var í
fyrra vegna minni vinnu við
flokkun.
Heimsmarkaðsverðið á lýsi er
nú komið í 109 sterlingspund
SIF miðað við höfn í N-Evrópu.
Til samanburðar má geta þess,
að lýsisverðið komst niður í 37
sterlingspund i október 1967 og
var allt árið 1968 f 39—42 pund
um og var að smástíga upp d 50
pund á árinu 1969. Það var ekki
fyrr en i fyrra, sem lýsisverðið
náði sér á strik eftir verðfall
ið. Þá komst það i 72 pund í
upphafi árs, en komst hæst í tæp
100 pund á árinu.
Nýting loðnunnar í lýsi er að
vísu mjög léleg eða 2—4% af
heildarþunga loðnunnar, en þó
munar verulega um lýsið, þegar
verðið er orðið svona hátt. Mið
að við að um 180 þúsund tonn
af loðnu veiöist á þessari ver-
tíð munu útflutningsverðmæti
loðnulýsisins verða um 130
milljónir króna.
Verðiö á loðnumjölinu er nú
talið verða 27—29 shillingar
fyrir próteineiriinguna. Nýting
loðnunnar í mjöl er um 15%.
Fyrir um 180 þúsund lestir af
loðnu ættu því aö fást um 530
milljónir króna f útflutningsverð
mæti, en reiknað er með, að
um 66 próteineiningar séu i
hverju tonni af loðnu. —VJ
Nýr sáttafundur hefur ekki
verið boðaður í togaradeilunni
og virðist lítið sem ekkert þoka
í samkomulagsátt. Síðasti sátta
fundur var haldinn á fimmtudag
en þá höfðu liðið 10 dagar milli
sáttafunda.
Fulltrúar Farmanna og fiski-
mannasambandsins hafa gengið á
fund sjávarútvegsráðherra og fjár-
málaráðherra til að Ieita eftir stuðn
ingi ríkisstjómarinnar við lausn
deilunnar. Einnig hefur sambandið
skrifað forsætisráðherra bréf. —
í viðræðum við tvo fyrrnefnda ráð-
herra var m. a. farið fram á það.
að þeir hefðu forgöngu um aukin
skattfríðindi yfirmannanna, en
skattfríðindi sjómanna nema þeg-
ar mjög verulegum upphæðum. Að
sjálfsögðu var einnig farið fram
á, að hluti 22% hlutans af fisk-
verðinu verði aftur skilað til sjó-
manna.
Ingólfur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Farmannasambands-
ins sagði, að samninganefnd yfir-
mannanna væri etoki mjög trúuð
á þær tölur um afkomu togaranna,
sem lagðar hafa verið fram á fund-
um með þeim. Þar hefur því verið
haldið fram, að rekstrartap togar-
anna hefði verið um 70 milljónir
á nýliðnu ári og væri tapið áætlað
um 90 milljónir króna á þessu ári.
Þetta kæmi þeim spánskt fyrir
sjónir. Til dæmis tók hann fram,
að einn gamall og slitinn togari,
sem hefði kostað 3.5 milljónir
króna á sínum tíma hefði skilaö
yfir 60 milljónum króna í aflaverð-
mæti á síðasta ári. — VJ
. •.... ;
'AAAAAAAAAAAAAAAAAAAA------
SAMIÐ VIÐ LÖG-
REGLUMENN í NÓTT
Samningar tótoust á miili Reykja-
vikurijorgar og Lögreglumannafé-
lags Reykjavfkur í nótt eftir mán-
aðar samningaviðræöur. Niðurstað-
an varð sú, að lögregluþjónar fengu
sams konar launahækkanir og ríto-
islögreglumenn höfðu áður fengið
f kjarásamningum við ríkisstarfs-
menn. Lögregluþjónar munu vera
óánægðir með það, hvemig þeim
var raðað f Iaunaflokka í ríkis-
samningnum og þrýstu mjög á, aö
borgaryfirvöld færu með þá f
hærri launaflokka. Slfkt mun hins
vegar hafa verið óframkvæmanlegt,
m.a. vegna þess, að um 40 ríkis-
lögregluþjónar vinna hér í Reykja-
vík með starfsbræðrum sínum, sem
eru starfsmenn Reykjavíkurborgar.
„Launamisræmi milli þessara
manna er fráleitt. Þeir eiga meira
að segja að ganga í takt, hver við
annars hlið“ sagði einn talsmaður
borgarinnar í viðtali við Vísi í
morgun, eftir að samningarnir tók-
ust.
Almennir lögregluþjónar eru í
15. launaflokki, en rannsóknarlög-
reglumenn í 17 og 19. launaflokki.
— VJ
myndinni má sjá, hvemig aökoman var hjá Fossvogsbrúnni, þegar ljósm. Vísis bar að, en þokan
skýlir fremstu bílunum. Sjá má öftustu bílana í árekstrarröðinni, en til hægri á myndinni sést
kranabíll legja af stað burt með þann fremsta. Yfir þokubakkanum má sjá Borgarspítalann.
9 bílar í sama árekstrinum
9 bílar lentu í einni árekstrar
bendu við Nesti á Reykjanes-
braut hjá Fossvogslæknum í
morgun. Niðdimm gufuþoka
huldi ökumönnum sýn yfir
brautina í morgun, svo að öku-
menn, er leið áttu þarna um,
sáu varla hálfa bíllengd fram á
veginn.
„Þegar ég fór f vinnuna þama
um f morgun, þurfti ég að aka
með höfuðið út um hliðargluggann
og rétt að fara fetið,“ sagði lög-
regluþjónn, sem býr í Kópavogi, og
gefur það nokkra hugmynd um,
hvemig skyggnið var. En að auki
var hálka af snjónum á brautinni.
— Þokan stafaði af gufu, sem lagði
upp úr skurði við veginn, þar sem
heitt vatn rennur.
Áreksturinn varð eftir kl. 10 í
morgun. þegar fólksbifreið á leið
norður nam staðar, vegna tveggja
sendibfla, sem lent höfðu út af veg
inum með því aö ökumenn þeirra
höfðu misst sjónar af veginum. —
En strætisvagn, sem kom á eftir
þessum fjórum, fékk ekki numið
staðar, heldur rakst aftan á þann
síðasta og ýtti allri röðinni saman,
svo að hver rakst á annan.
Á eftir strætisvagninum komu
aðrir þrír bílar, og tókst ökumönn-
um þeirra öllum að stööva, áður
en til árekstrar kom. — En enn
kom einn og bætti um betur, þvl
að í humátt á eftir þeim kom vöru-
bíll með hlass af tunnum, og rakst
hann aftan á aftasta bílinn. Lfkt
og strætisvagninn ýtti hann allri
röðinni saman.
Enginn maður slasaðist að ráði
í þessum árekstrum, en skemmdir
urðu töluveröar á bílunum. Sátu
bílarnir þama ýmist fastir f snjón-
um, eðg þá klemmdir hver af öðr-
um, svo að mesta öngþveiti mynd-
aöist. Tók það lögregluna drykk-
Ianga stund að greiða úr flækj-
unni, þar sem þokan var til mik-
ils trafala. Sást varla frá einum
bílnum til þess næsta f þokunni,
sem lá þarna yfir lægðinni eins og
mara. — GP