Vísir - 27.01.1971, Síða 2
Drekkur eins og kósakki
Hún fékk blöðin upp á móti
sér hún Birgitta þegar hún kom
til Mexíkó að leika I kvikmynd.
Blaðamenn biðu hennar á flug-
vellinum, en hún neitaði að segja
orð við þá. Þeir hefndu sín líka
grimmilega. Skrifuðu ekki staf
um þá frægu leikkonu, Bardot,
fyrr en seint og um síðir, rétt
áður en hún fór úr landi aftur,
og þá ekkert annað en svívirðing-
ar: „Kynþokki hennar er naumast
eins mikill og Raquel Welch“,
Bardot: „drusluieg“.
skrifaði einn, og í einu dagblað-
anna var sagt, að meðan á
Mexíkó-dvöl leikkonunnar hafi
staðið hafj hún „drukkið eins og
kósakki", og litið „druslulega út“.
En verstu útreiðina fékk hún þó,
þegar hún bauð blaðamönnum til
Veracruz, þar sem hún var að
vinna að kvikmyndinni „Rum-
runners", „og þá fáu, sem suður
eftir fóru, lét hún fara algjöra
fýluför, því hún mætti ekki sjálf
til fundarins, sem hún haföi boð-
að. Þá var meðfylgjandi mynd af
kynbombunni 36 ára birt í mörg-
um mexfkönskum blööum.
aoDD
Nicholas Bernard Curtis
... heitir hann drengurinn og
mun það hafa tekiö foreldra hans
langan tíma að detta niður á
þetta nafn. Foreldramir eru svo
auðvitaö þau Tony Curtis leikari
og unga konan Kans hún Leslie,
sem hann kvæntist í fyrra.
□ □□D
Tollurum bannað að
gægjast í klám
Þaö hefur vakið nokkra athygli,
að hæstiréttur í Washington
hefur úrskurðað að tollvörðum
verði hér eftir bannað að skoða
böggla, sem sendir em til USA
frá útlöndum og innihalda klám-
bækur eða klámblöð. Hingað til
hefur tollvörðum verið gert að
fylgjast með slíkum lnnflutningi
en nú mega menn sem sagt skoöa
allt það klám sem þeir vilja.
Úrskurður hæstaréttar mun hafa
verið samhljóða og byggöur á
þvl, að ritskoðun sendibréfa sem
annars ritaðs efnis skuli ekki
fyrirfinnast í USA.
Máiaferli vegna
málverks af barni
Ástir
„Stundum og þá alveg óvænt
og óundirbúiö, snemma að morgni
ímynda ég mér konu engri ann-
arri líka, áfenga, ilmandi og bjóö-
andi og...“ Morgundraumar
margs karlmannsins innihalda
sjálfsagt oftlega eitthvað í líkingu
við Elizabeth Taylor. En aðeins
örfáir munu geta haldið draum-
inum áfram, einis og Richard
Burton sagði er hann sá nýjustu
Ijósmyndina af konu sinni: „í
morgunsárið ligg ég í rúminu og
ég rétti út höndina og finn þar
draumkonuna sprellifandi. Hún
er þá til og þegar ég tek á henni
þá finn ég að ekkert í heimin-
um er eins rækilega á lífi og mín
Elizabeth. Hún er heit. Hún svar-
ar snertingu minni. Hún umlar
og hún grætur. Hún er villt,
tryllt. Hún er hættuteg. En stund-
um — alveg eins og á þessari
mynd hérna, kemur hún hlaup-
andi til mín fögur eins og flóð-
bylgja sem skellur á hrjúfri
strönd. Og ég ligg þar eins og
klettur..."
— Og svo haldið sé nú áfram
áð Ségja soldiö frá góðum hjón-
lim, þá hitti sú græneygða Mel-
HbbuMg[eoiai, gríska leikkonan
sem „geröi það aldrei á sunnu-
dögum“, bláöamann einn I Banda-
rfkjunum, þar sem hún var að sjá
frumsýnda nýjustu mynd sfna,
„Promise at Dawn“, en f þeirri
mynd leikur Melfna rússneska
móður skáldsagnahöfundarins
Romain Gary. Og blaðamanninum
fannst tilvaliö að spyrja Melfnu
um hitt og þetta. m. a. hjóna-
band hennar og leikstjórans Jules
Dassin, en þaö hjónaband hefur
haldið I 5 ár: „Ég elska Dassin
leikstjóra. Ég elska Dassin rit-
Taylor hlaupandi f
morgunsárið
höfund. Ég elska hann fyrir hans
bláu augu. Júlli og ég rífumst
næstum alltaf. Rifrildi — það er
þaö bezta viö ástina“.
Stöbug framför hjá Irum
Irar drukku meiri bjór, þömb-
uöu meira viskf og reyktu meira
tóbk árið 1970 en nokkru sinni
fyrr — eða svo sýna óvefengjan-
legar tölur þaðan.
Þeir drukku 143 milljónir
„pinta“ af bjór, 1,5 milljón gallon
af viskf og 1,4 milljónir lengja
af tóbaki reyktu þeir. Tölur fyrir
árið 1970 sýna einnig að útflutn-
ingur á irsku viskí hefur vaxið
mjög — einkum til Bandaríkj-
anna, en þangaö seldu þeir í fyrra
87.000 kassa. 1969 seldu þeir
þangaö 67.500 kassa.
Áhyggjulaust
líf í fangelsum
Þau voru víst mjög stolt Sophia
Loren og Carlo maður hennar,
Ponti, þegar komið var til þeirra
og þeim boðiö, að málarinn Oskar
Kokoschka málaði mynd af
syni þeirra, honum Carletto, sem
er ekki nema 2ja ára.
En heldur fannst þeim syrta í
álinn og glansinn fjúka út í veð-
ur og vind, þegar I ljós kom, að
það átti ekki að stilla myndinni
upp í Marlborough-safninu I Lon
don, eins og líka var talað um,
heldur var loforðið um fína mál-
arann og húsplássið hjá Marl-
borough aðeins aðferð til að plata
auglýsingarmynd út úr þeim hjón
um, sem síðan átti að nota barna
fóðri einhverju til framdráttar.
Hefur Ponti, sem er peningaspekú
lant og lætur aldrei plata sig,
höfðað mál á hendur firmanu
„Alete“. Lögfræðingur hansbygg
ir svo mál sitt á þvf, að greini-
legt sé af öllum gögnum, að
Ponti hafi Iátið mála son sinn
vegna þess að hann hafi haldiðj
að stilla ætti myndinni upp I al-c
mennilegu listasafni í London, og«
aldrei hafi háttvirtur Ponti Lor- *
en maður heyrt um auglýsinga-*
herferö. J
Alete-barnafóöursfyrirtækiö c
keypti myndina af Oskar Kok-J
oschka fyrir Al/2 milljón kr.«
Carlo Ponti vill kaupa málverkið.J
Bruno nokkur Salomon, 22 ára
Itali fél'Ist á það fyrir nokkru.
að yfirgefa fangelsi það, sem
hann hefur gist í bænum Monza
síöan í nóvember I haust. Salo-
mon gaf sig fram viö lögregluna
I nóvember og sagöist hafa stolið
fáeinum verðmætum hlutum úr
bíl. Salomon var settur inn, en
fljótlega kom í ljós að Salomon
hafði engu stolið, hins vegar neit-
aði hann að fara úr fangelsinu
þar eð hann væri atvinnulaus
og gæti enga Djörg sér veitt. 1
fangelsi væri hins vegar gott að
vera a. m. k. að því leyti að
þar er húsaskjól og matur
fæst þar ókeypis.
Síðan gaf sig fram veKinga-
maður einn Monza og bauð
hann Salomon að ráðast til sín
sem þjónn. Lögreglan hálfpart-
inn neyddi hann til að taka þvf
boði og er Salomon nú farinn
úr fangelsinu.