Vísir - 27.01.1971, Page 8
8
V 1 S I R . Miðvikudagur 27. janúar 1971.
Otgefandi: Reykjaprenr bf.
Framkvæmdast jóri: Sveinn R Eyjólfsson
Ritstjóri • Jónas Kristjánsspt)
Préttasi'jöri: Jón Birgir Féturssoto
Ritstjórnarfulltrúi. Valdimai H. Jóhannesson
Auglýsingar: Brðttugötu 3b Sfmar 15610 11660
Afgreiðsla- Bröttugötu 3b Simi 11660
Ritstjórn: Laugavegi 178 Simi 11660 (5 linur)
Askriftargjald kr. 195.00 S mánuði innanlands
i lausasölu kr. 12.00 eíntakið
Prentsmiðja Vlsis — Edda hf.
»»iMimn———
Aðgerðum flýtt
tilhlutan Jóhanns Hafstein forsætisráöherra er
verið að koma á fót samstarfi í landgrunnsmálunum
milli margra ráðuneyta og stofnana. Tilgangurinn
með þessu er bæði að samræma tillögur og aðgerðir
stjórnvalda í landgrunnsmálunum og að flýta aðgerð-
um eins og mögulegt er. Aðilar að samstarfinu eru
flest ráðuneyti stjórnarráðsins og stofnanir eins og
Hafrannsóknastofnunin, Fiskifélagið, Rannsóknaráð,
Landhelgisgæzlan og Sjómælingar.
Fiskveiðilögsagan er að sjálfsögðu veigamesti þátt-
ur þessa samstarfs. En jafnframt verður fjallað um
fleiri atriði, svo sem um mengun hafsins umhverfis
ísland og um verðmæti þau, sem kunna að liggja í
landgrunninu sjálfu. Markmiðið með þessu starfi er
að búa svo um hnútana, að tryggður verði og jafn-
framt viðurkenndur réttur íslands til alls landgrunns-
ins og hafsins yfir því.
Ríkisstjórnin hefur miklar áhyggjur af vaxandi
sókn erlendra fiskiskipa á íslandsmið. Grunur hefur
leikið á, að einhver þessara skipa noti ólögleg veiðar-
færi, sem spilli fiskistofnunum. Landhelgisgæzlan
hefur fengið heimild til að fara um borð í erlend fiski-
skip utan tólf mílna lögsögunnar og skoða veiðar-
færi þeirra.
Margir óttast, að þetta nægi ekki. Þeir telja, að hin
aukna ásókn muni spilla fiskistofnunum, þótt notuð
séu lögleg veiðarfæri. Þess vegna hefur ríkisstjómin
lagt á það áherzlu, að Hafrannsóknastofnunin flýti
rannsóknum og útreikningum á viðgangi fiskistofn-
anna. Þegar haldgóð, vísindaleg þekking er til reiðu,
er hægt að fara að friða þau svæði utan tólf mílnanna,
sem talin eru í hættu.
Þessi undirbúningur friðunar er það starf, sem er
einna mest aðkallandi í landgrunnsmálinu. En jafn-
framt er verið að sækja fram á mörgum öðrum svið-
um málsins. Verið er að undirbúa mun ítarlegri mæl-
ingar og rannsóknir á landgmnninu en áður hafa ver-
ið gerðar og síðar verður skipulögð leit að verðmæt-
um efnum í landgrunninu.
Fulltrúar íslands á alþjóðavettvangi sitja ekki auð-
um höndum. ísland tekur nú þátt í norrænu samstarfi
um undirbúning að banni við því, að hafið sé mengað
á þann hátt, að úrgangi frá iðjuverum sé varpað út-
byrðis úr skipum á rúmsjó. Þá taka fulltrúár Íslands
virkan þátt í undirbúningi alþjóðaráðstefnu þeirrar,
sem Sameinuðu þjóðirnar munu efna til í því skyni að
ræða réttarreglur á hafinu, þar á meðal landhelgis-
mál.
Samstarfið milli ráðuneyta og stofnana í land-
gmnnsmálinu og hin aukna vinna, sem fylgir þessu
samstarfi, er dæmi um þá staðreynd, sem Jóhann Haf-
stein hefur lýst yfir, að þetta mál í heild er eitt allra
mikilvægasta mál ríkisstjómarinnar um þessar mund-
ir. Um leið er þetta mál þjóðarinnar allrar, því að
Jandsmenn em einhuga á því, að flýta beri sem mest
aðgerðum í málinu.
//
í
\
Osigur hans i kosningum i öldungadeildinni
er „nýtt Chappaquiddickslys" og styrkir
keppinauta hans i demókrataflokknum
Hefur „síðasti Kennedy-
inn“ Edward, orðið fyrir
„öðru Chappaquiddick-
slysi“? Þótt ósigur hans
við kosningu aðstoðar-
leiðtoga demókrata í
öldungadeildinni sé ef
til vill ekki sambærileg
ur við bílslysið á
Chappaquiddick í fyrra,
geta afleiðingarnar orð-
ið svipaðar fyrir Ed-
ward Kennedy. — Það,
sem gerðist fyrir viku,
er ,að hinn frægi Kenne-
dy tapaði kosningum
fyrir manni, sem heita
má óþekktur meðal a,l-
boö Byrds alvariega og talið sér
vísan sigurinn. Þetta mun rýra
álit atvinnumanna f stjómmál-
um á Kennedy. Þeir munu telja
hann skorta varfærni. Þetta get-
ur reynzt Kennedy dýrt, ef hann
sækist eftir framboði við for-
setakjör í framtíðinni. Margir
munu efast um hæfileika hans
til að meta rétt aðstæður í slík-
um kosningum.
Edvard Kennedy hefur statt
og stööugt neitað þvf, að hann
sæktist eftir að vera frambjóð-
andi demókrataflokksins í for-
setakosningunum. Eftir slvsið á
Chappaquiddick Iýsti hann því
yfir, að hann ætlaði sér alls
ekki að verða frambjóðandi í
forsetakosningunum árið 1972,
þegar næst verður kosið. Samt
sem áður hafa flestir, sem tíl
þekkja í bandarískum stjóm-
málum, talið Kennedy í hópi
þeirra sem helzt komi til
greina.
\ mennings í Bandaríkj- Muskie sterkari eftir
unum.
^ Kennedy „flengdur“
j Kosning Roberts C. Bvrds,
: öldungadeildarþingmanns frá
í{ Vestur-Virginíu, var þaulhugsuð
f! flenging, sem starfsþræður
\C Kennedys gáfu honum. Almenn
j ingur hlýtur aö telja þessa ráön
Ú ingu vantraust þingmanna demó
/ krata á starfi Kennedys, sem
\l haföi áður gegnt því embætti,
if sem kosið var um. Fölk mun
\j væntanlega enn fremur telja
■i þetta vantraust á framkomu
, ] Kennedys í persónulegu lífi, —
( þótt þingmenn muni hafa haft
I' i í huga fjarveru Kennedys af
j fundum og „fljótfæmi" í ýmsu.
í Almenningur gæti talið þessi úr-
1 slit bera vitni gagnrýni þing-
I manna á framkomu Kennedys
eftir slysið á Chappaquiddick.
„Vertu alltaf fyrstur“
Kennedy hefur einnig hlotið
sár af því einií, að hann tap-
aði. Það rýrir frægð hans sem
seinasti merkisberi hinna ósigr-
andi Kennedya. Kennedy segir:
„Þið getið talið saman sigrana
» og ósigrana, og ég held, að sigr-
/ amir séu miklu fleiri“. Engu
j síður er það áfall fyrir Kennedy
I að tapa. John Kennedv, bróöir
i hans, sagði að Kennedyarnir
j lifðu samkvæmt boðorðinu: „Þú
/ átt alltaf að verða fyrstur. Það
j er jafnvel ósigur að verða í öðru
/ sæti“.
1 Þetta var það, sem Joseph
I gamli innrætti sonum sínum.
j Þetta kjörorð varð Kennedyun-
( um styrkur og hvatti þá til að
1 vinna stærstu sigra.
Starfsbræður Kennedys tel'3
1 að hann hafi ekki uggað að sér.
\ Kennedy hafi ekki tekið tram-
Skin og skúrir hafa skipzt á
í ferti Edwards Kennedys síð-
ustu árin. Slysið í fyrra var hon-
um þungt áfaill, en hann virtist
hafa jafnað sig og endurheimt
fyrra fylgi sitt að mestu. Kenne
dy vann yfirburðasigur í kjör-
dæmi sínu, Massachusettsfylki,
við kosningarnar í haust. Hann
var strax eftir það talinn álíka
sterkur og þeir leiðtogar demó-
krata, sem hæst ber.
Robert Byrd þingmaður, sem
felldi Kennedy, hefur oft
stutt Nixon í deilumálum.
Ósigur Kennedys nú stvrkir
aöra leiðtoga demókrata, sem
sækjast eftir framboði við for-
setakosningar. Edmund Muskie
er þar fremstur i flokki, og hon
um hefur mjög vaxið ásmegin
undanfarna mánuöi. Enn eru þó
nærri tvö ár. unz kosiö verður.
... eirniig Humphrey
og McGovern
Ósiaur Kennedys getur styrkt
Hubert Humphrev fyrrum vara-
rorseta. Svo kann að tara sern
Ted verður enn aö klífa bratt
ann.
afleiðing ósigursins, að Hubert
Humphrey veröi að nýju óum
deildur leiðtogi frjálslynda
arms demókrataflokksins
Humphrey var kjörinn öldunga-
deildarþingmaður f haust með
miklum yfirburðum, en þvf
sæti hafði hann sagt lausu, þeg-
ar hann varð varaforseti f for-
setatfð Johnsons.
Tap Kennedys getur einnig
styrkt McGovem, sem er yzt
til vinstri af frjálslyndum demó-
krötum. McGovem stefnir að
þvf að Veröa í kjöri fyrir demó-
krata við næstu forsetakosning-
ar. Til þessa hefur það hamlað
honum, að menn hafa sagt, að
hann væri ekki annað en „sendi
sveinn fyrir Kennedy“.
Óvænt gleðitíðindi
fyrir Nixon
Ósigur Ted Kennedys er einn-
ig vatn á myliu Nixons og rfkis-
stjómarinnar. Tapið var óvænt
gleðitíðindi fyrir repúblikana.
Þeir minna á, að Byrd öldunga-
deildarþiogmaður hefur oft stutt
Nixon í erfiöum málum.
Illlllllllll
mmm
Umsjón. Haukur Helgason:
Byrd studdi Nixon ósjaldan f
utanríkismálum og útnefningu
embættismanna þegar flestir
aðrir demókratar snerust gegn
Nixon Byrd er auk þess þing-
maður fyrir Vestur-Virginíu.
sem er sunnarlega I Bandaríki-
unum. Eins og fleiri sunnan-
menn er Byrd nokkuð til hægri
við demökrata Norðurríkjanna
Edward Kennedv hefur orð’ð
fyrir talsveröu áfalli. Það eru
litlar sárabætur. þótt hann hafi
fengið sæti í mikilvægri þing-
nefnd. Þvi verður Edward
Kennedy enn einu sinni að klífa
brítugan hamarinn eigi hann
með réttu aö vera von þeirra
mörgu sem alla jafnan treysta
Kennedvum öðrum fresmur fvrir
ianasstjóm.