Vísir - 04.02.1971, Blaðsíða 3
V1S I R . Fimmtudagur 4. febrúar 1971.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND I MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Umsjón: Haukur Helgason:
Suður- Víetnamar inn í Kambódíu
— samkvæmt fréttum i morgun —30 þúsuad
manna lið við landamæri Laos — Kommúnistar
i skotmáli við Luang Prabang
HAUSAVÍXL
Venjulega tíðkast í Austurlöndum, að ekið sé með „heldri menn“
um borgir í hjólvögnum að gömlum sið. Trudeau forsætisráð-
herra Kanada hafði endaskipti á hlutunum, þegar hann heimsótti
Djakarta, höfuðborg Indónesíu nýlega. Eins og myndin sýnir,
gerðist Trudeau ökumaður, en ekillinn sat í því sæti, sem ráð-
he,rranum var ætlað. '
Mikið herlið Suður-Víet-
nama stutt bandarískum
sprengjuflugvélum og þyrl
um hefur ráðizt inn í
Kambódíu á mörgum stöð-
um í austur- og norðaust-
urhluta landsins, að því er
fréttir frá Saigon herma.
Innrásin er ti’l 'þess gerð að eyði-
leggja stöðvar Norður-Vfetnama og
Vfetkong, og beinast aðgerðirnar að
stöðvum, sem kommúnistar hafa
reist síðan innrásin var gerð í
fyrra.
Opinberlega hefur ekki verið
skýrt frá innrásinni, en fréttamenn
segja, að hún sé jaifn víðtæk og var
í fyrra. Nú muni mi'Mi 10 og 20
þúsund hermenn taka þátt í aðgerð-
unum.
Yfirstjóm bandaríska hersins í
Saigon hefur aðeins sent frá sér
tilkvnningu um það, að Bandaríkja-
menn muni í framtíðinni veita
stuðning úr lofti þeim Suður-Víet-
nömum, sem berjist á landi í
Kambódíu.
Bandaríska herstjórnin tilkynnti
f morgun, að 30 þúsund hermenn
frá Bandaríkjunum og Suður-Ví-
etnam hefðu tekið sér stöðu við
landamæri Laos og væru við
„hreinsun" í norövesturhluta S-
Vfetnam. Væm þeir að eyðileggja
stöðvar kommúnista á þessum slóð-
um.
Souvanna Phouma forsætisráð-
herra Laos sagði f morgun, að Norð
ur-Víetnamar og skæruliðar Pathet
Lao hefðu hafið mikla sókn í Norð-
ur-Laos. Hin konunglega höfuðborg
1
Laos Luang Prabang væri innan
skotmáls fallbyssa og sprengjukast-
ara.
Forsætisráðherrann sagði, að sér
væri ókunnugt um, að hermenn frá
Suður-Víetnam hefðu farið yfir
iandamærin inn í Laos. Hann sagði,
að bardagar yrðu að minnsta kosti
takmarkaðir við Ho Chi Minh-veg-
inn, ef Suður-Víetnamar hefðu far-
ið inn í Laos. Ho Chi Minh-leiðin
er aðalaðflutningsleið kommúnista
úr Norður-Víetnam inn f Suður-Ví-
etnam.
Forsætisráðherrann kvaðst mundu
senda mótmæli til Sovétríkjanna
og Bretlands, en þessi rfki eiga að
fylgjast með því, að haldin sé í
heiðri Genfarsamþykktin um hlut-
leysi Laos. Mundu Laosmenn mót-
mæla árás Norður-Víetnama og
sókn kommúnista.
t
Apollo 14 á braut um tungl
anda fararinnar, eftir að þeir höfðu
í gær skriðið inn í tunglferjuna.
Seinasta stefnuleiðrétting var
gerö til að tryggja, að geimfarið
kæmist á rétta braut um tungl.
— Spenna i rafhlöðu nægileg
Apollo 14 hvarf snemma í
morgun bak við tungl og
var sambandslaus viðgeim
ferðastöðina í fyrsta sinn.
I 32 mínútur vissu menn
ekki gjörla, hvort hreyfill
starfaði eins og skyldi, en
síðan kom geimfarið aftur
fram fyrir tungl og allt
hafði gengið vel.
Mitchel'l kaMaði: „Tunglið stækkar
gífurlega. Nú erum við á hnaðri
ieið niður“.
Fyrir þessa athugun hafði verið
tilkynnt, að hið eina, sem gaeti vald
ið frestun lendingar, væri, ef raf-
hlaða væri ekki í lagi.
Geimferðastöðin f Houston veitti
geimförunum f nótt leyfi til að
undirbúa lendingu á tungli, sem á
að verða á morgun. Edgar Mitchell
geimfari hafði þá tilkynnt, að raf-
hlöður væru í góðu lagi í tungl-
ferjunni. Var sú niðurstaða athug-
ana hans og A'lan Shepards, stjóm-
VOPNAHLÉ FRAM-
LENGT í MÁNUÐ?
Verksmiðjan
sprakk í tætlur
31 fórst er verksmiðja á vegum bandariska
hersins sprakk i gærkvöldi
Að minnsta kosti 31 fórst og
fjöltnargir slösuðust, þegar efna
verksmiöja í Woodbina f Ge-
orgíufylki i Bandaríkjunum
sprakk í loft upp f gærkvöldi.
Tólf starfsmanna við verk-
smiðjuna er saknað og óttazt er
um líf margra hinna slösuðu.
Fimmtíu voru taldir slasaðir
samkvæmt fyrstu fréttum, en
talið var, að margir væru grafn-
ir í rústunum. Sprengingin var
svo öflug, að verkemiðjan
sprakk f „tætlur".
Lögreglan telur, að gas hafi
waldið sprengingunni. Þetta var
magnesíumverksmiðja á vegum
hersins. Sérfræðingar hersins
voru í morgun á leið til staöar-
ins til að rannsaka málið. í þess
ari verksmiðju var meðal aim-
ars framleitt eldsneyti fyrir eld-
flaugar. Starfsfólk var um 400.
— Egypzki herinn er búinn til bardaga
Egyptar hafa fallizt á fram
lengingu vopnahlés í einn
mánuð, en það rennur út á
morgun. Þetta kemur fram
í bréfi, sem Riad utanríkis-
ráðherra Egyptalands hef-
ur ritað Rogers utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna.
Annars eru aðilar ekki alveg
sammá'la, hvenær núgildandi vopna
hlé ganga úr gildi. Telja Egyptar
það renna út nokkrum stundum
fyrr en starfsmenn Sameinuðu
þjóðanna álíta.
Anwar Sadat forseti Egyptalands
flytur ræðu f egypzka þinginu f
dag. Fréttamaöur fréttastofunnar
Reuter í Kaíró segir í morgun, að
það sé erfið ákvörðun, sem Sadat
verði að taka. — Sadat hafi
oft sagt, að hann vilji ekki
framlengingu vopnahlés, nema
ísraeismenn svari á jákvæðan
hátt kröfum Araba um, að ísraels-
menn skili aftur herteknu svæðun-
um. Hins vegar hefur U Thant
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð
anna skorað á Araba og ísraels-
menn að framiengja vopnahléð og
gefa Gunnari Jarring sáttasemjara
tækifæri til að sætta aðila.
Það verði ekki auðvelt, ef Sadat
ætli að vísa á bug tilmælum U
Thants, þvi að Egyptar styðja álvkt
un Sameinuðu þjóðanna um Mið-
Austurlönd frá nóvember 1967, en
starf Jarrings byggist á þeirri á-
lyktun.
Egypzki herinn er nú búinn til
bardaga. Flugherinn hefur verið bú-
inn nýjum sovézkum vopnum. —
Margir óttast, að ný átök hefjist,
þegar núgMdandi vopnahléi lýkur.
Egypzka þjóðin er farin að finna
ti'l hins breytta ástands. Smám sam
an munu borgir verða myrkvaðar
á nóttu. Fyrr í vikunni voru almenn
ir borgarar æfðir í hernaði með það
fyrir augum, að þeir gætu varið
borgir sínar, ef á þær yrði ráðizt.
Zetu gardínubrautir.
Ódýrasta og vinsælasta gardínu-
uppsetningin á markaönum.
meö og án kappa
fjölbreytt
litaúrval