Vísir - 25.02.1971, Page 13
V" ISIR . Fimmtíidagur 2t>. reuruar 1971.
r ?
VÍSIR ÍVI KUI .0 KIN
HANDBÓK t HHMHHHii WSh ÍÆÐi mmmmm RA NNA
VÍSIR í VIKULOKIN
fylgir aðeins til fastra áskrifenda.
Vönduð mappa getur fylgt á
kostnaðarverði.
VÍSIR í VIKULOKIN
frá byrjun er orðinn rúmlega 1450 króna
virði, 336 síðna litprentuð bók
í fallegri möppu.
VÍSiR I VIKULOKIN
er afgreiddur án endurgjalds frá byrjun
til nýrra áskrifenda.
(nokkur tölublöð éru þegar uppgengin)
í fangelsi fyrir að vera
þunguð „ólöglega44
— kafli úr nýúfkominni bók „Barn, barn, barn . .
„Tj’fekj er langt síðan Vestur-
landabúar, sem mæltu með
takmörkun bameigna í vanþró-
uöu Jöndunum, voru litnir illu
auga £ gömlu nýlendunum. Ný-
friálsu ríkin þóttust greina þar
enn eitt dæmið um eiginhags-
munastefnu ríkra þjóða í við-
skiptum við fátækar þjóðir. Á (
stfðustu 10 til 12 árum hafa við-
horfin gjörbreytzt. Leiðbeinjnga
stöðvum um fjölskylduáætlanir
hefur víða verið komið á fót,
enda hefur mönnum sikilizt að
málið varðar bæðj þjóðarheill
og foreldrahag að ógleymdum
kvenréttindum, sem í fjölmörg-
um löndum eru af skomum
skammti. Fræðsla um takmörk-
un bameigna á því ekki aðeins
eftir að stuðla að bættum kjör-
um. Hún á ekki síður eftir að
hafa áhrjf á stöðu konunnar 1
þjtiðfélaginu.
Enn er konan ekki annað en
hlutur £ mörgum vanþróuðum
löndum (tf mörgu tilliti einnig £
þróuðum löndum). Hún á helzt
ekki að hafa vilja til annars en
að sjá um börn og heimili og
vera manni sínum undirgefin.
Réttindj hennar eru nánast eng
in. Stundum er farið með hana
eins og ótíndan glæpamann. —
Dourlen-Rollier, ein af stofn-
endum frönsku hreyfingarinnar
um fjölskylduáætlanir, segir
frá þvf f bókinni Le planning
familial dans le monde, hve
staða einstæðra stúlkna, sem
eiga von á barni, er slæm í iönd
unhm fyrir botni Miðjarðarhafs
ins. Enn ber við í sumum þorp-
um, að faðir eða elzti bróðir
deyði hana. Að öðrum kosti el-
ur hún barn sitt í húsi fjölskyld
unnar. Ef lögreglan kemst hins
vegar að þvf, aö hún er þunguð
„ólöglega" er henn; stungið í
fangelsi fram að léttasótt og el-
ur hún síðan barnið á almenn-
ingsspítala. Venjulega verður
svo hin unga móðir að skiljast
við barn sitt á sjúkralhúsinu, við
dyr einhverrar mosku eða við
lögreglustöðina. Baminu er sfð-
an komið fyrir á ríkisstofnun og
litlar Ifkur eru á því, að það
eignist foreldra, því að múham
eðstrú leyfir ekki, að böm séu
tekin f fóstur og ættleidd."
Þess; kafli er tekinn upp úr
nýútkominni bók „Barn, barn,
bam ...“ sem er önnur bókin
í bókaflokknum ,,Þriðji heimur
inn“ og er eins og hin fyrri:
Tvö af hverjum þrem búa
vlö skertan hlut... hungur
er eitt af því, sem þau veröa
að þola. ►
Hungur eftir Friðrik Pál Jóns-
son, ungan mann, sem stundar
nám í Frakklandi. eins og stend
ur aftan á bókarkápu.
Bókin skiptist í eftirfarandi
kafla: 1. Barn, barn, barn...
2. „Fjölgunarsprengingin“ 3.
Kenningin um fbúafjölda 4. Fjöl
skylduáætlanir og takmörkun
bameigna (en kaflinn, sem birt
ur er hér að framan er byrjunin
á þeim kafla) 5. Skólamál í
þriðja heiminum.
Undirtitilil bókarinnar er eft-
irfarand; hugvekja: ,,Á hverj-
um sólarhring fæðast 300 þús-
und böm og búa tvö af hverj-
um þremur við skertan hlut.
Bókin er í pappírskiljubroti,
72 bls. að stærð, gefin út hjá
bökaútgáfunni Þing og kostar
út úr bókabúð kr. 175.50.